Íslendingur


Íslendingur - 19.06.1975, Side 1

Íslendingur - 19.06.1975, Side 1
22. TÖLUBLAÐ . 60. ÁRGANGUR . AKUREYRI . FIMMTUDAGINN 19. JÚNÍ 1975 VÖRUSALAN SR • HAFNARSTRÆTl 104-AKUREYRI b VERZLAR í / VÖRUSÖLUNNl ** --y yci _______________ Fjölskyldubætur \ siðasta sklpti Þessa dagana stcndur yfir útborgun á fjölskyldubótum í síð- asta sinn í þeirri mynd, sem þær hafa verið greiddar fram til þcssa. Samkvæmt nýjum lögum verða bæturnar teknar inn í skattaútrcikninga þannig að barnafjölskyldur sjá þær cinungis í formi lægri skatttölu í framtíðinni. Grciðslum lýk- ur um mánaðamótin, cn gjaldfallnar fjölskyldubætur verða þó afgrciddar til næstu áramóta. Kom þetta fram í viðtali við Hallgrím Vilhjálmsson tryggingafulltrúa hjá umboði l'ryggingastofnunar i-íkisins á Akureyri. Hallgrímur sagði að fjöl- skyldubætur með einu barni hefðu verið 1.667 kr. á mán- uði að undanförnu og sú upp- hæð var greidd út mánaðar- lega til fjölskyldna með 3 börn eða fleiri. Þar sem börn eru færri hefur útborgun ver- ið á þriggja mánaða fresti. Engar bætur hafa fengist fyr- ir 1 barn ef brúttótekjur fram færanda hafa verið yfir 700 þúsund. — Hallgrímur kvaðst hafa orðið var við töluverða óánægju með breytinguna meðal þeirra sem hafa notið fjölskyldubóta. Margar konur notuðu þessa peninga sem heimilispeninga og myndi þeim bregða við þegar þeir hyrfu og kæmu seint og um síðir fram sem heldur lægri upphæð á skattseðli eigin- mannsins. Skattskráin seinni en venjulega Skattskráin fyrir Akureyri verður ekki tilbúin fyrr en upp úr 20. júlí næstkomandi. Er það á svipuðum tíma og í fyrra, en oftast áður hefur skattskráin verið mun fyrr á ferðinni. Að sögn Halls Sigurbjörnssonar skattstjóra stafa tafirnar m. a. af því að miklar breytingar urðu á lögum, 28. apríl sl., um ráð- stafanir í efnahagsmálum, en það varð til þcss að ýmsa út- reikninga varð að gera upp á nýtt. Skattstjórinn sagði að geng ið væri frá um 11 þúsund framtölum einstaklinga á Ak- uryeri og 7—800 framtölum félaga og stofnana. Vinnan við framtölin sjálf verður bú- in um mánaðamótin, en þá á eftir að senda þau til Skýrslu- véla ríkisins þar sem skrár eru samdar. 112 nýir MA-stúdentar 38% með I. einkunn, 55% með II. einkunn Á 17. júní voru útskrifaðir 112 stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri og er það held- ur minna en oft áður. Af nýstúdentum voru 44 frá Akureyri. Hæstu meðalcinkunn á stú- dentsprófi lilaut Eiríkur Rögnvaldsson, Sauðárkróki, en hann var með einkunnina 9.14. Önnur liæst varð Ásdís Vatnsdal, Akureyri, með einkunnina 9.0. Þau voru bæði í mála- deild. Skólaslit fóru fram í Akureyrarkirkju og mcðal þeirra sem voru viðstaddir athöfn- ina voru 10 og 25 ára stúdentar. Af þeim nemendum sem útskrifuðust á þessu vori voru 2 með ágætiseinkunn, 43 með 1. einkunn, 62 með II. einkunn og 5 með III. einkunn. — í viðtali við Tryggva Gíslason, skóla- meistara, kom fram að dreif ing einkunna hefur breyst nokkuð á undanförnum ár- um og er hreyfingin svipuð og í MR, þ. e. að fleiri nem- endur koma nú út með II. einkunn en gerðist áður. í ár eru 38% nemenda með I. einkunn og 55 prósent með II. einkunn, en fyrir 25 ár- um síðan voru 60% nem- enda með I. einkunn og 33.3% með II. einkunn. — Þessar tölur tala sínu máli, sagði skólameistari, þó