Íslendingur - 04.10.1977, Side 6
Faöir okkar.
HANNES BENEDIKTSSON,
Hafnarstrnti 84, Akureyri,
lést ( Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 27.
september.
Útförin verður gerð frá Reynistaðakirkju í Skagaf irði föstu
daginn 7. október kl. 2 eftir hádegi. Blóm afþökkuð, en
þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofn-
anir.
Fyrir hönd systkinanna,
Sigurður Hannesson.
Fulltrúakjör
Verkalýðsfélagið Eining hefur ákveðið, að kjör
fulltrúa félagsins á 14. þing Alþýðusambands
Norðurlands og 8. þing Verkamannasambands-
Islands fari fram að viðhafðri allsherjaratkvæða-
greiðslu. Er hér með auglýst eftir framboöslist-
um, en þeim skal skila til skrifstofu félagsins í
Strandgötu 7 á Akureyri eigi síðar en kl. 17
miðvikudaginn 12. október.
Félagið hefur rétt til að senda 25 fulltrúa á þing
AN og 13 fulltrúa á þing VMSÍ, en á framboðs-
listum skulu einnig vera nöfn jafnmargra til vara.
Ennfremur skulu fylgja hverjum framboðslista
meðmæli 100 fullgildra félagsmanna.
Þing ASN verður haldið á Akureyri dagana 29. og
30. október, en þing VMSÍ verður haldið í Reykja-
vík 2.-4. desember.
Akureyri, 28. september 1977,
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa Sjómannafélags Eyjafjarðar á 14.
þing Alþýðusambands Norðurlands fer fram að
viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.
Framboðslistum með nöfnum 3 aðalfulltrúa og 3
til vara skal skila til skrifstofu félagsins, Strand-
götu 7, Akureyri, eigi síðar en kl. 17 mánudaginn
24. þ.m.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 31
fullgilds félaga.
Akureyri, 3. október 1977,
STJÓRN SJÓMANNAFÉLAGS EYJAFJARÐAR
Kjörbingó
í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 9. okt. kl. 20.30
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Margir góðir vinningar, svo sem: litsjónvörp,
útvörp og fleiri heimilistæki frá Akurvík hf.
Vinningar eru til sýnis í verslunarglugga Akurvfk-
ur hf., Glerárgötu 20.
Miðasala frá kl. 14-16 á sunnudaginn og viö inn-
ganginn.
STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA, kvennadeild.
JUDO
Judodeildir K.A., Þórs og Skautafélags Akureyrar
hafa ákveðið að hefja innritun í byrjendaflokka.
Innritun stendur yfir til 12. október n.k. í íþrótta-
húsinu í Glerárhverfi á miðvikudögum kl.
19-20.30 og sunnudögum kl. 17.00-19.00.
Upplýsingar eru veittar ísíma 21880á mánudög-
um, þriðjudögum og miðvikudögum, frá kl. 19.30
til 22.00.
JUDORÁÐ AKUREYRAR.
Barnaheimili
Framhald af forsíðu
og hefja sem fyrst byggingu
dagheimilis ( Glerárhverfi.
Jóna Frímannsdótiir
Sólveig Ingvadóttir
Hulda Harðardóttir
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Erla Böðvarsdóttir
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Hrefna Jóhannesdóttir
Þorbjörg Sigurðardóttir
Ráðhildur Stefánsdóttir
Jófríður Traustadóttir
Margrét Albertsdóttir
Arnþrúður Jónsdóttir
Sigrún Ketilsdóltir
Þurtður Sigurðardóttir.
Lyftingar
framhald af bls. 2
væri eftir rússnesku og norsku
æfingakerfi og síðar í vetur væri
von á Gústafi Agnarssyni og
Guðmundi Sigurjónssyni til leið
beininga hjá félaginu. Sigur-
ganga akureyrskra lyftinga-
manna var mikil í unglinga-
flokki á sl. ári og nú eru mörg
mót framundan. Á næstunni
verður Norðurlandamót ungl-
inga haldið í Svíþjóð og vonast
er til að þangað fari 6 lyftinga-
menn frá Akureyri. í stjórn lyft-
ingafélags Akureyrar eru: Hjört
ur Gíslason, Bernharð Haralds-
son, Jakob Bjarnason og Guð-
mundur Svanlaugsson.
Viðurkenning
framhald af bls 2
verður Ifka að láta jafnt yfir all-
ar íþróttir ganga. T.d. er blað-
inu ekki kunnugt um að körfu-
knattleiksmenn Þórs, sem unnu
sig upp í 1. deild i fyrra, hafi
hlotið viðurkenningu frá bsjar-
ráði.
Sláturtíð
framhald af bls. 8
Að sögn Jóhannesar Sigfús-
sonar, sláturhússtjóra og
bónda, verður slátrað 15 þús.
fjár á Þórshöfn. Er það fé úr
Þistilfirðinum og af Langanesi
allt að Bakkafirði, en aðeins 2
kúabú eru á þessu svæði, að
sögn Jóhannesar. Vinna um 40
manns við slátrunina, en reikn-
að er með að henni ljúki 21.
október. Sagði Jóhannes að
meðalþungi dilkanna væri held-
ur hærri það sem af væri, en
lokið er við að slátra fé úr
Þistilfirði. Hæsti meðalfallþung
inn frá einstöku búi, er enn sem
komið er frá félagsbúinu á
Tunguseli á Langanesi. Þaðan
var slátrað 300 lömbum, sagði
Jóhannes og var meðalþungi
þeirra vel yfir 19 kíló, sem er
mjög gott, sérstaklega með tilliti
til þess, að yfir 80% af lömbun-
um voru tvílembingar. Meðal-
fallþunginn það sem af er slátur
tíðinni á Þórshöfn er 16.8 kg.
