Íslendingur - 06.06.1958, Blaðsíða 4
4
ÍSLENDINGUR
Kemur út
hvern föstudag.
Útgefandi: Útgáfufélag íslendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson, Fjólug. 1. Sími 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Gránufélagsgötu 4. Sími 1354.
Opin kl. 10—12. 1—3 og 4—6. á laugardögum 10—12.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
»Hjartaprúður riddari« á fjörum
kommúnista
í síðasta Degi er greinarkorn
eítir aðstoðarritstjóra blaðsins
um „Átökin innan Alþýðubanda-
lagsins“, og er þar margt óvenju-
lega ályktað og frumlega sagt. I
greininni leitast höf. við að sýna
fram á, að áhrif kommúnista í
ríkisstjórninni séu raunar engin,
en hins vegar valdi það ærnum ó-
þægindum, að sumir forgöngu-
menn Sósíalistaflokksins, er
stofnuðu Alþýðubandalagið, hafi
komið óróa af stað í flokknum
með „sífelldu nuddi og undir-
róðri“.
Höfundur segir, að Alþýðu-
Itandalagið hafi verið tekið með
í ríkisstjórn, þar sem ekki hafi
náðst tilætlaður kosningasigur
„miðblakkarinnar“, og á hann þar
við Hraeðslubandalagið. Sósíal-
istaflokkurinn hafi átt frumkvæði
að stofnun Alþýðubandalagsins
með því að „neyða Hannihal
Valdimarsson til fylgis við sig og
láta hann þannig svíkja gefin lof-
orð gagnvart sínum eigin flokki,
Alþýðuflokknum“, og að Hanni-
bal, liinn „hjartaprúði riddari“,
eins og hann er nefndur, hafi fyr-
ir hrekkvísi örlaganna horizt „inn
á áhrifasvæði“ kommúnista.
En greinarhöfundur telur þó
Hannibal nokkurs megnugan, eft-
ir að kommúnistar höfðu veitt
hann og nánustu fylgismenn hans
í net sín, eða hann fyrir tilverkn-
að atvika og örlaga hafði borizt
inn á áhrifasvæði þeirra. Og nú
ber greinarhöfundur það traust til
þessa vogreks, „hjartaprúða ridd-
arans“, að hann varpi Moskvatrú-
armönnum Alþýðubandalagsins
fyrir horð, því það „dugir ekki
að láta menn vaða fram með þá
ósvífni, sem Einar Olgeirsson
hefur haft í frammi að undan-
förnu“(!).
Að lokum minnir ritstjórinn
Hannibal á það, að „Alþýðu-
bandalagsmenn ættu að gera sér
ljósa aðstöðu sína, áður en þeir
fela Einari Olgeirssyni, Brynjólfi
Bjarnasyni og ritstjórum Þjóð-
viljans of mikil völd og áhrif.“
Hér virðast vera gjörðar full-
háar kröfur til manns, sem borizt
hefir inn á áhrifasvæði kommún-
ista og lent í liöndum þeirra. Hafi
Alþýðubandalagið verið stofnað
fyrir forgöngu Sósíalistaflokksins,
er liætt við að hann eigi meiri í-
tök í því en svo, að maður, sem
rekið hefir fyrir atvik og örlög á
fjörur hans og verið dreginn und-
an sjó sem hvert annað vogrek,
hafi öll ráð þessara gömlu flokks-
foringja í hendi sér og geti gefið
þeim forskrift- Þar er vissulega til
of mikils mælzt, enda á allra vit-
orði, að það er aðeins tímaspurs-
mál, hvenær Moskvumennirnir
varpa „hjartaprúða riddaranum“
fyrir horð af skúlu sinni. Hanni-
bal Valdimarsson er ekki íyrsta
rekaldið, sem borizt hefir á fjörur
kommúnista frá Alþýðuflokknum,
og þekkja allir þá sögu, nema ef
vera skyldi aðstoðarritstjóri Dags.
