Íslendingur


Íslendingur - 16.05.1958, Síða 2

Íslendingur - 16.05.1958, Síða 2
2 ÍSLENDINGUR Föstudagur 16. maí 1958 Barnaskóliinum siitii Barnaskólinn á Ákureyri. Skólanum var slitið laugardag- inn 10. maí að viðstöddum mörg- um gestum. Skólastjóri, Hannes J. Magnússon, flutti ræðu og gaf skýrslu um starf skólans síðast- liðið skólaár. í skólanum voru 784 börn í 29 deildum. Kennarar voru 25. Asíuinflúenzan kom í nóvember og linnti ekki fyrr en eftir áramót. Var skólanum lokað í viku hennar vegna. Annars var ágætt heilsufar í skólanum. Af kvillum bar mest á tannskemmd- um. Aðeins 81 barn höfðu allar tennur heilar. Um 170 börn nutu ljósbaða í skólanum, og öll börn fengu vítamíntöflur daglega. Eins og að venju fóru fram margar íþróttakappleikir innan skólans. Allt sveitakeppni milli bekkja. Keppt var í þessum grein- um: Sundi, handknattleik, skíða- boðgöngu, svigi, fimleikum drengja, fimleikum stúlkna, og var keppt um farandbikara í öll- um greinum. Skólabörn gáfu út að venju rit- ið Jólasveininn og seldu hann í bænum. Ágóðanum var varið til að gleðja fátæk börn um jólin. Ársskemmtun sína héldu skóLr- börnin í marz, og var hún vel sótt. Alls voru 6 opinberar sýnjngar. Ágóði af henni rennur í ferða- sjóð skólans. Lestrarstofu skólans sóttu 1020 börn, en hún er opin 6 stundir í viku. Sú nýbreytni var tekin upp í vetur, að nokkrum börnum var gefinn kostur á að læra fiðluleik. Kennari var ungfrú Gígja Jó- hannsdóttir, fiðlukennari við Tóu- listarskóla Akureyrar. Voru í þeirri sveit 14 börn. Skólinn á sjálfur fiðlurnar og lánar þær börnunum. Þá hefur Akureyrarbær keypt hljóðfæri handa 19 manna lúðra- sveit, sem tekur til starfa í haust. Hljóðfærin eru komin, en þau komu svo seint, að ekki var unnt að byrja rteitt á þessu skólaári. Hæstu einkunn á ársprófi hlaut Auður Stefánsdóttir í 5. bekk, 9.12, en hæstu einkunn á barna- prófi hlaut Guðrún Árnadóttir, 9.47. 118 börn luku barnaprófi og hlutu 17 ágætiseinkunn, 81 1. einkunn og 21 II. einkunn. Aðeins 1 barn átti eftir að ljúka sundprófi, en örfá höfðu fengið undanþágu með læknisvottorði. Bókaverðlaun frá Bókaforlagi Odds Björnssonar fyrir beztu rit- gerðir við barnapróf hlutu að þessu sinni: Steinunn Ingigerður Stefánsdóttir, Regína Ragnars- dóttir og Gréta Mörk Karlsdóttir. í skólanum voru keypt spari- merki fyrir rúinar 32 þús. krónur. Að lokum ávarpaði skólastjóii brautskráða nemendur og talaði um trúmennskuna. Hann lauk máli sínu með þessum orðum: „Bið og vinn“ sögðu gömlu munkarnir. Biðjið og vinnið. — Vinnið vel, á meðan þið sitjið á skólabekk, og vinnið vel, þegar þið komið út í lífið og starfið. Oddeyrarskólinn. Oddeyrarskólanum á Akureyri var slitið 10. maí, og var þetta fyrsta starfsár skólans. Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri skýrði frá skólastarfinu og úrslitum prófa. Fyrstu tvo mánuði vetrarins var kennsla í tveimur stofum á Oddeyri, meðan skólahúsið nýja var ófullgert, og var þá flestum deildum kennt annan hvorn dag. Þann 11. október fóru kennarar með 5. og 6. bekki skólans í náms- för að Hrauni í Öxnadal og Möðruvöllum í Hörgárdal. En þetta eru fæðingarstaðir skáld- anna Jónasar Hallgrímssonar og séra Jóns Sveinssonar (Nonna), en þeir áttu báðir merkisafmæti þann 16. nóvember sem kunnugt er. En 7. desember var flutt í nýja skólahúsið og fór þá fram skóla- setning. I skólanum voru í vetur 237 börn í 10 deildum. Kennarar vom 6 auk skólastjóra og einn stunda- kennari. Tveir foreldrafundir voru haldnir í janúar, og voru þeir vel sóttir. Síðar um veturinn var haldin kvöldvaka í skólanum fyrir foreldra barnanna. Þegar hinn nýi skóli tók íil starfa átti hann svo að segja ekk- ert af bókum. Tvö útgáfufélög og nokkrir einstaklingar gáfu honum bækur. En mest munaði