Íslendingur - 15.05.1959, Blaðsíða 8
ÍSLENDINtáUR
fæst í Söluturnmum Hverf-
isgötu 1, Reykjavík.
Föstudagur 15. maí 1959
AUGLÝSINGAR,
sem birtast eiga í blaðinu, þurfa að ber-
ast afgreiðslunni eða prentsmiðjunni
fyrir hádegi daginn fyrir útkomudag
blaðsins, þar sem blaðið er prentað að
fullu þann dag.
WM—I
fábeyrb
afQÍöp
fandorstjórA
Eins og skýrt er frá hér á
öðrum stað í blaðinu var aðal-:
fundur Mjólkursamlags KEA i
haldinn nú fyrir skemmstu.
Á þessum fundi var m. a.
lögð fram tillaga frá 14 manna
nefnd, sem skipuð var á árinu
sem leið, til þess að gera tillög-
ur um mjólkurflutningamálin í
héraðinu, sérstaklega með til-
liti til þeirra, sem erfiðast eiga
með flutninga að samlaginu.
Var þar gert ráð fyrir auknum
jöfnuði á flutningskostnaði. I
þessu efni munu Svarfdælingar
bera mestan kostnað, einkurn
af vetrarflutningum.
Nefndin var öll sammála um
tillögurnar, að undanskildum
tveimur mönnum, er sátu hjá
við afgreiðslu málsins. Tillaga
þessi var mikið rædd, og sýnd-
ist sitt hverjum. Tillaga um að
vísa málinu heim í deildirnar
var felld með þeim röksemd-
um, að með því yrði aðeins
um að ræða töf á málinu.
Loks var tillaga 14 manna
ncfndarinnar borin upp í heild.
Reyndust 64 fundarmenn
fylgjandi hcnni. En er til kom
a3 telja mófotkvæði, bar telj-
urunum ckki saman. Sagði
fundarstjóri, sem var ekki
minni maður en GarSar Hall-
dórsson á Rifkelsstöðum, a3
þcssi ógreiningur gæti róðið
því, hvort tillagan yrði felld
eða ekki. Lét hann þvi endur-
taka MÓTATKVÆÐIN og
reyndust þau vera 65. Ur-
skurðaði hann þar með tillög-
una fellda.
Risu nú margir fundarmenn
T rúnaðarmaitnafuiydur
Fundarstjórinn.
úr sætum og kröfðust þess, að
öll atkvæðagreiðslan yrði end-
urtekin, en því synjaði fundar-
stjóri.
Það cr ólit margra, að þessi
afgreiðsla mólsins sé ólögleg
og samrýmist ekki fundar-
sköpum, enda mun það eins-
dæmi, oð fundarstjóri hagi sér
þannig við atkvæðagreiðslu.
— Tilgangur atkvæðagreiðsl-
unnar er að sjólfsögðu só, að
leita eftir vilja fundarmanna,
og greini á um úrslit, er vitan-
lega leitað atkvæða ó ný bæði
með og móti.
Getur verið, að fundarstjór-
inn, Garðar Halldórsson stór-
bóndi á Rifkelsstöðum, hafi
ekki verið sérlega áfjáður í að
tillagan væri samþykkt og þess
vegna hafi hann beitt þessum
bolabrögðum?
Garðar getur ekki skotið sér
undir það, að hann beri ekki
skyn á fundarsköp, því hann
hefir um mörg ár verið oddviti
í sveit sinni, formaður búnað-
arfélagsins í hreppnum, full-
trúi á Búnaðarþingi og þingi
Stéttarsambands bænda.
Það er athyglisvert, oð hann
hefir í öllum þessum félögum
Inema Stéttarsamb.) ýmist
séð um eða stutt samþykktir
gegn kjördæmamólinu. Það
eru margir að velta því fyrir
sér, hví hann bar ekki fram
slíka tillögu nú.
Skrif§tofa
Sjálfstœðis fiokksins
fyrir Akureyri og Eyjafjarðarsýslu
er í Hafnarstræti 101 (Amarohúsinu II. hæð). Opin kl. 10—
12 og 1—7. Sími skrifstofunnar er 1578.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og í Eyja-
fjarðarsýslu eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna og
veita henni upplýsingar. Þá eru þeir beðnir að tilkynna henni,
ef þeir hafa nýlega haft bústaðaskipti eða búast v.ið að verða
fjarverandi á kjördegi.
ungra Sjálfstæðismanna á Akur-
eyri og við Eyjafjörð var haldinn
í Verzlunarmannahúsinu síðast-
liðinn laugardag. Á fundinum
mætti Geir Hallgrímsson lögfræð-
ingur, formaður Samhands ungra
Sjálfstæðismanna og Magnús
Óskarsson lögfræðingur, sem er
varaformaður sambandsins.
Flutti formaður á fundinum
yfirlitsræðu um kjördæmamálið,
en ræddi síðan félagsmál ungra
Sjálfstæðismanna. Magnús Ósk-
arsson rakti sögu „vinstri stjórn-
arinnar“ svo nefndu, er svo
skyndilega gafst upp á efnahags-
málunum eftir Alþýðusambands-
þing.ið á síðastliðnu hausti.
Miklar og fjörugar umræður
urðu að loknum framsöguræðum,
og var fundurinn allur hinn á-
nægjulegasti. Stóð hann fram á
kvöld og var vel sóttur bæði úr
bæ og héraði.
Sams konar trúnaðarmanna-
fundir hafa nokkrir verið haldnir
að undanförnu sunnanlands og
vestan.
Mirmingarsj óður um Hauk
Snorrason ritsjóra
Nokkrir vinir og vandamenn
Hauks Snorrasonar, ritstjóra, sem
lézt 10. maí í fyrra, hafa ákveðið
að stofna sjóð, er beri nafn hans.
