Íslendingur


Íslendingur - 16.05.1958, Qupperneq 8

Íslendingur - 16.05.1958, Qupperneq 8
KAUPENDUR vinsamlega beðnir að tilkynna af- greiðslunni strax, ef vanskU eru á blaðinu. Föstudagur 16. maí 1958 5. síðan í dag: Atvinnuréttindi handa ís- lendingum á Grænlandi. 90000000000000000000»0«X Úr heimahögum »»oooo»oooooooooooo»oo<^^ MessaS í Alcureyrarkirkfu, n.k. sunnu- clag kl. 2 e.h. Sálmar nr.: 240 — 384 — 243 — 314 — 684. — Séra Bragi FriS- rilcsson prédikar. — P. S. I. O. O. F. — 1405168% — Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 5 verður sett í kapellu kirkjunnar iaug- ardaginn 17. maí kl. 5 e. h. MœSradagurinn er á sunnudaginn kemur. Þá verða seld mæðrablóm á götum bæjarins og einnig verður Blómabúð KEA opin kl. 10—12 f.h. til blómakaupa. — Almenningur er hvatt- ur til að kaupa blómin og gera þannig fjársöfnun mæðradagsins sem mesta. Karlakór Akuieyrar hélt samsöng í Nýja Bíó í gær og syngur þar aftur á morgun kl. 5. Söngstjóri er Áskell Jóns- son og undirleikari Guðrún Kristins- dóttir. ÁttrœSur varð sl. föstudag Hallgrím- ur Jónsson járnsmiður, Lundargötu 4. Frá kristniboSshúsinu Zíon. Almenti samkoma verður á sunnudag kl. 8.30 e.h. Allir velkomnir. BifreiSaskoSun. 1 dag eiga að mæta til skoðunar A-901—975. — Mánudag: A-976—1050. — Þriðjudag: A-1051— A-1225. VallarráS hefir beðið blaðið fyrir þau vinsæmlegu tilmæli til bæjarbúa, að forðast átroðning um íþróttaleik- vanginn, einkum grasvöllinn. Leikvang- urinn á að vera hvort tveggja í senn til bæjarprýði og til fyllstu nota fyrir í- þróttaæsku bæjarins. — Þess vegna ættu allir að finna hvöt hjá sér trf-þess að afstýra skemmdum á grasvellintim og verja svæðið fyrir óþarfa átroðn- ingi. Náttúrulœkningafélag Akureyrar hef- ir kynningarkvöld í Húsmæðraskóla Akureyrar sunnudaginn 18. maí kl. 4 e. h. — Úlfur Ragnarsson læknir, Hveragerði, flytur erindi. — Félagar eru beðnir að fjölmenna og taka með sér gesti. — Vinsamlegast talið við Jón Kristjánsson, Spítalaveg 17, sími 1374, eða Pál Sigurgeirsson, Vöruhúsinu h.f., sími 1420. — Stjórnin. TOGARARNIR Kaldbakur fór á veiðar frá Reykjavík síðastliðinn laugardag eftir viðgerð og slipp. Mun veiða í salt við Vestur-Grænland. Svalbakur var væntanlegur af veiðum í morgun. Harðbakur kom af veiðum 8. maí sl. Landaði í frystihúsið 203 tonnum af ísvörðum fiski. Fór aftur á veiðar sl. mánudagskvöld. Sléttbakur kom af veiðum sl. sunnudagskvöld. Landaði í frysti- húsið 296 tonnum af ísvörðum fiski. Fór aftur á veiðar sl. þriðju- dag. Norðlendingur iandaði í Olaís- firði í sl. viku ca. 248 tonnum af ísvörðum fiski. Hefir verið hér I ketilhreinsun. Frá bæjarstjórn Fyrir bæjarstjórnarfundi s. J. þriðjudag lágu fundargerðir frá bæjarráði, heilbrigðisnefnd, niðurjöfnunarnefnd, íþrótta- hússnefnd og Vallarráði, skipu- lagsnefnd, vinnuskólanefnd, bygg- inganefnd og framfærslunefnd. Að lokinni dagskrá var lokaður fundur um málefni Utgerðarfé- lags Akureyringa h.f. Verður hér getið nokkurra mála: Vinna við Eyrarlandsveg. Bæjarráð hefir samþykkt eftir tillögum hæjarverkfræðings að lieimila að vinna í vor og sumar við Eyrarlandsveg frá Möðru- vallastræti (Skólastíg) að Kaup- vangsstræti, lækka götuna, breikka og gera gangstéttir, svo og Iag- færa nánasta umhverfi Eyrarlands vegar bak við kirkjuna, enda hafi verkfræðingur og garðyrkjuráðu- nautur nána samvinnu um þær framkvæmdir. Bannað gripahald ó Oddeyri. Á fundi