Íslendingur - 29.11.1963, Qupperneq 8
í •'&éBCtt
v.
ájijiafci • - ■■’$*■«?*<*&»*%
I " ^ * >- ;
Það var niinni snjór í fyrravetur frammi í Eyjafirði en verið hefur undanfarið. Mynd þessi er tek-
in í fyrravetur yfir framhluta Eyjafjarðar, og sér á miðri mynd inn í Villingadal, en skógurinn í
Leyningshólum sézt á miðri mynd. Ljósm. K. Hjaltason.
Símaþjónustan í Grímsey verður bætt
Þar hafa allir nóg að starfa
Stutt viðtal við oddvita Grímseyjarhrepps
UM SÍÐUSTU HELGI kom oddviti Grímseyjarhrepps, Alfreð
Jónsson, úr för til Reykjavíkur, en þar ræddi hann við ýmsa
ráðamenn um hagsmunamál Grímseyinga, — menn, sem ráða yfir
afli þeirra hluta, sem gera skal. Hitti íslendingur hann að máli,
er hann staðnæmdist nokkra daga hér í bænum að lokinni suður-
för og bað hann segja lesendum blaðsins eitthvað um fyrirhugaðar
framkvæmdir í Grímsey.
Höfnin.
í>að er þá fyrst að nefna höfn-
ina. Er ákveðið að gera á henni
endurbætur í vor, styrkja garð-
inn með grjótfyllingu til varnar
úthafsöldunni. Sér vitamála-
skrifstofan um þá framkvæmd.
Raforkumál.
Frá því var gengið í þessari
för minni, heldur Alfreð áfram,
— að Héraðsveitur ríkisins yfir-
taki þá rafstöð, sem fyrir er í
Grímsey en orðin ófullnægjandi.
Verði hún stækkuð og þá um
leið lagt rafmagn á þá bæi, sem
enn hafa ekki rafmagn frá
þeirri stöð, en hafa hingað til
15% HÆKKUN
KOMIÐ er fram á Alþingi frv.
til laga um 15% hækkun allra
greiðslna frá Almannatrygging-
um til samræmingar við launa-
hækkanir, sem orðið hafa á ár-
inu. Undanþegnar þessari hækk
un eru fjölskyldubætur enda í
endurskoðun að hækka fjöl-
skyldufrádrátt á skattframtöl-
um. Gert er ráð fyrir, að þessi
15% hækkun verki aftur fyrir
sig, þannig að hækkunin verði
greidd frá 1. júlí sl. Er ætlast til,
að hækkunarupphæðin verði
greidd í einu lagi einhvei'ntíma
fyrir n. k. áramót. Hækkun
þessi frá 1. júh' er áætlað að
kosti Alm.tr. um 97 millj. kr.
bjargast af með einkarafstöðvar,
sem eru dýrar í rekstri og við-
haldi. Ákveðið er, að þessi aukn
ing komi til framkvæmda á
næsta ári.
Vatnið.
í undirbúningi er rannsókn á
vatnsvirkjun fyrir eyna. Hingað
til .hefur þar verið notazt við
brunnvatn og í sumum tilfell-
um við regnvatn. Árangur vatns
rannsókna liggur enn ekki fyr-
ir en er væntanlegur á næst-
unni. Þessi rannsókn er í hönd-
um Sigurðar Thoroddsen verk-
fræðings.
Samgöngur.
Tryggvi Helgason flugmaður
hefur haldið uppi reglubundn-
um flugferðum til Grímseyjar
eftir því sem veður leyfir það
sem af er þessu ári. Aðrar sam-
göngur eru aðeins með flóabátn
um Drang. Flugmálastjórnin
hefur lofað auknu öryggi í sam
bandi við flugið, svo sem tal-
stöðvakerfi og nýrri girðingu
um völlinn.
Talsamband.
Fyrirhugað er, að við fáum á
næsta ári truflanalaust stutt-
bylgjusamband með línu á
hvern bæ, en hingað til höfum
við verið á svonefndum báta-
bylgjum, þar sem. flestir við-
tækjaeigendur geta, ef vilja,
hlustað á hvert samtal, sem
fram fer á bylgjunni. Verður að
þessari framkvæmd stórmikil
bót.
Unir sér vel.
— Fækkar fólki í Grímsey?
— Nei, því fækkar ekki, held
ur hefur því lítillega fjölgað
síðustu 5 árin. Fólk unir sér vel
í Grímsey. Þar er yfirleitt mikið
um nýleg og vistleg íbúðarhús,
og eru kannske helztu fram-
farir Grímseyinga fólgnar í stór
bættum húsakosti. Fólkið unir
sér þar vel og hefur yfirleitt
nóg að starfa. Sarn'gönguerfið-
leikarnir eru því helzt fjötur
um fót.
