Íslendingur


Íslendingur - 31.10.1974, Side 2

Íslendingur - 31.10.1974, Side 2
Skíðafólk á Akureyri: ÆFIR EFTIR NÝJU NORSKU LANDSLIÐSKERFI Þó lítið hafi verið um snjó á þessu hausti, er Iangt síðan æfingar hjá skíðafólkinu á Akureyri hófust. Reglulegar æfingar voru hafnar í júlí og fór hópurinn m. a. á hverju miðvikudagskvöldi upp undir brún Hlíðarfjalls og æfði þar í skafl i einum. Æfingar þessar fóru fram eftir sérstöku æfingakerfi, sem Norðmenn hafa nýlega tekið upp fyrir landsliðsmenn sína, en Viðar Garðarsson þjálfari Akureyringanna sótti einmitt þjálfaranámskeið í Noregi í sumar, þar sem þetta nýja kerfi var kennt. — Eins og xnönnum er kunn- ugt, þá hafa Norðmenn alltaf staðið mjög framarlega í skíða- íþróttinni, en á síðustu árum hafa þeir dregist nokkuð aftur úr. Því var gerð algjör endur- skoðun á æfingakerfi skíða- mannanna norsku og nýtt kerfi samið. Æfingakerfi þetta grund- vallast á reynslu Frakka og Austurríkismanna, sem nú eru á toppi, sagði Viðar Garðarsson, í viðtali við íslending. — Eg var svo heppinn, að sækja nám- skeið Norðmannanna, einmitt þegar þeir kynntu þetta nýja æfingakerfi, og gat því tileink- að mér þessar nýjungar. — Ég bind mjög miklar von ir við kerfið og er þeirrar skoð- unar, að við ættum ekki síður að geta náð langt með því, en Norðmenn. Nú höfmn við æf- ingaplan þeirra, og þar að auki höfum við betri snjó allt árið um kring en Norðmenn. Sumar- snjórinn í Noregi er mjög slæm- ur til að skíða í, en snjórinn hér er aftur á móti mjög vel til þess fallinn. Þjálfaranámskeiðið, er Viðar sótti var haldið í sumarskólan- um í STRYN í Mið-Noregi. Er þetta annað námskeiðið, sem hann sækir þangað. Það fyrra var ætlað fyrir þjálfara byrj- endahópa, en það sem hann sótti í sumar var ætlað þjálfurum keppnismanna. Nýja kerfið er í stórum drátt- um þannig, að þjálfuninni er skipt niður í þrjá hluta, sem deilt er niður á allt árið. Á fyrsta hluta er aðaláherslan lögð Á hverjum miðvikudegi, að lokinni vinnu, fór skíðafólkið upp undir brún Hlíðarfjalls til æfinga. Þessi mynd var tekin á einni æfingunni. Nú í haust fór hópurinn austur að Hlugastöðum til þrekæfinga eina helgi. Viðar segir, að mynd þessi sýni glögglega þá miklu gleði, sem einkenni þennan hóp á æfingum. á tæknivinnu. Áður fyrr var yfirleitt lögð áhersla á einhverja eina aðferð við skíðun í hraut- um, en nú eru kenndar 10 að- ferðir við skíðun. Skíðamaður- inn á síðan að geta notfært sér hinar mismunandi aðferðir eftir því hvernig aðstæðurnar eru hverju sinni. Með þessu móti verður skíðamaðurinn mun fjöl- hæfari, en sá sem notar aðeins eina aðferð við að skíða í braut- unum. Á öðrum hluta er farið inn á svokallaða magnþjálfun. Þá er þessi tæknivinna, sem búið er að fara í gegnum æfð í skíða- brautum, þannig að skíðafólkið læri að nota réttar aðferðir við hinar mismunandi aðstæður í brautunum. Þriðja hlutanum er varið til keppni, bæði keppni í æfinga- mótum og opinherum mótum. Viðar hyggst t. d. láta skíða- fólkið á Akureyri fá tækifæri til þess að keppa með viku eða hálfs mánaðar fresti í vetur. Síðast en ekki síst leggja Norðmennirnir mikla áherslu á þrekæfingarnar hjá sínum mönn- um. Þrekæfingarnar eru stund- aðar allt sumarið og alveg þang- að til hægt er að vera á skíðum á hverjum degi. Viðar kom heim í júlí, eða strax eftir að þjálfaranámskeið- inu lauk og byrjaði þá strax að þjálfa Akureyringana eftir nýja kerfinu og segir hann að það hafi gefist mjög vel þegar í byrj un. Orðum hans til sönnunar má benda á að Akureyringarnir Æfingatafla Skíðaráðs Akureyrar Mánudagur — íþróttavöllurinn: Kl. 18.15: 13 ára og yngri, þrekæfingar, intervallæf. Kl. 19.00: 14 ára og cldri, þrekæfingar, intervallæf. Þriðjudagur — Iþróttavöllurinn: Kl. 19.00: 14 ára og eldri, imitasjónsæfingar, þrekæf. Fimmtudagur — íþróttavöllurinn: Kl. 18.15: 13 ára og yngri, snerpa/fjöðrun, þol, taktik. Kl. 19.00: 14 ára og eldri, snerpa/fjöðrun, þol, taktik. Öllum er heimilt að mæta á æfingar skíðaráösins. — Skíðaæfingar byrja strax og snjór leyfir. tóku að jafnaði 2 af hverjum 3 verðlaunum í öllum þeim flokk- um, sem þeir kepptu í á skíða- móli því, sem haldið var í Kerl- ingarfjöllum ekki alls fyrir löngu. Einnig virðist skíðafólk- ið sjálft vera mjög án'ægt með þessa nýju æfingaaðferð og Viðar Garðarsson, þjálfari Ak- ureyringa. sagði Viðar að sér væri það rnjög mikil ánægja að vinna með þessum hópi ungs fólks á Akureyri. Væri hópurinn sam- valiim og afar duglegur. Að lokum sagði Viðar að hann teldi að þetta nýja æfinga- kerfi stefndi í rétta átt, en sagði að hér mætti ekki láta staðar numið heldur ætti nú að senda einhverja aðra skíðamenn utan fljótlega til þess að sækja þjálf- aranámskeið toppþjóðanna Frakka og Austurríkismanna og flytja heim með sér þær nýjung- ar, sem þeir eru með núna. 2 - ISLENDINGUR

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.