Íslendingur - 14.06.1963, Síða 4
ÍSLENDINGUR
BLAÐ SJÁLFSTÆÐISMANNA í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
Kemur út hvern föstudag. — Útgefandi: KJÖRDÆMISRÁÐ. — Ritstjóri cg
ábyrgðarmaður: JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1, simi 1375. Skrifstofa og af-
greiðsla í Hafnarstræti 81 (neðsta hæð), sími 1354. Opin kl. 10—12 og 13.30—
17.30. Á laugardögum kl. 10—12. — Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri.
VIÐREISN HÉLT VELLI
STJÓRNARANDSTAÐAN bjóst til nýafstaðinna kosn-
inga með miklum fyrirgangi og voru hvergi spöruð hin
stóru orð. En í þeim hafði hún ekki erindi sem erfiði,
enda höfðu menn almennt ekki við því búizt. Það kom
skýrt í ljós að kjósendur mátu og virtu þá viðleitni forráða-
manna þjóðarinnar að bjarga henni frá j>ví að fara á vonar-
völ. Til þess hafði hún ekki lofað einstaklingnum gulli og
grænum skógum og fór hvergi dult með, að lækning efna-
hagslífsins kynni að valda fólki lítilsháttar sársauka í bili,
enda yrði ekki hjá slíku komizt.
Stjórnarandstaðan naut nú þeirrar bættu aðstöðu að hafa
sameinað dreifða krafta með upplausn Þjóðvarnarflokksins,
og nýttist sú aðstaða svo vel, að í Reykjavík tapaði Sjálf-
stæðisflokkurinn þingsæti, þótt hann fengi nær alla at-
kvæðaaukninguna þar.
Sumum virtist koma ónotalega á óvart, er Framsóknar-
flokkurinn vann í Reykjavík sæti af Sjálfstæðisflokknum.
En við nánari aðgát var það mjög eðlilegur hlutur. Full
nýting Framsóknar á sínum hluta Þjóðvarnarflokksins,
sem við kosningarnar hvarf til upphafs síns í stjórnarand-
stöðuflokkunum, hlaut að færa henni þingmann í viðbót,
og hefði sh'kt orðið við kosningarnar 1959, ef atkvæði Þjóð-
varnar hefðu þá ekki fallið dauð til jarðar.
En fyrstu tölurnar báru ótvírætt með sér, að viðreisnin
hafði unnið mikinn sigur eða nokkuð yfir 90 af lrundraði
í fylgi ungu kjósendanna. Hlaut viðreisnin 2432 viðbótar-
atkvæði í Reykjavík en stjórnarandstaðan 166. Jókst fylgi
Sjálfstæðisflokksins þar úr 46.7% haustið 1959 í 50.7% nú,
og sýndi því hreint meirihlutafylgi. Og í Reykjaneskjör-
dæmi, sem einnig var talið úr á mánudagsnóttina hafði við-
reisnin einnig unnið greinilegan sigur. Þar hækkaði Sjálf-
stæðisflokkurinn hlutfallstölu sína úr 39.4 af hundraði í
41.1%, og í þessum tveim fyrstu kjördæmum, sem talið var
úr, jók flokkurinn fylgi sitt um 3350 atkvæði.
Stjórnarflokkarnir juku í þessum kosningum fylgi sitt
meðal kjósenda úr 54.9 af hundraði í 55.7 eftir því sem
næst verður komizt, og er það svo sterk viðurkenning á
stefnu ríkisstjórnar er setið hefur heilt kjörtímabil, að til
eindæma verður að telja.
Kosningaúrslitin eru á þann veg, að hinir nýju kjósend-
ur í landinu, ásamt mörgum hinna eldri, hafa með atkvæði
sínu látið í ljós þakkir sínar fyrir atvinnuöryggið, sem okk-
ur hefur verið búið, fyrir það að viðreisnarstjórnin hefur
búið betur en áður var að þeim, sem minnst máttu sín í
þjóðfélaginu, — fyrir að hafa tryggt sparifjáreigendum
nokkra umbun fyrir ráðdeild, er atvinnulífinu stendur
hagur af, — fyrir að hafa létt af þjóðinni margvíslegum álög-
um, — fyrir að hafa eflt traust þjóðarinnar út á við, — fyrir
að hafa staðið við loforð sín fremur öðrum fyrri ríkisstjórn-
um.
Sérstaklega verður hér að taka fram, að í Norðurlands-
kjördæmi eystra urðu úrslitin rnjög á annan veg en fyrir
var spáð af stjórnarandstöðunni. Hún virtist gera sér vonir
um að fella Magnús Jónsson, 2. mann á D-listanum. Þeirri
herferð, sem beint var gegn honum í Degi sérstaklega var
svarað með því, að aldrei hefur flokki hans verið sýnt
meira traust. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut nú í kjördæminu
28.5%, en hafði 27.6% áður. Atkvæðaaukning D-listans í
kjördæminu var 211 atkvæði. Atkvæðaaukning stjórnarand-
stöðuflokkanna byggðist á innheimtu atkvæða Þjóðvarnar-
flokksins, sem nú skipti sér á milli Framsóknarflokksins og
kommúnista.
Á þriðjudagskvöldið, er allar atkvæðatölur lágu ljósar
fyrir, spurði Ríkisútvarpið formenn flokkanna um álit
þeirra á kosningaúrslitunum, og virtust flestir vel una. Þó
vakti það eftirtekt, að formaður Aljrýðubandalagsins,
Hannibal Valdimarsson, boðaði
STRÍÐ 1 STAÐ FRIÐAR.
^mmmmmimmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmimmmhmmmmmmmmmmmimmmmmi
I BÆKUR OG RIT I
Dagur í lífi ívans
Denisovidis
•"IIIMMMMMIIMMIMIMIIIIIIIIM'.IIIIIII
Vörður og
vinarkveðjur
Ný bók
eítir Snæbjörn Jónsson.
Út er komin hjá Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar ný bók
eftir Snæbjörn Jónsson. Ber
hún heitið VÖRÐUR OG VIN-
ARKVEÐJUR og er úrval úr
greinum Snæbjarnar. Hefur dr.
Finnur Sigmundsson landsbóka-
vörður valið efnið í samráði við
höfund, en Tómas Guðmunds-
son, skáld, ritar formála.
Alls eru 32 ritgerðir í bókinni
og skiptast í tvo hluta. Nefnist
hinn fyrri Vörður með fram
veginum og er greinar ýmislegs
efnis, svo sem um bókmenntir,
bókaútgáfu og bókaverzlun o.fl.
í síðari hlutanum Vinarkveðj-
um, eru minningargreinar um
ýmsa látna vini höfundarins,
en hann er sem kunnugt er
þekktur fyrir hispursleysi og
snjallar mannlýsingar í slíkum
greinum.
Aftan á kápu bókarinnar segir
m.a.: „Til hennar (útgáfu bókar-
innar) er öðru fremur stofnað
í þakkar skyni við höfundinn
fyrir þann skerf, sem hann
hefur lagt til íslenzkrar bók-
agerðar og bókmenningar á
langri ævi. En einnig mátti sín
VlSNA
BÁLKUR
Hér fara á eftir tvær skag-
firzkar vísur, sem gaman væri
að fá upplýsingar um höfunda
að eða leiðréttingar, ef ekki eru
rétt með farnar:
Dauðinn gapir yfir oss,
öllum skapar trega.
Nú hefur knapi í feigðarfoss
farið hrapallega.
Fagrar lendur, framtíð glæst,
fortíð brennd að grunni,
þegar Gvendur nauðum næst
náði lendingunni.
„Austri“ sendir þessar stökur:
Báglega horfa bændamál,
bregðast rök og fræðin,
ekki er sopið úr ausu kál
eða sniðin skæðin.
Þó að byggð sé bændahöll
á breiðum Víkurmölum,
afleggst byggðin upp við fjöll,
inni í heiðadölum.
Svo að lokum Pela-vísa, sem
nefnist „Eftir talninguna“:
Fyrst að stjómin stóð í vor,
stenzt hana enginn kraftur.
Falla varla hjú úr hor
Húsvíkinga aftur.
mikils nauðsyn þess, að al-
menningur fengi greiðari aðgang
en verið hefur að hinum merku
og margvíslegu ritstörfum
Snæbjarnar Jónssonar. Þorri
ritgerða hans er á víð og dreif
í blöðum og tímaritum. En
vegna þess hvers eðlis margar
þessara ritgerða eru, hlýtur
fyrir þeim að liggja að verða
safnað í bækur. Fer vel á.því
að það starf sé hafið, meðan
höfundarins nýtur enn við.“
Bókin er 198 bls. að stærð,
prentuð og bundin í Prent-
smiðjunni Hólum, en Tómas
Tómasson hefur gert káputeikn-
ingu.
.............'ig
'ty/
Rússneska sagan, sem vak
ið hefur athygli um all-
an heim, er komin út hjá
AB.
Út er komin hjá Almenna
bókafélaginu önnur bók mánað-
arins fyrir maímánuð, hin
kunna rússneska saga Dagur í
lífi ívans Denisovichs eftir Al-
exander Solzhenitsyn. Þýðandi
er Steingrímur Sigurðsson.
Þessi saga, sem varð heims-
fræg næstum sama daginn og
hún birtist í fyrsta sinn, gerist
í rússneskum fangabúðum á
Stalínstímanum. „Ekkert þessu
líkt hefur nokkru sinni birzt í
sovétbókmenntum“, bergmálaði
í blöðum um allan heim, en í
(Framh. á bls. 7)
n
¥
i
n
y
H
%
"'W
%
W
n
f
%
W
%
y
%
k
n
W
n
SKILNAÐARSKAL
í bundnum veigum.
LJÓÐKVEÐJA
til vinar míns
Kristjáns Jónssonar,
borgardómara.
Við brottför hans frá Akureyri
í aprílmánuði 1963.
Er þú, vinur, frá oss fer
úr fögrum bæ og heiðum,
gæfan, framinn gefi þér
gull á Víkur-leiðum.
Kveðju sína bær og byggð
ber með þökkum góðum
fyrir þína dáð og dyggð
drýgða á þeirra slóðum
Glöggskyggn jafnan gekkstu hér
gætinn mjög að verki.
Bogalistin brást ei þér,
ber þess víða merki.
Sannan trúnað sýndir mér,
sönn var nautn að spjalla.
Nú að lokum þakka ég þér
þína vinsemd alla.
Fylgi þér gæfa og fjölskyldu þinni
alla daga til efstu stunda.
JÓN BENEDIKTSSON, prentari.
W,
ú
M
m
m
, i
, 1
%
%
, 'L
m
%
d
=ííú............................
ÍSLENDIN GUR