Íslendingur


Íslendingur - 15.05.1959, Blaðsíða 2

Íslendingur - 15.05.1959, Blaðsíða 2
2 ISLENDINGUR Föstudagur 15. maí 1959 OfstáiSMÍiir i ddlkui »Dags« Framsóknarhatrið gegn þéttbýUnu andar tir hverri línu í næstsíSasta tbl. Dags skrifar Jónas kennari frá Brekknakoti grein, er hann nefnir „Lýðræðið í hættu“. Er grein þessi þrung.in svo miklu ofstæki og hatri í garð þeirra, sem í þéttbýli búa, •— og þó einkum höfuðstaðarins, að slíkt er fátítt að sjá, en sýnir vel hvaða hugarfar það er, sem Fram- sóknarblöðin hafa árum saman ræktað meðal sinna blindustu flokksmanna. 011 þau stóryrði og rangfærsl- ur, sem hrúgað er saman í grein- inni eru fyrst og fremst sprottin af því, að þrír flokkar hafa komið sér saman um að færa kjördæma- skipan landsins í lýðræðislegri átt en verið hefir, þannig að landsbúar hafi sem jafnastan kosningarétt. Slík skipan kosn- ingalaga og kjördæma er gerð til verndunar lýðræði og grundvelli þingræðis, en því aðeins er lýð- rœðið í hœttu, að einstakur stjórn- málaflokkur geti haft þrefalda þingmannatölu við aðra flokka, miðað við fylgi hans hjá þjóðinni, eins og flokkur Jónasar hefir haft um árabil. Það skiptir litlu máli, þó Jónas geri höfuðstaðarbúum og ein- stökum flokksfor.ingjum upp orð og ummæli í þessu hóflausa reiði- kasti. Það er alkunnur háttur þeirra manna, sem ekki kunna stjórn á skapi sínu. Hitt er öllu verra, er hann ræðst á núverandi stjórn fyrir það að vilja láta landsbúa utan Reykjavíkur sitja í kulda og myrkri og kennir henni um þær vanefndir um framkvæmd rafvæðingar í dreifbýlinu, sem hin fyrri stjórn, — vinstri stjórn- in, — tók þegar upp eftir valda- töku sína. Þetta heitir að hengja bakara fyrir smið, eða snúa v.issri bæn kristinna manna upp á höf- uðóvininn. Og svo kórónar hann allt, sem á undan er farið í lokaþætti grein- ar sinnar, þar sem hann gefur í skyn, að ungmennafélögunum beri að ganga til liðs við Fram- sókn í að halda flokknum á lofti með sérréttindaaðstöðu á Al- þingi, þótt til þess þurfi að sjálf- sögðu að breyta stefnuskrá ung- mennafélaganna. Hví hefir þá ekki kennarinn og æskulýðsleið- um toginn látið samþykkja ályktanir í kjördæmamálinu í íþróttafélög- um og skólum bæjarins, en það væri mjög hliðstætt tiltæki? Og að lokum: Hví átelur hann sérstaklega nemendur í Reykjavík fyrir að aka um bæ sinn í hey- vögnum en þegir um sama fyrir- bæri hér? jó. Kvikmynd um Billy Graham sýnd á Akureyri Kvikmynd frá starfi hins heims- kunna ameríska vakningaprédik- ara, Billy Graham, sem hefir ver- ið sýnd við mikla aðsókn í nokkr- um kvikmyndahúsum sunnan- lands, verður sýnd í Borgarbíói n.k. laugardag kl. 5 síðdegis. Iþróttir Fimleikasýning karla og kvenna undir stjórn Valdimars Örnólfs- sonar frá Reykjavík, handlcnatt- leikskeppni og körjuknattleiks- keppni við lið Ármanns og í. R. fer fram á íþróttavellinum um þessa helgi (16. og 17.). Hér verður stórt mót, sem marga mun fýsa að fylgjast með. □ Á sunnudaginn kl. 3 verða á í- þróttavellinum handknattleiks- keppnir og síðan keppt í körfu- knattleik. Kl. 6 verða fimleikasýn- ingarnar í Lóni. Á annan í hvíta- sunnu verða fimleikasýningarnar endurteknar á íþróttavellinum kl. 2, en síðan verða körfuknattleikur og handknattleikir. Heimsókn gestanna lýkur með dansleik að KEA. Nánar á götuauglýsingum. Vormót í frjálsum íþróttum og hraðkeppni í knattspyrnu fór fram urn síðustu helgi. Veður var mjög gott og árangrar í frjáls- íþróttum mjög góð.ir. Sakir rúm- leysis í blaðinu verður nánari