Akureyringar sigursælir
Aðalfundur Bridgefélags Akureyr-
ar var haldinn í Gefjunarsal þriðju-
daginn 20. september. Að venju
mættu fremur fáir á aðalfund en
vonir standa til að þátttaka félaga í
vetrarstarfinu verði í öfugu hlut-
falli. Ný stjórn var kosin, en hana
skipa:
Stefán Vilhjálmsson, formaður,
Ingimundur Árnason, varaform.
Gylfi Pálsson, gjaldkeri,
Magnús Aðalbjörnsson, ritari,
Guðmundur Víðir Gunnlaugs-
son, áhaldavörður.
Að venju mun tvímennings-
keppni félagsins verða fyrst á dag-
skrá, en hún hefst í kvöld, þriðju-
daginn 4. október, kl. 20.00 í Gefj-
unarsal.
Á laugardaginn leiddu akur-
eyrskir og siglfirskir bridgespilarar
saman hesta sína og spiluðu um
veglegan bikar, sem Sparisjóður
Sigluíjarðar gaf á sínum tíma.
Akureyringar sigruðu með nokkr-
um yfirburðum, hlutu 556 stig á
móti 340 stigum Siglfirðinga. Sveit
Arnars Einarssonar, Akureyri,
varð stigahæst, hlaut 155 stig, en
sveit Alfreðs Pálssonar varð 1 2.
sæti með 142 stig. 13. sæti varð sveit
Ævars Katlessonar, sveit Ingimund
ar Árnasonar varð 4., sveit Boga
Sigurbjarnarsonar frá Siglufirði
varð 5., sveit Björns Þórðarsonar,
Siglufirði, 6., sveit Páls Pálssonar,
Siglufirði, varð 7. og sveit Björns
Ólafssonar, Siglufirði, varð 8.
Frjálsíþrótta-
æfingar
á vegum ÍBA verða í íþrótta-
skemmunni í vetur á fimmtu-
dögum milli kl. 6-7 sd. Fyrsta
æfingin verður nk. fimmtudag.
ÖUum er heimil þátttaka. -
Frjálsíþróttaráð.
IOOF - 159107814
• Samkomur hjá Ffladelfiu
Lundargötu 12
Almenn samkoma er hjá Fíla-
delfíu, Lundargötu 12, hvern
sunnudag kl. 20.30. Ýmsir
ræðumenn, söngur og tónlist.
Almennur bibliulestur hvern
fimmtudag kl. 20.30. Verið
velkomin.
• Sunnudagaskóii Ffladelfiu
Börnum og foreldrum er bent
á, að Sunnudagaskóli er hvem
sunnudag hjá Fíladelfíu, Lund
argötu 12, kl. 11 f.h. öll börn
hjartanlega velkomin.
• Fundur og sunnudagaskóli
hjá Zfon
Á sunnudaginn verður sunnu-
dagaskóli í Kristniboðshúsinu
ÍZÍon kl. 11 f.h. öll börn
i velkomin. Fundur verður í
1 Kristniboðsfélagi kvenna kl.
4. Allar konur velkomnar.
Samkoma kl. 20.30. Ræðu-
maður Benedikt Amkelsson.
Allir velkomnir.
• Krakkar - fundur hjá barna
stúkunni Sakleysið
Sunnudaginn 9. þ.m. verður
fyrsti fundurinn haldinn i
barnastúkunni Sakleysið nr. 3
að Hótel Varðborg. Allir
krakkar velkomnir. - Gæslu-
maður.
• Árnað heilla
Hinn 17. september sl. voru
gefin saman í hjónaband í
Munkaþverárkirkju, ungfrú
Guðrún Ingveldur Baldurs-
dóttir, sjúkraliði, Ytri-Tjörn-
um á Staðarbyggð, og Ingvar
Þóroddsson, læknanemi,
Ásabyggð 3, Akureyri. Heim-
ili þeirra er á Ytri-Tjörnum.
• Systkinabrúðkaup
Laugardaginn 1. októbervoru
gefin saman í hjónaband í Ak-
ureyrarkirkju brúðhjónin ung
frú Svana Hólmfríður Krist-
insdóttir, sjúkraliði, Ægisgötu
19, og Hörður Gunnsteinn Jó-
hannsson, rafvirki frá Bálka-
stöðum í Ytri-Torfustaða-
hreppi - og brúðhjóninungfrú
Inga Katrin Vestmann, verka-
kona, Skarðshlið 5, og Krist-
ján Þorsteinn Kristinsson,
plötusmiður, Ægisgötu 19,
Akureyri.
Borgarbíó er að ljúka sýning-
um á myndinni „Maður til
taks“, sem gerð er eftir sam-
nefndum sjónvarpsflokki, sem
sýndur var ( sjónvarpinu á sl.
ári. Næsta mynd verður
„Hreinsað til ( Bucktown“, en
í aðalhlutverkum eru Fred
Williamson og þeldökka kyn-
bomban Pam Grier. Segir
myndin frá manni, sem kemur
tii heimabæjar síns til að verða
við jarðarför bróður sins, en i
bænum verður hann var við
mikla spillingu, sem hann
reynir að uppræta. Kl. 11 á
fimmtudaginn verður sýnd
myndin „Kvennabósinn", sem
er djörf gamanmynd frá Ástr-
alfu. Kl. 3 á sunnudaginn verð-
ur sýnd myndin um Emil og
grfsinn, en myndin er með is-
lensku tali.
Nýja bíó sýnir i kvöld mynd-
ina um Hróa hött og Marian,
þar sem Sean Connery og
Andrei Hepurn fara meðaðal-
6 - iSLENDINGUR