Íslendingur


Íslendingur - 08.10.1980, Side 2

Íslendingur - 08.10.1980, Side 2
Fjölbreytt vetrar- dagskrá að Hótel Loftleiðum Vetrarstarfið að Hótel Loft- leiðum hófst um síðustu mánaða mót og verður að vanda fjöl- breytt og líflegt. Bryddað verð- ur upp á ýmsum nýjungum fyrii hótelgesti og ennfremur fyrii borgarbúa og aðra þá sem veitinga njóta í sölum hótelsins. Á undanförnum árum hefur Hótel Loftleiðir annað hvort eitt sér eða í samráði við fleiri aðila staðið fyrir kynningar- vikum. Þar hafa verið kynnt mörg lönd og þjóðir svo og sérstakar borgir. Sælkerakvöld hótelsins hafa orðið vinsæl svo og sérstakar kynningar á mat- vælum síld, ostum o.s.frv. Þjóðarvikur. Vetrarstarf að Hótel Loft- leiðum hefst 30. september með finnskri viku sem stendur til 4. október. Þá verður sérstök Kanaríeyjavika 7. til 14. októ- ber og tékknesk vika hefst 26. október og stendur til 2. nóv- ember. Þá verður gert hlé á þjóðavikum en um miðjan nóvember verður kynning á ostum og léttum vínum. Sérstök desemberdagskrá verður í Blómasal hótelsins eins og undanfarin ár. Aðventukvöld verður 7. desember, Lúcíukvöld 14. desember, Jólapakkakvöld 21. desember og sérstakur vík- ingakvöldverður 28. desember. Að loknum hátíðunum hefj- ast Þjóðavikurnar að nýju með bandarískri viku sem stendur 13. til 20. janúar. Þá verður ungversk vika 18.-22. febrúarog búlgörsk vika 4.-8. mars. Þá eru fyrirhugaðar kynning- arvikur um Hong Kong og Malasýu. Matreiðslukennsla á þriðjudög- um - nýmæli. Nýmæli er matreiðslukennsla sem verður í Leiísbúð hó'tels- ins frá kl. 18.00 til 19.00 alla þriðjudaga. Fagmenn í ýmsum greinum matreiðslu munu skiptast á um að kenna. Eld- aður verður einn eða fleiri réttir hverju sinni sem síðan verða á matseðli kvöldsins í Blómasal. Víkinga- og Sælkerakvöld. Á sunnudögum verða víkinga- kvöld í Blómasal. Stallari og þjónar munu klæðast að vík- ingasið og bera fram ljúffeng- an mjöð og þríréttaðan kvöld- verð. Á víkingakvöldi verða mjög þjóðleg skemmtiatriði og gestir fá sérstaklega áritað skjal. Sælkerakvöldin sem notið hafa mikillar hylli verða í Blómasal á fimmtudögum. Matseðli ráða ýmsir þekktir íslenskir sælkerar eða sérfræð- ingar hótelsins í matartilbún- ingi. Birgir ísleifur Gunnars- son mun ríða á vaðið með sælkerakvöldi 16. október. Fjölskylduhátíð á sunnu- dögum. í veitingabúð (kaffiteríu) Hótels Loftleiða verður efnt til fjöl- skylduhátíðar á hverjum sunnu- degi. Hermann Ragnar Stefáns- son mun stjórna hátíðinni og skemmnatriði verða margskon- 2 - ÍSLENDINGUR ar. Þau verða aðallega miðuð við yngri kynslóðina. Ýmis félagasamtök munu taka þátt í íjölskylduhátíðinni. Veislustjóri í veitingabúð verður sjálfur „Godi“ sem m.a. fer með börnin í leiki og býður þeim í bíó í kvikmyndasal hótelsins. Þarna verður fræðsla og skemmtun á boðstólum fyrir alla fjölskyld- una. Kalda borðið vinsælt. Kalda borðið sem verið hefur á boðstólum á hverjum degi allt frá opnun hótelsins 1966 er stöðugt endurbætt og nú verður á því ferskt grænmeti og ýmsir nýjir réttir. Þá verður „salat- bar“ á hverju kvöldi í Blóma- sal ókeypis fyrir matargesti. Þá verður nýr „brauð-bar“ á Vík- ingaskipunum. Tískusýningar í