Íslendingur


Íslendingur - 28.11.1958, Blaðsíða 4

Íslendingur - 28.11.1958, Blaðsíða 4
4 íSLENDINGUR Föstudagur 28. nóvember 1958 Frd aðalfundi loftldða Félagið hyggur á ný ílugvélakaup Aðalfundur Loftleiða h.f. var haldinn í veitingasal félagsins á Reykj avíkurflugvelli f östudaginn 14. þ. m. kl. 2 e. h. Formaður félagsstj órnar, Kristj- án Guðlaugsson, hæstaréttarlög- maður, setti fundinn með stuttri ræðu. Framkvæmdastjóri félagsins, Alfreð Elíasson, gaf því næst skýrslu um rekstur félagsins árið 1957 og mælti m. a. á þessa leið: Samtals voru flognar 273 ferðir milli Evrópu og Ameríku og 3 ferðir milli meginlands Evrópu og íslands. Árið 1957 voru fluttir 24.919 farþegar, en árið áður 21.773, nemur því aukningin 14.4%. Vöruflutningar voru svipaðir og árið áður eða 234 tonn. Póstflutn- ingur var einnig svipaður og ár- ið áður eða 32 tonn. Farþegakíló- metrar voru 115 milljónir 1957, en 95 milljónir 1956. Aukning 20%. Sætanýting var 59.3%, sem er nokkuð hærra en árið áður. —- Aftur á móti vil ég geta þess til fróðleiks, að fyrstu 10 mánuði yfirstandandi árs, var sætanýting- in 70.4% og gefur það góðar vonir um reksturinn. Flogið var í 11.137 klukku- stundir og nemur aukningin því 12% frá árinu áður (9912). Til rekstursins (1957) notaði félagið Skymasterflugvélar sínar Heklu og Sögu auk tveggja leiguflug- véla, aðra sem var í notkun allt árið en hina sem leigð var yfir sumarmánuðina. Snemma á árinu 1957 stofnaði Loftleiðir umboðsfélag í London, sem nefnist Icelandic Airlines Ltd. í árslok ákváðu LATA flugfé- lögin að lækka fargjöld sín á At- lantshafinu. Við það skapaðist nokkur óvissa um möguleika Loft- leiða til að keppa við þau. Hin nýju svokölluðu „Economy“ far- gjöld gengu í gildi 1. apríl 1958. Stjórn Loftleiða ákvað því að lækka fargjöld félagsins, en árang urinn varð sá, að aldrei hafa flug- vélar félagsins verið hetur skipað- ar, en það sem af er þessu ári. Fyrstu 10 mánuði yfirstand- andi árs voru fluttir 23.657 far- þegar, 204 tonn af vörum og 18 tonn af pósti. Séu þessar tölur bornar saman við sama tímabil 1957 sést, að aukning fluttra far- þega nemur 7% eða 1.531. Vöru- flutningar hafa aukist um 7% en póstflutningar hafa minnkað um 28%. Gæta ber þess þegar saman- burður þessi er athugaður, að 1958 er einni áætlunarferð færra í viku yfir sumarmánuðina en 1957, eða 6 ferðir í viku á móti 7 ferðum 1957. Fastir starfsmenn félagsins voru í árslok 1957 samtals 187, þ. e. 120 í Reykjavík og 67 erlendis. Finnbjörn Þorvaldsson yfirbók ari las reikninga. Niðurstöðutölur efnahagsreiknings voru kr. 25.- 701.129.00, en rekstrarreiknings, þ. e. velta kr. 75.692.119.00 Hagn- aður nam kr. 55.826.93, en þá höfðu eignir félagsins verið af- skrifaðar um kr. 2.504.882.07. Formaður félagsstjórnar gerði grein fyrir þýðingarmestu ráð- stöfunum, sem stjórnin hafði gert vegna rekstrar félagsins á yfir- stndandi ári og ræddi sérstaklega væntanleg flugvélakaup félagsins. Margir tóku til máls og var eft- irfarandi tillaga samþykkt ein- róma: „Aðalfundur Loftleiða h. f., haldinn 14. nóvember 1958, felur stjórn félagsins að kaupa nú þegar flugvélar í stað „Sky- master-vélanna“, og taka hin- ar nýju vélar í notkun svo fljótt, sem því verður við kom- ið.