Íslendingur


Íslendingur - 19.06.1975, Side 8

Íslendingur - 19.06.1975, Side 8
?ÍIangrunargUR ÍSPAN HF. ■ FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI (96)21332 AUGLVSIN6ASÍMIÍSLENSIN6B 215 00 Blásið á Húsavík Áttunda landsmót Sambands íslenskra lúðrasveita verður haldið á Húsavík um helg- ina. Dagskrá mótsins verður með svipuðum hætti og fyrri landsmót S. í. L. Annað kvöld verður aðalfundur sambands- ins, en á laugardaginn verður skrúðganga og útihljómleikar með þátttöku allra lúðra- sveita mótsins. Leika lúðra- sveitirnar hver fyrir sig og síðan allar sameiginlega. Um kvöldið verður skemmtun og dans. Á sunnudag er fyrirhug uð skoðunarferð um nágrenn- ið ef veður leyfir. Mótinu verð ur slitið í kaffiboði bæjar- stjórnar Húsavíkur. Æskulýðsblaðið Út er komið 2. tölublað 25. ár- gangs Æskulýðsblaðsins, en það er jafnframt fyrsta blað- ið í ritstjórnartíð séra Birgis Ásgeirssonar, prests á Siglu- firði. Meðal efnis í blaðinu er grein um stofnun Æskulýðs- félags Akureyrarkirkju, kirkjusöguþáttur, ljósmynda- þáttur o. m. fl. Á forsíðu blaðs ins er mynd eftir 13 ára stúlku frá Siglufirði. Æsku- lýðsblaðið er 20 síður að stærð. Grímseyjar- ferðir hafnar Drangur mun fara tvær ferðir á viku til Grímseyjar í sum- ar. Ferðirnar byrja í júní og síðasta ferð verður farin í lok júlí. Grímseyjarferðirnar hafa verið mjög vinsælar af ferða- mönnum á undanförnum ár- um, en um 60 manns komast með í hverja ferð. Þórólfur Matthíasson hjá af greiðslu Drangs sagði í við- tali við íslending að farið yrði á þriðjudögum kl. 8 að morgni og á föstudögum kl. 6 síðdegis. í þriðjudagsferðunum er dval- iðí 4 tíma í eyjunni, en á föstu dögum er 13—14 tíma viðdvöl. Ferðin í Eyjuna kostar 1600— 2000 krónur og fer verðið nokkuð eftir því hvaða dag far ið er og hvort menn vilja fá kojur eða ekki. Sigling frá Ak ureyri til Grímseyjar tekur 6 tíma. lEndurgreiðslur vegna tannviðgerða: X ? I ? I X I x * * t I ? ? I 1 1 %• X X Mjög mikið annríki hefur ríkt á afgreiðslu Sjúkrasamlags Akureyrar vegna endur- greiðslna á tannviðgerðarkostnaði. 2'/2 milljón hvarf á þremur dögum Á þremur fyrstu dögunum, sem reikningar vegna tannviðgerða voru endurgreiddir, borgaði Sjúkrasamlag Akureyrar út hvorki meira né minna en tvær og hálfa milljón króna og þó fengu færri en vildu afgrciðslu, vegna anna hjá Sjúkrasamlaginu. Hér er um að ræða endurgreiðslur á helmingi kostnaðar við tannviðgerðir hjá ýmsum hópum. Sveit- arfélagið grciðir hinn hluta kostnaðarins hjá aldursflokknum 6—15 ára. Að sögn Ragnars Stein- bergssonar, forstjóra Sjúkra samlags Akureyrar, var fyrst og fremst um að ræða endurgreiðslur á reikning- um vegna tannviðgerða barna 6—15 ára, enda á þessi hópur rétt á endur- greiðslum á reikningum frá því 1. sept. sl.. Unglingar 16 ára, börn 3—5 ára, vanfær- ar konur og elli- og örorku- þegar eiga hins vegar rétt á endurgreiðslum á reikning- um frá því um áramótin. Ragnar sagði að til að byrja með yrðu endurgreiðsl urnar mikið aukaálag fyrir starfsfólk Sjúkrasamlagsins, þar sem að það þyrfti að sundurliða alla reikninga í 6 flokka og senda Ijósrit af reikningum til Trygginga- stofnunar ríkisins, en hann kvaðst vona að þegar frá liði og búið væri að vinna upp tímabilið frá 1. sept. til nú, þá færi þetta að ganga betur. Ekki er gert ráð fyrir að þörf verði á auknu starfs- liði hjá Sjúkrasamlaginu vegna þessarar nýju þjón- ustu við almenning. 