Íslendingur - 31.10.1974, Blaðsíða 7
10 milljómr til borana á 3 árum
og árangur sama og enginn
segir bæjarstjórinn á Ólafsfirði
Um næstkomandi áramót lætur Ásgrímur Hart-
mannsson af störfum sem bæjarstjóri Ólafsfjarð-
ar og hefur hann þá gegnt bæjarstjórastarfinu í
29 ár, eða lengur en nokkur annar maður á land-
inu. Eftirmaður Ásgríms verður Pétur Már Jóns-
son lögfræðingur úr Reykjavík.
Að sögn Ásgríms hefur þetta
síðasta starfsár hans sem bæj-
arstjóra einkennst af upp-
gangi og erfiðleikum. 45
manns hafa íluttst til bæjarins
á árinu og er það óvenjulega
mikill fjöldi. Atvinna hefur
verið mikil og jafnvel verið
vöntun á fólki til starfa, sér-
staklega iðnaðarfólki. Miklar
framkvæmdir hafa verið á veg
um bæjarins og ber þar hæst
hafnargerðin. Erfiðleikarnir
birtast hins vegar fyrst og
fremst í formi fjárskorts eins
og svo víða annars staðar.
— Það harðnar stöðugt á
dalnum hjá Olafsfirði og öðr-
um smærri byggðarlögum úti
á landi, sagði bæjarstjórinn í
viðtali við íslending' fyrir
skömmu. — Eg hef heyrt mik-
ið talað um það í fjölmiðlum
að fjárhagsvandinn sé hvað
mestur hjá stærri kaupstöðum,
en ég tel þetta alrangt. Bæir
eins og Ólafsfjörður hafa í
raun og veru ekkert rekstrarfé.
lJrátt fyrir það verðum við að
geta hyggt upp þá aðstöðu
sem þarf til þess að hægt sé
að inna af hendi nauðsynlega
þjónustu við atvinnurekstur-
inn. Það eru litlu kauptúnin
og kaupstaðirnir sem lenda í
mestu erfiðleikunum vegna
hinnar sívaxandi dýrtíðar og
við drögumst æ lengra aftur
úr. Eg þori að fullyrða að þó
stærri kaupstaðirnir spöruðu
við sig verulegar framkvæmd-
ir í 1—2 ár þá væru þeir samt
sem áður langt á undan minni
stöðunum með allfi nauðsyn-
lega uppbyggingu.
Árangurslítil leit
Ásgrímur tók síðan fyrir
borunina eftir heitu vatni, sem
dæmi um þau verkefni, sem
bæjarfélagið þyrfti að leysa
til þess að fólk fengist til að
setjast að á Ólafsfirði. Kaup-
staðurinn hefur á sl. 3 árum
varið 10 milljónum króna til
leitar eftir heitu vatni en ár-
angur af leitinni er sama og
enginn.
— Á Alþingi er samstaða
um að mikil nauðsyn sé á að
auka möguleika til meiri nýt-
ingar heita vatnsins sem er til
í landinu, en aftur á móti virð-
ist aðstoðin, sem veitt er til
leitar eftir því sáralítil, sagði
Ásgrímur. — Á þessu sumri
var boruð 120 metra djúp hola
og enn er óvíst um árangur og
nú er byrjað á annarri 300
metra djúpri holu, sem við
bindum miklar vonir við. Hér
í Ólafsfirði eru 250—300 íbúð
ir og það vantar heitt vatn í
um 40 þeirra, svo það er að-
kallandi fyrir okkur að fá
Iausn á þessu máli sem fyrst.
— En borunarkostnaður er
ótrúlega mikill, sérstaklega
þeirra tækj a sem notuð eru við
borunina. Þar að auki heimt-
ar Orkustofnunin greiðslu
fyrirfram fyrir tækin, svo
manni virðist aðstoðin vera
heldur lítil við þá, sem þurfa
að standa straum af þessum
borunum í leit að varma.
Hafnarframkvæmdiv
Eins og áður segir eru hafn-
arframkvæmdirnar það verk-
efni sem mest áhersla hefur
verið lögð á að vinna að á
þessu ári. Að sögn Ásgríms
var ástandið í hafnarmálum
Ólafsfirðinga þannig að mynni
aðalhafnarinnar var orðið svo
grunnt að það var með öllu
ófært stærri skipum þegar eitt-
hvað var. að veðri. Auk þess
gátu stærri skip og skuttogar-
ar ekki snúið sér við inni í
höfninni. Nú í haust mun upp-
mokstursskipið Hákur dýpka
aðalhöfnina og síðan mun
hann dýpka innri höfn Ólafs-
firðinga þannig að viðlegu-
kantur sá sem lagður var í
sumar komist í gagnið. Við-
legukanturinn er 130 metra
langur og er gerður úr stál-
þili, sem rekið var niður. Er
verið að ganga frá honum
endanlega um þessar mundir,
en á næsta ári verður steypt
yfir hann plata. Þegar því verð
ur lokið hafa Ólafsfirðingar
loksins eignast öruggt skipa-
lægi. Verkstjóri við hafnar-
framkvæmdirnar er Hallgrim-
ur Antonsson frá Dalvík, en
áætlaður kostnaður við verkið
er 30 milljónir króna.