Eitt heíir hún eínt
Ríkisstjórnin, sem tók við völd-
um fyrir nær tveim árum og
kvaðst ætla að „brjóta blað“ í
efnahagsmálum þjóðarinnar, hef-
ir átt örðugt með að efna það
loforð, svo sem önnur fleiri, er
hún gaf í svonefndri „Stefnuskrá
umbótaflokkanna“ frá vorinu
1956.. — Stjórnmálayfirlýsing
Hræðslubandalagsins hófst á þess-
um orðum:
„Mikill vandi steðjar nú að ís-
lenzku þjóðinni.“
Og svo er ástandinu lýst, — á-
standinu, sem hún ætlaði að bæta:
„Höfuðatvinnuvegum larnls-
manna er haldið uppi með bein-
um styrkjum af opinberu fé og
gífurlegu álagi á neyzluvörur al-
mennings.“
Hvernig hefir stjórnin leyst
þenna vanda: að afnema styrkja-
kerfið og létta álögum af neyzlu-
vörum almennings? Tókst henni
það með jólagjöfinni 1956 og
bjargráðunum 1958?
„/nnjlutningi hefir að verulegu
leyli verið haldið uppi með gjald-
eyrislántökum.“
Tók ekki stjórnin fyrir erlend-
ar lántökur? Eða er það mis-
minni, að fjármálaráðherra hafi
kinnroðalaust fært rök fyrir því,
að hann hefði meira en tvöfaldað
erlendar skuldir á tveim síðustu
árum með nýjum lántökum?
„Gera skal slcipulegt átak í hús-
nœðismálum kaupstaða og kaup-
túna.“
Hvernig fór um það átak?
Minnkandi lánveitingar til bygg-
inga samkvæmt veðlánakerfinu.
Og svo var það stóra málið:
Rrotlför varnarliðsins af íslenzkri
grutul. Efndir: Dvöl þess fram-
lengd um óákveðinn tíma.
Hér er aðeins stiklað á stóru
um loforð og efndir. Hins vegar
af miklu að taka. Þó er ósann-
gjarnt að telja stjórnina hafa
Haja með sér nesti til Svíþjóðar.
— Fordœmi til athugunar fyrir
okkur• — PIN-keyrt á miðin. —
Hámark hestaflafölda nauðsyn-
legt. — Elli- og sjómannaheimili.
ÞAÐ STENDUR MIKÍÐ TJL í Sví-
þjóð í sumar, en þar fer fram heims-
meistarakeppni í knattspyrnu. Safnast
þangað til keppni knattspyrnuflokkar
úr flestum eða öllum álfum heims. Mik-
ill viðbúnaður er þar eystra og frétta-
bréf send daglega úl um allan heim af
þátttöku þjóða og undirbúningi keppn-
innar.
Nýlega liarst forráðamönnum keppn-
innar bréf frá Knattspyrnusambandi
Argentínu, þar sem skýrt er frá jiví, að
eimskipið Panama mundi koma til
Málmcyjar 1. júní nieð eftirfarandi
matvörur handa liðinu úr Argentínu,
sem keppa á um lieimsmeistaratitilinn:
500 kg. uxakjöt,
300 kg. rifjasteik,
250 kjúklinga.
