Íslendingur - 16.05.1958, Blaðsíða 1
Arabiskar flóttakonur að hannyrSum.
Eftir aS Gy'SingarUdS ísrael var stofnað, hejir mikill fjöldi Araba flúiS úr
Palestínu. Nú eru 900.000 arabiskir flóttarnenn á vegum Flóttamannastofnunar
SameinuSu þjóSanna, sem sér þeim fyrir mat og lœknishjálp og hjálpar einnig
þeim, sem eru aS reyna aS koma undir sig fótunum. Flóttamennirnir eru einkurn
í Gaza, Jórdaníu, Líbanon og Sýrlandi. Flóttamannastofnunin hefir komiS 360
þúsund þeirra fyrir í sérstökum búSum og kostar skólagöngu um 170 þúsund
barna. Á myndinni sjást jlóttakonur aS sauma út í dúka sína.
Atetluð griianetníng DO þúsund
pluntna ó þessa srnnri
Án sjálfboðavinnu yrði skógræktin
hægfara
Stjórn Skógræktarfélags Eyfirð-
inga ræddi við blaðam^nn á Ak-
ureyri síðastliðinn sunnudag og
skýrði frá starfsemi þess og starfs-
áætlunum og einstakra deilda
þess. Hafði framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Ármann Dalmannsson
einkum orð fyrir fundarboðend-
um, en auk þess ræddi formaður
félagsins, Guðmundur Karl Pét-
ursson nokkuð um skógræktina
og þýðingu hennar.
Ármann gat þess í upphafi, að
hin kalda tíð að undanförnu hefði
raskað áður gerðri áætlun um
gióðursetningarferðir f élagsins,
og mundu þær hefjast síðar en
ætlað var. En fyrst um sinn
mundu farnar slíkar ferðir í
Kjarnaland þrisvar í viku, á
mánu-, þriðju- og fimmtudags-
kvöldum. Farið yrði frá Hótel
KEA kl. 7.20 síðdegis, og sér fé-
lagið um ókeypis flutning á sjálf-
boðaliðum. Á laugardögum verð-
ur farið í reiti félagsins, sem fjær
liggja og þá farið fyrr að degi.
Á morgun er áætluð ferð í Vaðla-
skóg, 24. maí í Miðhálsstaði, en
7. júní verður hinn árlegi Þor-
steinsdagur, og þá væntanlega far-
ið í Miðhálsstaði. Daginn eftir,
sunnudag 8. júní, verður sérstak-
ur gróðursetningardagur UMSE.
Félagið og deildir þess hafa
hug á að gróðursetja allt að 80
þús. plöntur í vor, en úr uppeldis-
stöðinni í Kjarnalandi fást milli
40 og 50 þúsund. Þar af munu
nokkur þúsund verða seldar ein-
staklingum sem garðplöntur. I
vor verður sáð í 500 fermetra, og
standa vonir til, að eftir 4 ár geti
ársframleiðsla uppeldisstöðvar-
innar nálgast eða náð 100 þús.
plöntum.
Mest unnið í Vaðlaskógi
Skógræktarfélagið hófst einna
fyrst handa urn gróðursetningu í
Vaðlaskógi, þ. e. í hrekkunum
austan fjarðarins, gegnt Akur-
eyri. Hófst það starf fyrir fullum
20 árum. Hafa þar nú verið gróð-
ursettar 130800 plöntur, og eru
farin að finnast þar nokkurra
metra há tré. í Kjarnalandi hafa
verið gróðursettar 93642 plöntur
í landi Skógræktarfélags Akur-
eyrar og rúmlega 34 þús. i landi
Skógræktarfélags Eyfirðinga, en
þar var fyrst byrjað vorið 1952.
Framh. á bls. 2
»Bjargrdðafrumvarpið« komið fyrir
olþingi
*
A að gefa hálfan milljazð í auknum
eða nýjum sköttum. Ný verðþensla
óhjákvæmileg afleiðing
Á þriðjudaginn lagði rikisstjórnin loks fram á Alþingi tillögur sín-
ar í efnahagsmálunum, sem almennt hafa verið nefnd Bjargráðin. Er
það gífurlegur lagabálkur, sem hér er ekki rúm til að rekja, og mun
reynast flókinn og erfiður í framkvæmd fyrst í stað.
Tónlistarvikan
Vikan 4.—10. maí var við-
burðarík hér á Akureyri. Tónlist-
arfélagið minntist 15 ára afmælis
síns með þrem söngkvöldum, og
gat það vart minnst þess á eftir-
minnilegri eða smekkvísari hátt.
Leikfélag Akureyrar frumsýndi 4.
sjónleik sinn á leikárinu, og stofn-
aður var félagsskapur til að koma
upp minningasafni um þjóðskáld-
ið Matthías Jochumsson. Þetla
varð því sannnefnd listavika:
vika tónlistar, leiklistar og ljóð-
listar. Þar vantaði ekkert á, ann-
að en að myndlistarsýning hefði
þá einnig staðið hér yfir.
Tónlistarvikan hófst með ein-
söng frú Þuríðar Pálsdóttur á
sunnudaginn. Oll tónleikakvöldin
var livert sæti skipað í Nýja Bíó,
enda fylla nú félagar, styrktarfé-
lagar og gestir T. A. svo að segja
öll sæti í húsinu. Frú Þuríður
liafði 14 söngverk á skránni, þar
af 5 íslenzk lög og tvær aríur, og
varð hún að endurtaka nokkur
þeirra og syngja aukalög. Ekki
verður hér farið út í að meta eða
gera upp á milli túlkunar ein-
stakra laga þessara þriggja ágætu
listamanna, — til þess er hvorki
rúm eða „fagleg“ þekking, en erf-
itt var að meta, livort hrifningin
var rneiri eitt kvöldið eða annað.
