Íslendingur


Íslendingur - 28.11.1958, Blaðsíða 6

Íslendingur - 28.11.1958, Blaðsíða 6
ÍSLENDINiiUR fæst í Sölutummum Hverf- isgötu 1, Reykjavík. Föstudagur 28. nóvember 1958 ÍSLENDINGUR fæst í lausasölu í Blaðasölunni Hafn- arstr., Borgarsölunni við Ráðhústorg og Blaða- og sælgætissölunni Ráðhús- torgi. »o»ocooooooooo»ooooo»oo» Úr heimahögum I. O. 0. F. — 14011288VÍ — S. T. E. Sjálfsijörg. Munið föndurkvöldin á föstudögum í Túngötu 2. Takið með ykkur bolla og brauð. Héraðslœknir biður blaðið að geta þess, að vegna mislinga í bænum verði ekki tekið á móti börnum til bólusetn- ingar í Heilsuverndarstöðinni fyrst um sinn. Mislingar hafa verið að stinga sér niður í bænum undanfarið og hafa m.a. milli 20 og 30 tilfelli komið fyrir í Menntaskólanum. Telur héraðslæknir, að búast megi við frekari útbreiðslu næstu vikur, þar sem mislinga hefir ekki orðið vart hér síðustu 5—6 árin. Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkju n. k. sunnudag kl. 2 e.h. Fyrsti sunnu- dagur í jólaföstu. — P. S. Hjúskapur. Á laugardaginn 22. nóv. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Áslaug María Þorsteinsdóttir Austmar og Björn Olsen Jakobsson bifvélavirki. Heimili brúðhjónanna er að Fjólug. 7. Kristniboðshúsið Zíon. Sunnudaginn 30. nóv.: Almenn samkoma kl. 8.30 e.h. Gunnar Sigurjónsson og Reynir Hörg- dal tala. Allir lijartanlega velkomnir. Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Bazar kvenskátanna verður næstk. sunnudag. kl. 3 e.h. í Túngötu 2. Marg- ir munir hentugir til jólagjafa. AÐVÖRUN! — Elliheimilið í Skjaldarvík óskar vinsamlega að þeir, sem eru undir mislingum, komi ekki í heimsókn meðan misl- ingar ganga hér í nágrenninu. — Stefán Jónsson. Húnvetningajélagið hefir skemmti- kvöld í Landsbankasalnum næstkom- andi laugardag kl. 8.30 e.h. Félagsvist og dans. Félagsfólk hvatt til að fjöl- menna og taka með sér gesti. Slysavarnakonur, Akureyri. — Jóla- fundurinn verður í Alþýðuhúsinu mið- vikudaginn 3. des. kl. 4.30 fyrir telp- urnar og kl. 9 fyrir konurnar. Mætið allar og takið með kaffi. Kvenjélagið Hlíf heldur jólafund fimmtudaginn 4. des. kl. 9 e.h. í Pálm- holti. Konur taki með sér kaffi. — Skammtiatriði. Farið frá Ferðaskrif- stofunni kl. 8.30 e.h. Viðkomustaðir: Ilafnarstr. 20 (Höpfner) og við Sund- laugina. — Stjórnin. Jólamerki Kvenfél. Framtíðin fást í póststofunni. Ágóðinn rennur í Elli- heimilissjóð. — Skreytið jólabögglana með fallegu jólamerkjunum. Fjallvegir hér norðanlands eru allir færir bifreiðum enn, þótt komið sér fram í nóvemberlok. Siglufjarð- arskarð hefir aðeins einu sinni áður verið bílfært svo langt fram á vetur, enda hafa hlýindin í þess- um mánuði verið óvenjuleg. FiloiiKjníngar hejjnst ií morgun Filmía hefur vetrarstarfsemi sína á morgun með sýningu á myndinni „Kona hverfur“ eftir hinn snjalla kvikmyndastjóra Al- fred Hitchcock. Myndin er gerð árið 1938 og olli tæknilegri bylt- ingu í brezkri kvikmyndagerð. í aðalhlutverkunum eru Margrét Lockwood og Michael Redgrave. Til þess að Filmía geti starfað með eðlilegum hætti, þarf viss fjöldi bæjarbúa að skrá sig sem meðlimi. Ef sú tala næst, ætti Filmía að geta sýnt myndir viku- lega i allan vetur. Félagar greiða