Íslendingur - 21.10.1959, Side 6
6
ÍSLENDINGUR
Miífvikudagur 21. október 1959
Mofélag Eyjirðínga mótnelir
Stjórn Bændafélags Eyfirðinga I
kom saman á fund í dag — 14.
þ. m. til að ræða viðhorf þau, sem
skapast hafa við setningu bráða-
birgðalaga ríkisstj órnarinnar frá
18. sept. sl. um verðstöðvun á
landbúnaðarvörum.
Fyrir þessum fundi stjórnar
Bændafélags Eyfirðinga, lá álykt-
un frá sameiginlegum fundi
stjórna Bændafélags Fljótsdæl-
inga og Þingeyinga, sem haldinn
var á Egilsstöðum 4. okt. s. 1.
Alyktun þessi er svohljóðandi:
„Sameiginlegur stjórnarfundur
Bændafélags Fljótsdalshéraðs og
Bændafélags Eyfirðinga, haldinn
að Egilsstöðum 4. okt. 1959, mót-
mælir harðlega nýsettum bráða-
birgðalögum um verð landbúnað-
arafurða og telur þau fela í sér
réttindaskerðingu fyrir bænda-
stéttina og gerir þá kröfu til Al-
þingis, að þau verði úr gildi felld.
Með því að fundurinn telur, að
Framleiðsluráðslögin hafi verið
gerð óvirk með neitun neytenda-
samtakanna um aðild að samning
um og með setningu nefndra
bráðabirgðalaga, vill fundurinn
skora á Stéttarsamband bænda að
hefja undirbúning að nýrri laga-
setningu, um sölu og verðlagningu
landbúnaðarvara.
í ákvæðum nýrra afurðasölu-
laga sé gengið útfrá, að bændur
einir hafi alla framkvæmd verð-
lagningar og samningsaðild varð-
andi hana, en séu ekki háðir gerð-
ardómi, eins og verið hefur.
Ef svo ógæfusamlega tekst til,
að yfirstandandi verðlagsdeila
leysist ekki á viðeigandi hátt og
stjórn Stéttarsambands bænda
telur sig til neydda, til þess að á-,
kveða sölustöðvun á landbúnað-1
arvörum, skorar fundurinn á
bændur landsins að standa ein- j
huga saman að þeirri ákvörðun,
og telur sjálfsagt og skylt, að
bændur beri sameiginlega sitt
tjón, er af slíkri sölustöðvun leið-
ir.“
Stjórn Bændafélags Eyfirðinga
samþykkti einróma að gerast aðili
að þessari ályktun.
Er ofangreind ályktun því sam-
eiginleg ályktun stjórna þriggja
bændafélaga, en stjórnir félag-
anna skipa eftirtaldir menn:
Bœndafélag Fljótsdalshéraðs:
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum,
Björn Kristjánsson, Grófarseli og
Páll Sigbj örnsson, Egilsstaða-
kauptúni.
Bœndafélag Þingeyinga: Jón
Sigurðsson, Yztafelli, Þrándur
Indriðason, Aðalbóli, Baldur
Baldvinsson, Ófeigsstöðum, Har-
aldur Jónsson, Einarsstöðum og
Finnur Kristjánsson, Húsavík.
Bœndafélag Eyfirðinga: Eggert
Davíðsson, Möðruvöllum, Gunn-
ar Kristjánsson Dagverðareyri,
Árni Jónsson, Háteigi, Garðar
Halldórsson, Rifkelsstöðum og
Ketill Guðjónsson, Finnastöðum.
Eggert Davíðsson
formaður.
StjórniDdlalundsr
á vegum F. U. S. Varðar og Samb.
ungra Sjálfstæðismanna var hald-
inn í Lóni sl. fimmtudagskvöld, og
var hann vel sóttur. Frummælend-
ur á fundinum voru F-vjólfur K.
Jónsson lögfræðingur, Geir Hall-
grímsson formaður S. (J. S. og
Leifur Tómasson formaður Varð-
ar. Auk þeirra tóku til máls Gísli
Jónsson menntaskólakennari og
Magnús Jónsson alþingismaður.