svo að þróunin sé ekki enn Framhald á bls. 6. RÓLEG ÞJÓÐHÁTÍÐ Hátíðarhöldin 17. júní á Ak- ureyri fóru frarn á hefð- bundinn hátt, en það var Knattspyrnufélag Akureyr- ar scm annaðist undirbún- ing að þessu sinni. Veður var sæmilegt, þurrt að mestu en heldur kalt. Sam- kvæmt upplýsingum lögregl unnar var dagurinn rólegur, ölvun lítil og cngin óhöpp urðu í bænum. Hátíðardagskráin hófst með því að blómabíll ók um bæinn, en kl. 13 lék Lúðra- sveit Akureyrar á Ráðhús- torgi. Síðan var helgistund sem sr. Birgir Snæbjörnsson annaðist og því loknu hófust aðalhátíðarhöldin á íþrótta- vellinum. Aðalræðu dags- ins flutti Úlfur Ragnarsson læknir, en ávarp fjallkon- unnar flutti Heiðdís Norð- fjörð. Fjölmenni var á áhorf endasvæðinu við íþróttavöll inn á meðan dagskráin stóð yfir og sömu sögu er að segja um barnaskemmtun- ina sem var haldin á Ráð- hústorgi kl. 17.30. Þar spil- aði lúðrasveit drengja, Ingi- mar Eydal lék undir söng þriggja ungra stúlkna, og Hannes Hartmannsson sýndi töfrabrögð. Loks lék hljóm- sveitin Geislar fyrir dansi. Um kvöldið var skemmtun á Ráðhústorgi þar sem fram komu m. a. Lúðrasveit Ak- ureyrar, Karlakór Akureyr- ar, Spilverk þjóðanna, Geisl ar og fl. Að sögn lögreglunn- ar var nokkuð fjölmenni á torginu um kvöldið, en þeg- ar dansinn hófst voru ungl- ingar þar í áberandi meiri- hluta. Dagskránni lauk kl. 1 eftir miðnætti. Þrátt fyrir lieldur hráslagalegt veður var þátttaka í hinuni ýmsu dagskrárliðum 17. júní-hátíðarhaldanna á Ak. góð. Rauðinúpur aflar vel Togarinn Rauðinúpur frá Raufarhöfn hefur aflað vel að undanförnu og er hann búinn að fá um 400 tonn í 3 stuttum veiðiferðum. Togarinn hefur landað aflanum á Raufarhöfn og skapað stöðuga vinnu í frystihúsinu allan þennan mánuð. Uppi- staðan í aflanum í síðustu ferð var góð ýsa af Austfjarðar- miðum. Það sem af er þessu ári hefur Rauðinúpur landað alls um 1100 tonnum af fiski á Raufarhöfn, en bátar á staðn- um hafa landað um 200 tonn- um af bolfiski, sem er tregur afli. Fiskurinn hefur allur verið unninn í fiskvinnslu- stöðvum Jökuls h.f., en það fyrirtæki gerir út skuttogar- ann Rauðanúp. Grásleppuvertíðinni á Rauf arhöfn er nýlokið og var hún óvenjulega góð, þrátt fyrir slæma tíð. Er búið að salta um 2000 tunnur af grásleppu- hrognum og bjargar það af- komu smábátaeigenda á Rauf- arhöfn á þessu ári, þar sem bolfiskveiðarnar hafa brugð- ist þeim til þessa. Stálþilið kemur í júlí Búist er við að efni í stálþil vöruliafnarinnar á Akureyri komi til landsins í júlí og að uppsetning þess hefjist stuttu síðar. Innkaupastofnun ríkisins annast innkaup á þilinu og hafa henni borist 9 tilboð þar að lútandi. Hagstæðasta tilboðið cr frá aðila í Kaupmannahöfn, en stálþil með fcstingarútbúnaði frá honum kostar 55 milljónir króna að meðtöldum áætluðum tollum og flutningskostnaði. Undirbúningsframkvæmdir vegna uppsetningar þilsins eru að hefjast. Eins og fram hefur komið í frétt í blaðinu voru það hafnarmálastofnunin og Dansk Geoteknisk Institut sem lögðu til að horfið yrði frá byggingu staurabryggju og í hennar stað kæmi stálþil. Var fallist á þessar breyting- ar af hálfu bæjarins en þær munu m. a. hafa það í för með sér að grunnurinn að væntan- Framhald á bls. 6.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.