Íslendingur - 19.10.1962, Side 8
Nýja gæzlu- og björgunarflugvélin SIF á Akureyrarflugvelli. (Ljósmynd: St. E. Sig.)
NÝ LANDHELGISFLUGVÉL
Tekur gömlu vélinni fram um flesta hluti
ÍSLENDINGUR
XLVIII. ÁRG. . FÖSTUDAGUR 19. OKT. 1962 . 39. TBL.
Kvöldsölum lokað kl. 18
KEA hlýtur verzlunarlóð á Suður-Brekkum
EINS OG flestum er eflaust
kunnugt af lestri sunnanblaða,
hefur landhelgisgæzlan fengið
til afnota nýja flugvél, stærri
og hraðfleygari en gamla Rán
var, en sú vél var Catalínagerð
PY 5. Þesi nýja flugvél er af
gerðinni DC 4, hefur fjóra
hreyfla og mikið flugþol. Sl.
föstudag kom hin nýja flugvél
hingað til Akureyrar, og meðal
farþega var Pétur Sigurðsson
forstjóri Landhelgisgæzlunnar.
í tilefni af komu vélarinnar var
nokkrum konum úr slysavarna-
deild kvenna og fréttamönnum
frá Akureyrarblöðunum boðið
að skoða vélina og þiggja þar
veitingar, en að því búnU var
farið í flugferð norður fyrir
Grímsey.
Stjórnklefinn stækkaður.
Flugvélinni hefur talsvert ver
ið breytt til notkunar fyrir
gæzluna. Stjórnklefi stækkaður
og þar aftan við komið fyrir
stóium kortaklefa, sem einnig
er loftskeytaklefi. Þar aftan við
er svo stór farþegasalur, sem
tekur um 30 manns í sæti.
Áður en lagt var af stað í flug
} Tómstundaheimili I
í fyrir unglinga |
i í SAMBANDI við síðari um- 1
| ræðu um reglugerð fyrir |
I Æskulýðsráð Akureyrar á i
I bæjarstjórnarfundi síðastlið- j
5 inn þriðjudag kom fram svo- i
i hljóðandi tillaga frá Jóni H. i
| Þorvaldssyni, sem samþykkt :
i var með öllum greiddum at- i
I kvæðum: §
i „Bæjarstjórn beinir því til =
i nýkjörins Æskulýðsráðs, að i
: það leiti þegar í stað eftir :
i hentugu húsnæði til þess að i
j reka tómstundaheimili ung- j
i linga, þar sem góð aðstaða i
j yrði til þess að halda dans- j
i leiki, reka veitingasölu, sýna i
j kvikmyndir og sjá ungling- j
j unum fyrir öðrum skemmt- j
i unum og tómstundastarfi.“ i
ið mælti form. Slysavamadeild-
arínnar, Sesselja Eldjárn, nokk-
ur orð og árnaði flugvélinni og
áhöfn allra heilla.Pétur Sigurðs
son þakkaði og kvað það vera
mikilvægt fyrir alla starfsemi
Landhelgisgæzlunnar að hafa
fengið þessa flugvél, en hann
tók það fram, að mikill hluti
starfa gæzlunnar væru björgun
Lögreglustjóra er heimilt að
banria- öllum óviðkomandi, sem
eiga ekki brýnt erindi, umferð,
út í skip^ sem liggja í höfninni,
frá kh 20—$ á tímabilinu 1. okt.
Itj *<
til 1; maí, en frá kl. 22—8 á tíma
bilinu 1. maí til 1. október. Enn
fremur getur lögreglan jafnan
bannað börnum innan 16 ái'a
aldurs umferð um bryggjur og
ferð út í skip og báta í höfninni,
telji hún ástæðu til.
Unglingum innan 16 ái'a er ó
heimill aðgangur að almennum
knattborðstofum, dansstöðum
og ölstofum. Þeim er og óheim-
ill aðgangur að almennum kaffi-
stofum eftir kl. 20, nema í fylgd
með fullorðnum, sem bera á-
byrgð á þeim. Eigendum og um-
sjónarmönnum þessara stofn-
ana ber að sjá um, að unglingar
fái ekki þar aðgang né hafist
þar við.
arstörf. Um kl. 18,30 var lagt
til flugs norður Eyjafjörð og
komið yfir Grímsey rúml. 20
mínútum síðar.
Á Akureyri var lent kl. 19,17.
Áhöfn vélarinnar er sex menn,
og er Garðar Pálsson skipstjóri.
Flugmaður er Guðjón Jónson,
en flugstjóri fyrst um sinn verð
ur Henning Bjarnason frá Flug-
félagi Islands. Gestum gazt
mjög vel að farkostinum og
öllum aðbúnaði. S.
Börn yngri en 12 ára mega
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 20 á tímabilinu frá 1. okt.
til 1. maí og ekki seinna en kl.
22 frá 1. maí til 1. október nema
í fylgd með fullorðnum vanda-
mönnum.
Börn frá 12—14 ára mega
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 22 á tímabilinu frá 1. okt.
til 1. maí og ekki seinna en kl.
23 frá 1. maí til 1. október, nema
í fylgd með fullorðnum vanda-
mönnum.
Þegar sérstaklega stendur á,
getur bæjarstjóx-n sett til bráða-
birgða strangari reglur um úti-
vist barna allt að 16 ára aldri.
Foreldrar og húsbændur barn
anna skuiu að viðlögðum sekt-
um sjá um, að ákvæðum þess-
um sé framfylgt.
