Íslendingur


Íslendingur - 09.02.1962, Page 5

Íslendingur - 09.02.1962, Page 5
Slarfsemi SNE að Lundi (Framhald af bls. 1) Telja sumir, að féð verði hraust ara með því móti. Þar sem ekk- ert sauðfé er hér á foúinu, var ekki um slíkar tilraunir að ræða, og hefði ég þó haft áhuga á þeim. Kálfarnir fyrir opnu. En þegar Árni Jónsson til- rauiiastjóri kom frá Ameríku í vetur, minntist hann á, að þar vestra létu bændur í sumum héruðum nautpening sinn liggja við opin hús. Þá datt mér í hug, að gaman væri að gera slíka til- raun hér, þótt veðurskilyrðin væru önnur. Á s.l. hausti hófst ég því handa, innréttaði gamlan „bragga“, sem er upp við Rangárvelli, og setti í hann 16 kálfa, en hafði dyr opnar. Þarna geta kálfarnir gengið út og inn eftir eigin vild, en girðing er um „braggann“ þannig, að þeir komast ekki neitt burt. Hey ei' þeim gefið inni, en bryrint úti'. Enn er of skammur tími liðinn til að geta nokkuð fullyrt um gæði þessa fyrir- komulags, en allt bendir til þess að útigöngukálfunum hafi ekki farið ver fram en jafn- öldrum þeirra, sem inni hafa verið í vetur. Þessir kálfar fara út á hverjum einasta degi, og mér virðist þeim vera alveg sama, þótt mikil snjókoma sé, en heldur ver við mikil frost. í „bragganum". hafa þeir enga sérstaka bása, ekki heldur neinar grindur til að liggja á. Lítið hefur þurft að bera undir þá, en samt líta þeir mjög vel út. Þeir eru sérlega fjörugir, og mjög mannelskir. Þó einkenni- legt megi virðast, mun hændari að mönnum, en þeir kálfar, sem hundnir eru á bás allan vetur- inn. k Sæddar 3850 kýr. A......... Þá er enn ein starfsemi hér að Lundi, en það er.^éðingar- stöðin. Við hana virifia tveir menn: Hermann Jónsson, sem unnið hefur hér um fjölda ára, og veitt stöðinni forstöðu síðan 1957. Með honum vinnpr Páll Jónsson. Þeirra starf er mikið, og oft eiga þeir langari viririu- dag. Til starfseminnar höfum við 16 tarfa, þó ekki alla sam- tímis, og flytja þeir Her- mann og Páll sæði til kúa um allan Eyjafjörð og auk 'þess í tvo hreppa í Þingeyjarsýslu. Á s.l. ári sæddu þeir alls 3850 kýr, svo að ferðir þeirra út um sveitir hafa verið nokkuð margar á árinu. Alla daga fara þeir eitthvað, og í vetur hefur aðeins einn dagur fallið úr, en það var einhver versti stórhríð- ardagur vetrarins. Starfsmennirnir við sjálft ibúið hér eru þrír, og er Gunn- steinn Sigurðsson fjósameist- ari. Alls munu vera á búinu 160 gripir. Árið 1960 var meðaltal fitu- eininga hér 17840 einingar, en mjólk frá búinu 1961 var sam- tals tæplega 128 þús. lítrar. Tímafrekar rannsóknir. Ráðunautur SNE er Ólafur Jónsson. Hann hefur einnig yf- irumsjón með afkvæmarann- sóknum, skýrslugerðum o. fl. Ólafur segir, að þótt skýrslur séu ekki beint skemmtilegar af- lestrar eða yfirleitt lesefni, sém almenningur vilí, þá hafi þær óneitanlega mikinn fróðleik að geyma, einkum fyrir þá, sem nautgriparækt stunda. Það sem sérstaklega er athyglisvert, eru skýrslur um þær kýr, sem koma undan hverju einstöku nauti. Hins vegar taka þessar rann- sóknir alllangan tíma, því að segja má, að full reynsla komi ekki á hvert naut, fyrr en dæt- ur þess eru farnar að mjólka, en þá er nautið venjulega orðið 4—5 ára gamalt. Þá fyrst fæst úr því skorið, hvort það er hæft til undaneldis eða ekki. Þetta sýnir m. a. hversu tímafrekar og yfirgripsmiklar þessar rann- sóknir eru. Meðal skýrslna, sem Ólafur sér um eru, ef svo mætti segja, ættarskrár allra kúa, sem skýrslur ná yfir í héraðinu, mjólkui-magn og mjólkurgæði. Af þessum stuttu viðtölum er sýnt, að tilraunastöðin að Lundi er gagnmerk stofnun, og til stóraukins vísindalegs fróðleiks fyrir bændur í héraðinu. Æski- legt væri að búa henni betri skilyrði, en nú eru fyrir hendi. Stofnunin hefur á að skipa fær ustu mönnum, en starfskraftar þeirra koma ekki að fullu gagni nema góð skilyrði séu fyrir hendi. s. Verksmiðjan Glitbrá í LÖGBIRTINGI er nýlega skráð fyrirtæki hér í bæ, sem nefnist Verksmiðjan Glitbráh.f., og er tilgangur þess félags framleiðsla á töskum og öðrum skyldum vörum, úr leðri og plasti, svo og verzlun. Stjórnar- formaður er Gunnar L. Hjart- arson, en