Íslendingur - 21.10.1959, Qupperneq 8
Miðvikudagur 21. október 1959
Góðir fundir Sjálfstæðismanna í
Ólafsfirði og á Grenivík
53 iiýir
Varðarfélagfar
í fyrrakvöld efndi F.U.S. VörS-
ur til félagsfundar, þar sem rætt
var um kosningaundirbúning.
Leifur Tómasson setti fund og
stýrði honum. Las hann upp inn-
tökubeiðnir fró 53 aðilum og voru
þær allar samþykktar. Vignir
Guðmundsson blaðamaður flutti
óvarp. Skýrt vor fró störfum
fjórðungsþings S.U.S. ó Norður-
landi, sem fram fór ó Blönduósi í
september siðastliðnum.
Fundurinn var fjölsóttur og
lýsti miklum baróttuhug Varðar-
félaga, sem jafnan hafa verið
góðir liðsmenn við hverjar kosn-
ingar.
Góður
lið§anki
Só atburður skeði nú fyrir
skömmu, að maður só, er var onn-
ar ó lista Alþýðuflokksins i Eyja-
fjarðarsýslu við kosningarnar í vor
gekk í Sjólfstæðisfélagið i Ólafs-
firði og hefir þar með sagt skilið
við Alþýðuflokkinn.
Hér er um að ræða Gísla M.
Gislason stýrimann á m.s. Gunn-
ólfi. Gísli er fæddur og upp alinn
í Hofsósi en fluttist til Ólafsfjarð-
ar fyrir 7 órum siðan. Hann lauk
prófi fró Stýrimannaskólanum
1948.
Gísli er formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Ólafsfjarðar.
Sjólfstæðismenn í Ólafsfirði
fagna því að fó þennan kunna og
ötula mann til samstarfs og bjóða
hann velkominn í félog sitt.
MELSKURÐI LOKIÐ
Melskurði er nú lokið í Keldu-
hverfi, en þar fer hann að mestu
fram fyrir allt landið. í haust
hefir verið skorinn melur á Ar-
sandi, Hólssandi og við Víkinga-
vatn. Starfaði margt fólk að mel-
skurðinum og gekk vel, enda var
tíð góð, að því er fréttamaður
blaðsins tjáði því í fyrrakvöld.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra efndu til tveggja almennra
stjórnmálafunda um síðustu helgi.
Voru fundir þessir í Ólafsfirði og
á Grenivík.
, Ólafsfiörður.
Fundurinn í Ólafsfirði var s. i.
sunnudag og hófst kl. 4 síðdegis.
Fundarstjóri var Ásgrímur Hart-
mannsson, bæjarstjóri. Frum-
mælendur voru þeir Gísli Jónsson,
Vésteinn Guðmundsson og Magn-
ús Jónsson. Að loknum ræðum
þeirra talaði Ásgrímur Hart-
mannsson. Fundinn sátu um 80
manns.
Grenivík.
Fundurinn í Grenivík var s. J.
mánudagskvöld. Fundarstjóri var
Jóhann Stefánsson, útgm. Frum-
mælendur voru þeir Jónas G.
Rafnar, Bjartmar Guðmundsson
og Magnús Jónsson. Að loknum
frumræðum þeirra tóku til máls
þeir Jóhannes Laxdal, hreppstjóri,
Tungu, Stefán Stefánsson, Sval-
barði, Baldur Jónsson, bóndi,
Grýtubakka, og Sverrir Guð-
mundsson, oddviti, Ljómatjörn.
Magnús Jónsson svaraði síðan
nokkrum fyrirspurnum þessara
ræðumanna. Fundinn sátu um 50
manns.
Nýlega var stofnað Sjálfstæðis-
félag á Þórshöfn á Langanesi.
Stofnendur voru 38. Formaður
þess er Helgi Þorsteinsson og aðr-
ir í stjórn: Jón Ólafsson, Jóhann
Jónsson, Iðunn Jónsdóttir og
Baldur Jónsson Garði.
Á fundinum mættu alþingis-
mennirnir Magnús Jónsson og
Jónas G. Rafnar.
^bemnuÍArvðrgAr í Lgstigarðjnum
Sl. sunnudagsnótt var farið inn
í Lystigarðinn og framin þar ýms
skemmdarverk. M. a. voru plöntur
rifnar upp með rótum, slitnar1
greinar af trj ám og nafnspj öld 1
tekin frá mörgum plöntum en sett
niður hjá öðrum til að rugla nöfn
um á þeim.
Lystigarðurinn hefir verið op-
inn daglega frá 1. júní til 18. okt.,
en auk þess var hann marga daga
opinn í maí, meðan hreingerning
og lagfæring á honum fór fram.
Segir garðyrkjuráðunautur og
gæzlumaður garðsins, Jón Rögn-
valdsson, að sífelldur straumur
gesta hafi verið í allt sumar að
skoða garðinn, jafnt bæjarbúar
og ferðafólk. Telur hann líklegt,
að í sumar hafi verið meiri að-
sókn þangað en nokkru sinni. Um-
gengni hafi yfirleitt verið góð, þó
lítillega hafi út af brugðið, en þá
ekki um verulegar skemmdir að
ræða.
