Íslendingur


Íslendingur - 29.11.1963, Síða 2

Íslendingur - 29.11.1963, Síða 2
Úr Fljótum. Miklavatn til vinstri. (Ljósmynd: K. Hjaltason.) Sauðfjáralurðir aldrei lélegri en í haust Fréttabréf úr Fljótum Kirkjudagur í Húsavlk Saurbæ í Fljótum 15. nóv. Vorið s. 1. var hér í Fljótum fannlaust eftir einn þann mild- asta vetur, sem elztu menn muna hér, en það var fremur kalt með smáhretum. Fénaður gekk vel fram og fór til fjalla í það góðu ásigkomulagi, að menn gátu búizt við miklum afurðum af honum, en það fór á annan veg. Sumarið reýndist ei vorinu hlýrra, — er eitt það kaldasta, er menn muna. Hey- fengur varð þó góður víðast. Mun hann yfir meðallagi hér í Fljótum. Það, sem því hjálpaði var, að þó kalt væri, spratt snetnma á sinulandi og fyrir fannleysi hægt að dreifa áburði fyrr á tún en oft áður. Ef um úrfelli var að ræðá á slættin- um, var það alltaf hríð, sem bleytti minna tún og engjar en ausandi vatnsveður gera. Það var því neyðarlaus heyskapar- tíð hér fram til leita. Úr því náðust þau hey, sem þá voru úti, bæði seint og illa. Um háai'- heyskáp var ekki að ræða, enda ekki nýttur vegna sprettuleys- is nema á örfáum bæjum. Leltir fóru fram hér 23. og 24. september, fyrri daginn í af- bragðs veðri, sem hélzt fram undir dögun þann 24. Þá fór að snjóa, og var komin blindhríð um hádegi. Þó var réttað á Stíflurétt, og komust menn með fé á milli Olafsfjarðar og Fljóta, en bílar sátu fastir í Stífluhól- um og víðar hér um sveitina. Munu þessar leitir og þetta hret vera einsdæmi nú um tugi ára. Þessi hríð hélzt óslitin hér í 4 sólarhringa. Þegar upp birti var svo til jarðlaust. Fé hefði þá þurft að takg á gjöf, en til þess voru lítil tök, þar sem slátrun var þá rétt að hefjast. Þegar fyrri umferð var frá, voru þau lömb, sem þá voru eftir, tekin á gjöf mjög víða. Tjónið, sem þetta veður olli hér, er gífur- legt. Fé fór í skurði og krapa- flár, þó það væri fátt af flest- um bæjum og einstaka heimili slyppi við það. Hins vegar slapp ekkert heimili við afurðatjónið af því, sem í sláturhús komst. Jafnaðarvigt dilka í sláturhús- inu á Haganesvík er nú rösk 12 kg. Er það lægsta jafnaðar- vigt í því húsi frá því það tók til starfa. Nautþemngur fór hér inn í þessári stórhríð og ekki út aft- ur. Fuílorðið fé hefur gengið víðast gjafalitið fram til þessa tíma, en arðinn af þeirri fjár- mennsku eiga menn eftir að hirða seinna í vetur og vor, því að frá því um leitir hefði þurft að gefa fé hálfa gjöf og stund- um fulla. Svo hefur hagleysi fyrst eftir þessa leitahríð, síðan misviðri og sölnun jarðar þjarm að að sauðfé. Nú þegar þetta er skrifað, er fé í húsum eftir hríð í rúma viku, komin hér kafa- fönn, samgöngur stöðvaðar bíl- um og öðrum dráttartækjum en snjóbeltavélum. Á þessu ári hefur einn og sami maður unnið hér í Fljót- um og nágrenni 33 minka og með sama hundi óg áður. Hafa þær veiðar gengið með eindæm um vel, síðan hundur var feng- inn til þeirra árið 1959. Þrátt fyrir það virðist minkurinn auka kyn sitt það ört hér í Fljót um og nærliggjandi sveitum, að mjög erfitt mun reynast að upp ræta hann, enda lífsskilyrði fyr- ir hann hér hin beztu. Mjög . margir þeirra minka, sem unnir liafa verið hér á undanförnUm árum, hafa náðzt við æðarvörp eða í þeim. Hættulegastir þeiin eru karlminkar um goítíma. Það hefur reynsla sýnt hér og sarmað. Tófur héldu sig hér s.I. vor og lögðu í 3 grenjum. Vann Al- freð Jónsson bóndi á Reykjar- hóli þar 20 dýr. Veðrátta var hér mjög óhagstæð á grenja- vinnslutímanum, úrfelli og kafa þokur. Varð því vinnslan taf- söm og erfið. Virðist tófan halda sig hér með meira móti nú. Sést mikið af slóðum eftir þær, en ekki hafa þær bitið svo vitað sé. Á þessu ári lét af búskap Jón Gunnlaugsson bóndi í Mjóafelli í Stíflu og fór Mjóafell í eyði, en þar hefur sama ætt búið síð- an 1898 að þremur árum und- anskildum (1921—24), og senni lega hefur jörðin verið í ábúð þessara