Íslendingur - 15.07.1981, Side 6
..íþróttir...íþróttir...xþróttir...íþróttir...íþróttir..
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild:
Sanngjarn
sigur KA
- Sigruðu Vestmannaeyinga 1-0 í hörðum
leik á Akureyrarvelli á sunnudagskvöldið
Léleg dómgæsla setti svip sinn á leikinn
Sunnudaginn 12. júlí leiddu KA
og ÍBV saman hesta sína í fyrri
leik liðanna í deildarkeppninni.
Hafði leik þessum verið frestað
fyrir alllöngu síðan vegna þess að
Vestmannaeyingar urðu veður-
tepptir í Eyjum. KA sigraði með
einu marki gegn engu, en markið
skoraði Ásbjörn Björnsson á 19.
mímútu. Sigurinn kemur sér
ákaflega vel fyrir KA-Iiðið sem
þokast hefur frá fallhættusvæð-
inu. Svipað var uppi á teningnum
í þessum leik og leik þessara
sömu liða í 16 liða úrslitum
Bikarkeppni KSI.
KA menn voru heldur sterk-
ari í fyrri hálfleik, og strax á 4.
mínútu átti Gunnar Gíslason
skalla að marki ÍBV en Páll
markvörður bjargaði. Tveimur
mínútum síðar skapaðist aftur
hætta við mark Eyjamanna. Þá
átti Elmar gott skot að marki
eftir að,hafa spólað sig í gegnum
vörn ÍBV. Náði Páll að slá
knöttinnn yfir. Eftir fyrstu
tuttugu mínúturnar jafnaðist
’eikurinn nokkuð en Eyjamenn
náðu ekki að skapa sér umtals-
verð marktækifæri fyrr en á 35.
mínútu. Urðu KA-vörninni á
hroðaleg mistök og náði Sigur-
lás knettinum, en fast skot hans
hafnaði í stöng.
Síðari hálfleikur var svipaður
þeim fyrri og sóttu liðin til
skiptis. Á 61. mínútu voru KA
menn heppnir að fá ekki á sig
mark. Vörnin klikkaði og Sigur-
lás stóð einn í opnu færi en skot
hans geigaði. Á 79. mínútu kom
svo eina mark leiksins. Mikil
þvaga skapaðist við mark Eyja-
manna eftir harða sókn KA.
Elmar skaut i varnarmann ÍBV,
en af honum hrökk knötturinn
til Ásbjarnar sem skoraði af
stuttu færi. Leikur þessi var öllu
tilþrifaminni en hinir fjölmörgu
áhorfendur höfðu búist við.
Hann einkenndist helst af mjög
grófum og ljótum leik ÍBV, sem
leiðst mörg brot einungis vegna
sérlega lélegrar dómgæslu Þór-
oddar Hjaltalín. Hafði hann
ekki nokkur tök á leiknum, og
hefði farið betur ef hann hefði
látið sjá í spjöldin.
Þrátt fyrir sigurinn lék KA-
liðið undir getu. Vörninni hætti
til að gera mistök þrátt fyrir
frammistöðu Haraldar Haralds
sonar sem ásamt Gunnari
Blöndal átti stórleik. Fram-
línuna skorti greinilega marka-
skorara, og kæmi það hugsan-
lega betur út ef Ásbjörn og
Hinrik hefðu stöðuskipti. Um lið
ÍBV er litlu við að bæta, nema að
þeir eiga án efa einn ættulegasta
sóknarmanninn í íslenskri knatt
spyrnu í dag þar sem er Sigurlás
Þorleifsson.
Vésteinn Hafsteinsson HSK í snúningnum eftir metkastið sem mældist
vera 53.42 metrar. Mynd: G. Svansson
Landsmótið sett. Forseti bæjarstjórnar, Sigurður Jóhannesson flytur ávarp.
Séð yfir tjaldbúðir.
Fylkt liði frá íþróttahúsi.
Úrslit á Landsmóti - Framhald af opnu
Boccia
Sveit ÍFA 4 stig. Sveit ÍFR 4
stig. Syeit Reykjalundar 2stig.
Sveit ÍBV 2 stig.
Sveit Akureyrar:
Hafdís Gunnarsdóttir, Sigur-
rós Karlsdóttir, Tryggvi Gunn
arsson, varam.Ingvar Eiríkss.
Sveit Reykjavíkur:
Lýður Hjalmarsson, Lárus
Ingi, Sigurður Björnsson.
Sveit Reykjalundar:
Siggeir Gunnarsson, Jóhann
Kjartansson, Haraldur Karls-
son.
Sveit ÍBV:
Hildur Jónsdóttir, Freydís
Fannberg, Petra Jónsdíttir.
Curling.
Úrslit:
Sveit ÍFA: Hafliði Guðmunds-
son, Tryggvi Haraldsson
Björn Magnússon.
Sveit Reykjavíkur og Reykja-
lundar (blandað): Jónatan
Jónatansson, Jóhann Kjart-
ansson, Haraldur Karlsson.
Úrslit í þjóðaríþróttinni,glímu
sem var fremur sviðlítil.
Glíma
Úrslit yngri flokkur:
Páll Sigurðsson HSK 4 vinn. 6
stig. Davíð Jónsson HSK 2‘A
vinn. 5 stig. Hans Kjerúlf UIA
2 vinn. 4 stig. Einar Stefánsson
UÍA 1 /2 vinn. 3 stig. Erlingur
Ragnarsson HSÞ Ovinn. 2stig.
Úrslit eldri flokkur:
Pétur Yngvason HSÞ 3 vinn. 6
stig. Eyþór Pétursson HSÞ 2
vinn. 5 stig. Kjartan Helgason
HSK 1 vinn. 4 stig. Eiríkur
Ásmundsson HSK 0 vinn. 3
stig.
Judókeppnin var bráð-
skemmtileg og bauð upp á
mikla keppni að vanda.
Judó
Úrslit drengir 17 ára og yngri.
Tryggvi Tryggvason UMSK 6
stig. Gunnar Rúnarsson
UMSK 5 stig. Sigurður Krist-
mundsson UMFG 4 stig. ÓL-
afur Magnússon UMFG 3 stig.
Ágúst Egilsson UMFK 1 V2
stig. Kristján Svanbergsson
UMFG 1 Vi stig.
Úrslit karla:
Ómar Sigurðsson UMFK 6
stig. Sigurður Hauksson
UMFK 5 stig. Magnús Hauks-
son UMFK 4 stig. Snæbjörn
Sigurðsson HSK 3 stig. Gunn-
ar Jóhannesson UMFG V/2
stig. Guðmundur Ó. Ingimund
arson HSK IV2 stig.
Sigurvegarar í handknattleik
kvenna UMSK vann HSÞ í
úrslitum 11:9. í knattspyrnu
sigraði UMFK lið UÍA í
úrslitum 3:1 og UMFN burst-
aði alla keppinauta sína í
körfunni og vann ÍBK í
úrslitum 86:59 (43:20).
6 - ÍSLENDINGUR