þó um gjafir barnanna, því að þau gáfu skólanum 450 barnabækur, og eignaðist skólinn þar gott bóka- safn. Var lesstofa opnuð fyrir börnin í janúarmánuði. Lesstofu- gestir urðu alls 658. Fleiri gjafir bárust skólanum frá velunnurum sínum. Skólaskemmtun var haldin í skólanum í marz byrjun, og var hún vel sótt. Ágóðinn gekk í ferða- sjóð barnanna. Um sama leyti var geíið út blaðið „Eyrarrós“, og var meginefni þess ritgerðir frá nemendum. Ágóði af sölu þess gekk einnig í ferðasjóðinn. Sparifjórsöfnun skólabarna fór fram 1 skólanum, og voru seld sparimerki fyrir 15.300 krónur. Heilsufar var gott, að því undan- skildu að loka varð skólanum í viku vegna inflúenzu. Börnin fengu vítamíntöflur daglega. Barnaprófi iuku 28 börn. — Hæstu einkunn á barnaprófi hlaut Ásrún Baldvinsdóttir, 9,15. Karl Jónasson, prentsm.stjóri, . gaf 4 bækur til verðlauna fyrir náms- afrek. Verðlaunin hlutu þessi börn: Jakob Olsen, Ásrún Bald- vinsdóltir, Stefán H. Gunnlaugs- son og Ingibjörg Tryggvadóttir. Prófdómari við barnapróf var frú Kristbjörg Pétursdóttir. Skólastjóri ávarpaði braut- skráða nemendur og lagði áherzlu ó að glata ekki sjálfum sér í há- vaða og erli nútímans, en vera jafnan sannur gagnvart sjálfum sér og öðrum. Sýning á leikningum barnanna, vinnubókum og handavinnu var í kennslustofuin skólans við skóla- slit og einnig daginn eftir, sunnu- daginn 11. maí. Skógræktin Framh. af 1. síðu. Hið sama vor var byrjað að gróðursetja í Miðhálsstaðaland í Öxnadal, en þar eru allt að 32 þús. plöntur. Mælingar á írjám. Félagið hefir látið mæla ýmsar trjátegundir af ýmsum aldri. I Gróðrarstöðinni við Akureyri var mælt um 50 ára gamalt síberiskt lerki. Var meðalhæð 10 trjáa 10.22 m., en meðalþvermál 22.5 sm. Meðalársvöxtur um 20 sm. Rauðgreni af líkum aldri mældist 8.18 in. að meðaltali og meðal- órsvöxtur 15 sm. Lindifura í Grundarskógi reyndist vaxa um 12 sm. á ári. Hraðvöxnust er Al- askaöspin, sem frá 1951 hefir reynzt 3.38 m. að meðaltali, en á henni hafa fundizl 86 sm. ársprot- ar. Skógræktardeild barna. Tryggvi Þorsteinsson skýrði frá því, að í barnaskólanum á Ak- ureyri starfaði sérstök skógrækt- ardeild 11—13 ára barna,- sem orðið hefði starfsemi Skógræktar- félagsins að liði, og mundi þetta vera eina deildin á landinu meðal skólabarna. Ekki væri vænlegt, að yngri börn en 11 ára ynnu að gróðursetningu. Þá sneri Skógræktarfélag Ak- ureyrar sér til ýmissa félaga og starfshópa í bænuin í fyrravor og óskaði stuðnings þeirra við gróð- ursetningarstarfið. Bar þetta nokkurn árangur, en eftir því sem félagið færist meira í fang eykst að sjálfsögðu þörfin fyrir sjólf- boðavinnu einstaklinga og félaga við gróðursetninguna. Öllum þeim áhugamönnum, sem stult bafa félagið með vinnu og flutn- ingum á gróðursetningarfólki er félagið þakklátt og væntir áfram- haldandi og aukins skilnings al- mennings í orði og verki á starf- inu. Það hefir verið lauslega áætl- að af forustumönnum skógrækt- armálanna, að sjálfboðastarfið nemi um 2 krónum á móti hverri 1 krónu, er hið opinbera leggur fram til skógræktarinnar. En Glerárhverfisskólinn. Barnaskóla Glerárhverfis var sagt upp laugardaginn 10. maí kl. 2 e. h. Skólastjórinn, Hjörtur L. Jónsson, flutti skólaslitaræðu, þar sem liann áminnti börnin að á- stunda iðjusemi og tileinka sér kristilega lífsskoðun. Skýrði hann frá störfum skólans á liðnum vetri. í skólanum voru 97 börn og luku 16 þeirra burtfararprófi. Hæstu einkunn hlaut Snjólaug Þóroddsdóltir, Bergsstöðum, 8.20 stig. 4 börn hlutu bókaverðlaun fyrir ágæta hegðun. Sparifjór- söfnun nam 6.700 kr. Að lokum afhenti skólastjóri prófskírteini, þakkaði samvinn- una á vetrinum og sagði skólan- um slitið. Hmkur Snerrason. rítstjirí andaðist í Hamborg s. 1. laugar- i dag, þar sem