visst þátttökugjald og fá síðan ókeypis aðgang að öllum kvik- myndum Filmíu. Er það vart hálft gjald miðað við aðgöngumiða- verð kvikamyndahúsa nú. Enn er ekki tilskilinni félagatölu náð, en þeir sem vilja vera með, geta snúið sér til Magnúsar Björns- sonar bankaritara. Alfred Hitchcock. Sýningar verða í Nýja Bíói á laugardögum. Fram að jólum munu verða 4 sýningar, ef nægi- leg þátttaka fæst. Verða allar þær myndir tal- og tónmyndir, flestar meðal öndvegismynda síns tíma. <—XIXXIX-» Karlakórnum »Þrym« vel iagnað Karlakórinn Þrymur á Húsavík söng í Nýja Bíói s. 1. sunnudag við ágæta aðsókn og forkunnar- góðar viðtökur. A söngskrá voru 12 lög, en áð- ur en kórinn hóf söng sinn heils- aði Karlakór Akureyrar honum með einu lagi. Söngstjóri kórsins er Sigurður Sigurjónsson, en fyrr verandi söngstjóri, séra Friðrik A. Friðriksson, stjórnaði 2 lög- um. Undirleikari var séra Orn Friðriksson á Skútustöðum. Kristinn Hallsson söngvari hef- ir um hríð undanfarið annazt raddþjálfun kórsins, og söng hann að þessu sinni einsöng í tveim lögum, „Bára blá“ og aríu úr Töfraflautunni eftir Mozart. Vakti sá söngur mikla hrifningu, og varð að tvítaka bæði lögin. Karlakórinn Þrymur er enn í framför, og má leiða getum að því, að þjálfun Kristins Hallsson- ar hafi nokkuð sagt til sín á þess- um tónleikum. En yfirleitt eru raddirnar mjög samstilltar og njóta sín einkar vel í veikum söng. „Söngvaramarsinn“ eftir V. E. Becher var prýðilega sungið, og mætti gjarna taka það á plötu. Mörg fleiri lög hlutu fágaða með- ferð, og varð kórinn að endurtaka verulegan hluta söngskrárinnar og syngja þrjú aukalög. Söng- stjórunum báðum bárust blóm- vendir. Karlakórinn Þrymur er 25 ára um þessar mundir, og voru þetta því einskonar afmælistónleikar. Þótt söngskráin væri góð, hefðu þó margir kosið, að meiri rækt hefði þar verið lögð við íslenzku tónskáldin, þar voru aðeins lög eftir Friðrik Friðriksson og Þór- arin Jónsson (Ár vas alda) auk þjóðlagsins Bára blá. Vel hefði og farið á því, að kórinn hefði lokið söng sínum með átthagasöng, t. d. „Blessuð sértu sveitin mín“ eða lýðveldisljóði Huldu skáldkonu. En hvað um það, — Þrymur kom, sá og sigraði. -----D------ SKRÁ um vinningct í Happdrœtti Há- skóla Islands í 11. flokki 1958. (Akureyrarumboði). Númer 33438 hlaut 10.000 kr. Þessi númer hlutu 1000 kr. hvert: 224, 1542, 2139, 3366, 3585, 3964, 5658, 5662, 5673, 6012, 6559, 7001, 7392, 8279, 8282, 8846, 8977, 9059, 9179, 9189, 9227, 9756, 10217, 10638, 10649, 11323, 11711, 11880, 11898, 12196, 12556, 12568, 12572, 12693, 13158, 13248, 13787, 13902, 13924, 13967, 14191, 14267, 14438, 14783, 14880, 15003, 15226, 15242, 15559, 17074, 17313, 17864, 18031, 18987, 19013, 19438, 19908, 20514, 20520, 20715, 21727, 21746, 22094, 23014, 23600, 23875, 24020, 24445, 25432, 25579, 26302, 26312, 26314, 27212, 30541, 31108, 31165, 31169, 31197, 33173, 33191, 33446, 34381, 35585, 36470, 37006, 37013, 42016, 42842, 43935, 44859. Hœttu seint 09 illii! Dagur skýrir í fyrradag frá árshátíð Framsóknarmanna, sem lialdin var síðastliðinn (augardag. Lýkur frásögninni með þessum orðum: „. .. . óstundvísi á sam- komum eins og þessari og þarna gerði vart við sig, er móðgun við hina stundvísu, og einnig þá menn, sem fengnir eru til að skemmta. Slíkt má ekki henda. Þá hefði og mátt vœnta þess að fleiri Framsóknarmenn heiðruðu samkomuna með nærveru sinni en raun bar vitni.