Íslendingur - 22.03.1957, Side 4
4
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 22. mar* 1957
Kemur út
hvem föstudag.
Útgefandi: Útgáfufélag íslendings.
Ritstjórí og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson. Fjólug. 1. Sfmi 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Gránufélagsgötu 4. Sími 1354.
Opin kl. 10—12, 1—3 og 4—6, á laugardögum 10—12.
PrentsmiSja Björns Jónssonar h.f.
láttvana §pnrn
Dagur segir í forustugrein sinni
í fyrradag, að Sjálfstæðisflokkur
inn hafi „gjörsamlega brugðizt
þeirri skyldu heiðarlegrar stjórn
arandstöðu að gera grein fyrir
stefnu sinni,“ og sé það eitt hi£
furðulegasta fyrirbæri í íslenzk-
um stjórnmálum síðari tíma
Þessi vanræksla flokksins sé mjög
bagaleg (líklega fyrir ríkisstjórn
ina), og síðan spyr blaðið: Hvað
vill Sjálfstæðisflokkurinn láta
gera í efnahagsmálunum?
Á öndverðu ári 1956 rauí
Framsóknarflokkurinn skyndilega
stjórnarsamvinnu við Sjálfstæðis-
flokkinn, og var höfuð ástæðan
talin sú, að vegna stefnu Sjálf-
stæðisflokksins í efnahagsmálum,
sem um of hefði vérið ríkjandi
að undanförnu, væri lífsnauðsyn
að slíta samvinnunni og leita
„nýrra leiða“ til lausnar efna-
hagsmálanna. Þær leiðir mundi
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei fá3t
til að fara, og því yrði að ein-
angra hann. Nú skyldi „brotið
blað“ í íslenzkum stjórnmálum
og sérstaklega efnahagsmálunum.
Maður skyldi ætla, að Fram-
sóknarmenn hefðu ekki tekið svo
fullan munninn um hina ófæru
stefnu Sjálfstæðismanna í efna
hagsmálunum, ef þeir hefðu ekki
haft hugmynd um, hver hún var.
og ætti því Hermann Jónasson að
geta svarað hinnj áleitnu spurn
ingu, er sækir á huga ritstjóra
Dags, en ekki er vitað, að stefna
Sjálfstæðisflokksins í þessum
málum hafi breytzt skyndilega.
Hins vegar er komið í ljós, að
hinar „nýju leiðir“ í efnahags-
málunum fundust ekki í tæka tíð,
og var því enn farið að verulegu
leyti í slóðir fyrrverandi ríkis-
stjórna í þeim efnum, enda þótt
allir andstöðuflokkar Sjálfstæðis-
flokksins legðu höfuðin í bleyti
til að reyna að finna nýju leið-
irnar^ sem „brytu blaðið“ í efna-
hagsmálunum. Þó voru nú komn-
ir í ríkisstjórn mennirnir, sem
fyrir ári síðan kunnu það ráð við
vandamálum efnahagslífsins að
láta banka, olíufélögin og skipa-
félögin leggja fram það fé, er til
þyrfti að kippa efnahagsmálun-
um í liðinn,* en einhvern veginn
sást þeim nú yfir þessi þjóðráð
og fóru hinar troðnu slóðir um
tollahækkanir.
Og þegar þeir litu y-fir allt, sem
þeir höfðu afrekað og sáu, að
nýju leiðirnar höfðu ekki fund-
izt, núa þeir hendur sínar og
spyrja í uppgjafartón: Ja, hvað
hefði stjórnarandstaðan viljað
láta gera(!)
Stefno Sjólfstæðisflokksins í
efnahagsmólum, sem um mörg
undanfarin ór hefir verið aflvaki
fromkvæmda og framleiðsluaukn-
ingar og einstaklingum hvöt til
framtaks og dóða, er í höfuðat-
riðum þcssi: Frelsi í stað hafta,
oðstoð rikisvaldsins við þó, er
stofna vilja til nýrra fram-
leiðslufyrirtækja eða koma
sér upp mannsæmandi
húsnæði. Toka tæknina í þjón-
ustu athafnalífsins og auka and-
legt og efnolegt sjólfstæði. Fram-
leiðsluaukning með bættri tækni
og hagstæðum viðskiptakjörum er
sterkasta undirstaðo blómlegs
efnahagslifs og skilyrði þess að
nauðsynlegt jafnvægi nóist í þeim
til frambúðar.
Dagur er í sömu grein með ó-
not út af því, að fyrrverandi rík-
isstjórn skuli ekki hafa verið bú-
in að sjá nýju ríkisstjórninni fyr-
ir nægilegu erlendu lánsfé til
framkvæmda næstu árin, og hann
sakar Sjálfstæðisflokkinn um að
■afa spillt lánstrausti rikisstjórn-
irinnar erlendis með því að
5enda erlendum blöðum óglæsi-
legar fréttir af stjórnarfarinu.
