Íslendingur - 25.07.1978, Blaðsíða 1
gn ■ ■■ ■ ■ ■■■■■■■ wm ■
■ '■
jHver hlýtur;
j vinninginn? i
i
Fyrsti vinningurinn í vin-
I
| sældarkosningu blaðsins um |
■ vinsælasta knattspyrnuliðið "
|og vinsælasta knattspyrnu-1
■ manninn á Norðurlandi ■
| cystra verður dreginn út á |
■ flmmtudaginn. Verður dreg- ■
|ið úr atkvæðaseðlunum og |
■ vinningshafinn getur valið ■
| um úttekt í Sporthúsinu, |
■Vöruhúsi KEA, Amaro, ■
| Sportvöruverslun Brynjólfs |
■ Sveinssonar eða Sport og ■
| hljóðfæraversluninni, að |
Jupphæð 15 þús. kr. Síðan*
I verður dregið úr vinningun-1
!um 4 næstu fimmtudaga, en“
I það borgar sig að vera með |
ifrá byrjun, það gefur meiri ■
1 möguleika á vinningi. At-|
2 kvæðaseðillinn birtist á bls. 7 5
I í hlaðinu í dag. Hverjum ogl
2einum er heimilt að sendaj
I inn fleiri en einn miða.
I
Sjú bls. 7.
Mörgum finnst ísienska sumarið stutt, jafnvel búið þegar það er rétt að byrja. Nokkuð er til í því og nú er sumri
tekið að halla og rétt fyrir landann að reyna að njóta þeirr a sólardaga sem eftir eru, sem vonandi verða margir. -
Þessa mynd tók Skúli Magnússon í Sundlaug Akureyrar í sl. viku, en þar er fjölmennt á sólardögum.
Tannlœknafélag Norðurlandsgeröikönnun á tannviðgerðum barna á Akureyri
Aðeins helmingur
fær tannviðgerðir
f marsmánuði sl. gekkst Tannlæknafélag Norðurlands fyrir
könnun á tannlæknaþjónustu við skólabörn á Akureyri.
Niðurstöður könnunarinnar staðfestu þann grun, að aðeins
röskur helmingur barna á grunnskólastigi hefur kost á nauð-
synlegum tannviðgerðum, en starfandi tannlæknar á
Akureyri anna ekki eftirspurn og eru langir biðlistar eftir
plássi. Þar sem þessir aldursflokkar grunnskólans eru meðal
þeirra, er síst geta verið án tannlæknis, hafa tannlæknarnir á
Akureyri ákveðið að gera tilraun til að veita þeim forgang, að
því er segir í fréttatilkynningu frá Tannlæknafélagi Norður-
lands. Verður þessi forgangur veittur samkvæmt vissum
reglum, sem hér fara á eftir:
Fyrst um sinn nær þessi við-
leitni eingöngu til barna fæddra
1970 og búsett eru á svæðinu frá
Fjölmennt æskulýðsmót
- 130 unglingar á œskulýðsmóti við Vestmannsvatn
Helgina 14.-16. júlí síðastlið-
inn söfnuðust yfir 130 ungling-
ar víðs vegar að af Norður-
landi á æskulýðsmót, sem
haldið var við Sumarbúðirnar
við Vestmannsvatn í Aðaldal.
Slíkt æskulýðsmót er árlegur
viðburður og eru þátttakend-
ur virkir félagar í æskulýðsfé-
lögum eða hópum innan kirkj-
unnar. Yfirskrift þessa móts
var: „Herra! Kenn oss að
biðja“, og störfuðu umræðu-
hópar sem fjölluðu um bænina
og mikilvægi hvers kristins
manns að biðja.
Mótið var sett á föstudags-
kvöld, en á laugardag störfuðu
umræðuhóparnir og háð var
íþróttakeppni milli þátttakenda.
Keppt var um farandbikar sem
Sumarbúðirnar unnu nú af Æsku
lýðsfélagi Akureyrarkirkju. Um
kvöldið var fjölbreytt kvöldvaka,
með söng og ýmis konar efni, og
helgistund sem félagar úr Æsku-
lýðsfélagi Siglufjarðarkirkju sáu
um. Að lokum var safnast saman
við varðeld niður við vatn með
söng.
Á sunnudagsmorgunn fóru all-
ir til messu og altarisgöngu í
Framhald á bls. 7.
Arnarneshreppi til Grýtubakká
hrepps ( Akureyri, Arnarneshr.,
Skriðuhr., Öxnadalshr., Glæsi-
bæjarhr., Hrafnagilshr., Saur-
bæjarhr., Öngulsstaðahr., Sval-
barðsstrandarhr., Grýtubakka-
hreppur).
Þau börn sem samkvæmt
könnuninni eiga tannlæknis-
þjónustu vísa, halda henni
áfram hjá viðkomandi tann-
lækni og þurfa ekki að láta
heyra frá sér. Þeir forráðamenn
þarna fæddra 1970 sem vilja
notfæra sér þetta geta hringt í
síma 24749 kl. 17-19 dagana 31.
júlí til 4. ágúst og á öðrum tím-
um frá 7. ágúst. Þá verður
ákveðinn fjöldi nafna skrifaður
á lista hvers tannlæknis og farið
þar að óskum fólks að eins
miklu leyti og unnt reynist.
Athygli skal vakin á því að
þessi börn verða ekki kölluð inn
til skoðunar, heldur þarf eftir
sem áður að panta tíma fyrir
þau á tannlæknastofunum.
Mörgum finnst eflaust að hér
sé allt of skammt gengið, þetta
sé brýn nauðsyn fyrir miklu
stærri hóp. Því er til að svara að
við núverandi aðstæður hlýtur
aukin þjónusta við skólabörn
því miður að þýða minni
þjónustu við aðra sem á þurfa
að halda, en reynslan mun hins-
vegar sýna hvort þetta sé vísir
að víðtækari, skipulegri tann-
læknisþjónustu fyrir börn.
J Auglýs-
I
I
i endur
i
i
i athugið!
\
i
| fslendingur kemur út í næstu |
| viku eins og venjulega. Aug-1
! lýsingar verða að hafa borist J
I fyrir hádegi á mánudag í síð-1
| asta lagi. Þeir sem ætla að |
I auglýsa í þessu blaði erul
J hvattir til að vera tímanlega J
I á ferðinni, þar sem búast má I
| við mörgum auglýsingum |
■ fyrir verslunarmannahclgina ■
^og þrengslum í blaðinu.
Meðal efrtis í blaðinu í
dag:
• Þátturinn „Lesendur
leggja orð í belg“, þar sem
m.a. er fjallað um jörðina
Botn, sem Akureyrarbæ
var gefln fyrir löngu síð-
an, en gjöfin virðist ekki
hafa verið metin.
• Ekki má gleyma í þrótta-
síðunni, þar sem sagt er
frá úrslitum leikja um
helgina og fjallað um golf.
NDROLENZK UBWBSQtflS fyrirNorðlendinga