heilbrigðisnefndar 21. apríl var upplýst eftir fyrirliggj- andi skýrslum, að búfjáreign hæjarhúa væri 565 kýr, 188 hest- ar og um 3300 kindur. Var svo- felld tillaga samþykkt á fundin- um: Heilbrigðisnefnd skorar á bæj- arráð að hanna skepnuhald á aðalbyggðasvæði bæjarins á þessu ári og gera ráðstafanir, ef nauðsynlegar þykja til að greiða fyrir framkvæmd slíks banns. Einnig beinir nefndin því til bæjarráðs, að strang- lega sé gengið eftir því, að menn hafi búfénað sinn í ör- uggri vörzlu, svo hann valdi ekki óþrifum og tjóni á eign- um annarra. Samkvæml tillögum bæjarverk- fræðings samþykkti bæjarráð svo 2. maí að banna algerlega gripa- hús á Oddeyri og krefjast þess að j eigendur þeirra fjarlægi þau, hey og hauga fyrir 1. júlí n. k., að öðru leyti verði það gert af bæn- um á kostnað eigenda. Á næsta fundi samþykkti svo bæjarráð, að bann þetta næði einnig til Glerár- eyra norðan árinnar. Enginn vinnuskóli. Vinnuskólanefnd hefir komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé unnt að reka Vinnuskóla Akur- eyrar á þessu sumri, og byggir ]>að á þrem atriðum: 1) að ekki hefir reynst unnt að fá mann til að veita skólanum forstöðu, 2) að fjárframlag til skólans þyrfti að vera a. m. k. helm- ingi hærra, ef gagn ætti að vera að rekstri hans, 3) að ekkert hentugt land sé fyrir hendi til afnota fyrir skólann. En jafnframt leggur nefndin til, að bærinn sjái 10—12 drengjum fyrir vinnu, er bæjarverkfræðing- ur geti útvegað þeim við girðing- ar, lagfæringu á vegköntum, skurðgreftri eða þ. u. 1. og sé var- ið til þess allt að 15 þús. kr. af framlagi til vinnuskólans á þessu ári. Samþykkti bæjarráð að veita þessa upphæð til garðræktar og fegrunar, og allt að 10 unglingar yrðu ráðnir við garðyrkjustörf í sumar. Onnur mól. Bygginganefnd hefir falið bygg ingafulltrúa að rita eigendum ó- íullgerðra húsa við Ráðhústorg og krefjast þess, að húsin verði fullbyggð í samræmi við bygg- ingaleyfi og byggingasamþykkt. — Kosinn var í sögunefnd í stað Brynleifs Tobíassonar Gísli Jóns- son menntaskólakennari. Löng erindi lágu fyrir fundin- um frá íþróttahússnefnd og Vall- arráði, er síðar mun verða vikið að. Kalla á aörar ráðstafanir I foruslugrein Þjóðviljans síðastliðinn þriðjudag er hin- um nýju „bjargráðum" ríkis- stjórnarinnar lýst þessum orð- um: „Hinar nýju tekjuöflun- arráðstafanir eru fráhvarf frá stöðvunarstefnunni, þær munu hafa í för með sér verulegar verðhækkanir, gert er ráð fyrir að núgild- andi vísitala muni hækka um 14—16 stig, þegar allt er komið fram. Verðbólgu- skriðan er sem sé komin í gang á nýjan leik.“ „.... hljóta Alþýðu- bandalagið og verklýðs- hreyfingin að líta þessa þróun mjög alvarlegum augum. I henni felst frá- hvarf frá þeirri stefnu, sem skynsamlegust var og hag- kvæmust alþýðu manna, og hér er aðeins um bróða- birgðalausn að ræða, verð- bólguþróun, sem óhjókvæmi- lcga kallar ó aðrar róðstafanir cftir tiltölulcga stuttan tíma." (Lbr. hér.) Þannig er þá álit stærsta stjórnarflokksins á „bjargráð- unum“, þeim er hann sjálfur stendur að. Ársþing í. B. A. hið 14. í röðinni fór fram í I- þróttahúsi Akureyrar um máu- aðamótin marz-apríl. Fundinn sóttu 33 fulltrúar frá 6 íþróttafé- lögum og fimm sérráðum, auk stjórnar bandalagsins. Einnig mætti íþróttafulltrúi ríkisins Þorsteinn Einnarsson á þinginu. Gaf liann ýmsar upplýsingar um íþróttastarfsemina, íþróttamami- virki og rekstur þeirra. Fluttar voru skýrslur