Íslendingur - 19.10.1962, Síða 4
ÍSLENDINGUR
Kemur út hvern íöstudag. Útgeíandi: Útgáfufélag íslendings. — Ritstjóri og
ábyrgðarmaður: JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu I, sími 1375. Fréttir og aug-
lýsingar: STEFÁN E. SIGURÐSSON, Krabbastíg 2, sími 1947. Skrifstofa og af-
greiðsla í Hafnarstræti 81 (neðsta hæð), sími 1354. Opin kl. 10—12 og 13.30—
17.30. Á laugardögum kl. 10—12. — Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri.
Hverja leikur dýrtíð harðast?
KAPPHLAUP það milli kaupgjalds og verðlags í landinu,
sem olli hinni geigvænlegu dýrtíð, sem nú fyrst eru gerðar
alvarlegar tilraunir til að sporna við, léku tvo hópa manna
í landinu grálegar en aðra. Það voru annarsvegar spari-
fjáreigendur, — hinsvegar aldrað fólk og öryrkjar, sem ekki
gátu tekið þátt í þessu kapphlaupi. Meðahsparifjáreigenda
var fjöldi gamals fólks, sem slitið hafði sínu vinnuþreki
að fullu og gekk ekki lengur á vinnumarkaði, en hafði þó
sparað sér saman nokkra fjárupphasð til elliára, því til
skamms tíma var íslenzku alþýðufólki.það mikið metnaðar-
mál að eiga fyrir útför sinni, — þ. e. geta komizt í gröf sína
án atbeina sveitarfélagsins eða á kostnað vandamanna.
Þegar dýrtíðarmyllan var sett í gang. á ófriðarárunum
síðari, var bein afleiðing af þeim verknaði óbeinn þjófnað-
ur af sparifjáreign þessa fólks. Langfjölmennastir í hópi
sparifjáreigenda voru börn og gamalmenni. Þótt fólk á
bezta aldri með fullu vinnuþreki og nægri atvinnu yki laun
sín ár frá ári og eignaðist skuldlaust ýmis tæki og hluti, sem
feður þess og mæður hafði ekki dreymt úni'að eignast, var
ihvorki horft til hægri né vinstri í hinu villta kapphlaupi
verðlags og kaupgjalds. Gamli maðurinn, sem þoldi ekki
lengur strit búskaparins í sveitinni með hinum frumstæðu
tækjum, seldi jörðina sína og bústofninn og lagði andvirðið
ef eitthvað var eftir umfram áhvílandi skuldir, í sparisjóð-
inn. Taldi það vera þar tryggilegast geymt. En áður en
hann varði, var þessi fjárhæð honum að litlu orðin, því
að stjórnarvöídin höfðu ekki tekið upp þá sjálfsögðu háttu,
að bæta gamla manninum tæringu krónunnar hans rúeð
hækkuðum vöxtum af sparifé. Enda leiddi þessi vangá
stjórnarvalda til þess, að sparifjárinnstæður hurfu úr bönk-
unum. Allir vildu bjarga innstæðu sinni, áður en hún yrði
að engu gerð með sífelldri verðfellingu krónunnar, og var
þá helzt um það að ræða að koma fjáreign sinni í fasteign
eða lána hana gegn góðri tryggingu og hærri vöxtum, en
lánastofnanirnar gáfu.
Þessari rýrnun sparifjárinnstæðna fylgdi óhjákvæmilega
skortur á lánsfé í þágu atvinnuvfegánna, en sparifjármynd-
unin er undirstaða heilbrigðs atvinnureksturs í landinu, og
oft er ógjörlegt að stofna til atvinnureksturs, þótt arðvæn-
legur sé jafnt þeim, er að honum standa, og þjóðarbúskapn-
um í heild, vegna skorts á rekstrarfé. En það eru hinir
mörgu sparifjáreigendur í landinu, sem byggt hafa upp
megnið af atvinnuvegunum, og mætti því sízt gleyma.
Hækkun vaxta, sem var einn liðurinn í efnahagsráðstöf-
unum núverandi ríkisstjórnar, varð einna óvinsælust allra
slíkra ráðstafana, enda hlaut hún að koma illa við niárga,
þó einkum þá, er stóðu í framkvæmdum, er ekki gæfu hrein-
an arð. Og er það skiljanlegt. Hinsvegar er ekki unnt að
hækka innlánsvexti, án þess að hækka jafnframt útláns-
vexti. Hækkun innlánsvaxtanna var ekki aðeins siðferðilega
rétt til að bæta sparifjáreigendum, ungum sem gömlum,
það tjón, er þeir höfðu beðið af völdum dýrtíðarinnar, held-
ur var örvun sparifjármyndunar úndirstaða atvinnufram-
kvæmda, sem veitt gæti nýju blóði út í æðar þjóðlífsins,
aukið atvinnu almennings, aukið þjóðartekjurnar, rétt
halla á þjóðarbúskapnum.