Verði hann til styrktar íslenzkum
blaðamönnum og í nánum tengsl-
um við Blaðamannafélag íslands.
Framlag í sjóðinn mun jafnan
þakksamlega þegið, en það fé,
sem safnast fram til 15. júlí n. k.
verður talið stofnfé hans. Eftir
þann dag verður gengið frá stofn-
un sjóðsins og honum settar regl-
ur og stj órn.
Þeim, sem vilja heiðra minn-
ingu Hauks Snorrasonar með því
að leggja skerf til þessarar sjóðs-
stofnunar, skal hent á, að fram til
15. júlí n.k. veita framlögum við-
töku, í Reykjavík, ritstjórarnir
Sigurður Bjarnason (Morgun-
blaðið) og Þórarinn Þórarinsson
(Tíminn). En á Akureyri Erling-
ur Davíðsson, ritstjóri, og Júlíus
Jónsson, bankastjóri.
Kappreiðár »L/éttis«
Um aðra hclgi efnir Hestamanna-
félagið Léttir til kappreiða og góð-
hcstakcppni ó skeiðvelli félagsins við
Eyjafjarðaró. Verður þar keppt í
skeiði og stökki. Þó verða og voldir
þar góðhestar þeir, sem sýndir verða
ó vegum félagsins á Fjórðungsmóti
hestamanna á Sauðórkróki, en það
fer fram 1 1. og 12. júlí n. k.
Um þessar mundir eru hesta-
menn bæjarins að æfa hesta sína
undir þessa keppni. Hestaeign í
bænum fer stöðugt vaxandi og má
segja að hestamennska sé hér með
miklum blóma. Þetta mun ekki
hvað sízt að þakka mikilli starf-
semi Léttis. Félagið rekur nú
jjjjjjjj
1 tamningastöð og eru í vetur tamd-
ir þar 15 hestar. Þá hefir félagið
haldið 11 skemmtifundi í vetur
auk árshátíðar og afmælishófs, en
félagið var 30 ára á síðasta ári.
Tamningamaður hjá félaginu er
Þorsteinn Jónsson, hinn kunni
hestamaður. Formaður Léttis er
Árni Magnússon.
Það er ekki að efa að fjöldi
fólks mun sækja kappreiðar fé-
lagsins um aðra helgi, því þær
þykja jafnan viðburður og eru
einkar skemmtilegar á að horfa.
Veðbanki mun starfa í sambandi
við keppnina.
„Samkvæmni"
í irtáSfSufrsiiigi.
Alfreð Gíslason læknir, sein komm-
únisfar ánetjuðu fyrir fám árum,
flutti við eldhúsdagsumræðurnar á
mánudagskvöldið einhverja sóðaleg-
ustu ræðu, sem við slíkar umræður
hafa fluttar verið, hlaðna stóryrðum,
blckkingum, beinum ósannindum og
illkvittni, en öllum sóðaskapnum var
beint að Sjálfstæðisflokknum. En
ekki var samkvæmninni fyrir að fara.
Snemma í ræðunni léxt hann vera að
lýsa „skemmdarverkum", er Sjálf-
stæðisfiokkurinn hefði unnið gegn
vinsíri stjórninni til að eyðileggja
baráttu hennar gegn dýrtiðinni, og
tók þar til dæmis, að iðnverkafólk í
Reykjavík fékk lítilf jörlegar kjara-
bætur, ÁN VINNUSTÖÐVUNAR,
eftir að aðrar stéttir mun launahærri
höfðu fengið kjarabætur að forgöngu
ríkisstjórnarinnar eða manna úr
henni, sbr. starfsmenn SIS.
En eftir að Alfreð er búinn að lýsa
3—5% kjarabótum hjá LÆGST
LAUNUÐU stéttinni í Reykjavík, er
fékkst með frjálsum samningum, —
lýsa þeim sem skemmdarverkum gegn
viðleitni stjórnarinnar ■ stöðvun
verðbólgunnar, STAÐHÆFIR HANN
í LOK RÆÐUNNAR, AÐ ÞAÐ SÉ
HÆTTULEG BLEKKING, AÐ KAUP-
GJALD HEFÐI HIN MINNSTU Á-
HRIF Á VERÐBÓLGU OG DÝR-
TÍÐ (!)
□
Hverjir sviku?
Framsóknarblöðin liafa verið að
belgja sig út yfir því, að „stjórnar-
flokkarnir", sem þau svo nefna, hafi
svikið i raforkumálunum og ætli að
stöðva raforkuframkvæmdir í byggð-
um landsins. Fjármálaráðherra upp-
lýsti í útvarpsræðu sl. mánudags-
kvöld, að með þeim breytingum, sem
gerðar hefðu verið á rafvæðingará-
ætluninni, teldi raforkumálastjóri, að
orkuframleiðslan ykist, en kostnaður
yrði að mun minni. Því ætti siður en
svo að draga úr rafvæðingunni.
Jafnframt upplýsti hann, að FRÁ-
FARANDI RÍKISSTJÓRN HER-
MANNS JÓNASSONAR HEFÐI Á
SL. ÁRI FELLT NIDUR 12V2 MILLJ.
KR. FJÁRVEITINGU, ER NÆGJA
HEFÐI ÁTT TIL AÐ RAFVÆÐA 124
BÝLI í ÝMSUM LANDSHLUTUM.
Þessi „sparnaður" vinstri stjórnar-
innar í rafvæðingu sveitanna náði m.
a. til 22 bæja í Saurbæjarhreppi
Eyjafirði og 17 í Svarfaðardals-
hreppi.
Von er að Framsókn tali um svik!
□