Frá Grímsey. Höfnin til vinstri.
ÍSLENDINGUR
49.ÁRG. . FÖSTUDAGUR 29. NÓV. 1963 . 45. TBL.
Nýr vafnsgeymir á Haupnesi
Hauganesi í fyrradag. Hér hafa þó ekki nema um 150 fjár.
samgöngur verið lélegar lengi Mjólk er keypt á næstu bæjum
undanfarið. Þó alltaf hægt að og nokkuð í útibúi KEA, sem
komast að og frá á stærstu bíl- fær senda mjólk og mjólkur-
um, en æði seinfarið. afurðir innan af Akureyri.
Héðan stunda róðra þrír dekk G. N.
Nýja eyjan stækkar
LÍTIL lát virðast enn vera á
gosinu úr hafinu sunnan Vest-
mannaeyja, og er hin nýja eld-
ey, sem við gosið hefur risið úr
hafi orðin hartnær kílómetri að
lengd og á annað hundrað metr-
ar á hæð. Engar sprengingar
eða flóðbylgjur hafa orðið, en
nokkurt öskufall í Vestmanna-
eyjum, svo að sézt hefur á
þvotti, er hangir úti á þvotta-
snúrum og jafnvel mátt sjá af
slóð manna. Þar sem Vestmanna
eyingar nota regnvatn af þök-
um húsa sinna sem neyzluvatn
að nokkru leyti, veldur ösku-
fall þar, þótt lítið sé, nokkrum
vandræðum.
Þrír skálkar á Akureyri
LEIKFÉLAG Ólafsfjarðar kom
hingað um síðustu helgi með
sjónleikinn „Þrír skálkar“ eftir
Gandrup, í ísl. þýðingu Þor-
steins O. Stephensen. Leikstjóri
var Kristján Jónsson frá Reykja
vík. Leikurinn gekk hér við hús
fylli í þrjú kvöld samfleytt.
Þessi leikur hefur ekki sézt hér
á sviði í fullan áratug, en Leik- '
félag Akureyrar sýndi hann þá
með Jóhann Guðmundsson í
söngvarahlutverkinu og Þóri
Guðjónsson í Ístru-Morteni.
Ólafsfirðingunum var vel tek-
ið og ákaft klappað lof í lófa.
Sérstaklega vöktu athygli Þor-
steinn S. Jónsson í hlutverki
umferðasalans og Petrea Rögn-
valdsdóttir í Núri spákerlingu.
Einnig fór Kurt söngvari vel
með hlutverk sitt. Verður að
telja í talsvert ráðist hjá L. Ó.
að koma hingað í skammdegi
með svo mannfrekan leik og í
jafn erfiðu tíðarfari og raun
var á.
Umsögn um leikinn hefur áð-
ur birzt í blaðinu, og verður
ÚRSLIT
í 4. umferð Bridgefélagsins í
I. flokki urðu þau, áð Soffía
vann Magna með 6:0, Óðinn
vann Karl með 6:0, Björn vann
Pál með 6:0, en ólokið var leik
Zophoníasar og Óla. Eftir eru
þá 3 umferðir.
Jón á Akri 75 ára
JÓN PÁLMASON, fyrrum al-
þingismaður og bóndi á Akri í
Austur-Húnavatnssýslu verður
75 ára í dag. Hann hefur marga
hildi háð í íslenzku stjórnmála-
lífi, verið ráðherra um hríð og
á mörgum þingum forseti Sam-
einaðs A'lþingis. Hann er vin-
sæll og virtur langt út fyrir
raðir flokkssystkina.
ekki við hana bætt hér, en
þakka ber leikfélaginu fyrir
heimsóknina og góða skemmt-
un. Þess má að lokum geta, að
leikskrá þess var gerð af mikl-
um myndarskap, svo að minnti
á beztu leikskrár Þjóðleikhúss-
ins, en ritstjóri hennar var Sig-
mundur Jónsson.
bátar auk nokkurra trillubáta,
en vegna ógæfta eru róðrar
óvenju slitróttir og afli því lé-
legur.
Tvö íbúðarhús eru hér í smíð-
um. Þá byggðum við I haust
vatnsgeymi, er stendur uppi á
há-ásnum ofan við þorpið. Tek-
ur hann um 100 tonn af vatni.
Jafnframt er unnið að nýrri
vatnsleiðslu. Engar hafnarfram-
kvæmdir hafa verið á Hauga-
nesi í sumai-.
Útibú KEA hér hefur verið
stækkað um helming, og er hinn
nýi hluti tekinn í notkun þessa
dagana.
Hér á Hauganesi eru rúmlega
100 íbúar, og er útgerðin aðal-
atvinnugrein heimamanna. Lít-
ilsháttar sauðfjárrækt er hér, en