40 hús í smíðum
Um 45 manns hafa flutt til
Ólafsfjarðar á þessu ári, en
alls 40 ibúðir eru í byggingu á
staðnum. Flestar þessar íbúð-
ir eru í eigu ungs fólks á
Ólafsfirði, sem er nýbúið að
stofna heimili. Ásgrímur sagði
að aldrei áður hefðu jafn
mörg hús verið í smíðum í
einu. 10 þessara húsa eru við
nýja götu, sem var undirbyggð
sl. sumar. — Af öðrum bygg-
ingaframkvæmdum í bænum,
Ásgrímur Hartmannsson,
bæjarstjóri Ólafsfjarðar.
má nefna mikla viðbyggingu á
hraðfrystihúsi Magnúsar Gam-
alíelssonar, og þá er verið að
undirbúa byggingu sjúkra-
húss, heilsugæslustöðvar og
elliheimilis. Þessar þrjár stofn-
anir verða undir sama þaki,
og er áætlað, að þar geti dval-
ið 15 gamalmenni og 10 sjúkl-
ingar. Þriðji hluti byggingar-
innar verður notaður sem
heilsugæslustöð. Bæjarstjórinn
sagði, að byrjað .hefði verið
á grunni sjúkrahúss fyrir
nokkrum árum, en nú væri
unnið að stækkun hans, þar
sem ákveðið hefði verið, að
fyrrnefndar stofnanir yrðu
undir sama þaki. Verkið hefur
gengið seint, m. a. vegna vönt-
unar á vinnukrafti, en vonir
standa til, að hægt verði að
ljúka því á næstu 3—4 árum,
ef fjárveitingar fást Um sl.
áramót var heildarkostnaður
við framkvæmdirnar áætlaður
100 millj. kr.
Skemmtun
fyrir aldraða
Félagsmálastofnun Akureyrar og Kvenfélagið
Hlíf gangast fyrir skemmtun fyrir aldraða sunnu-
daginn 3. nóvember kl. 15.00 í Sjálfstæðishús-
inu. — Skemmtiatriði, spil og dans.
Þeir, sem óska eftir akstri á skemmtunina, til-
kynni það til félagsmálastofnunar fyrir 'hádegi á
föstudag. — Síminn er 21000.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN AKUREYRAR,
Geislagötu 5. — Akureyri.
FÉLAGSMALASTOFNUN AKUREYRAR
óskar eftir fólki til starfa viö
heimilis-
þjónustu
Bent er á, að hér er urn hentuga vinnu að ræða
fyrir þá, sem vilja vinna hluta úr degi.
Félagsmálastofnunin gengst fyrir kvöldnámskeiði
fyrir væntanlegt starfsfólk og hefst það mánud.
4. nóv. Kennt verður 4 stundir á kvöldi, en nám-
skeiðið mun standa í tvær vikur. Námskeiðið
verður þátttakendum að kostnaðarlausu.
Umsóknir sendist Félagsmálastofnun Akureyrar,
Geislagötu 5, sími 21000.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN AKUREYRAR,
Geislagötu 5. — Akureyri.
- Tennur
Framhald af miðsíðu.
aðar falskar tennur, eru að þeir
sitja vel fastir í munninum.
Þeir gefa sjúklingum möguleika
á að halda öllum þejm tönnum,
sem nothæfar eru af hans eigin
og loks þekja þeir ekki góm
sjúklingsins á sama hátt og
fölsku tennurnar gera, en heil-
gómarnir draga úr bragðskyni
fólks sem þá notar.
Gómpartar krefjast hins veg-
ar mjög góðrar hirðingar ef end
ing þeirra á að vera góð og
tennurnar, sem notaðar eru til
festingar þurfa alveg sérstak-
lega góða hirðingu. Matur vill
setjast undir krókana og valda
tannskemmdum ef hirðing er
ekki góð.
En stundum eru tennurnar
það illa famar að vinnan við
viðgerðirnar borgar sig eklci og
þá er heilgómur þrautalending
fyrir sjúkling og tannlækni. Þá
eru allar tennur fjarlægðar úr
gómunum og falskir gómar sett-
ir í staðinn. — Þessar tennur
þarf að hirða vel og þær þurfa
að endurnýjast þar sem gómar
sjúklingsins sjálfs halda áfram
að rýrna á meðan hann lifir.
Oft dugir að gómarnir séu fóðr-
aðir, en stundum þarf að smíða
tennurnar alveg upp. Hætt er
við að matarleyfar vilji setjast
undir fölsku gómana og því
þarf að taka þá út oft og hreinsa
vel undir þeim, annars er hætt
við að matarleyfar valdi bólgu
og særindum í gómum.
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
BÍLAVERKSTÆÐI
DALVÍKUR
Frá Landssímanum, Akureyri:
tílkynning um breytt
símanúmer á Akureyri
Símaskráin fyrir árið 1974 tekur gildi að fullu
varðandi Akureyri mánudaginn . 4. nóvember
1974 kl. 08.00, en samkvæmt henni breytast
símanúmerin 1-15-00 til 1-24-99 þannig að
tveir fyrstu tölustafirnir verða nú 23.
Dæmi:
1-15-00 verður 2-35-00.
1-18-69 verður 2-38-69.
1-24-99 verður 2-34-99.
Ennfremur breytist símanúmerið 1-21-00 (eins
og það er í símaskránni 1974) í 2-31-00.
Þá eru þeir símnotendur á Akureyri, sem ekki
hafa enn vitjað símaskrárinnar fyrir 1974, vin-
samlega beðnir að gera það við fyrstu hentug-
leika.
SÍMASTJÓRINN, AKUREYRI.
ISLENDINGUR - 7