“ Með öðrum orðum: Þeir mættu bæði seint og illa! Utinn Mi vestm Þann 3. nóvember sl. andaðist að heimili sínu að Seattle á Kyrrahafsströnd frú Anna Vatns- dal, tæplega áttræð að aldri. Hún var eyfirzkrar ættar, dóttir Jóns Jónssonar á Munkaþverá og konu hans Guðnýjar Eiríksdóttur frá Einarsstöðum í Reykjadal, en fædd að Gimli. Hún var gift Þórði j (Thomasi) Vatnsdal timburkaup- manni, en hann er látinn fyrir 30 árum. Frú Anna kom ásamt dótt- ur sinni í heimsókn til íslands fyr- ir 4 árum í fyrsta og eina sinn, þá hálfáttræð, en alltaf hafði hún samband við ættingja sína heima og unni íslandi fölskvalaust. *___ INNBROT Síðastliðna sunnudagsnótt var brotizt inn í Viðgerðarstofu út- varpsins við Skipagötu og Hress- ingarskálann við Strandgötu. • — Ýmsu var rótað til í viðgerðar- stofunni en einskis saknað. Það- an hafði verið farið inn í af- greiðslu flóabátsins og stolið spíritusflösku, er lyfjabúðin á Siglufirði átti. í Hressingarskál- anum hurfu 100 krónur. Tveir unglingspiltar úr bænum höfðu verið hér að verki. ___«___ Alþýðusambandsþing hið 26. í röðinni var sett í Reykja- vík á þriðjudaginn. í gær voru mættir þar 344 fulltrúar frá 151 félagi, en frá tveim félögum voru engir fulltrúar mættir. Forseti þingsins var kjörinn Björn Jóns- son og 1. varaforseti Óskar Hall- grímsson. Litlar fréttir liggja fyrir frá þinginu ennþá. sooooocoooocooccoooocooc Ánnáll íslendings Persía hefir skipað sendiherra á ís- landi. Er hann jafnframt sendiherra í Svíþjóð og búsettur ]jar. □ Embætti ríkisféhirðis auglýst iaust til umsóknar. □ Einar Halldórsson bóndi á Brimnesi við Seyðisfjörð verður undir dráttar- vél og bíður bana. □ Maður slasast lífsliættulega í bif- reiðaárekstri á Hafnarfjarðarvegi. □ Ibúðarhúsið að Bakka í Austur-Land- eyjum ásamt liúsi í byggingu, sam- byggðu, eyðileggst í eldi. □ Elís O. Guðmundsson fyrrv. skömmt- unárstjóri andast í Reykjavík, 61 árs að aldri. □ Heyhlaða og fjárhús brenna að Felli í Sléttuhlíð, og fórust ]iar nær allar heyhirgðir bóndans, Björns Jónssonar, um 500 hestburðir. □ Dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, er væntanlegur hingað til bæjarins 6. des. næstk. á vegum Ferðafélags Akureyrar. Mun hann hafa meðferðis kvik- ^myndir og sýna hér. — Nánar I verður sagt frá þessu í næsta 1 blaði. ___*____ Togararnir Ilarðbakur var að landa karfa- farmi hér í gær. Afli áætlaður ca. 340 tonn. Kaldbakur kom í gær með ca. 230 tonn af karfa og landar vænt- anlega í dag. FYRIR 30 ÁRUM í blaðinu íslendingi 30. nóv. 1928 gefur að líta svohljóðandi f regn: „SVEITARAFVEITA. — Ný- lega liafa þrír bæir í Kaupangs- sveit komið upp hjá sér rafveitu. Eru það: Leifsstaðir, Fífilgerði og Krókstaðir. Er rafmagnið not- að til ljósa, hitunar og suðu. — Bjarni Runólfsson frá Ilólmi í Vestur-Skaftafellssýslu hefir stað- ið fyrir verkinu. Hefir hann virkj- að Bíldsá, og hefir stöðin 20 hest- afla kraft. Kostar rafveitan um 14 þús. kr.“

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.