Íslendingur


Íslendingur - 02.12.1965, Page 8

Íslendingur - 02.12.1965, Page 8
' » 1** >t »4á'-L. ’ ■ ■; *í.....íí \ JSk...................... Krossanesverksmiðjan hefur fengið áll-ríiikla hræðslusíld á vertíðinni, þótt engin síld hafi veiðzt vest- an Langaness, þakkað sé síldarflutningaskipunum. Og þótt fallega rjúki þar á myndinni, var komið nokkuð fram á vetur er Karl Hjaltason tók-þessa mynd að kvöldlagL Sjaldgæft er að finna „peninga- lykt“ frá Krossanesi á jólaföstu. Umferðarvika stendur nú yfir LÖGREGLUYFIRVÖLD bæjar ins, Bindindisfélag ökumanna, skátafélögin og tryggingaumboð in hafa efnt til svonefndrar „um BRIDGEKEPPNI B.A. í 3. umferð fóru leikar svo í I. flokki: Ólagur vann Zophonias 6—0, Hörður vann Gunnlaug 6—0, Júlíus vann Magna 6—0, Soffía vann Karl 5—1, Garðar jafnt við Stefán 3—3. Leikur Zophoniasar og Garð- ars úr 2. umferð: Zophonias vann Garðar 6—0. Meitsaraflokkur spilaði í fyrrakvöld. ekki ferðarviku“ hér í bænum, er 'hÖfst‘méð opinberum kynning- arfundi í Borgarbíói sl. laugar- dag! F.undinum stjórnaði Pétur Sv.einbjarnarson umferðafull- trúi. Hófst fundurinn með því, að Signrður M. Helgason settur bæjarfógéti og Magnús Guðjóns son bæjarstjóri fluttu ávörp. Þá sýndi Sigurður E. Ágústsson varðstjóri í umferðardeild lög- reglunnar í Reykjavík nokkrar erlendar kvikmyndir um um- ferðarmál, en að lokum var fyr- irspurnarþáttur, þar sem þrír menn voru til svara: Áðurnefnd ur Sigurður E. Ágústsson, Egill Gestsson formaður samvinnu- 0*0 SÍÐASTA Varðar-kjörbingóið á þessu ári verður í Sjálístæð- ishúsinu sunnudaginn 5. des. kl. 8.30 stundvíslega. Að þessu sinni verða um 40 vinningar, sem allir verða dregnir út, að verðmæti ca. 38 þúsund króríur. Allt eru þetta eigulegir vinningar og sumir þeirra tilvalin jólagjöf. Forsala aðgöngumiða verður á skrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins Hafnarstræti 101II. hæð milli kl. 2-^-3 e.h, i sunnudaginn. v- * * r Borð tekin frá um leið. — Tryggiðtykkur miða f tíma á þetía síðasta Varðar-kjörbingó ársins. VÖRÐUR F. U. S. Maður hverfur - Finnst örendur VISTMAÐUR á Kristneshæli, Haraldur Hallsson, maður um PERUSALA HUGINS LIONSKLÚBBURINN Huginn mun n. k. sunnudag bjóða til sölu hér í bænum ljósaperur, eins og hann hefur gert fyrir undanfarin jól, en ágóðinn af perusölunni gengur til líknar- starfsemi eða menningarmála eins og áður. fimmtugsaidur og fatlaður, fékk sl. sunnudag tveggja daga fjar- vistarleyfi, en er hann kom ekki heim á tilsettum tíma, var eftir- grennslan hafin. Var álitið, að hann hefði farið í heimsókn til kunningja síns að Laugalandi, en Eyjafjarðará var ísi lögð. Reyndist hann ekki hafa þangað komið. Var þá leit hafin, og fannst Haraldur örendur á ruðn- ingi úr framræzluskurði skammt undan Laugalandi. nefndar tryggingamála og Árni Guðjónsson hrl., lögfræðingur Fél. ísl. bifreiðaeigenda. Fyrirspurnir dundu á þeim þegar í stað, flestar um trygg- ingamál, og var fundurinn all- ur hinn fróðlegasti. Var hann sæmilega sóttur, en hefði mátt vera fjöimennari, því að umferð armálin eru æ ofar á baugi hjá okkur, eftir því sem ökutækjum j fjölgar og þéttbýlið vex. 51. ÁRG. . FIMMTUDAGUR 2. DES. 1965 . 