framkvæmdastjóri Georg Jónsson. lagt vestan í fjallsbrúnina, og gengu þeir eftir honum, en hann þoldi ekki þunga þeirra, féll niður með þá og varð að srijó- flóði, er fór á augabragði niður fyrir gínandi kletta og stöðv- aðist í Nýjabæjarskálunum. Mennirnir hétu Tómas Egils- son, hálfbróðir húsfrú Rósu, Öxndælskir þættir eftir JÓN JÓNSSON Skjaldarstöðum Svo var það nálægt miðjum nóvember að tveir vinnumenn Jónasar lögðu af stað vestur í Nýjabæjarfjall, sem er vestur- hlið Drangafjallsins. Nokkuð mikil fönn var komin, en frost lítið og veður gott. Um tvær leiðir er að gera til að komast vestur fyrir fjallið. Önnur sú algengari, er að fara norðan við hæsta fjallið, niður á svonefnt Dýjaskeið, og þaðan suður í Nýjabæjarskálarnar, þaðan fram fjallið að neðan að Grjótá, upp með henni og svo út fjallið að ofan. Hin leiðin er sú, að ganga norður á Halllokið og eft- ir fjallinu fram neðan við Drangana, og fram að ofan að Grjótánni. Þessa leið fóru mennirnir. En þeir gættu þess ekki, að dálítinn skafl hafði konu Jónasar í Hrauni, og Jón Steingrímsson, af fyrra hjóna- bandi Rósu. Tómas var mesti röskleikamaður og þaulvanur fjallgöngum. Jón var mesti myndarmaður, rúmlega tvítug- ur að aldri. Hann var albróðir Egils, sem lengi bjó á Merkigili í Austurdal, og Vigdísar, konu Þorvaldar Arasonar á Víðimýri. Hundar tveir fylgdu mönnun- um, en hafa verið komnir lengra áleiðis og sluppu við snjóflóðið. Komu þeir heim að Hrauni Hraun í Öxnadal. Myndin tekin 1961. Ljósm. St. E. Sig. ÍSLENDINGUR Hciðar Ástvaldsson danskennári sýnir dansa á árshátíð Sjálfstæð- isfélaganna að Hótél KEA s.l. laugardag Danskennsla og námskeið HEIÐAR ÁSTVALDSS. dans- kennari er nú staddur hér í bænurn, og hefur hann dans- kennslu Barna-, Gagnfræða- og Menntaskólunum. Heiðar er mörgum að góðu kunnur hér, bæði vegna nám- skeiða, er hann hefur haft hér áður, og einnig af hans vinsælu danskennslutímum í útvarpinu. Að þessu sinni hyggst Heiðar gera eitthvað fyrir þá eldri, því að nú hefur hann einnig dans- námskeið fyrir þá. Verða þau á miðvikudögum og í tveim flokkum. Annað fyr- ir almenning, hitt fyrir hjón. Ryggingaframkvæmd- ir á Akureyri (Framhald af bls. 1) áfram við byggingu Oddeyrar- skóla við Víðivelli. Breytingar og viðbætur voru gerðar á 13 húsum og 9 bif- reiðageymslur byggðar. Byrjað var á breytingum fjögurra húsa og 6 bráðabirgðahús reist. seint um daginn. Var þá augljóst, að eitthvað hindraði mennina, og þá sent á næstu foæi og menn kvaddir í leit næsta dag. Veður hélzt stillt og því auðvelt að rekja slóðina. Höfðu þeir með sér forekan til að bera mennina í, ef þeir finndust. Héldu þeir siðan norður af fjallinu og niður í Nýjabæjar- skálarnar. Fundu þeir Tómas þar strax, því að hann lá ofan á flóðinu, en Jón sást ekki. Ekki höfðu þeir áhöld til könnunar á flóðinu. Tóku þeír Iík Tómas- ar og lögðu það á brekariið og ibáru hann sem leið liggur upp á fjallið og heim að Hrauni; Var það hin mesta þraut í slaému færi fyrir svo fáa menn. Daginn eftir Var safnað mönnum úr Hörgárdal og Öxna dal að leita Jóns'. Vár faðir minn einn af léi'talTnöririúm, þá vinnumaður hjá Stefáni Jóns- syni á Steinsst. Var hanií svo heppinn að finna blóðdrefjar í fönninni, þegar hann var að moka. Fannst líkið þá fljótlega. Hafði Jón fengið áverka á höf- uðið, sem blæddi út í fönnina. —■ Gekk fljótt og vel að koma líkjj hans heim að Hrauni, því að nú voru margir menn til skipta. Þeir frændur voru jarðsettir að Bakka 24. nóv. að viðstöddu fjölmenni. Þess má geta, að stór skriða tók Nýjabæ um Mikaelsmessu 1805. Allt fólkið fórst og 2—3 nautgripir, sem voru í fjósi rétt við bæinn. En hann var byggð- ur á öðrum stað, þó nærri, skömmu síðar, og þar búið fram á þessa öld, sem nú er að líða. Síðasti ábúandi og eigandi var Sigurgeir Sigurðsson, faðir Sig- mundar, er nú býr í Ásgerðar- staðaseli, og systkina hans. (Væntanlegt framh. síðar.) ATH. Viðvíkjandi vísum sr. Jóns Þorlákssonar, skal tekið fram, að Anna, móðir Jóhönnu skáldkonu, var ekki móðir sr. Jóns „Bægisárkálfs".

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.