Ungfrú Guðrún Á. Símonar
söng á miðvikudagskvöldið. Voru
10 viðfangsefni á skránni, 4 ís-
lenzk og tvö óperuverk, en síðan
sungu ungfrúin og Guðmundur
Jónsson 3 dúetta úr þekktum óper-
um (eftir Mozart og Pucchini).
Nokkur laganna varð að endur-
taka.
Síðasla kvöldið söng svo Guð-
mundur Jónsson með 12 verk á
söngskrá, þar af 5 íslenzk lög og
aríur úr Rigoletto og II Trovatore
eftir Verdi. Ennfremur brezk og
amerísk þjóðlög, en þar viðhafði
hann þá nýlundu liér að lesa á-
heyrendum efni textanna á und-
an laginu, en slíka kynningu hefir
hann oft haft með höndum í Rík-
isútvarpinu. Fer sjálfsagt vel á
því, að fleiri söngvarar, sem
kynna erlend ljóð og lög, tækju
þann hátt upp. Þá söng Guðmund-
ur nokkur aukalög, m. a. eitt eftiv
fonnann Tónlistarfélagsins, Stef-
án Ág. Kristjánsson.
Akureyringurinn Guðrún Krist-
insdóttir annaðist undirleik, og
var það engu síður góð listkynn-
ing af hálfu félagsins en söngur
hinna ágætu söngvara.
<—xxxxu—»
Frumvarpið nefnist Frumvarp
til laga um Útflutningssjóð, og er
upphaf frumvarpsins um hlutverk
sjóðsins óbreytt, frá því sem var.
Frumvarpið gerir ráð fyrir, að
Útflutningssjóður greiði 80%
uppbætur á útfluttan fisk og fisk-
afurðir, 70% á Faxasíld og 50%
á Norðurlandssíld, 80% á útflutt-
ar landbúnaðarafurðir að tiltekn-
um viðbótum. Togaraflotinn nýt-
ur þá sömu uppbóta og vélbáti-
flotinn.
Almenn laun hækki 1. júní um
5—7% (grunnlaun) en verðlags-
uppbót þá fyrst, er vísitalan hefir
náð 200 stigum. Bætur frá Al-
mannatryggingum hækki um 5%,
verðuppbót á fiski til hlutarsjó-
manna um ca. 5% og hækkun á
afurðaverði til bænda um sama
hlutfall.
Til að afla tekna í Utflutnings-
sjóð skal taka yfirfærslugjald af
öllum vörum, 30% af þeim, er áð-
ur voru undanþegnar gjaldinu
eða 16% var greitt af, en 50% af
öðrum vörum.
Innheimt verði áfram innflutu-
ingsgjald af flestuin sömu vöru-
flokkum og áður 22—62%.
Innheimt verði áfram 6% gjald
af ýmissi veltu og þjónustu.
Innheimt verði gjald af inn-
lendum tollvörutegundum 150%,
er áður var 80%.
Leyfisgjald af bifreiðum hækki
úr 125% í 160%.
Innheimt verði áfram 10%
gjald af farmiðum til útlanda og
10% af tryggingum.
Lagt verði á benzíngjald, 62
aurar á lítra. Renni 6 aurar í
brúasjóð, 6 aurar í fjallvegasjóð
og 50 aurar í Útflutningssjóð.
Álag á ferðagjaldeyri hækki úr
57% í 101%.
Greiddar verði yfirfærslubætur
55% á greiðslur frá útlöndum, t.
d. til erlendra manna, er hingað
koma til dvalar eða ferðast um
landið. Áhafnir skipa og flugvéla,
sem fá hluta launa sinna greiddan
í erlendum gjaldeyri, greiði 55%
yfirfærslugjald. Vinnulaun er-
lendra manna hér á landi til 14.
maí þ. á. eru undanþegin yfir-
færslugjaldi.
Hér verður ekki tekið meira
upp úr frumvarpinu að þessu
sinni. En ljóst liggur það fyrir, að
við samþykkt þess fer í hönd ný
verðhækkunaralda, sem kallar á
nýjar ráðstafanir innan tíðar, og
er þetta því engin frambúðarlausn
á efnahagsmálunum, sem stjórn-
arliðið lofaði að finna eftir opin-
bera úttekt erlendra sérfræðinga á
þjóðarbúinu, — úttekt, sem eng-
inn veit, hvort fram hefir farið.
_____________.*____
Kosningar til
Bónaðarþings
fara fram sunnudaginn 29. júuí
n. k. jafnframt sveitarstj órnar-
kosningum. Kjósa á 2 Búnaðar-
þingsfulltrúa og 2 til vara fyrir
Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Hafa komið fram tveir listar; ann-
ar borinn fram af meirihluta full-
trúa á aðalfundi sambandsins, og
skipa hann þessir:
1. Ketill Guðjónsson, Finnastöð-
um,
2. Garðar Halldórsson, Rifkels-
stöðum,
3. Helgi Símonarson, Þverá,
4. Sigurjón Steinsson, Þórodds-
stöðum.
Hinn listinn er borinn frarn af
40 meðmælendum úr búnaðarfé-
lögunum og skipa hann þessir:
1. Árni Jónsson, Háteigi,
2. Árni Áshjarnarson, Kaupangi,
3. Eggert Davíðsson, Möðruvöll-
um,
4. Jón Gíslason, Hofi.
□