Íslendingur - 16.09.1965, Síða 5
s 5
Ályktun SUS nni
J
menntamál
ÁTJANDA þiag Sanibands ungra Sjálfstæðismaíína vekur
athygli á, að menntun íslenzkrar æsku hefur ekki verið
nægilega aðhæfð þeim kröfum, sem gerðar eru í nútíma
þjóðíélagi, þar sem góð menntun er skilyrði fyrir þroska ein-
staklinganna og tæknilegum og efnahagslegum framförum
meðal þjóðarinnar.
Ungir Sjálfstæðismenn telja því brýna þörf á samræmdri
endurskoðun í fræðslumálum, yfirstjórn þeirra og fram-
kvæmd, og mótun nýrrar menntunarstefnu. Til að slík end-
urskoðun komi að gagna, er nauðsynlegt, að aðferðir við
töku ákvarðana um fræðslumál séu bættar. í því sambandi
bendir sambandsþingið á eftirfarandi:
ÁKVARÐANIR um meginstefnu fræðslumála varða allan
almenning og verða að vera í höndum þjóðarinnar og kjör-
inna íulltrúa hennar.
STOFNA þarf rannsóknarstofnun fræðslumála, sem annist
stöðuga könnun á ástandinu á því sviði og sé ráðgefandi um
hugsanlegar úrbætur og framtíðarhorfur.
STARF hins opinbera á sviði fræðslumála þarf áð skipu-
leggja með raunhæfum framkvæmdaáætlunum um mennta-
mál, sem séu einn liður í þjóðhags- og framkvæmdaáætlun
ríkisins.
Átjánda þing SUS bendir sérstaklega á eftirfarandi mik-
ilvæg atriði, sem taka ber tillit til við mótun og framkvæmd
nýrrar menntastefnu.
SKAPA verður sem jafnasta aðstöðu til menntunar hvar sem
er á Iandinu, Nauðsynlegt er, að lögboðinni skólaskyldu sé
fullnægt um land allí. Á næstliðnu skólaári nutu 10% ung-
linga á 15. aldursári, síðasta ári skólaskyldunnar, ekki lög-
boðhmar fræðsíu.
GEFA verður nemendum kost á að velja sér námsverkefni
samkvæmt hæfni og áhugamálum. Vegna fyrirsjáanlegs vax-
andi fjölda nemenda á aldrinum 14 til 20 ára verður að leggja
meiri áherz’u á sérmenntun og sérhæfni kennara. Jafnframt
verður að sjá fyrir nægu skólahúsnæði.
ENDURBÆTA þarf tengsl skóla gagnfræðastigsins við sér-
skóla og þá fyrst og fremst við iðnskóla. Framkvæma þarf
nýjungar í iðnfræðsiu, sem miða að því að gera kennsluna
árangursríkari og stytta námstímann, m. a. með stofnun
verksíæðisskóla.
TÆKNIMENNTUÐU og háskóiamenntuðu fólki þarf að
fjölga. Nú eru stúdentar t. d. aðeins um 10% af aldursár-
gangi eða talsvert færri en í nágrannalöndunum.
AUKA þarf námsgreinaval. Endurbæta þarf kennsluaðferð-
ir og kennslutæki, vegna þess að verulegur hluti nemenda
lærir minna en liann getur og minna en þjóðfélagið lilýtur
að krefjast.
SKIFULAG fræðslumála verður að livetja til frumkvæðis
sveiíarfélaga, skóla og einstaklinga, m. a. með því að auka
frjóísræði og svigrúm á þessu sviði.
ISLENDIN GUR
Frá setningu 18. þings Sambands ungra Sjálfstæðismanna s.l. föstúdag. — Ljósmynd: N. Hansson.
Hvað segir þú um ályktun 18. þings
SUS um menntamál?
ÞAR sem sú vinna og undirbúningur, sem Rannsóknar-
og upplýsingastofnun Sambands ungra Sjálfstæðismanna,
RUSUS, hefur innt af hendi varðandi menntun íslenzkrar
æsku, markar með nokkrum hætti þáttaskil í haráttu ungra
Sjálfstæðismanna, hefur æskulýðssíðan lagt þessa spurningu
fyrir þrjá af fulltrúum sambandsþingsins: Hvað segir þú
um ályktun 18. þings SUS um menntamál?
felldri athugun
- segir Lárus Jóns-
son Ólafsfirði
Ungir Sjálfsíæðismenn halda
áfram athugunum sínum
- segir Mattliías Frímannsson
í ÁLYKTUN 18. þings SUS um
menntamál er bent á það helzta,
sem aflaga fer í fræðslumálum
okkar og bent á leiðir til úr-
bóta, að svo miklu leyti sem
hægt er í stuttri ályktun. . Þessi
ályktun byggir á allnýstárlegri
athugun Rannsóknar- og upp-
lýsingastofnunar Sambands
ungra Sjálfstæðismanna á
fræðslumálum og þeim athug-
unum verður
haldið áfram.
Litlar sem eng
ar breytingar
hafa orðið á
skyldu- og gagn
fræðastigi frá
því að fræðslu
lögin tóku gildi 1946 og ákvæð-
um þeirra laga fullnægt, —
t. d. hvað varðar framkvæmd
fræðsluskyldu til 15 ára aldurs
og verknám á skyldustigi. Það
mun víðast hvar ekksrt í því
formi, sem lögin gera ráð fyrir.
Eins og nú er, er öllum nem-
endum á skyldustigi ‘ ætlað að
læra hið sama, án tillits til þess,
hvort þau hafa getu til.
í fimmta lið- tillögunnar er
tekið fram, að ' verulegur hluti
nemenda læri minna en hann
getur. Þetta á bæði við um góða
og slaka nemendur. Góðum
nemendum er ætlað of lítið, en
slökum nemendum eru ætluð
verkefni, sem eru alls ekki við
þeirra hæfi og þeir valda þeim
því ekki. Þá vantar verkefni
við sitt hæfi og sem svarar
námsgetu þeirra. Ýtnsir slíkra
nemenda geta orðiö góðir verk-
menn, þótt bóknám sé þeim
kvöl. Hæfileiki til bóknáms hef-
ur löngum viljað vera nokkuð
algildur mælikvarði á gáfnafar.
(Framhald á blaðsíðu 7).
MENNTUN íslenzkrar æsku er
eitt af mikilvægustu viðfangs-
efnum þjóðarirmar og grund-
völlur áframhaldandi velmeg-
unar.
Þau mál hljóta því að verða
í sífelldri athugun beztu manna,
ef vel á að
vera. Það er
því sérstök á-
stæða til þess
að fagna því
starfi, sem nú
fer fram á veg-
um SUS og
Heimdallar í
R U S U S og
beinist að at-
hugun þessara mála, þannig að
mótun stefnu Ungra Sjálfstæð-
ismanna í þessum efnum verði
byggð á sern traustustum
grunni.
Fjölmörg viðfangsefni blasa
við á sviði menntunar íslenzkr-
ar æsku, og er það skoðun mín,
að þær umræður og tillögur,
sem franr hafa komið á 18. þingi
SUS í þessum mikilvægu mál-
um, muni verða æsku landsins
og íslenzku þjóðinni til bless-
unar.