Íslendingur - 15.07.1981, Síða 2
Móttaka Forseta íslands
Kl. 12.00. Við bæjarmörk nálægt
Kjarna. Móttaka. Móttökunefnd
Akureyrarbæjar: Forseti bæjar-
stjórnar, Sigurður Jóhannesson,
varaforseti bæjarstjórnar, Ingólfur
Árnason, varaforseti bæjarstjórnar,
Soffía Guðmundsdóttir, bæjarstjóri
Akureyrar, Heigi M. Bergs.
Forseti og föruneyti: Forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, að-
stoðarmaður forseta, Vigdis Bjarna
dóttir, Guðlaugur T. Karlsson,
bæjarfógeti Ak. og Eyjafj. Elías
Elíasson, bæjarfógetafrú, Sigríður
Lúðvíksdóttir.
Þegar fóik hefur heilsast, af-
hendir lítill skáti forseta blóm og
síðan verður haldið í bæinn.
Kl. 14.00. Skoðunarferð um
Akureyri.
Kl. 14.15. Ekið að Slippstöð og
hún skoðuð undir leiðsögn Stefáns
Reykjalín, Kaupvangsstræti, Skipa-
götu, Glerárgötu, Tryggvabraut að
skrifstofuhúsi austan.
Kl. 14.45. Ekið að Nonnahúsi,
Hjalteyrargötu, Strandgötu, Ráð-
hústorg, Hafnarstræti, Aðalstræti.
Nonnahús^ skoðað undir leiðsögn
Stefaníu Ármannsdóttur.
Kl. 15.20. Ekið að Amtsbókasafn
inu. Aðalstræti, Lækjargötu
Spítalaveg, Grófargil, Oddeyrar-
götu, Brekkugötu að bílastæði
austan safnsins. Amtsbókasafnið
skoðað undir leiðsögn Lárusar
Zophoniassonar.
Kl. 16.00. Ekið að Dvalarheimil-
inu Hlíð, Brekkugötu, Þórunnar-
stræti, Hrafnagilsstræti, Austur-
byggð. Móttöku þar annast Jón
Kristinsson. Málverk unglinga frá
vinabæjum Akureyrar og Akureyri
hanga uppi í borðsal hússins.
Vistmenn safnast saman i setustofu
'heimilisins kl. 16.15 og mun forseti
ávarpa þá. Dvalarheimilið skoðað
og kaffi drukkið i borðsal.
Kl. 17.00. Ekið að Hótel KEA,
Álfabyggð, Skógarlundur, Þing-
vallastræti, Grófargil. Dvalið á
hótelinu til kl. 17.30.
KI. 17.35. Ekið til opinberrar
móttökuathafnar í Lystigarðinum.
Kl.17.40. Komið að aðalhliði
Lystigarðsins, þar tekur Jóhann
Pálsson, forstöðumaður Lystigarðs
ins, á móti forseta og föruneyti.
Skátar standa heiðursvörð. Forseta
afhentur blómvöndur úr íslenskum
blómum. Gengið um garðinn að
hátíðarsvæðinu. Lúðrasveit Ak.
leikur nokkur lög. Forseti bæjar-
stjórnar flytur ávarp og færir
forseta langspil að gjöf, lúðrasveit
leikur eitt lag, forseti íslands flytur
ávarp og síðan leikur lúðrasveitin
þjóðsönginn. Forseti bæjarstjórnar
býður til garðveislu norðar í
garðinum. í garðveislunni verður
boðið upp á snittur, ostapinna, kex
með ídýfu, öl, gosdrykki.
Níu sex metra löngum borðum
verður komið fyrir norður eftir
rjóðrinu, norðan myndastyttu Mar-
grétar Schiöth, þar sem veitingum
verður komið fyrir. I garðinum
gróðursetur forseti Islands tré. Frá
þeirri athöfn fer forseti og fylgdar-
lið um garðinn í fylgd Jóhanns
Pálssonar, lystigarðsstjóra, og yfir-
gefur garðinn fyrir kl. 19.00.
Kl. 20.15. Kvöldverður að Hótel
KEA til heiðurs forseta Islands,
Vigdisi Finnbogadóttur, í boði
bæjarstjórnar Akureyrar.
SUMARSÝNING
NORÐLENSKRA
LISTAMANNA
Sumarsýning norðlenskra málara var opnuð að Klettagerði 6
s.l. laugardag. Þar eiga 11 myndlistarmenn verk og verður
sýningin opin i mánuð.
Á myndinni eru nokkrir þeirra sem verk eiga á sýningunni.