Með tilkynningunni er gefin skýring
á þessari nestissendingu. „Þessar mat-
vörur eru sendar vegna heimsmeistara-
Jeikara okkar. Við vitum, að hið fagra
land yðar er þekkt fyrir góðan mat. Að
við skulum, þrátt fyrir það, senda okk-
ar eigin matvæli, má enganveginn skilj-
ast sem tortryggni við yður, heldur i
miðast það eingöngti við það, að leik-
menn okkar verða skilyrðislaust að lifa
á sömu fæðu og þeir neyta daglega í
heimaJandi sínu.“
ARGENTÍNUMENN vita sjálfsagt
hvað þeir íara í þessum efnum. Mig
minnir fastlega,' að þá sjaldan íþrótta-
menn okkar tapa leik á erlendum
knattspyrnuvelli eða skíðabraut, ]iá sé
það að verulegu leyti matarhæfinu að
kenna. Færi því vel á því, að við send-
um á undan þeim skreiðarbagga, síld-
arkút og góðost, svo að eitthvað sé
nefnt af framleiðsluvöru okkar. Skrínu-
kostur hefir oft gefizt vel, og einliver
gjaldcyrissparnaður ætli að ^eta orðið
með því fyrirkomulagi.
Framh. á 6. síðu.
! svikið allt, sem hún lofaði. í
' stefnuskrá umbótaflokkanna var
| því m. a. lofað, að bankakerfið
skyldi endurskoðað. Þegar komm-
únistar gerðust aðilar að ríkis-
stjórn með „miðblökkinni“,
gengu þeir ríkt eftir, að þeir
fengju ldutdeild í yfirstjórn lána-
stofnana þjóðarinnar. Og þar
slóð ekki á efndunum. Einum
huga kom rikisstjórnin því í
framkvæmd,
að kommúnistar hlytu banka-
stjóraembætti og sæti i bankaróð-
um þjóðbankans og annarra opin-
berro lónastofnana. Sú framtaks-
semi var kommúnistum svo þýð-
ingarmikil, að cinu mótti gilda,
þótt cfndir annarra loforðo drægj-
ust nokkuð úr hömlu.
Föstudagur 6. júni 1958
OdýrÉ ogr grott gfrænmcti
Á vorin og fram eftir sumri er
mjög lítið og oftast ekkert ferskt
grænmeti á borðum almennings-
Það grænmeti, sem er í verzlunum,
er það dýrt, að almennt mun það
ekki notað nema til bragðbætis
stöku sinnum, og tiltölulega fáar
húsmæður kunna að hagnýta sér
sem skyldi þær grænmetistegundir,
sem fljótræktaðar eru og hægt er
að liafa á borðum allt sumarið, og
sennilega eru þær enn færri, sem
nota villtar jurtir til þess að víta-
mín- og bragðbæta fæðið. Græn-
meti, sem fljótlegt er að rækta og
hægt er að hafa á borðum allt sum-
arið er t. d. graslaukur, karsi,
steinselja (persille), salat, spínat
og radísur. Graslaukurinn er jurt,
sem hægt er að rækta í næstum
því hvaða jarðvegi sem er, og af
honum er hægt að taka frá því
snemma á vorin og þar til byrjar
að frjósa á haustin. Hann er not-
aður sem krydd í alls konar mat,
í sósur með fiski, í grænmetis-
súpur, saman við hrært smjör í
eggjakökur og fleira. Hann er
mjög C-vítamín-auðugur. Karsinn
er mjög A- og C-vítamínauðugur,
og hann er auðræktaður, t. d. er
hægt að sá honum í pott eða lítinn
kassa seinni part veti'ar og hafa í
glugga og nota siðan til að víta-
mínbæta fæðið, þegar þess er
mesl þörf seinnipart vetrar og
snemma á vorin. Steinselja, salat,
spínat og radísur er allt fljótvax-
ið og Jnjög vítamínauðugt, sér-
Vísnabáikur
í síðasta blaði íslendings er
birt vísa ein, og er höfundur henn-
ar ókunnur þeim er sendi hana.
Ég hygg að hér sé máluin bland-
að, þannig, að tveimur vísum
muni vera slengt saman, og eru
höfundar beggja kunnir.
Visur þær urðu lil í Skagafirði
laust eftir aldamótin síðustu, og
lærði ég þær þegar. Ilefi ég ekki
ástæðu til að ætla, að þær hafi
verið skakkt feðraðar í mín eyru.