Þessi söngur hefir lengi verið
sunginn í stjórnorblöðunum
syðra. En enginn þarf í grafgöt-
ur um það, að krafa stjórnar-
flokkanna um varnarleysi lands-
ins og tilkoma Moskvu-kommún-
Prettvísi, eða hvað? — Er súr-
mjóllcin gerð úr undanrennu? —
Okur ríkissjóðs á heimilishljóð-
fœrum. — Engar hœkkanir, nema
hjá ríkinu!
Á S.L. SUMRI efndi norskt tízku-
fyrirtæki, Ella, til sníðanámskeiða hér
á landi, þar sem konum var gefinn
kostur á að læra að taka mál og sníða
fatnað. M.a. var námskeið þetta hald-
ið hér á Akureyri.
Konurnar greiddu fyrirfram 50
krónur fyrir námskeiðið, en 6Íðar
skyldi þeim send sníðabók og mál-
band, er þær greiddu gegn cftirkröfu,
en án bókarinnar og málbandsins
höfðu þær ekkert gagn af námskeið-
inu.
Síðan eru liðnir mánuðir, og hafa
aðeins fáar konurnar fengið bókina
senda og innleyst hana, en málbandið
var ókomið fyrir skemmstu. Ilefir
þetta að sjálfsögðu vakið réttláta
gremju hjá viðkomandi konum, og
hafa þær snúið sér til umboðsmanns
fyrirtækisins hér á landi, sem er dansk-
ur klæðskeri í Reykjavík. Kveður
ista i ríkisstjórn hefir óhjókvæmi-
lega spillt lónstrausti íslands sem
og öðru trausti meðal vestrænna
þjóða. Og þótt Sjólfstæðisflokk-
urinn njóti af eðlilegum óstæðum
meira trausts meðal lýðræðis-
þjóða úti i heimi en aðrir is-
lenzkir stjórnmólaflokkar, er það
broslega fróleit kenning, að hann
stjórni penna ritstjórcnna við
stórblöð heimsins.
Hverjir felldu frumvarpið?
Dagur segir frá afdrifum frum-
varpsins um HúsmæSrakennara-
skólann í Efri deild Alþingis, og
birtist frásögnin 13. marz. Eftir
að liafa vikið nokkrum orSum að
þeim reykvísku konum, sem held-
ur vilja leggja skólann niður en
halda hann utan Reykjavíkur,
bætir hann við þessum bugleið-
ingum:
„ASeins 1 Sjálfstæðismaður
mætti við atkvæðagreiðsluna og
greiddi liann alkvæði á móti. Er
sárt til þess að vita, að margir
þingmenn dreifbýlisins skuli svo
ánetjaðir áhrifavaldi höfuðborg-
arinnar og skrautlega búnum
konum, að þeir steingleyma stór-
um orðum um jafnvægi í byggð
landsins.“
Af skiljanlegum ástæðum geng-
ur Dagur fram hjá aðalatriði
málsins, því, að einu andmælend-
urnir í deildinni voru tveir Fram-
sóknarþingmenn: Sigurvin Ein-
arsson og Páll Zophoniasson.
Þriðji Framsóknarmaðurinn, sem
vann með atkvæði sínu að því að
fella frumvarpið, var hinn ungi
seyðfirzki Framsóknarþingmað-
ur Björgvin Jónsson. Framsókn-
armenn lögðu þannig fram 3
þingmenn til að fella frumvarp-
ið.
Hefðu hins vegar Austfjarða-
þingmennirnir Póll og Björgvin
ekki ónctjast hinum skrautlega
búnu konum og steingleymt stóru
orðunum „um jafnvægi í byggð
landsins" en í þess stað greitt at-
kvæði MEÐ frumvarpinu, mundi
það hafa verið samþykkt i deild-
inni og væntanlega orðið oð lög-
um.
Dreifbýlismaðurinn Páll Zop-
honiasson hélt því fram í and-
mælum sínum, að þóll finna
mætti góða kennslukrafta á Ak-
ureyri, þá ieituðu þeir beztu allt-
af suður, og því væri kennaraval-
ið bezt í Reykjavík. Einnig taldi
hann, að Akureyringum væri nær
að reyna að dubba upp sinn Hús-
mæðraskóla en að vera að seil-
hann sig hafa staðið' í bréfaskiptum
við Ella-fyrirtækið úl af þessum van-
efndum, en ekkert komið út á það
nema góð orð og fyrirheit um úrbæt-
ur. Hefir hann skýrt svo frá, að hann
sé nú að undirbúa málshöfðun gegn
fyrirtækinu vegna prettanna.
„SÚRMJÓLKURNEYTANDI" hefir
tjáð mér, að sér hafi verið sagt, að
súrmjólk sú, sem seld er hér frá Sam-
laginu, sé ekki venjuleg súrmjólk,
heldur sýrð undanrenna, og blandi því
margir liana rjóma. Flestir niunu þó
hafa litið svo á, að hcr væri um venju-
lega 'súrmjólk að ræða, og ráðið það
bæði af verðinu á henni og nafninu
súrmjólk. — Það er því æskilegt
að fá úr því skorið, livort þetta er
rétt hermt, því að sjálfsögðu skiptir
það verulegu máli um næringargildi
súrmjólkurinnar, hvort liún er fram-
leidd úr undanrennu eða nýmjólk, þótt
hollusta hennar og læknisdómur (ef
nota má það orð) kunni að vera á-
þekkt. Annars virðist verðlagið vera
fremur rniðað við nýmjólk en undan-
rennu.
