Íslendingur


Íslendingur - 29.12.1966, Blaðsíða 1

Íslendingur - 29.12.1966, Blaðsíða 1
BARNAGAMAN Á JÓLUNUM J ólatrésskemmtanir barnanna standa nú sem hæst. Fyrir ungn borgarana eru þær ein dýrðlegasta skemmt- un ársins. — Myndin er frá jólatrésskemmtun í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri af lokaatriðinu, sem var almennur dans. Að sjálfsögðu lék Hljómsveit Ingimars Eydal öll nýjustu lögin og Þorvaldur og Erla sungu. Stelpurnar dönsuðu og minnstu strákarnir, en mest- allur strákahópurinn stóð og horfði á og hlustaði. I»að var ekki nógu gott! kvæmdir hreppsins. Upplýsing- ar Ásgeirs fara hér á eftir. — í sumar gengum við frá byggingu nýs skólahúss með 8 stofum. Við notum nú 5 þeirra fyrir kennslu og 2 sem leik- fimisal og samkomusal. Einnig var lokið við byggingu hafnar- bryggjunnar. — Aðalviðfangsefnið nú er að koma félagsheimilisbygging- unni svo áleiðis í vetur, að unnt verði að taka hana í notkun í vor. Þetta er allstórt félags- heimili, salurinn með þeim stærri nærlendis, og munum við fullgera hann fyrst, ásamt veitingasölu og anddyri. — Næsta mál á dagskrá og mjög aðkallandi er að dýpka höfnina. Hún er nú of þröng fyrir stóru síldarskipin. Dýpk- unarframkvæmdin er talin muni kosta um 5 millj. kr. Okk- ur hefur verið lofað, að í hana verði ráðizt næsta sumar. — Þá liggur fyrir innan tíð- ar, að gera stórátak í vatns- veitumálum. Við höfurn þegar látið bora nokkrar holur, sem hafa gefizt vel, en þá er eftir að endurnýja allt dreifikerfið. Hvemig líkar ykkur við nýja flugvöllinn? — Mjög vel. Okkur líkar (Framhald á blaðsíðu 6) Um 20 brennur verða í bænum á gamlárskvöld leyfi þarf fyrir brennunum, viðurlög við sprengjukasti BÚIST ER VEÐ að um 20 brennur verði á Akur- eyri á gamlárskvöld. — Verða þær víðsvegar um bæinn, allstórar á Odd- eyri og í Glerárhverfi, en engin þó áberandi stærri en almennt. Rétt er að benda á, að afla þarf leyfis fyrir brenn um hjá lögreglu og slökkviliði. Samkvæmt lögreglu- samþykkt Akureyrar er bannað að kveikja í púð- urkerlingum, „kínverj- um“ og öðru sprengiefni í bænum. Framleiðsla og sala slíkra hluta er einnig bönnuð. Brjóti menn þess ar reglur, sæta þeir ábyrgð. Hafa nokkrir ntenn og unglingar verið staðnir að sprengingum undanfarna daga og kærð ir fyrir. í DAG hafði blaðið samband við Ásgeir Ágústsson sveitar- stjóra á Raufarhöfn og ræddi stuttlega við hann um fram- Áskrifendur • UM LF.TÐ og fslendingur þakkar þeim mörgu, sem sinnt hafa innheimtum fyrir árgjald biaðsins, hvetur það þá sem eiga eftir að senda áskriftargjaldið, til þess að gera það sem allra fyrst. • Næsta tölublað íslend- ings kemur út 12. janúar n.k. ÍSLENDINGUR BLAÐ SJÁLFSTÆÐISMANNA í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA 52. ÁRG. AKUREYRI, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1966 50. TBL. Hvað gerðist markverðast innanlands á árinu 1966? ÍSLENDINGUR hefur snúið sér til nokkurra manna og spuist hvað ÞEIM FYNDIST rnark- verðast hafa borið við inn- anlands á árinu, sem nú er að líða. Svörin fara hér á eftir. Jón fsberg sýslumaður, Blönduósi: Endanlega lausn handrita- málsins vildi ég mega telja þar efst á blaði, ásamt með ákvörðuninni um byggingu álbræðslunnar í Straumsvík. Af heimamálum er mér Norð- urlandsáætlunin efst í huga. Ingvar Jónsson hreppstjóri, Höfðakaupstað: Ef ég má halda mig við heimamál eingöngu, þá verð- ur fyrst fyrir Norðurlands- áætlunin. En meðfram vildi ég nefna síldarflutningana til verksmiðjunnar héma, sem hófust í sumar og sönnuðu, að verksmiðjan er í fullkomnu lagi og dýrmætt framleiðslu- tæki, ef hún er notuð. Sigurður Jónsson bóndi, Sandfellshaga, Oxarfirði: Það sem ég myndi í fljótu bragði telja fréttnæmast á ár- inu af því sem að sveitunum snýr, er þétta óvenjulega veð- urfar allt frá því um mánaða- mótin janúar—febrúar. Þá hófst harður vetur, sumarið var erfitt og vetur skall á aft- ur snemma. Þetta kemur hart niður á sveitunum, þar sem samgöngur eru erfiðar. Valgarð Björnsson læknir, Hofsósi: Ég tel þetta markverðast hvað á sínu sviði: Endur- heimt handritanna, verðstöðv unina, sem er mikilvægt skref á þessu stigi, Norðurlands- áætlunina og gerð Strákaveg- ar til Siglufjarðar. Þorgils Sigurðsson bóndi, Sökku, Svarfaðardal: Hvað snertir sveitirnar við , Eyjafjörð, ef ég má svara beint frá mínum bæjardyrum, þá sýnist mér það hafa varðað okkur mestu á árinu, hver framvindan yrði í framleiðslu málum og verðlagsmálum landbúnaðarins. Mér finnst að svolítið los hafi komið á bænd ur hér í sveitinni og þeir hafi hugleitt að breyta til. En ef allt skilar sér í sambandi við afrakstur af búskapnum, held ég að afkoman verði svipuð og árið á undan og þá ástæðu- laust að kvíða. Páll Þór Kristinsson fram- kvæmdastjóri, Húsavik: Yfir heildina litið tvímæla- laust verðstöðvunin og lausn handritamálsins. Jóhann Jónasson útgerðar- maður, Þórshöfn: Lausn handritamálsins er vitanlega geysilega merkileg- ur áfangi. Hvað heimamál snertir, þá hefur mikið verið gert í hagsmunamálum okkar á þessu ári, eins og að undan- förnu í tíð núverandi ríkis- stjómar. Ásgeir Ágústsson sveitar- stjóri, Raufarhöfn: Það er vitanlega margt markvert sem hefur gerzt. Svona fyrirvaralaust kemur mér í hug lausn handritamáls ins og verðstöðvunin, sem mér finnst að hefði mátt koma fyrr, en vonandi kemur eitt- hvað útúr. Það sem snýr að okkur hér í sýslunni myndi ég telja markverðast kísilgúr- málið og Norðurlandsáætlun- ina. Knútur Karlsson fiskkaup- maður, Akureyri: Samningarnir um álbræðsl- una í Straumsvík. Það er upp haf að nýjum atvinnugreinum í landinu, stórt framfaraskref, sem er hagsmunamál alþjóðar. Rafn Magnússon trésmíða- meistari, Akureyri: Verðstöðvunin og ákvörðun in um álbræðsluna, sem er mikið framtíðarmál. Slulí viðtal við Ásgeir Ágústsson sveitarstjóra: Mikil nauðsyn aí dýpka hölnina á Raufarhöln

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.