frá- sögn að bíða næsta blaðs. Umdeildur maður. Undanfarin tíu ár hefir Billy Graham haldið vakningasamkom- ur á vegum mótmælendasafnaða í fjölmörgum stórborgum, bæði í Suður- og Norður-Ameríku, Ev- rópu, Asíu og Afríku. Hann og stór hópur samstarfsmanna hans, hafa síðustu tvo mánuði verið í heimsókn til Ástralíu og Nýja- Sjólands. Mesta athygli hafa vak- ið fréttir af samkomum hans í Melbourne, sem haldnar voru þar á hverjum degi í fjórar vikur við sívaxandi aðsókn. Síðustu sam- komurnar fóru fram á íþrótta- svæðinu, þar sem Ólympíuleikarn- ir voru háðir 1956. Á loka-sam- komunni voru áheyrendur yfir 140 þúsundir. Billy Graham hefir, líkt og allir miklir áhrifamenn, verið maður umdeildur. En um það eru ekki skiptar skoðanir, að hann er eftir- sóttastur allra núlifandi prédik- lio^nin^ar 28. Jianí n. k. Stjórnarskrárfrumvarpið, sem formenn þriggja stjórnmálaflokka báru fram á Alþingi fyrir nokkr- um vikum, var samþykkt á Al- Nýtt kaupskip Framhald af 1. síðu. boðs- og innflutningssamband um 50 fyrirtækja víðsvegar um land- ið, og hefir auk þesa á hendi margs konar fyrirgreiðslu aðra fyrir félagsmenn sína. Var það stofnað haustið 1954 eftir góðan undirbúning og yfirvegun. Þröngur kostur dreifbýlisins. Um aðdraganda að stofnun sambandsins fórust Tómasi svo orð: Verzlunarhættir allir höfðu svo breytzt í róti tveggja styrjalda, langvarandi haftabúskapar og sí- vaxandi afskipta almannavalds- ins, af utan- og innanríkisverzlun- inni, að ógerlegt var að þræða lengur hinar gömlu troðnu slóðir. Möguleikar einstaklings- og fé- lagsverzlana í hinni dreifðu byggð, til þess að verða sér úti um allar nauðsynjar héraðanna hlutu að versna með tilkomu þess skriffinnskubákns, sem viðskiptin urðu smátt og smátt undirorpin. í lok styrjaldarinnar síðari heyrðust oft raddir um það, að dreifbýlið teldi sinn kost mjög svo þröngan, hvað vöruframboð snerti, og voru ýmsar kröfur uppi til úrbóta. Það var þá, sem það komst á dagskrá, að stofnað yrði til slíkra samtaka, sem Verzlana- sambandið síðar varð. Með heildarsamningum ís- lenzku ríkisstjórnarinnar við Rússland, varð ennþá áþreifan- legra en áður, að ef verzlunarað- ilarnir í hinni dreifðu byggð landsins vildi tryggja sér viðhlýt- andi hluta þess varnings, sem um var samið og að hann kæmist beint og án aukakostnaðar á á- kvörðunarstaði sína, varð það ekki gert með öðru móti en að stofna til samtaka þeirra á milli, sem hér áttu sameiginlegra hags- muna að gæta. Helgi Bergsson hefir frá upp- hafi gegnt framkvæmdastjóra- starfi, en í stjórn sambandsins eru nú: Tómas Björnsson formaður, Friðrik Þórðarson framkv.stjóri Borgarnesi, Sigurður Ó. 'Ólafsson alþm. Selfossi, Jónatan Einarsson framkv.stj. Bolungavík og Ragn- ar Jónsson verzlunarstj. Vík í Mýr- dal. Fljótt kom í Ijós, að þörf var mikil fyrir flutningaskip, því þótt félagið keypti mikla flutninga af innlendum skipafélögum, hefir það ætíð haft erlend leiguskip í förum, er kostað hefir allt að 2.6 millj. kr. í erlendum gjaldeyri á einu ári. Því setti sambandið sér fljótt það mark að eignast eigið skip, en þar sem það sjálft er að- eins þjónustufyrirtæki þátttak- endanna, átti það ekkert fj ármagn til slíkra hluta. Leitaði það þá Ieyfis stjórnvalda á sl. sumri, og fékk leyfið að því tilskyldu, að 10 ára lán fengist erlendis með lítilli útborgun og góðum vaxtakjörum. Fór Helgi Bergs ásamt Gísla Gíslasyni stórkaupmanni í Vest- mannaeyjum litlu áður til Þýzka- lands, en þar tókst þeim að fá lof- orð um lán, er fullnægði settum skilyrðum. í febrúar sl. fóru þeir hinir sömu utan og gengu frá kaups- og lánssamningi fyrir kaupfari, sem verður 750 smál. d.W. með 750 ha Denty-Diesel aflvél. í nóvember sl. var svo hlutafé- lagið „Hafskip h.f.