Íslendingur - 04.10.1977, Page 2
...íþróttir...umsjónarmaöur: HalldórM. Rafnsson...íþróttir...
Loksins hafa lyftingamenn fengið húsnœði
Senda sex menn á
N orðurlandamótið
- sem haldið verður í Svíþjóð í vetur
Bernharð byrjaði á því að
kynna lyftingamennina, en þeir
kom fram, að þeir eru flestir
innan við tvítugt. Hafa þeir æft
5 sinnum í viku, 2 tíma í senn.
Þá kom einnig fram, að íþrótta-
menn úr öðrum íþróttagrein-
um, æfa þarna lyftingar á
meðan þeir eru að byggja upp
þrek.
Bernharð gat um þær umræð
ur, sem orðið hafa um lyfja-
notkun lyftingamanna að und-
anförnu. Sagði hann, að til að
fyrirbyggja slíkt hafi þeir sett í
lög félagsins, að hver lyftinga-
maður færi í læknisskoðun einu
sinni á ári.
Þá kom fram hjá Bernharð,
að mikill áhugi væri fyrir stofn-
un öldungadeildar innan félags-
ins og væru allir velkomnir á
þær æfingar. Þá kom einnig
fram áhugi fyrir samstarfi við
Iþróttafélag fatlaðra.
Fjárhagur lyftingafélagsins
hefur verið slæmur. T.d. hefur
það verið erfiðleikum háð, að
halda lögleg mót, þar semfélag-
ið átti ekki löglega vigt. í þessu
tilfelli hljóp Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur í skarðið og gaf
félaginu vigt.
Hjörtur Gíslason kynnti síð-
an íþróttina, en allir lyftinga-
mennirnir tóku þátt í þeirri
kynningu og sýndu ýmsar lyft-
ur. Haraldur Olafsson gerði sér
lítið fyrir í þeirri kynningu og
bætti eigið íslandsmet í jafn-
höttun um V/i kg., svo eflaust
má búast við miklu af Haraldi í
vetur. Hjörtur sagði, að æft
Framhald á 6. síðu
Akureyrskir lyftingamenn hafa nú tekið í notkun nýtt æfingahús-
næði í Lundaskóla, sem þeir hafa innréttað sjálfir. Lyftingaíþróttin
er ung á Akureyri og hafa þeir sem stundað hafa þessa íþrótt verið á
hrakhóium með aðstöðu, þar til nú. En iyftingamennirnir hafa þó
ekki verið á því að gefast upp, þó aðstaðan hafi ekki verið upp á það
besta, og árangur þeirra á mótum hefur verið með ágætum. Bern-
harð Haraldsson kynnti starfsemi lyftingafélagsins og Hjörtur
Gíslason kynnti íþróttina, ásamt félögum í klúbbnum, á
blaðamannafundi, sem haldinn var í Lundaskóla nýlega.
Hjörtur Gíslason, formaður lyftingafélags Akureyrar.
Mark leiðbeinir Þresti Guðjónssyni á æfmgu í gær.
Æfingar
daglega
Þórsaraf binda miklar vonir við
Bandaríkjamanninn í körfubotíanum
- Ég þekki lítið til körfu-
knattleiksins hjá ykkur enn-
þá og get því lítið um hann
sagt, en ég hlakka til sam-
starfsins við Þórsarana,
sagði Mark Christensen, 25
ára bandarískur körfuknatt-
leiksmaður, sem Þórsarar
hafa fengið til að þjálfa og
leika með 1. deildarliði félags
ins í körfuknattleik, þegar
blaðamaður fslendings leit
inn á æfingu hjá liðinu á
laugardaginn. - Ég mun
einnig sjá um þjálfun yngri
flokka félagsins, sagði Mark,
og hlakka ég sérstaklega til
þeirrar starfsemi. Mark hef-
ur haft daglegar æfingar síð-
an hann kom sl. föstudag.
Sl. ár dvaldi Mark i
Kanada, þar sem hann stund
aði nám og lék körfuknatt-
leik. Var hann valinn í hóp 5
bestu körfuknattleiksmanna
í Kanada og kunnugir telja
að hann sé bestur af þeim
Framhald á 7 síðu
Arni Sverrisson
þjálfar Þórsarana
Þórsarar hafa nú ráðið Árna
Sverrisson þjálfara fyrir mfl.
kárla í handknattleik og mun
hann þjálfa liðið í vetur. Arni er
enginn nýgræðingur við þjálf-
unarstörf, þó ekki hafl hann
starfað mikið við slíkt á sið-
ustu árum. Fyrir um 15 árum
þjálfaði hann um árabil hjá KA,
en síðan tók hann við þjálfun 3.
flokks ÍBA. Þar voru þá að
vaxa upp leikmenn, sem siðan
áttu eftir að gera garðinn fræg-
an. Má þar meðal annarra
nefna Þorleif Ananíasson, Hall-
dór Rafnsson, Aðalstein Sigur-
geirsson, Ragnar Ingólfsson ofl.
Einnig þjálfaði Árni mfl. ÍBA á
sinum tíma. Á siðustu árum
hefur hann unnið mikið að
dómarastörfum og verið einn af
okkar bestu dómurum.
KA fær
150 þús.
Bæjarráð hefur samþykkt, að
veita Knattspyrnufélagi Akur-
eyrar 150 þús. kr. viðurkenn-
ingu, í tilefni þess að félagið
hefur unnið sér rétt til að leika í
1. deild fslandsmótsins í knatj-
spyrnu á komandi leikári.
Minna gat það nú naumast ver-
ið, en bæjarráð hefur verið
bundið 100 þús. kr. viðurkenn-
ingunni, sem veitt var til Þórs-
ara i fyrra, þegar þeir unnu sér
Framhald á 6. síðu
2 - ISLENDINGUR