1 ? *> x § i x •> ♦> ? Y : ? %♦ X ! 1 X í I y y •> ! 1 Hásetarnir á EYRIJIMU: Fengu 1130 þúsund í hlut Eyrún EA 157 frá Hrísey, er nú að hefja handfæraveiði eftir tæplega mánaðar hlé. Eyrún er í eigu 3 ungra Hríseyinga og hafa þeir gert bátinn út í tvö ár. Þeir hafa fulla ástæðu til þess að vera ánægðir með útgerðina það sem af er og þá ekki síst með útkomuna á nýlokinni vertíð. Þá fiskuðu þeir 425 tonn að verðmæti 15 milljónir króna. Þar af fóru 2 milljónir til útgerðarinnar en afgangurinn fór í skiptaverð. Áhöfnin á Eyrúnu eru 5 manns og kom 1130 þúsund krónur í hlut livers þeirra. Má það teljast mjög góð útkoma fyrir tímabilið frá janú- ar til miðs maímánaðar. t, , x\ íslendingur hafði samband við skipstjóra Eyrúnar, Árna Kristinsson, og sagði hann að sennilega væri báturinn hluta hæstur báta á vertíðinni. Hjálpaðist þar bæði að góð veiði og gott fiskverð. í byrj- un vertíðarinnar gerði bátur- inn út frá Hrísey, en mestan hluta aflans íékk hann skammt frá Rifi. Árni er aðeins 28 ára gam- all, en elsti maður á bátnum er 36 ára og sá yngsti 26 ára. Sagði Árni að mannskapurinn á bátnum hefði lagt hart að sér á vertíðinni og ætti það sinn stóra þátt í góðri útkomu ásamt því að báturinn sjálfur væri fyrsta flokks. Báturinn er smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri fyrir tveimur árum og kostaði þá 16 milljónir króna. Hundaeigendur á Akurpyri cru margir hverjir ekki enn búnir að sætta sig við þá hækkun sem er orðin á gjöld- um til bæjarins vegna hunda- halds, en á þessu ári hækkuðu gjöldin úr 1000 krónum í 10.000 kr. Einn af hundaeig- endum bað blaðið að leita svars við því hvortAkureyrar bæ væri hcimilt að hækka þessi gjöld á tímum verð- stöðvunar. Valgarður Baldvinsson, bæjarritari, svarar: Eins og kunnugt er sam- þykkti bæjarstjórn nýja reglu gerð um hundahald á Akur- eyri á þessu ári og þar stend- ur að bæjarstjórn skuli heim- ilt að ákveða fyrir eitt ár í senn, gjald sem rennur til þess að standa straum af kostnaði við eftirlit á hundum í bæn- um. Reglugerðin er búin að hljóta samþykki heilbrigðis- ráðuneytisins athugasemda- laust og teljum við því, að ekki þurfi frekari leyfi til þess að ákveða að gjaldið verði 10.000 krónui' á þessu ári. Þessir sitja i nefndum Á síðasta bæjarstjórnarfundi voru kosnir fulltrúar í bygg- inganefnd, hafnarstjórn, raf- veitustjórn og kjörstjórn, en allar þessar nefndir starfa eitt ár í scnn. í bygginganefnd voru kosn- ir: Stefán Reykjalín, Gísli Magnússon, Haukur Haralds- son, Sigurður Hannesson og Rafn Magnússon. í hafnar- stjórn voru kjörnir: Stefán Reykjalín, Jón E. Aspar, Tryggvi Helgason, Jón G. Sól nes, Vilhelm Þorsteinsson. í rafveitustjórn voru kosnir: Sigurður Jóhannesson, Sigur- sveinn Jóhannesson, Helgi Guðmundsson, Gunnlaugur Fr. Jóhannsson og Sigtryggur Þorbjörnsson. í kjörstjórn voru kosnir: Hallur Sigur- björnsson, Freyr Ófeigsson og Sigurður Ringsted. Loks voru kosnir tveir endurskoðendur bæjarreikninga en það eru Gísli Konráðsson og Árni Sig- urðsson. NORÐLENDINGAR! AKUREYRINGAR - Ferðaskrifstofa Akureyrar Söluumboð fyrir Færeyjaferjuna Smyril. HÚSBYGGJENDUR! Timbur í úrvali. - HAGSTÆTT VERÐ. BYGGINGAVÖRUVERSLUN TÓMASAR BJÖRNSSONAR H.F. Glerárgötu 34. — Sími 2-39-60.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.