“ stofnað svo sem áður getur, og er Helgi Bergs- son Reykjavík formaður þess. Myndin ó erindi til allra. Kvikmyndin, sem nú er verið að sýna, er frá samkomunum í New York 1957, og er stórfengleg lýsing á þeim. Fullar tvær millj. manna sóttu samkomur þessar, en óvíst hve margar millj. fylgdust með þeim í útvarpi og sjónvarpi um öll Bandaríkin. Þetta hefir gerzt á sama tírna og flestir prédikarar aðrir hafa verið að velta vöngum yfir því, hvernig á því standi að þeir að jafnaði tala yfir hálftómum bekkj- um, hvort heldur úreltur boðskap- ur eða ófullkomnar starfsaðferð- ir. Billy Graham er þekktur fyrir að vera allra manna bíblíufastast- ur og að taka nútíma tækni í þjón- ustu fagnaðarboðskaparins. Þetta er mynd, sem á erindi íil allra. Á Akureyri verður hún sýnd í þetta eina skipti í Borgarbíói n.k. laugardag kl. 5 e. h. Allur ágóði rennur til bygging- ar sumarbúða KFUM og K í Eyja- firði. -------□-------- Skógræktin Framhald af 1. síðu. 16 drengir Ml g róðu rsetn inga rsta rf a. Þá skýrði framkvæmdastjóri félagsins, Ármann Dalmannsson, frá fjárhag félagsins, las reikn- inga þess, er fundurinn sam- þykkti, og lýsti síðan fjárhagsá- ætlun fyrir yfirstandandi ár. Þá gerði hann að umtalsefni sam- komulag bæjarstjórnar við félag- þingi sl. laugardag. Gegn frumv. greiddu allir þingmenn Fram- sóknarflokksins atkvæði. Þar er jafnframt ákveðið, að kosningar til Alþingis fari fram í & um aS þaS unglinga til sumar, og hefir nú verið ákveðið, að þær verði sunnudaginn 28. juni. Samkvæmt hinu nýja frum- varpi, skulu þingmenn verða 60. Skulu 12 þingmenn kjörnir í Reykjavík, 37 í 7 fimm og sex manna kjördæmum og loks verði 11 uppbótarþingsætum úthlutað, svo sem áður var, ef svo mörg þarf til jöfnunar milli flokka. Þinglausnir fóru fram í gær. Mörg framboð tilkynnt. Flokkarnir hafa að undanförnu gróðursetningarstarfa gegn því að það fengi til aukningar áður lögðum styrk það fé, sem annars hefir verið veitt til reksturs vinnu- skóla. Væri þegar ráðið, að taka 16 drengi á aldrinum 12—14 ára til vinnu við gróðurselningu. Almennar umræður. Að lokinni samþykkt reikninga og fjárhagsáætlunar var gefið fundarhlé, en að því loknu hófust almennar umræður um skógrækt á félagssvæðinu. Tóku þar til máls sr. Benjamín Kristj ánsson, Kristj- án Vigfússon, Ármann Dalmanns- | son og Helgi Eiríksson. Að því verið að ákveða framboð sín, og i - , „„„ ... i ... ’ & bunu var gengið td stjornarkjors. hafa mörg þeirra verið birt, eink- um hjá Sjálfstæðisflokknum. Eft- ir að síðasta framboð hjá flokkn- um var birt hér í blaðinu, hefir framboð Ólafs Tlwrs verið ákveð- ið í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Hér á Akureyri hafa verið til- kynnt framboð Björns Jónssonar fyrir Alþýðubandalagið og Frið- jóns Skarphéðinssonar fyrir Al- þýðuflokkinn. Hafa þá framboð allra þingflokkanna verið ákveð- án í Akureyrarkjördæmi. ---------□---------- Úr stjórn áttu að ganga Ármann, sr. Benjamín og Helgi Eiríksson, en þeir voru allir endurkjörnir. Loks voru kjörnir 6 fulltrúar á að- alfund Skógræktarfélags íslands. Félagar voru um áramót 614, og hafði fjölgað um 12 á árinu. KAUPUM HREINAR LÉREFTSTUSKUR Prentsmið ja Björns Jónssonar li.f.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.