ættmenna frá 1871—83. Mjóafell er góð fjárjörð, bæði landgóð og heygóð. Þar er raf- magn, sími og sæmileg húsa- kynni. Jón Gunnlaugsson var búinn að vera sýslunefndarmað- ur fýrir Höltshrepp frá 1942 og hreppsnefndaroddviti frá 1946. í því starfi var hann duglégur, réttsýnn, samvinnuþýður og vin sffill. Er ekki ofmælt, þótt sagt sé, að sveit þessi hefur mikils misst í því að tapa honum frá þeim störfum. Jón er nú stárfs- maður hjá Samvinnufélagi Fljótamanna á Haganesvík. Við oddvitastarfi tók Sveinn Þorsteinsson á Berglandi. Munu flestir óska honum heilla í því vandasamá starfi. Á liðnu sumri lézt að heimili sínu, Melbreið í Stíflu, Hannes Hannesson, fyrrverandi barna- skólakennari, 75 ára að aldri. Hannes vár mjög farsæll kenn- ari og virtur í því starfi að verð leikum. Fræðimaður var hann einn hinn mesti, er hér hafa þekkzt. Átti hann glæsilegt bókasafn, að mestu leyti fræði- bækur. Einnig átti hann í hand- ritum geysimikinn fróðleik, sem’ vonandi kemur fyrir sjónir al- menniíigs þótt síðar verði. — Það voru ánægjulegar stundir að koma að Melbreið og eiga samræður við Hannes. Fróðleik ur þessa mikla fræðara náði lengra en til barnanna, sem hann kenndi, hann náði til hinna fullorðnu líka. Jafnvel á banasæng sinni fræddi hann mig og fleiri, sem heimsóttum hann. Svo var honum fræði- mennskan í blóð borin til hinztu stundar. Útför hans fór (Framh. á bls. 7) Húsavík í gær. LAÚGARÖAGINN 24. nóv. var haldinn hér kirkjudagur í Húsa víkurkirkju. Var hugmyndin að slíkur dagur yrði haldinn í vik- unni í sem flestum sóknum sýsl- unnar. En sökum samgönguerf- iðleika mun það víða farast fyrir. — Aðsókn var mjög mik- il, hvert sæti kirkjunnar var sétið eða rúmlega 400 manns. Aðgangseyrir var frjáls og safn- aðist töluvert fé, er rennur til sumarbúðanna við Vestmanns- vatn. Dagskrá dagsins var fjöl- breytt og þeim til sóma, er að stóðu og Húsvíkingum öllum fyrir góða aðsókn, er sýndu á- huga fyrir málefninu. —o— Frú Rigmor Hanson hefur verið hér áð undanförnu og íeið beint í dansi. Hafa bæði ungir og aldnir „tvistað og tjúttað“ af lífi og sál og haft mikla skemmt un af. Fyfir nokkru varð fimmtug- ur Njáll Bjarnason kennári. — S. L. ÞRIÐJUDAG afhenti stjórn Lionsklúbbs Akuxeyrar Fjói'ðungssjúkfahúsinu hér í bæ safn bóka, sem ætlað er sjúklingunum á barnadeild sjúkrahússins. Klúbbfélagar höfðu lagt ffam á 3. hundi’að barnabækur í þessu skyni. Foi'maður Lionsklúbbs Akur- eyrar, Geir S. Björnsson, af- henti bókagjöfina og gat þess, að klúbbfélagar hefðu í lxyggju Hann hefur staffáð hér við Barnaskólann sl. 20 ár og aflað sér mikils álits sem góður kenn- ai'i. Hefur hann vex-ið einn að- al lestrarkennari skólans. Firmakeppni í bridge. Bridgefélag Húsavíkur hóf stai'fsemi sína er vetur gekk í gai’ð. Fyi-st ýar spiluð þriggja kvölda tvímenningskeppni. — Hana unnu Björn Þoi'kelsson. og Halldór Þoi'grímsson. Nú stendur yfir „firma- keppni“ félagsins, sem um leið er keppni um einmenningstitil- inn. Þegar hafa verið spiluð 3 kvöld. 1. er Halldór Þoi'grímsson, spilár fyrir K. Þ., með 320 stig. 2. er Stefán Benediktsson, spilar fyrir Snöfrabúð, tneð 305- stig. Alls verða spiluð 5 kvöld, vei'ð ur sagt frá úrslitum síðar. Þátt- takendur eru 32 firmu. að auka við þetta sáfn árlega, eða leggja annað af möfkum til gagns eða dægradvalar þeim, er þurfa sjúki-ahússvistar við hverju sinni. Mætti þetta og e£ til vill vei’ða hvatning til ann- ax-ra félagasamtaka að aðhafast nokkuð í þessu sama skyni. Læknar sjúkrahússins, stjói'n- endur og yfirhjúkrunarkona veittu bókagjöfinni viðtöku og þökkuðu hana og þá huguísemi, ér á bak við byggi. Joðge. Yfirlæknir barnadeildar, Baldur Jónsson, virðir fyrir sér bama- bækumar. (Ljósm. B. S.). Lionsklúbbur Akureyrar færir í ’ *?' > jv-. sjúkrahúsinu safn barnabóka Vanli yður húsgögn - þá veljið það bezfa. VALBJÖRK ÍSLENDIN GUR

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.