Þorsteinn Sigurðsson á Sauð-
árkróki, kunnur maður á sinni
tíð, greindur vel, orðhagur og
listasmiður, sat eilt sinn að skál í
kunningjahópi, og voru eilífðar-
málin m. a. eitthvað til umræðu
þar. Þá kvað Þorsteinn:
Kvíði ég eigi heims frá glaum
héð’an veginn ganga,
ef ég dey í ástardraum
undir meyjar vanga.
Þorsteinn var sagður kvenlioll-
ur maður, og hefir hann efalaust
þekkt þann orðióm, og miðað
efni vísunnar við það.
Þegar Símon Dalaskáld heyrði
vísu Þorsleins, ]>á kvað hann á
móti:
Sálin eigi sælli (eða: seðst) af því,
og sinn mun veginn ganga,
þótt þú deyir ástum í
undir meyjar vanga.
Þorsteinn smiður fór til Vest-
urheims árið 1905 eða 6, svo að
staklega spínat og steinselja. Þess-
ar tegundir allar eru beztar hæfi-
lega þroskaðar, og er því heppi-
legast að sá ekki miklu í einu,
heldur sá lil þeirra tvisvar til
þrisvar yfir sumarið til þess að
hafa þær alltaf hæfilega sprottnar.
Þá eru ýmsar villtar plöntur,
sem hægt er að bæta fæðið með
þann tíma á vorin og sumrin, sem
grænmetið er dýrast. Nú kynni
einhver að lialda, að maður geti
ekki vei'ið þekktur fyrir að bjóða
upp á svo ómerkilega rétti sem
njólajafning eða kjötsúpu með
hvönn eða fíflablöðum, en í Dan-
mörku og einnig í Noi'egi hafa
verið gefnar út matreiðslubækur,
sem eingöngu kenna fólki að hag-
nýta sér villtar jurtir. Ef Danir
með allt sitt grænmeti og ávexti
skammast sín ekki fyrir að nota
svo ódýrt grænmeti, þá þurfum
við ekki að gera það. Ég hef hér
eina danska bók, sem heitir „Gra-
tis mad“ og í henni eru leiðbein-
ingar um söfnun og notkun ým-
issa villtra jurta í súpur, sósur,
salöt, jafninga, gratin, te og fleira.
Af algengum jurtum, sem vaxa
hér, eru nefndar njóli, súra, fífill,
smári, hvönn og fleiri. Þegar
plöntunum er safnað, á helzt að
velja yngstu blöðin og velja frek-
ar af plöntum, sem eru ekki bún-
ar að blómstra. Ef blöðin eru orð-
in stór og gróf eru leggir og mið-
rif tekin burt, og á fíflablöðum
Framh. á 6. síðu■
fyrir þann tíma hafa vísurnar ver-
ið ortar.
íslendingur mun áður hafa birt
visur eftir hann. Eitt hið síðasta
verk Þorsteins hér heima mun
hafa verið smíði Goðdalakirkju,
þeirrar sem nú er þar, en hún var
gerð árið 1904.
Þormóður Sveinsson.
Tveir borgarar þessa bæjar
gerðu eflirfarandi stöku í félagi
einhvern tíma í vor:
Eftir vökur, stiit og stúss,
stundum finnst mér gaman,
aff við kaupum agnar-sjúss
og liann drekkum saman.
Þá er ein eftir Pela:
Orka vaknar ei hjá mér,
unga snót þótt finni.
Lítið var -— en lokið er
lífshamingju minni.
RÍKISSTJÓRNIN.
Finnst mér vera af ílestu sneitt,
fornar dyggðir víkja,
á nú stjórnin ekki neitt
cftir til að svíkja?
Engin kelda er svo hreið
eða botnlaust díki,
að hún hopi hól úr leið
og henni framlijá víki.
Sitt liún heldur sama strik,
situr fast við stýri,
þar er ekki á horfi hik,
hindrar ei fen né mýri.
Nói.