Íslendingur - 08.10.1980, Side 5
Höfundar bókarinnar Anders Hansen og Hreinn Loftsson.
Valdatafl í Valhöll
Innan skamms mun koma út hjá
Bókaútgáfunni Erni og örlygi í
Reykjavík bókin Valdatafl í
Valhöll, en margir hafa spáð því
að hún muni verða ein mest
seldu bókanna í ár, ef ekki
metsölubók. Bókin fjallar um
deilurnar í Sjálfstæðisflokknum
undanfarna áratugi, og er eink-
um greint frá orsökum og
aðdraganda þeirra deilna er
urðu til þess að ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen var mynd
uð í febrúarmánuði síðast liðn-
um.
Bókin mun verða um 300
blaðsíður að stærð, prýdd mikl-
um fjölda nýrra og gamalla
mynda. Höfundar eru tveir
ungir blaðamenn, þeir Anders
Hansen, sem lengi var kennari
við Gagnfræðaskólann hér á
Akureyri og Hreinn Loftsson.
í bókinni Valdatafl í Valhöll
munu verða fjölmargar upplýs-
ingar sem aldrei fyrr hafa komið
fyrir almenningssjónir, og þar
verður að finna margt er fólki
mun koma mjög á óvart. Á það
bæði við um málefni Sjálfstæðis
flokksins sem málefni annarra
stjórnmálaflokka. Höfundar
hafa víða leitað fanga, svo sem í
fundargerðum félaga, fyrir-
tækja og stjórnmálaflokka, þeir
hafa haft aðgang að dagbókum
fjölmargra manna, og síðast en
ekki síst hafa þeir rætt við nær
70 manns til að afla upplýs-
inga. Fréttatilkynning.
Innilegt þakklæti færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
GUÐLAUGAR RÖGNVALDSDÓTTUR
frá Dæli.
Þökkum sérstaklega Sjálfsbjörg og starfsfólki og
læknum á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri fyrir
veitta aðstoð og umönnun á liðnum árum.
Ingib/örg Arnadóttir og systkinin.
AKUREYRARÐÆR
AUGLÝSIR
Frá
Félagsmálastofnun Akureyrar
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir að
komast í samband við fólk sem vildi vinna
nokkra tíma á dag við að líta til aldraðs fólks í
heimahúsum. Vinsamlegast hringið í síma 25880
kl. 10-12 alla virka daga.
Félagsmálastjóri.
f Golffélagar G.A.
Árshátíð klúbbsins er ákveðin laugardaginn 18.
október kl. 7.30.
Heitur matur og góð skemmtiatriði.
%
Þeir sem viljaverameðskrifi sig í Sport og Hljóð-
færaverslun eða hringi í Jónínu í síma 21250,
fyrir þriðjudaginn 14. október.
Skemmtinefnd.
r
Bfllútaf
T orfunefsbry ggju
Þeir sem í bíbmm voru stuppu ómeiddir
MUNIÐ
BÍLBELTIN
JMFERÐARRAD
Nýjar bækur
Framhald af t>ls. ð.
Baalsrud (Eftirlýstur af Gesta-
poþ - Arbeiderbladet.
I fremstu víglínu er 5. bókin í
bókaflokknum Hetjudáðir.
Þetta eru sannar frásagnir af
hetjudáðum og karlmennsku í
seinni heimsstyrjöldinni.
Stöðugt í lífshættu er ný bók
eftir metsöluhöfundinn Gavin
Lyall. Áður eru komnar út á
íslensku 6 bækur eftir hann.
Sönn ást ný ástarsaga eftir
höfundinn vinsæla Bodil Fors-
berg. Þetta er 12. bókin, sem út
kemur hjá Hörpuútgáfunni eftir
þennan höfund.
Skothríð úr launsátri eftir
Francis Clifford lýsir atburðum
þegar sendiráðsmaður hélt 100
manns í gíslingu í hóteli í
London.
Ást og eldur eftir Erling
Poulsen er 5. bókin í flokknum
Rauðu ástarsögurnar.
Á sunnudagskvöldið kl. 21.48
fór bifreið með tveim farþegum
út af Torfunefsbryggju. Tildrög
voru þau að ökumaður bifreið-
arinnar ásamt einum farþega
höfðu brugðið sér út úr bifreið-
inni en á meðan hafði farþegi í
framsæti rekið sig í sjálfskipti-
stöng með þeim afleiðingum að
bifreiðin fór aftur á bak út af
Aðfaranótt s.l. sunnudags var
brotist inn í flugstöðvarbygg-
inguna á Akureyrarflugvelli og
þaðan stolið rúmlega 8 hundruð
þúsund krónum.
Að sögn lögreglunnar á Ak-
ureyri fékk hún tilkynningu um
innbrotið á sunnudagsmorgun
kl. 10.45. Farið hafði verið í
skáp á staðnum og stolið kr.
bryggjunni en kantur á bryggju
er brotinn þar sem óhappið
varð.
Þegar lögreglan kom á stað-
inn höfðu farþegarnir báðir
komist út úr bílnum og voru
komnir upp á bryggju ómeiddir.
Bílnum var síðan náð úrsjónum
og er hann talsvert skemmdur.
813.980.- Meira af peningum
var þarna en voru ósnertir.
Málið upplýstist fljótlega eða
strax á sunnudaginn. Grunur
beindist strax að ákveðnum
einstaklingi sem sést hafði á ferli
við flugstöðvarbygginguna.
Hafði viðkomandi farið inn um
glugga á byggingunni og verið
undir áhrifum áfengis.
Innbrot á
Akureyrarflugyelli
á nýju krónunni
Bæklingur á hvern bæ
Þcssa dagana er verið að scnda inn á hvcrt
heimili í landinu upplýsingabækling sem Seðla-
bankinn hefur látið gera um gjaldmiðilsbreyt-
inguna.
Bæklingur þessi, sem er hinn aðgengilegasti,
leitast við að svara skilmerkilega öllum þeim
spurningum sem brýnt er að allir kunni svör við
þegar nýja krónan tekur gildi 1. janúar næst-
komandi.
Nauósynleg lesning
-því fyrr, því betra
Hér gefst því kjörið tækifæri fyrir alla lands-
menn, fjölskyldur sem einstaklinga, að kynna sér
efni bæklingsins til hlítar í góðu tómi heima við
og endurlesa eftir því sent nær dregur breyting-
unni. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Geymið á vísum stað
Munið að hafa bæklinginn góða alltaf á
vísum stað þar sem allir geta gengið að honum
eftir þörfum. Oll þurfum við að vera klár á nýju
krónunni þegar hún tekur gildi. Ekki satt?
Bæklingur á ensku og dönsku
Bæklingur í enskri og danskri útgáfu verður
fáanlegur fyrir þá sem þess óska.
Ýtarlegri bæklingur
fyrir fyrirtæki
Ytarlegri bæklingur sem miðaður ersérstak-
lega við þarfir fyrirtækja og stofnana er einnig
til reiðu og fæst gegn pöntun í bönkum og spari-
sjóðum.
minni upphæðir-meira verðgildi
ÍSLENDINGUR - 5