TVEIR SJÁLFSTÆÐISMENN bafa
á undanförnum þingum flutt tillögu
um afnám tolla á heimilishljóðfærum,
þar sem urn væri að ræða menningar-
tæki, er ekki ætti skylt við „lúxus-
varning". Alþýðublaðið skýrir svo ný-
lega frá því, að fjárhagsnefnd efri
deildar Alþingis leggi til, að verðtoll-
ur á flyglum, orgelum, slaghörpum og
strengjahljóðfærum verði lækkaður úr
50% í 30%. Lætur blaðið fylgja frétt-
inni, að slík tollalækkun mundi hafa í
för með sér „verulega lækkun á öllum
hljóðfærum."
HÆTT ER VIÐ, að blaðinu sjáist
þarna yfir nýju tollana og aðflutnings-
gjöldin, því að þeir hafa mjög veruleg
áhrif á verð hljóðfæra. Hefir tónlistar-
vinur einn hór í bæ sagt mér, að með
lýju tollunum ntuni verð á einni al-
gengri tegund af slaghörpum hækka
úr rúmum 30 þús. krónum í ca. 45 þús.
krónur, og má þá telja, að nýju álög-
urnar leggi algjört innflutningsbann á
þessa gripi. Eða er líklegt, að nokkur
heimili rísi undir því að verja árstekj-
um heimilisföðurins í eitt einasta
hljóðfæri?
RÍKISSTJÓRNIN og blöð hennar
halda því mjög á lofti, að stjórnin hafi
stöðvað allar verðhækkanir í landinu.
Þetta er þó ekki að öllu leyti rétt. Olí-
ur og benzín hækkaði í verði, cn fyrir
því munu vera nokkur rök. Ilins vegar
Framhald á 6. síðu.
ast eftir Húsmæðrakennaraskól-
anum.
Það situr ekki á Degi að vera
með ónot í garð Sjálfstæðis-
manna út af afgreiðslu nefnds
frumvarps, meðan hann lætur
undir höfuð leggjast að hirta
Framsóknarmennina þrjá, sem
börðust gegn frumvarpinu í Efri
deild. Þess má og geta, að meðal
f j arverandi deildartnanna var
I Hermann Jónasson forsætisráð-
, herra og formaður blaðstjórnar
, Tímans, en það blað hefir öðr-
um blöðum fremur haft hljótt
l um sig í sambandi við málefni
Húsmæðrakennaraskólans.
V ísnabálkur
Hér eru fyrst nokkrar stökur
eftir Jón G. Sigurðsson í Hof-
görðum:
Breiðuvík á Snœfellsnesi.
Vilji gæfan gjafarík
gæði þér ei veita,
bústaðar í Breiðtivík
bezt er þá að leita.
Kveðið til tannlœknis.
Sé þér nokkur leikni léð,
lærdóms sýndu kraftinn.
Traustum skrúfum tylltu með
tönnunum í kjaftinn.
Tannlaus get ég fundið frið,
fer það upp í vana.
Litlu skár mér líkar við
lausu tanngarðana.
Undir Jökli.
Einatt svífur öndin frjáls
undir Snæfellsjökul.
Eins og geislar árdagsbáls
ung og morgunvökul.
Þá er hér nýleg vísa eftir ó-
nefndan höfund:
Margt er það, sem mér í hug
misjafnt komið getur.
Þótt ég vísi því á bug,
það hefir alltaf betur.
Hugleiðing um „atomljóð“.
„Atomljóðin" eru góð,
— eg ei það rengi.
Þó viti skammt, mér virðist samt,
þeim vaxi ei gengi.
Þau eru byggð af engri tryggð
við óðarhætti.
Brjóta lög á Braga mjög,
af bezta mætti.
Aður fyr var enginn styr
um orðin högu.
Ljóðin hrein eru listagrein
í landsins sögu.
St. G.
Og að lokum einn fyrri hluti,
aðsendur, sem lesendum er ællað
að botna:
llvað hafa Rússar marga myrt?
myndi einhver geta spurt.
Happdrætti Hóskólans.
Vinningar í 3. flokki, Akureyrarum-
boð. (Birt án ábyrgðar):
10 þús. kr. komu á nr. 8027.
1 þús. kr. vinningar komu á eftirtal-
in númer: 204, 4347, 4660, 4663, 4674,
5011, 5018, 6017, 7251, 7255, 7263,
8277, 8518, 8847, 9056, 9183, 11176,
11718, 11881, 11985, 12051, 12081,
12196, 12439, 12685, 13387, 14032,
14197, 14394, 14927, 15246, 17325,
18988, 19013, 19019, 19060, 20506,
21728, 22092, 22137, 22145, 22731,
22916, 23012, 23015, 23874, 24772,
25949, 25953, 26308, 27221, 28686,
28698, 28869, 28875, 29316. 33401,
35060, 35578, 36488,