Íslendingur


Íslendingur - 19.06.1975, Side 6

Íslendingur - 19.06.1975, Side 6
„Varpa áhyggjum þínum á Drottinn, hann mun bera um- hyggju fyrir þér.“ (Sálm. 55. 23.) Áhyggjur útslíta þeim sem þær hvíla á. Hví ekki að varpa þeim — og sjálfum sér — upp á Guð? Sæm. G. Jóh. Samkoma votta Jehóva að Þingvallastræti 14, 2. hæð, sunnudaginn 22. júní kl. 16.00. Fyrirlestur: Fylgjum Kristi inn í nýja heimsskipan. Ræðu maður: Kjell Geelnard. Allir velkomnir. ÁRNAÐ HEILLA Sextug varð 16. júní, hin vin- sæla leikkona, frú Björg Bald vinsdóttir, Hafnarstræti 83, Akureyri. Áttræður verður 22. júní Stefán Hólm Kristjánsson, Austurbyggð 9, Akureyri. 75 ára verður 24. júní Hall- freð Sigtryggsson, Gránufé- lagsgötu 28, Akureyri. Níræður verður 24. júní Jó- hann Jónsson, skósmíðameist- ari, Krabbastíg la, Akureyri. Níræður verður 25. júní Tryggvi Jónsson, fyrrverandi bóndi að Svertingsstöðum, Eyjafirði. SÖFN Matthíasarhús er opið daglega frá kl. 3—5. Davíðshús er opið daglega frá kl. 5—7. Náttúrugripasafnið er opið daglega kl. 1—3. Minjasafnið er opið daglega frá kl. 13.30—17. Nonnahús er opið daglega frá kl. 2—4.30. Upplýsingar í síma 22777 eða 11396. AA-samtökin Átt þú við áfengisvandamál að stríða? Viljir þú leita til AA-samtakanna, getur þú hringt í síma 2-23-73, Akur- eyri, kl. 9—10 mánudags- og föstudagskvöld. Til þess að gerast AA-félagi, þarf aðeins eitt, — löngun til að hætta að drekka. •— Símsvari. Nýja bíó sýnir í kvöld mynd- ina Fórnardýr lögregluforingj ans, sem er spennandi ítölsk- amerísk sakamálamynd. — Myndin fékk tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cann es á sínum tíma. Á sunnudag kl. 5 og 9 verða sýningar á Flóttinn mikli með Steve Mc Queen í aðalhlutverki. Mynd- in fjallar um atburði sem gerðust í Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni. Klukkan 3 á sunnudag verður haldið áfram sýningum á myndinni Sú göldrótta. Borgarbíó sýnir í kvöld mynd ina Vottur af glæsibrag með George Segal og Glendu Jack son í aðalhlutverkum. Mynd- in hefur verið sýnd við mjög góða aðsókn í Hafnarbíói að undanförnu. Glenda Jackson hlaut Oscarverðlaun sem besta leikkona ársins 1974 fyr ir leik sinn í þessari mynd. Myndin er með íslenskum texta. Á næstunni hefjast sýn ingar á myndinni Óbyggðirn- ar kalla með Charlton Heston í aðalhlutverki og auk þess eru væntanlegar myndirnar American Graffiti og Morðið í Austurlandahraðlestinni. Á laugardaginn kl. 2 gengst Rannsóknarstofnun vitundar- innar fyrir sýningum í Borg- arbíó á nokkrum sutttum myndum sem nefnast Innri heimarnir, Lífræn sjónarmið, Hinn hinsti leyndardómur og Hindúatrú. Borðeyri, svaraðu Framhald af miðsíðu. söng Jóhanns Konráðssonar, Jóhanns Ögmundssonar og dætranna þriggja í Meyja- skemmunni, auk margs ann- ars góðmetis. Hér að framan hefir verið leitast við að tína til hið helzta varðandi leikritaflutn- ing frá Akureyri fyrri hluta hins 40 ára starfstímabils. Þar eð mörgum mun í fersku minni ýmis viðfangs- efni um og eftir 1960 mun að- eins drepið á hin helztu. Eftir 4 ára hlé hófst aftur flutning- ur leikrita fyrir útvarp í jan. 1958 er Jónas Jónasson stjórn aði „Brimhljóð“ eftir Loft Guðmundsson og um haustið var tekinn til flutnings smá- þáttur Lest 56 og stjórnað af Ragnhildi Steingrímsdóttur. í leikhúspistli í des. 1960 var flutt brot af Pabba eftir Lind- say og Crouse og atriði úr íslandsklukkunni eftir Lax- ness í umsjá Júlíusar Odds- sonar, sem jafnframt lék Jón Hreggviðsson. Fyrsta Shake- speare-leikrit LA, Þrettánda- kvöld, var flutt í útvarpi 14. des. 1963 undir stjórn Ág. Kvaran, með Björgu Bald- vinsdóttur, Jón Kristinsson, Jóhann Ögmundsson og Þór- höllu Þorsteinsdóttur í aðal- hlutverkum. Munkarnir á Möðruvöllum eftir Davíð Stef ánsson voru næsta viðfangs- efni, 1965, og fóru þau Jó- hann Ögmundsson (Príórinn), Ólafur Axelsson