Reynslan hefur sýnt, að hér var rétt stefnt. En stjórnar-
andstaðan skellir skollaeyrum við. Hún heimtar sífellt, að
vextir verði tafarlaust lækkaðir og hafa nokkrir Framsókn-
arþingmenn þegar borið fram frumvarp á Alþingi, er miðar
að því marki.
Sjálfsagt verður að vinna að því að lækka útlánsvexti,
svo sem efnahagsástand þjóðarinnar leyfir á hverjum tíma,
en þó
án þess að það verði til að lækka innlánsvexti og þannig
hefta sparifjármyndun almennings.
IVIKUNNI SEM LEIÐ var að
því vikið í nokkrum blöðum,
að bæjarráð Akureyrar heíði lagt
til við bæjarstjórn, að hún endur-
skoðaði lokunartíma þeirra íyrir-
tækja, sem á íslenzku eru nefndar
kvöldsölur, en manna á milli
„sjoppur", og munu þá flestir
geta ályktað, við hvaða fyrirtæki
er átt. En þessum fyrirtækjum
hefur verið hrúgað upp hér í bæn-
um siðasta áratug eða e.t.v. hálfan
annan, og minnist ég þess ekki,
að bæjarstjórn hafi neitað um
leyfi, ef eítir því var sótt. Þótti
flestum bæjarbúum nóg um þessa
fjölgun á kvi)lds()lum, sem eink-
um og sér í lagi voru sóttar af
börnum og unglingum, þó að þar
séu undantekningar. I þeim
„drolluðu" unglingarnir allt fram
undir miðnætti, eyddu petiingum
en vanræktu nám, sagði fólkið.
NÚ HEFUR bæjarráð lagt til við
bæjarstjórn, að „sjoppunum" sé
lokað á sama tíma og öðrum sölu-
búðum yfir veturinn, en fái að
hafa opið frameftir kvöldi yfir
sumarmánuðina. Hér álít ég um
VlSNA
BÁLKUR
JÖRUNDUR Gestsson á Hellu
í Strandasýslu kvað, eftir að 7
börn hans voru horfin að heim-
an og gömlu hjónin ein eftir:
Flognir eru fuglar sjö,
fram vill tíðin streyma.
Gömlu hjónin geymir tvö
gamli bærinn heima.
Þessi staka segir mikla rauna-
sögu ísl. sveita og naglinn hitt-
ur á höfuðið.
Mikill fjandi mér varð á
— manndóm senn ég týni —
óstöðvandi er mín þrá
eftir brennivíni.
Eiríkur Jónsson Keldunúpi.
Lýðs er ávallt lundin stríð,
lýðir þetta finna,
þó má ekki líða Lýð
Iýðum mein að vinna.
Ók. höf.
Hvort hann tórir, ekki á
ætla ég að gizka,
útlitið var a. m. k.
ekki á marga fiska.
Jökull Pétursson.
Aldrei fyrir gull sá grét,
sem gat það ekki fengið.
Sá hefur nóg sér nægja lét,
nýtinn bjargast lengi.
(Gömul).
Hvergi er ég í hjarta hreinn.
Harla tamur vélonum,
sykurmola sá ég einn,
situr í mér að stela ‘onum.
Sigvaldi Jónsson skáldi.
Ól. Tómasson Rvík kvað:
Lána þú mér lítinn skammt
lífs af reynslu þinni.
Jónas Jónsson Grjótheimi
svaraði:
Verði þér í geði gramt
gættu að skynseminni.
óþarflega róttækar ráðstafanir að
ræða, þegar „sjoppurnar" hafa ný-
lega verið skattlagðar talsvert ó-
vægilega með hinu nýja aðstöðu-
gjaldi. Ef ég hefði nokkuð um
Jretta mál að segja, hefði ég leyft,
að „sjoppurrtar" væru opnar á
veturna til kl. 20, en á sumrin til
kl. 23 (t.d. frá 1. júní til 1. okt.).
Margt fullorðið fólk vinnur úti
þIhkasrot
• „SJOPPU“- MALIN Á DAG-
SKRÁ.
• FÁUM VIÐ GRÓFARGIL
OG BÚÐARGIL A NÝ?
• MIKILL BYGGINGARHUG
UR.
• GAMLIR OG GRÓNIR
BORGARAR LEITA TIL
FJALLA.
• GÖTUVITAR — STÖÐU-
MÆLAR.
fram að kvöldmat eða lengur, og
getur því þá komið vel, að ein-
hvers staðar sé opin verzlun, ekki
einungis með gosdrykkjagutl, tó-
bak og sælgæti, heldur og einhver
skárri næringarefni, enda hafa
Jtessar kvöldsölur sums staðar
pylsur til sölu og jafnvel brauð-
vörur. Hitt er og sjálfsagður hlut-
ur, að við getum keypt okkur blað
eða tímaritshefti fram eftir kvöldi,
þegar okkur vantar eitthvað að
lesa, og hiifum ekki vegna annrík-
is svigrúm tiljað kaupa J)að að
deginum, enda ætlast til, að svo
verði.
