Íslendingur - 01.04.1976, Page 2
ÞÓRSSTÚLKURNAR
Islandsmeistarar í körfubolta
Þórsstúlkurnar tryggðu sér sigur í íslandsmótinu í körfubolta,
með sigri yfir IR og Fram í Reykjavík um sl. helgi, og hljóta
þar með titilinn Islandsmeistarar í körfubolta kvenna 1976.
Stúlkurnar eru vel að sigrinum komnar; þær unnu alla sína
leiki í mótinu, flesta með nokkrum mun. I fyrra urðu stúlkurn-
ar Bikarmeistarar, en þeim gafst ekki kostur á að verja þann
titil vegna fjárskorts körfuknattleiksdeildarinnar. Að vísu lag-
aðist fjárhagurinn, en þá var orðið of seint að sækja um þátt-
töku og Körfuknattleikssambandið tók ekki í mál að hliðra til
fyrir Þór.
Fyrri leikurinn var við ÍR
á föstudagskvöldið. Leikurinn
var jafn framan af, en Þór
náði fljótlega yfirhöndinni og
var sigur þeirra aldrei í hættu,
en leiknum lauk 53-44.
Seinni leikurinn, og jafn-
framt síðasti leikur Þórs í
mótinu, var við Fram á laugar
daginn. Þórsstúlkurnar unnu
örugglega, 39-32, og höfðu þar
með unnið alla sína leiki í
mótinu.
Anton Sölvason er þjálfari
stúlknanna. Sagði hann að-
spurður; að þessi árangur
hefði náðst fyrir mikinn vilja
og áhuga stúlknanna, jafn-
framt góðri æfingasókn, og
síðast en ekki síst með einstök
um liðsanda. Undir þau orð
tekur blaðið og óskar Þórsur-
um til hamingju með sigur-
inn.
íslandsmeistarar Þórs í körfubolta 1976. Talið frá vinstri: Anton Sölvason, þjálfari stúlknanna,
Sólveig Gunnarsdóttir, Harpa Sigurðardóttir, Magnea Friðriksdóttir, Guðrún Hreinsdóttir, Þór
unn Rafnar, fyrirliði liðsins, María Guðnadóttir, Þórný Kristjánsdóttir og Ásta Pálmadóttir.
Húsavíkurmótinu sem hófst í
Reykjavík lauk á Akureyri
Það gekk ekki byrlega að
halda svokallað Húsavíkur-
mót, sem var punktamót á
skíðum og átti upphaflega að
vera á Húsavík, en ekki reynd
ist unnt að halda það þar,
vegna snjóleysis. Þá var það
flutt til Reykjavíkur, en að-
eins reyndist unnt að ljúka
stórsviginu þar; sviginu var
frestað vegna veðurs. Mótinu
lauk svo ekki fyrr en sl. föstu
dag, en þá fór svigkeppnin
fram í Hlíðarfjalli.
Sigurvegari í karlaflokki
varð Haukur Jóhannsson, með
110.64 sek. í samanlagðan
tíma. Karl Frímannsson varð
annar, með aðeins örfáum
sekúndubrotum lakari tíma en
Haukur, 110.89, en Karl er að-
eins 16 ára og á eflaust eftir
að láta mikið að sér kveða á
skíðamótum í framtíðinni.
Tómas Leifsson varð þriðji á
111.78 sek. og Árni Óðinsson
fjórði á 111.91 sek.
í kvennaflokki sigraði Stein
unn Sæmundsdóttir, Reykja-
vík, á 105.16 sek. Margrét
Baldvinsdóttir varð önnur
með nokkrum sek.brotum lak-
ari tíma en Steinunn, 110.89.
Jórunn Viggósdóttir varð
þriðja, Aldís Arnardóttir
fjórða og Katrín Frímanns-
dóttir fimmta.
Til fermingargjafa
CABER skíðaskór, flestar staerðir
FISCHER og SPALDING skíði.