Fundarstjóri var Magnús Stef-
ánsson bóndi í Fagraskógi.
Eyjólfur K. Jónsson ræddi um
almenningshlutafélög og mögu-
leika á auknu atvinnulífi á Norð-
urlandi, Geir Hallgrímsson um
stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins og
Leifur Tómasson um stjórnmála-
viðhorfið og þátttöku unga fólks-
ins í stjórnmálunum.
Klígjar ekki
við tnggunni
I Tímanum sl. sunnudag skrifar
Vigfús GuSmundsson hclgidagshug-
leiðingu, er hann nefnir „Vegamót".
Uppistaða hennar er hin óratuga
gamla tugga Framsóknar, sem flest-
um er nú orðið flökurt of að heyra
um „arftaka gömlu selstöSukaup-
mannanna dönsku", en þannig cr
flokkur 45% þjóSarinnar nefndur,
— langstærsti flokkur landsins. Þó
talar Vigfús um „Júdasarfrændur inn
an bændastéttarinnar", og ó hann
þar vafalaust við þó fjölmörgu bænd-
ur, sem ekki hafa lótið ónetjast Fram
sóknarflokknum. Þeir eru sannarlcga
orðnir margir ættmenn Júdasar í land
inu, ef skilgreining Vigfúsar ætti við
rök að styðjast.
/ sumar hefir verið unnið
að byggingu tveggja hœða of-
an á hús bœjarins við Geisla-
götu, þar sem Slökkvistöðin
hefir aðsetur. Mynd þessi er
nýlega tekin af byggingunni,
en þá var verið að steypa þá
hœð, sem fyrirhugað er að
gera fokhelda fyrir veturinn.
Sífjölgandi nnlcriokrat
Frá 1. janúar til 1. október þ.á.
höfðu alls 22 menn verið kærðir
fyrir ölvun við akstur samkvæmt
upplýsingum Hermanns G. Jónas-
sonar fulltrúa lögreglustj órans hér
í bæ, og hefir þessum brotum far-
ið fjölgandi með aukinni bílaeign
og umferð. Á árinu 1958 voru alls
20 kærðir fyrir sama brot. Allmik-
ið hefir verið um ölvun og ölvun-
arbrot og þeim fjölgað, og fjöldi
umferðabrota, svo sem röng stað-
setning bifreiða og fleira, sem
lögreglan hefir haft til meðferðar.
Ekki hafa teljandi umferðarslys
eða meiðsli á mönnum orðið á
þessu ári, en eins og að undan-
förnu eru alltaf öðru hverju bíla-
árekstrar og oft allmiklar skemmd-
ir á farartækjum.
Ræða Bjartmars
Framh. af 4. síðu.
sem utan við þetta situr áratug-
um saman eða æfilangt?
Glamuryrði um jafnvægi í
byggð landsins er ákaflega ó-
skemmtilegur talandi, ef ekkert er
á bak við nema sýnast.
Það hefur oft heyrst í blöðum
hin síðustu ár,að fyrrverandi rík-
isstjórn hafi stuðlað ekki svo lítið
að þessu jafnvægi. Mér finnast
þetta hálfgerð öfugmæli.
Á rafmagnið drap ég. Ég ætla
aðeins að tæpa á öðru máli. Fóð-
urbætisvörur og landbúnaðarvél-
ar voru hækkaðar í verði í tíð
fyrrv. stjórnar um einn þriðja
hluta. Það var rökstutt þannig, að
móðgandi verður að telja. Rökin
voru þau, að þetta væri nauðsyn-
legt, svo bændur hættu ekki að
afla innlends fóðurs, heyjanna að
meira eða minna leyti. Ég neita
ekki að það haf.i máske legið að
því ill nauðsyn að tolla þessar vör-
ur eitthvað um leið og aðrar, til
að afla fjár, svo hjólið gæti snúist
enn eitthvað til bráðabirgða. En
rekstrarvöruskattur þessi var afar
ósanngjarn og rökstuðningurinn
fyrir honum þó enn fráleitari.