“ Stjórnin var endurkjörin, en hana skipa: Kristján Guðlaugs- son, Alfreð Elíasson, E. K. Olsen, Ólafur Bjarnason og Sigurður Helgason. Varastjórn var einnig endurkjörin, en hana skipa Einar Árnason og Sveinn Benediktsson. Frá bókaforlagi Odds Björnsson- ar hafa blaðinu horizt tvær ungl- ingabækur, Strákur á kúskinns- skóm, eftir Gest Hannson, og Leyndardómur kínversku gullkerj anna, eftir Percy F. Westerman. Gestur Hannson, en það mun vera skáldaheiti, er nýliði í bók- menntaheiminum. Við eigum ekki of mikið af rithöfundum, er skrifa sögur fyrir íslenzka drengi, og má því ætla, að þeir taki bókinni með þökkum. Hún er sett með stóru, skýru letri og prýdd teikningum eftir Gáka Hannson, en á honum þekkjum vér ekki deili. Vitum það eitt, að hann er bróðir höfundar- ins og lifði með honum þau ævin- týri, er frá segir í bókinni. P. F. Westerman er þekktur barnabókahöfundur, og minnumst vér einkum bókarinnar „Ævintýri úr íshafinu“, sem kom fyrir mörg- um árum í Nýjum kvöldvökum og var síðar gefin út í bókarformi, - skemmtileg og spennandi drengja- bók. Leyndardómur kínversku gullkerjanna segir frá ævintýrum og mannraunum Péturs Annesley í leit að dýrmætum ættargripum. Davíð Áskelsson kennari hefir ís- lenzkað þessa ævintýrabók. Fjórar barna- og unglinga- bækur fró Iðunni. Iðunn hefur nýskeð sent á markaðinn eftirtaldar fjórar bæk- ur handa börnum og unglingum: Fimm í œvintýraleit. Þetta er önnur bókin í flokki bóka um /é- lagana fimm eftir Enid Blyton, höfund Ævintýrabókanna, sem öll börn og unglingar þekkja. Fyrsta bókin um félagana fimm heitir Fimm á Fagurey, og þriðja bókin, sem kemur út fyrir jólin, heitir Fimm á flótta. Bækur þessar eru prýddar fjölda mynda, og þær eru mjög vinsælar hjá börnum og unglingum. Táta tekur til sinna ráða heitir bók handa telpum. Fjallar hún um duglega og tápmikla telpu, sem er gjörn á að fara sínu fram, en er hjartagóð og eðallynd og vill alls staðar koma fram til góðs. Staðfastur strákur eftir Kor- mák Sigurðsson. Þetta er sagan af Jóni Óskari, sem búinn var að missa báða foreldra sína, en ólst upp hjá ömmu sinni í litlum kofa, sem stóð rétt ofan við flæðarmál- ið. Jón Óskar gat verið nokkuð einþykkur, en hann var sannar- lega staðfaslur strákur, heiðarleg- ur og hugrakkur og vinur og hj álp arhella þeirra, sem minnimáttar voru. Margar myndir eftir Þórdísi Tryggvadóttur prýða bókina. Síðast en ekki sízt er svo Ævin- týri tvíburanna, hörkuspennandi unglingasaga eftir Davið Áskels- son, prýdd mörgum myndum eftir Halldór Pétursson. Saga þessi gerist seint á 17. öld og segir frá tveimur munaðarlausum bræðr- um, sem rötuðu í ósvikin og spennandi ævintýri innan lands og utan. Bók þessi er ekki aðeins mikill skemmtilestur fyrir ungl- inga, heldur geymir hún einnig glögga þjóðlífsmynd frá liðnum tíma. LEÐUR-BUDDUR LEÐUR- PENINGAVESKI LEÐUR-POKAR LEÐUR-TÖSKUR NÝJAR JÓLABÆKUR berast okkur daglega. Vísnabálkur Af miðunum. Rán eru þreytt um Ránarslóðir, ríkir þar nú „Stóri bró3ir“. Vekur í huga heitar glóðir hræsnistal um vinaþjóðir. 