(Frá lögreglunni á Akur-
eyri.)
Á BÆJ ARST J ÓRN ARFUNDI
s. 1. þriðjudag lágu mörg mál
fyrir, sem vakið höfðu þá at-
hygli, að nokkrir borgarar sáust
á áheyi'endabekk. Verður hér
þó aðeins unnt að geta úrslita
þi'iggja mála.
„SJOPPULOKUN“.
Bæjarráð hafði lagt til við
bæjarstjórn, að hún samþykkti,
að kvöldsölum bæjarins („sjopp
unum“) yrði lokað vetrarmán-
uðiqa svo sem öðrum búðum
kl. 6 e. h., þ. e. frá 1. okt. til
31. maí, en fái að hafa opið aðra
mánuði ársins til kl. 10 að
kvöldi, jpó með sérstökum und-
anþágum fyrir benzínsölur,
kvikmynda- og samkomuhús til
veitinga í hléum o. s. frv., svo
og yrði heimilt að selja blöð og
tímarit um gluggagöt verzlana.
Var þessi tillaga bæjarráðs sam-
þykkt með 6 atkv. gegn 1, og
því jafnframt bætt við að
benzínsölum væri heimilt að
selja gosdrykki, tóbak og sæl-
gæti, meðan opið væri fyrir
sölu á benzíni. Ganga má út frá
að þessi lokunarákvæði gangi í
gildi um n. k. áramót.
VERZLUNARLÓÐ.
Þá kom til kasta fundarins að
úrskurða um, hvort KEA eða
KVA skyldi hljóta verzlunarlóð
á horni Byggðavegar og Hrafna-
gilsstrætis. Bar Jakob Frímanns
son fram tillögu um, að KEA
væri veitt hún, þar sem það
hefði árum saman leitað eftir
slíkri lóð, en Bragi Sigurjóns-
son fliltti aðra tillögu um að
KVA hlyti lóðina, en það félag
hefði haft frumkvæði- um rekst-
ur útibús á þessu svæði til hag-
ræðis fyrir íbúana. Tillaga Jak-
obs var fyrst borin upp og hlaut
Tvímenningslieppni
Bridgefél. Akureyrar
lauk s.l. þriðjudag, en í henni
kepptu 28 pör. Keppnina unnu
Jóhann Helgason og Karl Sig-
fússon með 559 stigum.
Næstir urðu: Halldór og Ár-
mann Helgasynir 546 stig, Jónas
Stefánsson og Knútur Otterst-
edt 540 stig, Jóhann Sigurðsson
og Óðinn Árnason 540 stig og
Jóhannes Kristjánsson og Þor-
steinn Svanlaugsson 518 stig.
1. flokks keppni hefst þriðju-
daginn 30. okt. Þátttaka tilkynn
ist stjórninni eigi síðar en 28.
okt.
6 atkvæði (Framsóknar og
kommúnista), og kom sú síðari
því ekki til atkvæða.
LEIGA Á SLIPPNUM.
Þá lá fyrir fundinum að taka
ákvörðun um leigumála fyrir
Dráttarbraut bæjarins, og lá
svohljóðandi tillaga frá hafnar-
nefnd fyrir um framlengingu
við núverandi leigjendur.
a) Ársleiga verði kr. 600 þús.
b) Leigutími verði 15 ár frá
1. jan. 1963.
c) Sérstaklega verði samið
um leigugjald fyrir hús og
mannvirki, sem síðar verði
byggð á athafnasvæði
Slippsins og leigutaki hafi
afnot af.
d) 127 gr. eldri samnings falli
niður og orðist þannig:
„Gjöld fyrir uppsáturs- og
garðaleigur verði ekki
hærri en sambærileg gjöld
Slippfélagsins í Reykjavík
og Félags dráttarbrautar-
eigenda eru á hverjum
tíma.“
Breytingartillaga frá Helga
Pálssyni og frestunartillaga frá
Jóni H. Þorvaldssyni voru báð-
ar felldar, en tillaga hafnar-
nefndar samþykkt: A-liður með
6:1 atkv., b-liður 7:3, c-liður 8
samhljóða og d-liður 7:2.
NEFNDAKJÖR.
Þá voru kjörin í nefnd til að
gera tillögur til bæjarráðs um
framkvæmd húsmæðrahjálpar:
Gísli Jónsson form., Jón Ingi-
marsson og Soffía Thorarensen.
Loks voru kjörnir þrír menn
í æskulýðsráð samkv. nýrri
reglugerð um Æskulýðsráð Ak-
ureyrar, en það skal skipað sjö
mönnum, þar af 4 tilnefndum af
félagasamtökum. Bæjarstjóm
kaus þá Harald Sigurðsson
bankagjaldk., Guðm. Þorsteins-
son og Einar Helgason. Til-
nefndir af félögum: Sr. Pétur
Sigurgeirsson (ÆFAK), Eirík-
ur Sigurðsson (IOGT), Björn
Baldursson (ÍBA), en skátar
hafa enn ekki tilkynnt sinn full
trúa í ráðið.
I Fulltrúaráðsfundur \
| Sjálfstæðisfélaganna verður i
| í Landsbankasalnum n. k. i
i mánudag kl. 8,30 síðd. Sjá i
i nánar auglýsingu í blaðinu. i
i Fulltrúaráðsmenn eru i
i áminntir um að mæta á i
i réttum tíma.
IIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllMllllllllllllltlllll*