Íslendingur


Íslendingur - 20.03.1959, Side 1

Íslendingur - 20.03.1959, Side 1
Þingið sóttu á 9. hundrað fulltrúar Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, hinn 13. í röðinni, var haldinn í Reykjavík dagana 11.—15. þ. m., og er hann langfjölmennasti lands- fundur stjórnmálasamtaka, sem haldinn hefir verið, og sátu hann á 9. hundrað manns. Setning í Gamla Bíó. Fundurinn var settur í Gamla Bíói í Reykjavík miðvikudags- kvöldið 11. marz, en að öðru leyti fór hann fram í Sjálfstæðishús- inu. Fundarstjóri hins fyrsta fund ar var Bjarni Benediktsson vara- formaður flokksins, en fundarrit- arar Jónas G. Rafnar og Sverrir Júlíusson. Formaður flokksins flutti þá mannfjölda, er sótti þenna 13. Landsfund flokksins. Að lokinni ræðu formanns var skipað í nefndir, hartnær 20 tals- ins, er liófu fundarstörf að morgni fimmtudags, 12. marz. Var fund- ur boðaður að nýju í Sjálfstæðis- húsinu kl. 4 um daginn, og kom þá fyrst fram nefndarálit utan- ríkis- og landlielgismálanefndar, og hafði Bjarni Benediktsson þar framsögu. Flutti hann ýtarlega yfirlitsræðu um stjórnmálin frá framsöguræðu, er stóð á aðra því síðasti landsfundur var hald- klukkustund, en á eftir fóru fram inn og störf flokksins á sama tíma-' almennar umræður. Stóð fundur- bili. Kom hann þar víða við og inn þenna dag með litlum hléum talaði nær 2j/2 klukkustund. Ræða hans hefir þegar birzt í heild í Morgunblaðinu, og verður hún því ekki rakin hér, en í for- ustugrein blaðsins í dag birtist kafli úr henni. Máli formanns var mjög vel tekið, og komust ekki allir í sæti, er fund þenna sóttu, enda er enginn samkomusalur til í Reykjavík, er rúmað gæti þann á nótt fram, og var mörgum nefndaálitum skilað á þeim tíma. Föstudaginn 13. marz voru ár- degis haldnir nefndafundir, en kl. 13.30 hófust umræður um álit- in að nýju. Stóðu umræður til kl. 7 að kvöldi, en kl. 8 bauð flokkur- inn öllum fulltrúum utan Reykja- víkur í Þj óðleikhúsið, þar sem Rakarinn frá Sevilla var sýndur. Fundurinn lengdur. Laugardaginn 14. marz hófust umræður kl. 10 að morgni, og var þeim haldið áfram til kl. 7 að kvöldi, en eftir það var gefið fund arhlé til kl. 10 árdegis á sunnu- dag. Ætlunin var, að fundur hæf- ist ekki þann dag fyrri en kl. 2 e. h., en þar sem svo margir voru á mælendaskrá á laugardagskvöld ið var ákveðið að hefja umræður á sunnudaginn fyrr. Fundinum lauk kl. 18.30 á sunnudag. Eitt af síðustu verkefnum fund- arins var kosning í miðstjórn. Áttu 5 menn að ganga úr stjórn- inni, þeir: Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson, Gunnar Thorodd- sen, Jóhann Þ. Jósefsson og Pétur Ottesen. Voru þeir allir endur- kjörnir, en í miðstjórn flokksins eiga 12 menn sæti, sumir sjálf- kj örnir. FortnaSur í fjórSung aldar. I lok fundarins ávarpaði Geir Hallgrímsson, formaður SUS, Ólaf Thors, formann flokksins, 1 tilefni af 25 ára formennsku hans í flokknum. Að máli hans loknu kvaddi Ólafur Thors landsfundar- fulltrúa með skörulegu ávarpi, Framhald á 5. síðu. Olafur Tliors fiytur yfirlitsrœðu við setningu Landsfundar Sjálfstæð- isflokksins 11. inarz. Hið frjáka framtak er fjörgfjafi allra framfara Stjórnmálaályktun 13. Landsfundar Sjálfstæðisflokksins Grundvallarskoðun Sjálfstæðismanna er sú, að andlegt frelsi og athafnafrelsi einstaklingamia sé fyrsta skilyrði þess, að kraftar og hæfileikar njóti sín til fulls. Stefna þeirra er að nýta hugvit og orku, sem í einstaklingnum býr, svo að hann fái frjáls og fjötralaus að njóta sín, þjóðinni allri, sér og sínum til frama og farsældar. Það er höfuð- stefna Sjálfstæðismanna, að atvinnurekstur sé í höndum einstaklinga og félaga, en ekki hins opinbera. Hið frjálsa framtak, samkeppni og eignarréttur einstakl- inga, hafa verið, eru og munu verða hinn tápmesti fjörgjafi allra framfara. Þessi stefna er í samræmi við íslenzkt þjóðareðli og þjóð- arþörf, og sagan hefir sannað réttmæti hennar. Reynslan sýnir, að þjóðir hins frjálsa athafnalífs búa miklu betur, bæði um andleg og efnaleg lífskjör, en þjáðar þjóðir hins alþjóðlega kommúnisma. Til þess að frelsi og framfarir komi að varanlegu gagni og lífskjör batni hjá alþýðu manna, er stöðugt verðgildi peninganna öðru fremur nauðsynlegt. Ella grúfir yfir sú hætta, að kjarabætur koðni niður og framkvæmdir reynist reistar á sandi. Lífskjör Islendinga og menningu má bæta að miklum mun með fjölbreyttari framleiðslu, aukinni tækni, bættum vinnu- brögðum og aukinni vöruvöndun, en allt miðar þetta til þess, að sérhver hönd og liugur afkasti drýgra starfi og skapi verðmæti meiri en áður var. Kirkjuvikan liér tókst mjög vel, og fór aðsókn að henni sívaxandi, ejlir því sem á vikuna leið. A föstu- dagskvöldið mœttu þar á 9. liundrað manna, en Icirkjan rúmar aðcins um 500 manns í sœti. Meðfylgjandi mynd er lekin á einu kvöldi kirkjuvikunnar, — Ljósm.: Hermann Ingimarsson. Frá fornu fari hafa íslendingar lifað á búnaði og fiski- fangi. Fjársjóð Islands við strendur þess, slagæð þjóðarinn- ar, þarf að vernda og verja með oddi og eggju og hvergi nema staðar unz náð er framtíðarmarkinu, sem er: Land- grunnið allt. Nú er risinn hinn þriðji bjargræðisvegur, iðnaður, sem svo hefir vaxið ört úr grasi á tveim tugum ára, að af honum Framh. á 5. síðu Landslundur Sjállstæðis- flokksins f jölmennasta þing, sem háð hefir verið

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.