Íslendingur


Íslendingur - 21.10.1960, Side 5

Íslendingur - 21.10.1960, Side 5
Föstudagur 21. október 1960 ÍSLENDINGUR 5 Leikhúsið: P ABBI Bandarískur gamanleikur í 3 þótfum. Leikféla síðastliðinn sunnuda. inn PABBA eftir Howard say og Russel Crouse. & Akureyrar frumsýndi ö gamanleik- Lind- en áður hefir leikurinn verið sýndur í Þj óðleikhúsinu á öðru leikári þess við mikla hrifningu með hjónin frú Ingu Þórðardóttur og Alfreð heitinn Andrésson í aðal- hlutverkum. Islenzku þýðinguna hefir Sigurður Grímsson leikdóm- ari gert, en leikstjóri er Jónas Jónasson, sem áður hefir sett sjónleiki á svið hér, bæði fyrir Leikfélag Akureyrar og Mennta- skólann. Leikurinn gerist í New York fyrir 80 árum á heimili Day-fjöl- skyldunnar og fjallar um heimil- islíf hennar. Eru leikendur 15 talsins og meiri hluti þeirra alls óvanur að koma fram á leiksviði. Má það furða teljast, hve vel leik- stjóranum hefir tekizt að vinna úr ómótuðum efniviði, og ber það vott um hæfileika hans og elju. Aðalhlutverkið, heimilisföður- inn (Pabbann), leikur Jón Krist- insson. Er það fyrirferðarmikið hlutverk, sem engum heiglum er hent að leysa vel af hendi. En Jón er ekki alls óvanur að sýna taugaveiklaða æðikolla eins og Pabha og kemst því vel frá hluj- verkinu, þótt örðugt sé. Hina slóttugu og „reikningsglöggu“ eiginkonu hans sýnir frú Björg Baldvinsdóttir af góðum skiln- ingi á hlutverkinu, en það er ann- að mesta hlutverk leiksins. Þau hjón eiga 4 sonu, er tals- vert koma við sögu í leiknum, einkum hinn elzti, Yale-stúdent- inn Clarence. Með hlutverk þeirra fara Arnar Jónsson, Börkur Ei- ríksson, Einar Haraldsson og Ulf- ar Hauksson, talið frá hinum elzta til hins yngsta. Má segja, að meðferð þessara ungu leikenda allra sé óaðfinnanleg, og sérstak- lega ber að geta leiks hins elzta, Arnars Jónssonar, sem telja má einn hinn bezta í þessari sýningu, alveg án tillits til reynslu eða reynsluleysis. Hin margvíslegu svipbrigði og viðbrögð Arnars geta ekki öll verið leiðbeinandan- um að þakka. Maður hefir það einhvern veginn á tilfinningunni, að þessi ungi maður hafi áunna eða meðfædda hæfileika til að koma fram á leiksviði. Aí öðrum hlutverkum, sem á- stæða er til að telja einkar vel af liendi leyst, eru Cora frænka (Ester Jóhannsdóttir), Mary (Guðný Sigurðardóttir), Mar- garet (Kristín Konráðsdóttir) og Annie (Soffía Jakobsdóttir). En í heild er leikurinn mjög vel út- færður, veikir hlekkir tæplega sýnilegir, og er það óvenjulegt, þegar um svo marga nýliða er að ræða, sem hér koma fram. Auk þeirra, sem hér hafa verið nefnd- ir, koma fram í leiknum í smá hlutverkum: Jón Ingimarsson sem séra Lloyd, Kjartan Ólafsson sem Humjjreys læknir, Yilhelm- ína Sigurðardóttir, Freygerður Magnúsdóttir og Guðrún Árna- dóttir, allar stofustúlkur hjá Day- hjónunum (en þeim hélzt illa á vinnukonum!). Leiktjöld málaði Aðalsteinn Vestmann. Leiksviðsstjóri er Oddur Kristj ánsson. Ljósameist- ari Yngvi Hjörleifsson. Búningar fengnir að láni hjá Þjóðleikhús- inu. Á frumsýningu var þessum létta gamanleik vel tekið, leikendur og leikstjóri klappaðir fram hvað eftir annað og aðalleikendum og leikstjóra færðir blómvendir. íbúum landsins íjölgar óðfluga Days-hjónin: Björg og Jón Kristinsson. Milli þeirra elzti sonurinn Clarence (Arnar Jónsson). Ljósrn.: E. Sigurgeirsson. 