ÉG TEL ÞAÐ allrar virðingar
vert af bæjarstjórn að draga úr
„sjpppumennskunni", en fyrst
átti það eða bæjarstjórn að tak-
marka fjölda Jreirra, sem leyfi
fengu til Jressarar kvöldverzlunar,
og vonandi veitir hún ekki fleiri
til slíks, og lætur eitthvað af þeirn,
sem þegar eru fyrir, leggjast niður,
Jtegar núverandi eigandi hættir
rekstri. Það væri þá ólíkt vitur-
legra að leyfa verzlunum, er selja
matvöru og hreinlætisvöru að
hafa opið fram á kvöld, J)ví að
margt er einu heimili nauðsyn-
legra en Jxer vörur, sem mest er
sótzt eftir á „sjoppunum".
BÆJARRÁÐ hefur einnig lagt
til, að götunöfnunum Lækj-
argötu og Kaupvangsstræti verði
breytt og haldi sínurn fornu heit-
um, Búðargil og Grófargil, en
húsin haldi sínum númerum á-
fram, J).e. að Lækjargata 3 verður
Búðargil 3 og Kaupvangsstræti 19
Grófargil 19 o. s. lrv. Þetta tel ég
vel ráðið, J)ví að sjálfsagt er að
varðveita gömlu staða- og örnefn-
in í gamla bæjarlandinu, hvort
sem J)au eru lundin framrni í
fjöru eða uppi í hálsi. I rituðu
máli hefur alltaf verið skemmra
að skrifa Kaupvangsstrætið KEA-
stræti, þótt J)að hafi enn ekki náð
íestu, en heiti götunnar minnir ó-
sjálfrátt á danska götuheitið Köb-
magergade.
NÝLEGA var auglýst eftir um-
sóknum um byggingalóðir í
nýjum hverfum hér í bæ, og voru
J>ær langsamlega flestar við svo-
nefnda Norðurbyggð og komust
J)ar upp í 20 um eina og sömu
lóð, en dregið var um, hver lóð-
ina skyldi hreppa. Það vekur sér-
staka athygli, að fjöldi manna á
miðjum aldri og nokkuð rosknir,
sem eiga góðar íbúðir niðri í mið-
bæ og neðarlega á Ytri-brekkun-
um, sækja fast á Jressar lóðir. Það
lítur helzt út lyrir, að straumur-
inn stefni til fjalla úr miðbænum.
Skyldi skíðahótelið draga roskna
menn í áttina til sín, eða er J)að
útsýnin á góðviðriskvöldum sum-
arsins, eða háreysti nátthrafna
niðri í bænum, sem hefur áhrif á
sóknina til fjalla?
RÉTT er að vekja máls á því,
að vart má longúr undir höf-
uð leggjast að fá giituvita við
Kaupvangstorg (Grófargilskjaft-
tnn) og við Ráðhústorg. Svo og
stöðumæla meðfram Hafnarstræti
84—107 og við torgin, en J)að mun
hafa verið samþykkt. Götuvitarn-
ir munu mikið bjarga umferða-
málum í miðbænum, ef gangandi
fólki er samvizkusamlega kennt á
þá, og reynsla af stöðumælum í
Reykjavík sýnir, að sögn, að Jreir
standa undir sínu á tiltölulega
skömmum tíma. Svo spjöllum við
ekki meira um þetta í dag.
(Ath. hlaðsins: Bæjarstjórn lief-
ur þegar afgreitt mál þau, sent hér
er vikið að í fyrstu köflunum.)
Vetraráætliin miianlandsflugs gengin í gildi
HINN 1. okt. s. 1. gekk í gildi
vetraráætlun innanlandsflugs
Flugfélags íslands. Samkvæmt
henni verður flogið til sömu
staða og í sumaráætlun, að und
anteknum stöðunum, Hellu og
Skógarsandi, en þangað hefur
verið, sem kunnugt er, aðeins
flogið á sumrin.
TVÆR FERÐIR Á DAG TIL
AKUREYRAR.
í stórum dráttum er vetrar-
áætlun innanlandsflugs á kom-
andi vetri þannig, að frá Reykja
vík er flogið til Akureyrar
tvisvar alla daga nema sunnu-
daga og mánudaga, en þá daga
er ein ferð. Til Vestmannaeyja
verður flogið alla daga. Til ísa-
fjarðar verða fimm ferðir í viku
á mánudögum, þriðjudögum,
miðvikudögum, föstudögum og
laugardögum. Til Egilsstaða
verður flogið á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum
og ennfremur á mánudögum til
1. nóv. Til Hornafjarðar verður
flogið á mánudögum og föstu-
dögum. Til Sauðárkróks á
þriðjudögum og föstudögum.
Til Húsavíkur á miðvikudögum
og laugardögum og til Kópa-
skers og Þórshafnar á fimmtu-
dögum, og til Fagurhólsmýrar
á föstudögum. Ferðir milli Ak-
ureyrar og Egilsstaða eru á
þriðjudögum.
ÍSLENDINGUR