hann var á ferð með tveim öðrum blaðamönnum í boði Bonn-stjórnarinnar. Barst sú fregn hingað s. I. sunnudag, ' að liann hefði veikzt skyndilega sl. föstudag og lótizt á laugardags kvöld. Þótt Haukur Snorrason væri ekki heill lieilsu, kom þessi fregn mjög á óvænt. Sem blaðamaður hafði hann unnið mikið starf, oft; lagt nótt með degi eins og ötulir og önnum hlaðnir blaðamenn þurfa tíðum að gera. Fór hann margar ferðir út um lönd, vestan hafs og austan, bæði meðan liann var ritstjóri Dags, og eftir að liann réðist í þjónustu Tímans sem annar aðalritstjóri blaðsins. Ilaukur Snorrason fæddist á Flateyri við Onundarfjörð 1. júlí 1916 og var því tæpra 42 ára að og Félagstíðinda KEA. í Mennta- málaráði Islands ótti hann sæti síðan 1954. Haukur var kvæntur Elsu Frið- finnsdóttur, og áttu þau 3 börn. Hann vakti snemma athygli fýrir ötulleik og smekkvísi í aldri. Foreldrar hans voru hjónin blaðamennsku, var fljótur að til- Guðrún Jóhannesdóttir og Snorri einka sér erlenda tækni við um- Sigfússon skólastj óri: Um ferm-1 brot blaða og svipmót þeirra, og ingaraldur fluttist hann hingað lék hvert verk varðandi almenna til Akureyrar, er faðir hans tók við Barnaskólanum hér, og átti hér heima síðan, unz hann tók við ritstjórn Tímans fyrir 2 árum. Hann lauk gagnfræðaprófi við Menntaskólann og síðan verzlun- arprófi við samvinnuskóla í Bret- landi. Gerðist síðan starfsmaður hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, var þar gjaldkeri og síðar fræðslu- stjóri. Hóf litlu síðar blaða- j liarmur kveðinn að eiginkonu og mennsku við Dag, meðan Ingimar j börnum, systkinum og öldruðum Eydal var aðalritstjóri, en tók við föður. Og íslenzkum blaðamönu- ritstjórn blaðsins, er Ingimar lét j um þykir einnig skarð fyrir skildi af starfi. Þá var hann jafnframt við hið sviplega fráfall hans. blaðamennsku í höndum hans. Það vakti því enga furðu, þótt aðalmólgagn Framsóknarflokks- ins vildi fá hann í þjónustu sína, enda breytti það mjög um svip, er Haukur gerðist ritstjóri þess. Ilaukur liafði flesta þá kosti til að bera, sem á erlendu máli or kallað „Journalist“. Við fráfall hans er þungur ritstjóri Samvinnuimar um skeið | /. O. P. girðingar um skóglönd og við- hald þeirra kostar miklar upp- hæðir, svo og plöntuuppeldi og skógvarzla. Við höfum hvorki herskyldu nc þcgnskylduvinnu. Því ætti okkur að vcra Ijúft oð tako þótt í hernaðinum innanlcnds gegn uppblæstri landsins með þvi að klæða það skógi og græða cyðisanda og blósna jörð. Þcgar land- ið hefir verið grætt þeim sórum, er mannshöndin og stormornir hafa vcitt því um oldir, verður það feg- urra, hlýrra og byggilegra. Og hví skyldum við ekki leggja ó okkur að gróðursctja nokkrar trjóplöntur eina eða tvær dogstundir ó óri i því skyni? Þótt við sjóum e. t. v. ekki mikinn órangur af þvi starfi þcgar i stað, er það verk unnið börnum okkar — næstu kynslóðum. Vantar unglingsstúlku 14—16 ára til heimilisstarfa yfir suinarmánuðina. Marta Sveinsdóttir Helga-magrastr. 28 Sími 1035. Körfuknatíleiksmót Akureyrar er nú lokið, en úrslitum fyrstu leikjanna licfir óður verið getið í blaðinu. Síðan hafa þessir leikir verið háðir: B-lið KA gegn C-liði 32 : 28. A-lið KA gegn Þór 101 : 47. A-lið KA gegn B-liði 73 : 34. A-lið KA varð Akureyrarmeist- ari á 8 stigum. Þór hlaut 6 stig og ÍMA 4 stig. í A-liði KA léku þessir menn: Skjöldur Jónsson, Hörður Till- inius, Axel Clausen Jónasson, Garðar Ingjaldsson, Jón Stefáns- son og Hcrmann Sigtryggsson. Körfuknattleikur er tiltölulega ný íþróttagrein hér í bæ, en virð- ist eiga ört vaxandi vinsældum að fagna. Straub heimapermanent Toni hárliðunarefni Nestle hárliðunarefni Permanentspólur margar tegundir. Vörusalari Hafnarstræti 104

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.