3- Sagt er í duft vort forðum félli fræ í engil og púkaskarn. Púkinn dafnar til efstu elli, engillinn hinsvegar deyr sem barn. Ok. höj. E.t.v. aj Snœjellsnesi. Bœjanöfn í Eyjahreppi Snœf.: Fimm eru holt í Eyhrepp út, einn þó bær er stakur. Þau eru kennd við hross og hrút, hömlu, söðul, akur. (Vísan gömul, höf. óþekktur, en vísan á við bæina: Hross- holt, Hrútholt, Hömluholt, Söðulsholt og Akurholt). A fmœlisvísa. Þú hefir tuttugu ár og eitt álpast lífs í ranni. Það ætlar ekki að ganga greitt að gera þig að inanni. GuSm. Alexandersson, Stokkseyri. Einskonar hestavísa. Bíllinn svífur brautina, hrátt mig hrífur undur. Lipurt drífur leiðina, loftið klýfur sundur. Agúst Sigfússon Kálfárdal Iiún. (Ort á þeim árum, er bifreiðin V var að taka að sér hlutverk hests- ins). Skólapiltur fékkst eitthvað við að yrkja, og komst hann svo að orði í ljóði, að týran (ljóstýra) ljómaði. Þá kvað Andrés Björns- son: Skáldið bograr við borðsins rönd, á borðinu „týran“ ljómar. Rauðgulan blýant hefir í hönd, í höfðinu kvarnir tómar. Símon Dalskáld kom eitt sinn á bæ í Húnaþingi (Kolþernumýri?) og var þar nætursakir. Var látinn sofa í framhýsi (skála). Grið- kona færði honurn kaffi að morgni í rúmið, og kvað þá Símon: Komdu hlessuð, brúður trú, blfð og hress í sinni. Griðkonan botnaði um leið: í lamasessi liggur þú líkt og klessa inni. Vísur þessar, að hinni fyrstu undanskilinni, eru úr syrpu Braga frá Hoftúnum. Upplbod Samkvæmt kröfu verður vöru- flutningabifreiðin A-1218 af teg- undinni G.M.C., ár 1942, seld á nauðungaruppboði, sem hefst við lögregluvarðstofuna á Akureyri þriðjudaginn 2. des. 1958 kl. 13.00. Bæjarfógeti. Handsnúin saumavél lítið notuð, til sölu í Brekkugötu 7. NÁTTFÖT fyrir drengi og telpur. BARNAHRINGLUR mjög fallegar. Verzl. DRÍFA Sími 1521. NÝKOMIÐ Kventöfflur margar fallegar tegundir, hentugar til jólagjafa. Enniskór úr skinni karla og kvenna. Hvannbergsbræður JÓLAKORT : Kr. 0.50, 0.75, 1.00, 1.25, 2.50, 3.00, 3.50, 4.00, 6.00, 8.00. DUBARRY SNYRTIVÖRUR nýkomnar í feikna úrvali: Crearn, Varalitur, Hormon oil, Hormon cream, Beauty lanolin, Steinpúð- ur, Skin liqvid film, Skin tonic, Cleansing milk og mikið fleira. — Lítið í gluggann. Vörusalan Hafnarstræti 104. Sporf-buxur kvenna svartar og bláar, allar stærðir. Ullar sokkabuxur og Jersey sokkabuxur allar stærðir. FATASALAN Ilafnarstræti 106 — Frú, ég er maðurinn, sem stilli píanó. — En ég hefi eklci sent eftir yður. — Nei, ég veit það, en ná- grannarnir gerðu boð eftir mér.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.