MARKER og COBER öryggisbindingar,
einnig skíðagleraugu, skíðastafir, skíða og skópokar,
skíðabuxur og jakkar, skíðahjálmar og m. m. fl.
PÓSTSENDUM
SPORT-
og hljóðfæraverskin Akureyrar
SlMI: 2-35-10.
Hermann Stefánsson afhendir Hauki Jóhannssyni Hermanns-
bikarinn. — Til hliðar er Haukur á fullri ferð í sviginu.
Hermannsmótið:
Haukur og IHar-
grét sigurvegarar
Hermannsmótið, sem kennt er við Hermann Stefánsson, íþrótta
kennara, var haldið í Hlíðarfjalli um h'elgina. Haukur Jóhanns-
son, Akureyri, var maður mótsins; sigraði, í bæði stórsvigi og
svigi, og vann þar með alpatvíkeppnina og Hermannsbikarinn.
í kvennaflokki var keppt um Helgubikarinn, sem Björg Finn-
bogadóttir gaf fyrir nokkrum árum í minningu Helgu Júníus-
dóttur. Það var dóttir Bjargar; Margrét Baldvinsdóttir, Ak.,
sem vann bikarinn að þessu sinni. Hermann Stefánsson var í
fjallinu um helgina, brá sér á skíði og afhenti Hauki sigurlaun-
in. Einnig var keppt í göngu. Þar urðu efstir og jafnir Halldór
Matthíasson og Magnús Eiríksson.
Á laugardaginn var keppt í
stórsvigi, karla og kvenna, 15
km. göngu 20 ára og eldri og
10 km. göngu 17—19 ára.
Tómas Leifsson hafði bestan
brautartíma eftir fyrri um-
ferðina í stórsviginu, með
rúmlega hálfri sek. betri tíma
en Haukur. En Haukur vann
upp forskot Tómasar í seinni
umferðinni, og aðeins betur,
því hann sigraði, með aðeins
9 sekbrotum betri tíma en
Tómas, sem varð annar. Sam-
anlagður tími Hauks var
137.43, Tómasar 137.52 og
Árni Óðinsson varð þriðji á
139.89 sek.
í kvennaflokki sigraði Stein
unn Sæmundsdóttir, Rvík, á
141.40 sek., Margrét Baldvins
dóttir, Ak., varð önnur á
147.28 og Jórunn Viggósdótt-
ir, Rvík, varð þriðja á 148.66
sek. Framhald á bls. 10.
Margrét Baldvinsdóttir.
í 15 km. göngu, 20 ára og
eldri, urðu fyrstir og jafnir,
þeir Halldór Matthíasson, Ak.,
og Magnús Eiríksson frá Siglu
firði. Þeir gengu á sama tíma,
48 mín. og 23 sek.
í 10 km. göngu, 17—19 ára,
sigraði Haukur Sigurðsson,
Ólafsfirði, Bjarni Ásgrímsson,
Siglufirði, varð annar og Við-
ar Pétursson, Fljótum, varð
þriðji.
Tapleikir hjá Þór
Þór lék tvo leiki í 2. deild ís-
landsmótsins í handbolta, fyr-
ir sunnan í síðustu viku. Fyrri
leikurinn var við Fylki á
fimmtudagskvöldið. Fylkir
sigraði 24-22 eftir að hafa ver
ið yfir 14-12 í hálfleik. Var
þetta kærkominn sigur fyrir
Fylki, þar sem þeir áttu í fall-
baráttu við Breiðablik.
Seinni leikurinn var við ÍR
á föstudagskvöldið. ÍR-ingar
sigruðu með yfirburðum, 30-
21, og tryggðu sér þar með
sigurinn í 2. deild og sæti í 1.
deild næsta keppnistímabil.
KA-TRAM
Fram sigraði KA í Bikar-
keppni HSÍ sl. fimmtudags-
kvöld með 24 mörkum gegn
20, eftir að KA hafði verið
yfir, 12-8, í hálfleik.
2 — ÍSLENDIN GUR