42. TBL. TIL UNGRÁ ÖKUMANNA EKKI eru til neinar heildarskýrslur um tíðni ökutjóna og slysa eftir aldri ökumanna, en ljóst er, að hér í bæ, eiga ungir menn ískyggilega oft hlut að slysum og tjónum í um- ferðinni. Sumpart mun þetta stafa af því, að þessir menn hafa ekki náð nægilegri æfingu í akstri og ætla sér ekki af, og sumpart vegna þess, að þeir gera sér ekki nægilega grein fyrir þeirri miklu ábyrgð, sem fylgir því að aka bifreið og hugurinn beinist því ekki nægilega að einlægum ásetningi að forðast slysin. Ökumaður, sem ekki hefur það sem fyrsta boðorð í umferðinni að forðast slys en lætur annarleg sjónar- mið sitja í fyrirrúmi, verður ekki farsæll í umferðinni. Þess vegna viljum vér beina því til allra ökumanna og sérstak- lega hinna ungu að hafa það sem höfuðatriði og metnaðar- mál að forðast slys og tjón í hvaða mynd sem er. (Frá umferðarvikunni). Stækkun Fjórðungssjúkrahússins NÝLEGA mættu á fundi bæjar- ráðs formaður sjúkrahússtjórn- Mikið líf í Rafveituskemmunni Haustmót í handknattleik stendur yfir SÍÐAN Rafveita Akureyrar sýndi íþróttafélögunum í bæn- um þann velvilja og greiðasemi áð Ijá þeim hina nýbyggðu skemmu fyrirtækisins við Glerá til íþróttaæfinga, hefur mikið fjör færzt í inniíþróttirnar, aðal- lega handknattleikinn. Eru ein- hverjir hópar úr félögunum að æfingum þar flest eða öll kvöld vikunnar og fjölbreytt keppni uha helgar, t. d. fóru þar fram 9 keppnisleikir um síðustu helgi. (Haustmót í handknattleik.) Áhugi fólks fyrir keppnunum er mikill eins og sjá má á með- fylgjandi mynd, þar sem það raðar sér upp með veggjunum. Haustmótið heldur áfram um næstu helgi og fara þá fram úr- slitaleikir í hinum ýmsu aidurs- flokkum. Á laugard. leika m. a. ÍMA. og KA til úrslita í meist- araflokki karla. Keppni hefst kl. 2 e. h. á laugard. og sunnud. íþróttafélögin standa í mikilli þakkarskuld við Rafveitu Ak- ureyrar og rafveitustjórann Knút Otterstedt og fara félag- arnir ekkert dult með það. En hvað verður til ráða, þegar Raf- veitan sjálf þarf á húsnæðinu að halda, sem óhjákvæmilega verð- ur mjög bráðlega? ar, framkvæmdastjóri FSA og yfirlæknir, þar sem stækkun Fjórðungssjúkrahússins var til umræðu. Talið er nú, að vænt- anleg viðbygging þurfi að vera um 14 þús. rúmmetrar. Bæjarráð leggur til, að stjórn FSA sé falið að vinna áfram að undirbúningi málsins, og verði við það miðað, að byggingafram kvæmdir megi hefja árið 1967. Ennfremur verði þess farið á leit við fjárveitinganefnd Al- þingis, að tekin verði upp á fjárlög 1966 byrjunarframlag til byggingarinnar, eigi minna en 3 millj. króna. Handknattleikskeppni í Rafveituskemmunni við Glerá. Hópar áhorfenda raða sér upp með veggjum beggja megin. Ljm.: G. P. K> SEXTUGUR varð í gær, 1. desember, Gunn- ar Níelsson útgerðarmaður að Hauganesi á Árskógsströnd. Gunnar hefur um mörg ár verið einn af ötulustu trúnaðar- mönnum Sjálfstæðisflokksins í héraðinu, og sendir íslending- ur honum hugheilar árnaðar- óskir á þessum tímamótum. 7% launahækkun op- inberra starfsmanna KJARADÓMUR kvað í fyrra- dag upp úrskurð sinn um launa hækkun opinberra starfsmanna, og varð niðurstaðan 7%, og höfðu þrír af fimm dómendum samstöðu um úrskurðinn. Einn (Jóhannes Nordal) vildi láta hækkunina verða 5%, annar (Eyjólfur Jónsson) 12%. Nokkr ar tilfærslur voru jafnframt gerðar milli launaflokka.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.