Íslendingur


Íslendingur - 11.09.1975, Side 2

Íslendingur - 11.09.1975, Side 2
Aldrei jafn mikil reisn yfir úrslitaleik í 3. deild og nú sagði form. mótanefndar eftir leik KA og Þórs Fimmtudagskvöldið 4. sept. fengu um 1300 áhorfendur að sjá skemmtilegan úrslitalcik 3. dcild- ar hér á Akureyrarvellinum. Liðin sem mættust voru Akureyrarliðin, Þór og KA. Það voru greinilega merki þess að hér væri úrslitaleikur á ferðinni og taugaspenna var í algleymingi, hjá áhorfendum, jafnt scm leikmönnum. Var leikurinn nokkuð jafn, þó voru Þórsarar meira með knöttinn og svo kom að því að þeir skoruðu. Var það á 25. mín. að Óskar Gunnarsson fékk boltann og skoraði fyrsta mark leiksins. Fimm mín. síð- ar var dæmd vítaspyrna á KA. Aðalsteinn Sigurgeirsson tók spyrnuna og skoraði örugg- lega. Rétt fyrir leikhlé átti KA hættuleg færi er Eyjólfur Ágústsson fékk boltann fyrir framan mark Þórs en skaut of laust og Samúel átti auðvelt með að verja. Þess má geta hér að sjóngóðir menn töldu boltann hafa farið inn í mark KA um miðjan fyrri hálfleik- inn en hvorki dómari né línu- vörður sáu það. Fyrstu mín. síðari hálfleiks sótti KA nokkuð án þess þó að uppskera mark. Það voru Þórsarar sem gerðu drauma KA-manna að engu með stór- glæsilegu marki Guðna Jóns- sonar af 20 m. færi í vinstra hornið niðri. Jarðaði hann þar með sigurdrauma KA í 3. deild. Spurningin var aðeins um hve mörkin yrðu mörg. Það var eitt eftir, kom það rétt fyrir leikslok. Jón Lár. ÍBV í heim- sókn til Þórs Síðastliðinn sunnudag endur- galt ÍBV heimsókn Þórs frá því í vor er Þór kom til Eyja og var fyrst liða til að stöðva sigurgöngu þeirra eyja- skeggja. Frekar var það lítið fjrrir augað sem hinir fáu áhorfendur fengu að sjá á vell inum á sunnud. Tvö mörk voru skoruð í leiknum sín hvoru megin og bæði í fyrri hálfleik. Þórsarar voru fyrri til. ÍBV fékk dæmda á sig hornspyrnu og boltinn barst inn í þvögu og reyndu Þórsarar markskot en ekki vildi boltinn inn fyrr en Sigurður Lár. negldi inn. Guð jón Pálsson var þá fjarver- andi. Mark sitt gerðu Eyja- menn úr víti á 24. mín. Sá Örn Óskarsson um þann hluta. í síðari hálfleik var fátt um annað en þóf og innáskiptingar og rigningu. jeg. ÞÓR-KA 4-0 skoraði af stuttu færi. Strax á eftir komst Jóhann Jakobsson í dauðafæri en skaut þrumu bolta í þver- slána. Besti maður Þórs var Pétur, sem komið hefur mjög vel út úr leikjum sínum í sumar. •— Þess má geta að Árni Gunn- arsson var í leikbanni. Hjá KA kom Magnús Vest- mann vel út, en hefði átt að koma fyrr inná. Að leik loknum voru verð- laun afhent. Gerði það Helgi Daníelsson, formaður móta- nefndar. Lét hann þess getið í ávarpi sínu að Þórsarar væru vel komnir að sigri sínum. Væri það ánægjulegt að úr- slitaleikur í þessari fjölmenn- ustu deild íslandsmótsins gæti farið fram við bestu aðstæður hér á landi í dag. „Aldrei hef- ur verið jafn mikil reisn yfir úrslitaleik í 3. deild og nú, er þetta einn besti leikur sem ég hef séð í deildinni.11 — jeg. Leikir um auka- sætin í II. deild Um síðastliðna helgi fór fram á Melavellinum í Reykja- vík keppni um tvö sæti í 2. deild að ári. Áttust þar við silfur- og bronslið 3. deildar og svo liðið er féll úr ann- ari deild í ár, Víkingur frá Ólafsvík. Keppnin hófst á föstu- dagskvöldið með leik Vík- ings og Í.B.