stjórnar bandalagsins og sérráða þess. Var þar skýrt frá gangi þeirra málr, er stjórnin hafði til meðferðar og getið um þau iþróttamót, sein fram höfðu farið. Töluverð þátt- taka var frá Akureyri í landsmót- um og fleiri mótum utan héraðs. Nokkrir íþrótttamenn fóru til út- landa á árinu til þátttöku í nám- skeiðum og keppni. Kennslustarf- semi hafði verið með mesta móti hjá einstökum félögum og sérráð- um. Þingið samþykkti inótaskrá fyv- ir límabilið milli ársþinga, og eru þar á meðal nokkur íslands- mót, sem ákveðið er að fari fram á Akureyri í sumar, s. s. Sund- meistaramót íslands og nokkur hluti Meistaramóts lslands í frjálsum íþróttum. Einnig var samþykkt fjárhags- áætlun fyrir 1958. Samþykktar voru tillögur um læknisskoðun og tryggingar íþróttamanna, rekslur íþrótta- mannvirkja, undirbúning að bygg ingu íþróttasalar til innanhúss- keppni, íþróttasýninga o. fl. Fundarstjórar þingsins voru Tryggvi Þorsteinsson og Árni Sigurðsson. Ármann Dahnanns- son var endurkosinn formaður bandalagsins. Auk hans skipa stjórnina einn fulltrúi frá hverju íþróttafélagi: Frá Golfkl. Akureyrar Stefán Árnason. Frá í. M. A. Pétur Bjarnason. Frá K. A. Einar Kristjánsson. Frá Róðrarfélaginu Gísli Lór- enzson. Frá Skautafél. Akureyrar Björn Baldursson. Frá Þór Magnús Jónsson. SKÓGRÆKTARFERÐIR Mánudaginn 19. maí verður gróðursett í Kjarnalandi, og verða • þá starfsmenn Akureyrarbæjar þátttakendur. Þriðjudag 20. maí með þátttöku kennara og skóg- ræktardeildar barnaskólanna, fimmtudag 22. maí með þátttöku starfsmanna Samb. ísl. samvinnuf. • Farið verður frá Hótel KEA kl. 7,20 síðd. Skógræktarfélögin óska eftir sem mestri þátttöku almenn- ings í þessum gróðursetningar- ferðum, en æskilegt er, að menn Ánnóll íslendings 14 ára skát'i í Reykjavík, Þórður Ei- riksson, bjargar 8 ára drcng frá drukkn- un við bryggju í Reykjavíkurhöfn. □ Maður stórslasast í bifreiðaárekstri í Reykjavík, hlaut höfuðkúpubrot, lær- brot og meiðsl á andliti og brjósti. Lög- reglumaður í Reykjavík slasast alvar- lega í árekstri bifhjóls og bifreiðar, er hann var að elta ökuníðing á mikilli ferð. □ Stórri heimagerðri sprengju kastað upp á þak hegningarhússins í Reykja- vík. Olli hún talsverðum skemmdum á þakinu. □ Ibúðarhúsið að Brennu í Lunda- reykjadal brennur á 1 klukkustund á- samt innbúi öllu. íbúðarhúsið Báru- gata 13 Reykjavík stórskemmist nf eldi, svo og innbú. □ Maður um sexlugt, Olafur Bjarna- son í Vestmannaeyjum, finnst drukkn- aður þar í höfninni. □ Þjónn á strandferðaskipinu Esju, Arne Jónsson, fellur fyrir borð og drukknar. Skipið var þá á leið frá Siglufirði til Isafjarður. □ Vöruskiptajöfnuðurinn íyrstu 3 máti- uði ársins óliagstæður um 112.4 millj. króna. □ fskyððilegt tíðarfar Þrálát, köld tiorðaustanátt hef- ir ríkt að undanförnu um allt land með snjóéljunt um norðan- og austanvert landið og nætur- frostum víðasthvar á landinu. Snjóað hefir í byggðum norðan- lands, m. a. snjóaði hér á mið- vikudagsnótt ofan í sjó, en tók fljótt aftur. Sauðburður er víðasthvar byrj- aður, en allt sauðfé á fullri gjöf norðanlands. Veldur þetta bænd- um hinum mestu erfiðleikum vegna þrengsla í ltúsum, eftir að ærnar fara að bera, og heyskortur sums staðar yfirvofandi, ef svo fer lengur fram. tilkynni Ármanni Dalmannssyni þátttöku sína daginn áður í síma 1464. eða Tryggva Þorsteinssyni í síina 1281 vegna farkosts.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.