Blómasal. Hefð er komin áTískusýningar í Blómasal. Þær verða í vetur fyrsta föstudag hvers mánaðar. Sýningarnar eru í samvinnu við íslenskan Heimilisiðnað og Rammagerðina. Eins ogundan- farna mánuði mun Sigurður Guðmundsson leika á orgel og píanó í Blómasal fimmtudaga, föstudaga, laugardaga ogsunnu daga. Nýr sjávarrétta-matseðill verður kynntur í Blómasal 1. október n.k. og nýr matseðill mun verða kynntur gestum 1. nóvember. Aðstoð og leiðbeiningar við hótelgesti. Gestir Hótels Loftleiða munu í vetur njóta aðstoðar starfs- stúlku sem leiðbeinir um kynnis ferðir og hvað hægt er að gera sér til dægrastyttingar á Hótel Loftleiðum. Ennfremur hvað helst er að sjá og heyra í leikhúsum, kvikmyndahúsum og öðrum skemmtistöðum borg arinnar. Þá munu hótelgestir eiga kost á vefnaðar- og spuna- kennslu á vegum íslensks Heim- ilisiðnaðar, og prjónakennslu á vegum Rammagerðarinnar. Þessir þættir verða í aðalversl- unum viðkomandi aðila í Hafn- arstræti fyrir hádegi á laugar- dögum. Ekki gleymist líkamsræktin. Enn er ótalið það sem snýr að líkamsræktinni. Sundlaug hótelsins verður opin ókeypis fyrir hótelgesti og þar mun einnig fara fram kennsla í slökunaræfingum (jóga) kl. 17.00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Leiðbeinandi verður Zópánías Pétursson. Einnig mun verða morgunleik- fimi kl. 08.30 þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga og leiðbeinandi þar verðurJóhann Ingi Gunnarsson. Eins og sjá má af framan- greindri upptalningu verður um margt að velja að Hótel Loftleið um I vetur. Hótelstjórinn Emil Guðmundsson og starfsfólk hans mun leitast við að gera hverjum gesti dvölina og heimsóknina sem ánægju- legasta í alla staði. / Margar gerðir ' af luktum og vasaljósum Snjókeöjur Dráttartóg Sterkt vopn í baráttunni við Yétur konung Startgas fsvari fyrir blöndunga Sætaáklæði í flesta bíla Rakaþerrir Gluggahreinsiefni Frostlögsmælir Ljóskastarar í bíla/ Tjöruhreinsiefni fseyðir fyrir ruðusprautur Lásaolía, hindrar ísingu í bílaskrám Silikon á þéttilistana - ijósköflur, 2 gerðir . ■ Rafgeymar, flestar gerðý ísbræðir fyrir bílrúður Hleðslutæki, 4 og 7 amper Geymasambond Startkaplar Fjölmargar gerðir af gúmmímottum íssköfur, margar gerðir Dekkbroddar, skyndikeðjur, 3 gerðir i Fást á bensínstöðvum Shell Olíufélagið Skeljungur hf Heildsölubirgðir: Ollufólagið Skeljungur. 0|__|| Smávörudeild Oneil . Simi 81722 Glæsilegar veitingar. í Blómasal bjóðast veisluréttirog Ijúfar veitingar. Reynið kræs- ingarkalda borðsinsí hádeginu. í Veitingabúð færðu allskonar rétti á hóflegu verði. , ; K.i ; X, '! £ Stærsta og fullkomnasta hótel landsins, býðuryður þjónustu slna. 217 vel búin og þægileg herbergi, öll með baði, síma og sjónvarpstengingu. Hérerfullkomin funda- og ráðstefnu aðstaða. Fyrir fámenna fundi sem fjölþjóða ráðstefnur. í hótelinu er rekin fjölþætt þjónustustarfsemi. ’ Sundlaug og gufuböð, rakarastofa, hárgreiðslu- og snyrtistofur. Einnig verslun, ferðaþjónusta og bílaleiga er við hóteldyrnar. Heill heimur útaf fyrir sig. Er hægt að hugsa sér það þægilegra? Verið velkomin HÓTEL LOFTLEIÐIR Reykjavíkurflugvelli Sími: 22322

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.