Hugur minn er mjög bundinn
við sveitirnar. Þær standa mér
næstar. Samt þekki ég nokkuð til
annars staðar. Og á fáu hefi ég
meir óbeit en metingi og ríg
milli sveita og sjávarþorpa eða
bæja. Það er um hann eins og
hvern annan nágrannakrit, sem
sprottinn er af nærsýni.
Ég drap á örfá byggðarlög í
sambandi við raforkuna. Það var
ekki af því að sérstaklega stæði
þar á. „Svona hvað það vera um
allar jarðir“, sagði Þorsteinn
Erlingsson í öðru sambandi.
Um þetta stóra mál, mál mál-
anna í sveitunum höfum við ver-
ið of tómlát síðan á dögum Jóns
Þorlákssonar. Rafvæðingin á öllu
íslandi gat verið komin í kring,
ef vel hefði verið á spilunum hald-
ið meðan þjóðin svo að segja óð
í peningum. 10—12 milljónir þá
á ári hefðu sagt mikið og hvergi
sést nú, þó þær hefðu farið í þetta.
En um orðinn hlut skal ekki sak-
ast. Þó að ég vekji máls á þessu,
get ég engu lofað hér fyrir hönd
eins eða neins. En orð eru til alls
fyrst. Og ekki skaðar að ýta við
þeim, sem á verðinum eiga að
vaka.
Mig langaði til að minnast á
margt annað. En hingað og ekki
lengra, segir stundaglasið.
Góðar stundir.
-------X-------
Þurfti ekkert o) segju!
Það vakti athygii í Ólafsfirði á
dögunum, er Framsókn hélt þar
skemmtisamkomu, að Ingvar
Gíslason tók þar ekki til máls, þótt
þar væri staddur. Hafa gárung-
arnir haft það í flimtingum, að
hann teldi „rökstuddu líkurnar“
fyrir kjöri sínu svo sterkar, að
ekki væri þörf á að ávarpa Ólafs-
firðinga!
NýnisSiorn áf kjörseðli þegrar D-litstínii hefir verið ko§inn
A Listi Alþýðuflokksins B Listi Framsóknarflokksins x D Listi Sjólfstæðisflokksins F Listi Þjóðvarnarflokks íslands G Listi Alþýðubandalagsins
Friðjón Skarphéðinsson Korl Kristjónsson Jónas G. Rafnar Bjarni Arason Björn Jónsson
Bragi Sigurjónsson Gisli Guðmundsson Magnús Jónsson Bergur Sigurbjörnsson Póll Kristjónsson
Guðmundur Hókonarson Garðar Halldórsson Bjartmar Guðmundsson Hjalti Haraldsson Ingólfur Guðmundsson
Tryggvi Sigtryggsson Ingvar Gislason Gísli Jónsson Björn Halldórsson Soffío Guðmundsdóttir
Guðni Arnason Jakob Frimannsson Björn Þórarinsson Eysteinn Sigurðsson Kristjón Vigfússon
Kristjón Ásgeirsson Björn Stefónsson Vésteinn Guðmundsson Hermann Jónsson Sigursteinn Magnússon
Hörður Björnsson Valtýr Kristjónsson Friðgeir Steingrímsson Tryggvi Stefónsson Olgeir Lúthcrsson
Sigurður E. Jónasson Þórhollur Björnsson Póll Þór Kristinsson Sigfús Jónsson Jón B. Rögnvaldsson
Ingólfur Helgason Edda Eiríksdóttir Arni Jónsson Svava Skaptadóttir Lórus Guðmundsson
Jóhann Jónsson Teitur Björnsson Baldur Kristjónsson Magnús Alberts Jón Þór Buch Friðriksson
Jón Sigurgeirsson Eggert Ólafsson Baldur Jónsson Aðalsteinn Guðnason Daniel Daníelsson
Magnús E. Guðjónsson Bernharð Stefónsson Jóhannes Laxdal Stefón Halldórsson Tryggvi Hclgason