F.V. Kristinn G. Jóhannsson, Lýður Sigurðsson, Sjöfn
Guðmundsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson, Einar Helgason, Órn
Ingi og Alice Sigurðsson. Á myndina vantar Aðalstein
Vestmann, Elías B. Halldórsson, Guðmund Ármann og Kristján
Guðmundsson. Mynd: S. Aðalsteinsson
hjAlpAhh^
HEHdur VlNttK
Systraseli breytt í hjúkrunardeild
Breyting á „Systraseli“ í hjúkr-
unardeild er eitt af þeim verk-
efnum sem hvað mest nauðsyn
er að leyst verði. En svo sem
áður hefur verið kynnt kemst
þessi fyrirhugaða hjúkrunar-
deild þvi aðeins upp og í not að
það takist að fjármagna þessa
framkvæmd með frjálsum fram-
lögum, annars er ekki kostur
eins og málin standa um þessar
mundir, og aðstæðurnra leyfa
ekki að við þurfum að bíða enn í
mörg ár eftir verulega auknu
hjúkrunarrými. Því er blásið til
atlögu í þeirri von, að allir skilji
og viðurkenni þörfina, og vilji
leggja nokkuð af mörkum, hver
eftir sinni getu.
Ýmsir hafa nú þegar sýnt
áhuga og velvilja og sent
framlög, sumir mjög rausnar-
leg, þó að skipuleg söfnun sé enn
varla hafin. Líka virðist gott að
heita á hjúkrunardeildina, og
hafa tveir aðilar þegar farið þá
leið.
Bæjarstjórnir og hreppsnefnd
ir víða um Norðurland hafa
fengið sendibréf með beiðni um
fjárframlög og þessa dagan og
næstu vikur, verður leitað til
fyrirtækja og stofnana í bænum
og nágrenni í sama skini. Gefi
þessi söfnun góða raun, sem við
vonum, liggur fyrir að panta
sjúkrarúm og annan búnað til
deildarinnar, en á slíku er
langur afgreiðslufrestur.
Með haustinu, að loknum
sumarleyfum, verður að treysta
á að hinir ýmsu klúbbar og
félög, bæði hér í bænum, og
annarsstaðar á þjónustusvæði
Fjórðungssjúkrahússins verði
fús til að rétta hjálparhönd , með
einum eða öðrum hætti. Væri
vel þegið ef þeir aðilar sem flestir
hefðu samband við skrifstofu
okkar, en við höfum nú fengið
aðstöðu á skrifstofu Rauða
krossins að Skólastíg 5, gengið
inn að austan sími 24803, og
verður hún opin virka daga milli
kl. 17 og 19. Mun Bjarni
Sigtryggsson, framkvæmda-
stjóri Rauða krossdeildarinnar
verða þar í forsvari. Er þess
raunar að vænta, að öllum
almenningi finnist þeir eigi
þangað erindi. Bréf má senda til
hjúkrunardeildarinnar i pósthólf
340,602 Akureyri.
Námskeið í Siglingum
á Akureyrarpolli er hafið. Ennþáeru laus nokkur
pláss. Innritun í síma 22722 eðaviðfélagsheimili
Siglingarklúbbsins við Höfnersbryggju á
kvöldin.
Siglingadeild Nökkva
Æskulýðsráð Akureyrar.
ökumenn:Þe gar þið sjáið
hesta á vegunum er besta
ráðið að stoppa bifreiðina
alveg þá munu hestarnir átta
sig strax og fara út af
veginum strax og aðstæður
leyfa.
Dýraverndunarfélag A kur-
eyrar.
f sumarbústaðinn HVÍTUR LEIR
Lundia^l Blómapottar 3 stærðir Mjólkurkönnur Kertastjakar Smjörsett Trévörur Saltskálar o.fl. Kerti - handsteypt margir litir Leirvínflöskur Korktöflur Ofnar mottur
Hilíur, borð og stólar Ný gerð af klappstólum Teborð Bakkar 2 stærðir Trébretti
Garðborð
og stólar KOMPAN SKIPAGÖTU 2 AKUREYRI
Gott verð Sími 25917 i
QLERÁRQÖTU 20—600 AKUREYRI — SlMI 22213 — NAFNNÚMER 0IS1-7S2S
(f)GARDENA
GERIR GARÐINN
FRÆGAN
Alhliða garðsnyrtiáhöld
af
garöverkfærum,
slöngum,
slöngutengjum,
úðurum o.m.fl.
Hand- og
mótor sláttu-
vélar.
2 - ÍSLENDINGUR