Á sunnudagskvöldið tók lög-
reglan tvo óboðna gesti, sem voru
ölvaðir inni í garðinum. Höfðu
þeir klifrað yfir girðinguna. Ekki
var þó kunnugt um, að þeir hefðu
framið nein spjöll í garðinum.
ViðurhenBingarslijal
Síðastliðinn laugardag, 17.
þ. m., kom varajorseti íþrótta-
sambands Jslands, Guðjón
Einarsson, til Akureyrar og
fœrði Akureyrarbœ skrautrit-
að skjal frá I.S.I., undirritað
af sljórnarmönnum íþróttasam
bandsins, þar sem bæjarstjórn
Akureyrar er vottað þakklœli
og viðurkenning fyrir bygg-
ingu íþróttamannvirkja.
í rœðu, sem Guðjón Einars-
son helt við þetta tœkifœri, fór
hann lofsamlegum orðum um
stuðning Akureyrarbæjar við
íþróttamenn hér fyrr og síðar.
Forseti bœjarstjórnar Akur-
eyrar, Guðmundur Guðlaugs-
son, veitti viðurkenningar-
íkjalinu móttöku fyrir hönd
bœjarstjórnar að viðstöddum
bœjarráðsmönnum og nokkr-
um forystumönnum íþrótta-
mála hér.
Myndin fyrir neðan er af
afhendingu viðurkenningar-
skjalsins. Fyrirsvarsmenn bœj-
arins og íþróttasamtakanna.
Frá vinstri: Jón Ingimarsson,
Armann Dalmannsson, Guð-
mundur Guðlaugsson, Guðjón
Einarsson, Hermann Stefáns-
son, Magnús E. Guðjónsson og
Bragi Sigurjónsson.
Karl Kristjánsson
og Nazistagrýlan.
Karl Kristjánsson sagði í útvarps-
umræðunum, aS ef aldrei yrSi framar
vinstri stjórn á íslandi, þýddi þaS
ekkert annað en nazisma. Karl virð-
ist seni sagt álíta, aS alls staðar, þar
sem ekki sitji vinstri stjórn að völd-
um, ráði nazismi lögum og lofum.
Við viljum aðeins minna á, að í
Bretlandi og Bandaríkjunum, svo að
einhver dæmi séu nefnd, sitja hægri
stjórnir við völd og hafa setið all-
lengi. Máske ætlar Karl að telja
mönnum trú um, að nazismi sé rikj-
andi í þessum löndum?
Honum mun ganga illa að sann-
færa menn um slikt, enda minnast
menn þess, að það voru einmitt þessi
ríki undir forystu hægri sinnaðra
manna, sem risu upp gegn nazisman-
um og hrundu ógn hans af heims-
þjóðunurn.
Á síðustu stundu.
I útvarpsumræðunum í síðustu
viku sagði Karl Kristjánsson, að Her-
mann Jónasson hefði ekki getað dreg-
ið lengur að biðjast lausnar fyrir
stjórn sina, þvi að annars hefði eng-
inn talað um það nú að fá vinstri
stjórn.
Meiri fordæmingu á vinstri stjórn-
inni er naumast hægt að hugsa sér.
Þessi orð verða eigi skilin á annan veg
en þann, að afglöp vinstri stjárnar-
innar hefðu orðið svo augljós innan
skamms, að Hermann hefði neyðst til
að hlaupa af stjórnpalli þegar i stað
til þess að eyðileggja ekki alla mögu-
leika á myndun vinstri stjórnar í
framtíðinni.
Furðulegast af öllu er þá það, að
maðurinn, sem auglýsir svo berlega
gjaldþrot vinstri stjórnarinnar skuli
finna þá eina lausn á vandamálum
þjóðar sinnar að leiða slíka ógæfu-
stjórn aftur í valdastóla. Margir
munu óska Karli Kristjánssyni betrai
hlutskiptis.
íslenzk verzlunorsfétt
| vann mikið og gott verk, meðan
verið var að ná verzluninni i islenzk-
ar hendur. Slikt meta flestir og viður-
kenna, þótt einstaka æsingapiltar, á
borð við Vigfús Guðmundsson haldi
öðru fram i Timanum sl. sd. Hagn-
aðurinn af verzluninni og iðnaðinum
rennur nú nær allur til að byggja upp
þetta land og styðja þá sem stuðning
þurfa i formi svonefndrar lýðhjálpar.
Fyrir hin háu útsvör á þessum aðilum,,
eru götur lagðar og hafnir byggðar,
fræðslu unga fólksins haldið uppí„
löggæzlu, brunavörnum og margvís-'
! legri menningar- og félagsmálastarf-
semi, svo að eitthvað sé nefnt. En á
sama tíma greiðir STÆRSTA VERZL-
UNARFYRIRTÆKI LANDSINS EKK-
ERT ÚTSVAR, — það fyrirtækið, semi
Framsóknarflokkurinn sýgur eins og,
tilberi til að hálda uppi áróðri sínum,,
svo geðslegur sem hann er.