Íslendingur - 08.10.1980, Síða 7
Nanna Þórhallsdóttir er nemi í húsgagnasmíði.
Heilsugæslustöð og
elliheimilisbygging
í Ólafsfirði
Tekið í notkun að hluta fyrir lok nœsta árs
Hið nýja verkstæði Valsmíði að Frostagötu 6c.
vinnuaðstöðu svo nú hefur
verulega rýmkast um. Þá er á
döfinni að bæta vélakost á
næstu mánuðum og kemur þá
m.a. spónlagningapressa o.fl.
Harðnandi samkeppni kvað
Jónas vera á innréttingamark-
aðnum og hefði innflutningur
innréttinga aukist um 80% frá
því á sama tíma í fyrra og er þá
einkum um innflutning frá
Noregi og Danmörku að ræða.
Þó kvað hann fyrirtækið vel
samkeppnisfært bæði hvaðverð
og gæði snerti enda virtist hin
erlenda framleiðsla fara að
mestu á Reykjavíkursvæðið.
Valsmíði s.f. annast grunn-
teikningar og útlitsteikningar af
innréttingum og gerir verð-
tilboð viðskiptavinum að kostn-
aðarlausu og er reynt að fara að
óskum þeirra hvað útlit og
viðarval varðar. Næg verkefni
eru nú framundan hjá fyrirtæk-
inu og er Jónas bjartsýnn á
framtíðina þótt nú virtist nokk-
uð þröngt um fjárhag hjá fólki
um sinn.
Guðmundur við vinnu.
Slysum í umferðinni fer fjölgandi
Hvað er til varnar? Á að lögleiða notkun bílbelta?
Laugardaginn 27. sept. s.l. var húsinu á Akureyri og var þar og tii hvaða ráða ætti að grípa í
haidinn fundur í Sjálfstæðis- fjallað um öryggi í umferðinni því sambandi. Til fundarins
mættu m.a. Ólafur Ólafsson,
landlæknir og Rune Andreas-
son, ráðgjafi hjá Heilbrigðis-
stofnun Sameinuðu Þjóðanna.
í máli Rune Andreasson á
fundinum kom fram að hann
teldi það ótvíræðan kost að
lögleiða notkun bílbelta. Alls
staðar þar sem það hefði verið
gert hefði verulega dregið úr
slysum. Áróðurinn einn dygði
ekki og þetta væri þeim mun
brýnna hér á landi þar sem
umferðaslysum fer hér fjölgandi
gagnstætt því sem gerist á
hinum Norðurlöndunum. Að
sögn Andreasson duga bílbeltin
þó aðeins upp að vissum hraða
ökutækisins en þegar hraðinn
væri kominn upp fyrir viss mörk
væri ekkert til bjargar. Lög um
notkun bílbelta duga þó
skammt nema þeim sé fylgt eftir
með refsingu ef brotin eru.
Andreasson taldi að læknar
væru yfirleitt mjög hlynntir
bílbeltum en það væru stjórn-
málamanna að taka ákvörðun.
Hann gat þess að í Svíþjóð
hefðu miklar umræður farið
fram áður en ákvörðunin var
tekin um að lögleiða notkun
bílbelta en eftir að það hefði
verið samþykkt hefði ekki
heyrst gagnrýnisrödd.
Undanfarin ár hefur elliheimili
og heilsugæslustöð verið í bygg-
ingu í Ólafsfirði. f ágúst s.l. var
lokaáfangi byggingarinnar boð-
inn út en byggingin er nú tilbúin
undir tréverk og hefur staðið
svo nú í nærfellt eitt ár.
Eitt tilboð barst í loka-
áfangann frá Tréver h.f. Ólafs-
firði og var tilborðsupphæðin
kr. 284.149.850.-. Fyrsta hluta
lokaáfanga skal skila 1. október
1981 og er það sjúkra og
elliheimilishlutinn. Síðari hluti
verksins sem er frágangur
Heilsugæslu og þjónustumið-
stöðvar skal skilað 1. júní 1982.
Samkvæmt fjárlögum 1980er
ríkisframlag til byggingarinnar
á þessu- ári 90 milljónir.
Að sögn Péturs Más jóns-
sonar, bæjarstjóra, er gert ráð
fyrir að 17 vistmenn geti dvalið
á elliheimilinu en það er til
marks um þörfina að um 25
hafa þegar sótt um vist þar. Nú
munu liðin um 14 ár síðan fyrst
var tekið til við byggingu þessa
mikla húss í Ólafsfirði og sjá
menn nú fram á að húsið verði
að hluta tekið í notkun fyrir lok
næsta árs.
Sigurður Jóhannesson, Siggi skó, er einn þeirra sem bíður með
óþreyju eftir nýja dvalarheimiiinu.
ÍSLENDINGUR - 7