og Þórey Að- alsteinsdóttir með helztu hlut verkin, en Ágúst Kvaran stjórnaði. Þessi upptaka var síðan endurflutt í nóv. 1974. Næstu útvarpsleikrit voru Swedenlijelmsfjölskyldan (N. Bergman) í marz 1966, stjórn að af Ragnhildi Steingríms- dóttur og Blákaldur sannleik- ur (C. Bock) undir umsjón Þorsteins Ö. Stephensen, haustið 1968. Tveir smellnir þættir eftir Einar Kristjáns- son hafa verið fluttir, Ljóða- gerðin, 1969, Jónas Jónasson stjórnaði, og Tómstundagam- an 1974 og hafði Magnús Jóns son þar stjórn með höndum. Árið 1970 stjórnaði Sigmund- ur Ö. Arngrímsson tvisvar út- varpsflutningi héðan, en það voru Skenuntisigling (A. All- en) í júní og í nóv. framhalds- þáttunum Leyniskjalið eftir Indriða Ulfsson. Jóhanna Þrá- insdóttir stjórnaði flutningi haustið 1971 á Sú brekku- fjóla það brönugras, eft- ir Sig. Ó. Pálsson. Þórhildur Þorleifsdóttir sá um fram- haldsþættina Leyndardómur á hafsbotni eftir Indriða Úlfs- son í ársbyrjun 1972 og Arn- ar Jónsson leikstýrði Kara- mellukvörninni (E. Lund- ström) í des. sama ár. Loks var svo brot úr Matthíasar- kvöldi flutt í des. 1974, í sam- antekt Böðvars Guðmundsson ar en undir leikstjórn Eyvind- ar Erlendss. Helstu leikend- ur hin síðari árin bæði á sviði og í útvarpsleikritum hafa verið Jón Kristinsson, Sigur- veig Jónsdóttir, Þórhildur Þor leifsdóttir, Saga Jónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Guðlaug Hermannsdóttir, Þráinn Karls son, Arnar Jónsson o. fl. Láta mun nærri að 35 leik- rit, heil eða ýmsir smáþættir, hafi verið fluttir hér í útvarpi á þessum 40 árum frá því hin fyrsta útsending var frá Ak- ureyri. Margir hafa hér lagt hönd á plóginn og mörgum ber að þakka, og þeim er til- einkað þetta greinarkorn. Tæknin með öllum sínum galdratækjum heldur nú dygg an vörð um að allt gangi rétt og slétt, nú „skeður“ ekkert lengur, það tilheyrir bernsku- árum þessarar listgreinar, nú mun engin sveitakona koma óvænt inn í miðja ástartján- inguna og kalla Borðeyri! Borðeyri! H. S. RAFMAGIM Framhald af miðsíðu. laus í rafmagnstöflu skal gæta sérstakrar varúðar. Ekki má nota vatn til að slökkva þann ig eld, þar sem sú aðferð get- ur verið lífshættuleg og vald- ið enn meira tjóni en orðið er. Sama gildir ef eldur er laus í rafmagnstækj um, en þó má nota vatn til þess að slökkva ef tækið er tekið örugglega úr sambandi. STENDUR ÞÚ í STÖRFRAMKVÆMDUM? Hvað vantar? Ef Jbú ert að byggja, Þá eigum við baðherbergissett, fallegar veggflísar, gardínustangir og brautir, o. fl. Viltu breyta? Bjóðum fjölbreytt úrval af veggfóðri. Þarftu að bæta, - Gólfteppi og gólfflísar í fjölbreytiu úrvali. Ætlarðu i reiðtúr? Reiðbuxur, reiðstígvél, beisli, hnakkar, leðurfeiti, hófolía o. fi. vörur fyrir hestamenn. ÞAU GERAST EKKl BETRI KAUPIN Á EYRINNI! ÍBIJÐIIXi Sírni 2-24-74. TILKVIMNING Skipaafgreiðsla KEA hefur tekið að sér afgreiðslu á skipum skipaútgerðar ríkisins, á Akureyri. Verið er að innrétta aðstöðu fyrir afgreiðsluna í húsnæði Skipasmíðastöðvar KEA (Watnehúsi), á Oddeyrartanga, sem væntanlega verður tilbúin um næstu mánaðamót. Þangað til verður afgreiðslan á skrifstofu Útgerðar félags KEA. - Shnar 2-14-00 & 2-23-97. Sími afgreiðslunnar á Oddeyrart. verður 2-39-36. Tilkynna þarf vörur með nægum fyrirvara. SKIPAAFGREIÐSLA KEA. IMauðungar- uppboð sem auglýst var í 19., 20., og 21. tbl. Lögbirlinga- blaðs 1975 á hluta Strandgötu 39, Akureyri (ncðsta hæð, vesturhluti); þingl. eign Magna Ás- mundssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes, hdl., Hreins Pálssonar, hdl. Skattheimtu ríkisins o. fl. á eigninni sjálfri, þriöjudaginn 24. júní 1975, ld. 11 f. h. BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI. NORÐLENZK TRYGGING fyrir Norðlendinga NORÐLENZK Ráðhústorgi 1 (2. hæð). Sími 21844 — Alcurevrk |j 6 — ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.