Í. Lauk honum með sigri ísfirðinga 2:0. Á laugardaginn kepptu svo KA og ÍBÍ. Var það jafn og skemmtilegur leik- ur. Fór hann fram við góð- ar aðstæður af malarvelli að vera. ísfirðingarnir skoruðu fyrsta markið; kom það í upphafi leiksins. KA náði að jafna á 20. mín. Þar var Jóhann að verki. Annað markið fyrir KA skoraði Eyjólfur Ágústsson eftir fyrirgjöf frá Sigbirni Gunn arssyni. Kom það undir lok hálfleiksins. Snemma í síð- ari hálfleik tókst ÍBÍ að jafna 2:2 eftir herfileg varn armistök. Sigurmark KA kom svo er um fimmtán mín. voru til leiksloka. Var það Jóhann sem batt enda á gullfallegan leikkafla. Eftir þennan leik voru því KA og ÍBÍ með tvö stig hvort félag. Síðasti leikurinn fór svo fram á sunnudaginn. Voru nú aðstæður orðnar aðrar og verri. Á vellinum var pollur við poll og þó nokk- ur hliðarvindur. Leikurinn hófst með hörku og látum, þó vantaði eitthvað af bar- áttuandanum frá deginum áður í KA-liðið. Þeir skor- uðu þó fyrsta markið á 10. mín og var Sigbjörn þar að verki og skoraði af öryggi eftir fyrirgjöf frá Þormóði. En Víkingarnir létu þetta ekki á sig fá og jafna 6 mín. síðar með laglegu marki. Upphófst nú mikið þóf og lítið fór fyrir sam- spili. Það var svo á 30. mín. sem Víkingarnir komust yfir 2:1 eftir að vörn KA hafði galopnast. Lauk svo fyrri hálfleik. Menn höfðu vart komist í stöður sínar er boltinn lá í neti KA í upphafi síðari hálfleiks. KA-leikmennirn- ir gáfust ekki upp, tap í þessum leik þýddi að leika þyrfti allt upp aftur. Á 25. mín. gaf Sigbjörn fyrir á Ármann sem skoraði glæsi- lega annað mark KA. Jöfn- unarmarkið kom svo er um 15 mín. voru til leiksloka. Sigbjörn skaut af um 10 m. færi, markmaðurinn hálf varði en í netið fór boltinn. Lauk svo leiknum með jafn tefli. Lokastaðan í þessari keppni varð því þessi: KA hlaut 3 stig, ÍBÍ 2 stig og Víkingur 1 stig. Þau níu lið sem leika í 2. deild að ári verða: ÍBV, Selfoss, Völsungur, Ár- mann, Haukar, Reynir, Þór, KA og ÍBÍ. — jeg. Gullsmiðirnir Sigtryggur og Pétur hafa gefið þennan X fallega grip með það fyrir augum að besti knattspyrnu- .♦. X maðurinn á Akureyri á hverju sumri hljóti liann til varð- *£ •j* veislu milli ára. Það er 5 manna nefnd sem sker úr því *s* hverju sinni hver skuli liljóta gripinn. Nefndin cr skipuð *j* .;. tveimur KA-mönnum, tveimur Þórs-mönnum og einum ♦!• ♦*♦ . ♦!♦ .*. oddamanni. Gripurinn ýerður afhentur í fyrsta skipti inn- .j. X an skamms. (Ljósm. Jón Einar.). % *♦* Lögtaks- úrskurður Hinn 1. þ. m. var lcveðinn upp lögtaksúrskurður fyrir gjaldföllnum og ógreiddum þinggjöldum árs- ins 1975 álögðum á Akureyri, Dalvík og í Eyja- fjaröarsýslu, en þau eru: tekjuskattur, eignaskatt- ur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysatrygginga- gjald v/heimilisstarfa, iðnaðargjald, slysatrygginga gjald atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr. 67/1971, lífeyristryggingagjald skv. 25. gr. sömu laga, at- vinnuleysistryggingagjald, iðnlánasjóðsgjald og launaskattur. Ennfremur fyrir skipaskoðunar- gjaldi, lestrargjaldi og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoöunargjaldi bifreiða og slysatryggingagjaldi ökumanna 1975, vélaeftirlitsgjaldi, svo og ógreidd- um iðgjöldum og skráningargjöldum vegna lög- skráðra sjómanna, áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, söluskatti af skemmtunum, gjöldum af innlendum tollvöruteg- undum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktar- sjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti, sem í eindaga er fallinn, svo og fyrir viðbótar- og aukaálagningum söluskatts vegna fyrri tímabila. Verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð. BÆJARFÖGETINN Á AKUREYRI OG DALVÍK. SÝSLUMAÐURINN I EYJAFJARÐARSÝSLU. 3. sept. 1975, ÓFEIGUR EIRÍKSSON. Auglýsing um lögtök Þann 4. þ. m. kvað bæjarfógetinn á Akureyri upp lögtaksúrskurð fyrir gjaldföllnum en ógreiddum gjöldum til bæjar- og hafnarsjóðs Akureyrar á- lögðum árið 1975. Gjöldin eru þessi: Útsvör, aðstöðugjöld, fasteignaskattur, holræsa- gjald, vatnsskattur, lóðarleiga og hafnargjöld. Lögtök verða látin fram fara án frekari fyrirvara fyrir ofangreindum gjöldum, á kostnað gjaldenda en ábyrgð bæjar- og hafnarsjóðs að liðnum 8 dög- unr frá birtingu auglýsingar þessarar. BÆJARGJALDKERINN, AKUREYRI. 2 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.