10 flugferðir á viku milli Akureyrar og Reykjavíkur í fréttatilkynningu, sem blöð- um hefir borizt frá Flugfélagi Is- lands um vetraráætlun félagsins, segir svo um innanlandsflugið: Samkvæmt vetraráætlun innan- landsflugs Flugfélags Islands verða tíu ferðir á viku til Akur- eyrar, sjö til Vestmannaeyja, fjórar til ísafjarðar og þrjár ferðir á viku til Egilsstaða. Tvær ferðir í viku verða til Horna- fjarðar, Húsavíkur og Sauðár- króks. Ein ferð í viku verður til Fagurhólsmýrar, Flateyrar, Kirkjubæjarklausturs, Patreks- fjarðar, Siglufjarðar og Þingeyr- ar. í sambandi við ferðir til Siglufjarðar er vert að taka fram, að enda þótt ekki sé flogið þang- að nema á mánudögum eru ferð- ir aðra daga miðaðar við ferðir flóabátsins Drangs til Siglufjarð- ar, Ólafsfjarðar og annarra hafna, sem hann hefir viðkomu á. Þann- ig eru t. d. þriðjudagsferðir til Sauðárkróks miðaðar við að far- þegar geti komist samdægurs til Siglufjarðar, en Drangur fer frá Sauðárkróki laust eftir komu flu: vélarinnar þangað. Á miðviku- dögum fer flugvél ekki frá Akur eyri fyrr en eftir komu flóabáts- ins og sama gildir um seinni ferð frá Akureyri á laugardögum. — Dakotaflugvélar fljúga nú til Isa fjarðar og leysa Katalínaflugvél- arnar þar af hólmi. Á undanförn- um árum hefir verið komið við á Höfuðborgin með 71 þús. Ný Hagtíðindi skýra frá því, að af 173.855 íbúum landsins árið 1959, hafi 116.043 búið í kaup- stöðum landsins á móti 57.812 í sýslum, en þar af húa í kauptún- um og þorpum 21.395 manns. Er íbúatala sveitanna og þorpa, með færri en 300 íbúa alls 36.417. — Konur eru nú alls 86.082 á móti 87.773 körlum. Eftirfarandi yfirlit sýnir mann- fjöldann í kaupstöðum og sýslum landsins, eins og hann 1959 og 1958. var 1. des. Kaupstaðir 1958 1959 Reykjavík 69268 71037 Kópavogur 5149 5611 Hafnarfjörður 6606 6881 Keflavík 4377 4492 Akranes 3644 3747 ísafjörður 2701 2701 Sauðárkrókur 1105 1175 Siglufjörður 2691 2703 Olafsfjörður 875 888 Akureyri 8422 8589 Húsavík 1411 1431 Seyðisfjörður 748 723 Neskaupstaður 1417 1456 Vestmannaeyjar 4425 4609 Samtals 112839 1160« Sýslur 1958 1959 Gullbringusýsla 5212 5331 Kjósarsýsla 2254 2331 Borgarfjörðarsýsla 1459 1430 Mýrasýsla .... 4 1856 1861 Snæfellsnessýsla 3507 3606 Dalasýsla 1126 1159 A-Barðastrandarsýsla . .. 572 531 V'-Barðastrandarsýsla . .. 1904 1949 V-Isafjarðarsýsla 1823 1862 N-ísafjarðarsýsla 1850 1823 j Strandasýsla 1594 1592 V-Húnavatnssýsla 1372 1395 A-Húnavatnssýsla 2269 2276 Skagafjarðarsýsla 2712 2699 Eyjafjarðarsýsla 3806 3771 S-Þingeyjarsýsla 2739 2770 N-Þingeyjarsýsla 1974 1954 N-Múlasýsla 2520 2487 S-Múlasýsla 4240 4262 A-Skaftafellssýsla 1299 1353 V-Skaftafellssýsla 1415 1412 Rangárvallasýsla 3073 3056 Árnessýsla 6731 6902 Dakotaflugvélar leggst ur a lloli stór fyrir flug þangað nú niður. Katalínu- flugvél mun í vetur halda uppi flugi til Patreksfjarðar, Flateyrar, Siglufjarðar og Þingeyrar. Zíon. Siinnudaginn 23. okt. Sunnu- dagaskóli kl. 11 f.h. Oll börn velkomin. Samkoma kl. 8.30 e.li. Allir velkomnir. Á öllu landinu Samtals 57317 57812 1958 1959 ..... 170156 173855 Bazar og ka/jisölu hefur Kristniboðs- félag kvenna £ Zíon laugardaginn 22. okt. kl. 3 e. h. Styðjið gott málefni og drekkið kaffið í Zíon.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.