Íslendingur - 08.10.1980, Side 8
Fímmta helgarskákmótið
verður á Akureyri
Margir snjöllustu skákmenn okkar meðal þátttakenda
Fimmta helgarskákmót Tíma-
ritsins „Skák“ og Skáksam-
bands íslands verður haldið á
Akureyri 10.-12. október n.k.
Mótið hefst föstudaginn 10.
október kl. 14 að Hótel KEA og
mun forseti bæjarstjórnar Ak-
ureyrar væntanlega setja mótið
og sú hefð hefur komist á að
sýslumaður á hverjum stað
leikur fyrsta leikinn.
Búist er við mikilli þátttöku
- þannig að þetta verður væntan
lega fjölmennasta helgarskák-
mótið til þessa. Meðal þátt-
takenda verða margir snjöllustu
skákmeistarar þjóðarinnar en
öllum er frjálst að taka þátt í
mótinu. Sex umferðir verða
telfdar, tvær hvern dag og er
umhugsunartími 1 /2 klst. fyrir
fyrstu 30 leikina og síðan
hálftími til að ljúka við skákina.
Fyrsta umferðin hefst kl.
rúmlega 14 á föstudag og önnur
umferð kl. 20. Á laugardag
verður 3. umferð tefld kl. 8.30
og4. umferðkl. 14,síðanverður
5. umferð tefld kl. 8.30 á
sunnudagsmorgun og 6. og
síðasta umferð kl. 14.
Mótinu lýkur síðan með
kvöldverðaboði Bæjarstjórnar
Akureyrar og verðlaunaafhend-
ingu.
Þau fjögur mót sem þegar
hafa verið haldin fóru fram í
Keflavík þar sem Helgi Ólafs-
son, Friðrik Ólafsson, og
Margeir Pétursson urðu efstir
og jafnir. f Borgarnesi varð
Guðmundur Sigurjónsson efst-
ur en Helgi Ólafsson og Jón L.
Árnason í öðru. Á mótinu á
ísafirði urðu Helgi og Friðrik
efstir en á Húsavík Helgi
Ólafsson.
Þegar er ákveðið, að sögn
Jóhanns Þóris, ritstjóra „Skák“
að halda slík helgarskákmót á
Neskaupstað, Vík í Mýrdal og
Vestmannaeyjum og verið að
athuga möguleika á mótum á
Blönduósi eða Sauðárkróki og
Kópavogi.
Mótin hafa orðið mjög vinsæl
og þótt menningarviðburðir þar
sem þau hafa verið haldin og er
þetta í fyrsta skipti sem skák-
menn úti á landsbyggðinni fá
tækifæri til að tefla við snjöll-
ustu skákmenn þjóðarinnar.
Frá skákmótinu á ísafirði.
LÍFEYRISSJÓÐUR
TRÉSMIÐA
Sjóðfélagar
Lánsumsóknum þarf að skila fyrir 15. okt. n.k.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofu sjóðsins að Ráðhústorgi 3.
Stjórn Lífeyrissjóðs trésmiða.
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags
Akureyrar
verður haldinn mánudaginn 13. október ki. k!U.30
í Sjálfstæðishúsinu Akureyri.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Rafmagnsorgel
Margar gerðir
m
lUNÁBÚÐtN
Simi 22111
Við erum klárir
SNJÓDEKK
fyrir veturinn - Kaupið það besta
• Bridgestone snjódekk • Neglum gömul dekk.
• Good Year snjódekk • Hvítir hringir.
• Sóluð dekk. • Vörubíladekk.
íslensk og amerísk
Bflaþjónustan
Tryggvabraut 14
Dekkaverkstæði - Símar 21715 og 23515
Nýjar bækur
frá Hörpuútgáfunni
Ný blanda úr Borgarfirði og sjö
aðrar nýjar bækur eru væntan-
legar í íiaust frá Hörpuútgáf-
unni á Akranesi.
„Á árunum fyrir og eftir 1960
voru tveir fréttaritarar Morgun-
blaðsins frægastir fyrir frétta-
skeyti sín. Það voru Oddur
Sveinsson á Akranesi og Regína
Thorarensen á Gjögri. . . “
Þannig byrjar einn kaflinn í
fjórðu bókinni af Borgfirzkri
blöndu sem væntanleg er á
markaðinn í haust. í þessum
þætti er greint frá lífshlaupi hins
sérstæða fréttaritara Odds
Sveinssonar og litríkum æviferli
hans. Birtar eru margar af eftir-
minnilegustu fréttum hans,
einnig myndir. Líklegt er að
mörgum komi á óvart að lesa
um hið ævintýrlega líf hans.
I þessari nýju Blöndu eru auk
þess fleiri þættir af skemmtilegu
og sérstæðu fólki, gamansögur,
'gamanvísur og skopkvæði,
einnig þjóðlífsþættir, frásagnir
af slysförum, draumum og
sagnaþættir. - Bragi Þórðarson
bókaútgefandi á Akranesi hefur
safnað efninu í þessa fjórðu bók
eins og hinar fyrri og sjálfur
skráð hluta af því eftir frásögn-
um fólks og samtíma heimild-
um. Meðal annarrasemeiga þar
efni eru: Andrés Eyjólfsson í
Síðumúla, Björn Jakobsson, frá
Varmalæk, séra Brynjólfur
Gíslason í Stafholti, Gísli Sig-
urðsson Akranesi, Guðmundur
Brynjólfsson á Hrafnabjörgum,
Karl Benediktsson á Akranesi,
Kjartan Bergmann Guðjónsson
frá Flóðatanga, Magnús Sveins
son frá Hvítsstöðum, Sigurður
Jónsson í Tryggvaskála, Sig-
urður Guðmundsson frá Kols-
stöðum, Sveinbiörn Beinteins-
son á Draghmsi, Þorsteinn
Guðmundsson á Skálpastöð-
um, Þorvaldur Þorkelsson frá
Lundi.
Stuðlamál - safn af kvæðum
og rímum eftir Einar Beinteins-
son skáld frá Draghálsi. Einar
var fæddur í Grafardal 5.
febrúar 1910, en andaðist í júlí-
mánuði 1978. Hann var sonur
hjónanna Beinteins Einarsson-
ar og Helgu Pétursdóttur. Það
vekur athygli að fimm systkini á
þessum afskekkta bæ hafa öll
orðið afburða rímsnillingar.
Þau eru auk Einars: Halldóra,
Sigríður, Sveinbjörn og Pétpr.
Fæst af kvæðunum í þessari bók
hefur áður verið birt á prenti.
Þegar neyðin er stærst eftir
Asbjörn öksendal. Þetta er
sönn frásögn af flótta úr þræla-
búðum Nazista í Noregi yfir til
Svíþjóðar. Ummæli norskra
blaða um þessa bók eru öll á
sama veg:
„Frásögn öksendals afþræla
búðunum og flóttanum er engu
öðru lík. Hún er svo spenn-
andi að við stöndum bókstaf-
lega á öndinni.“ - VÁrt land:
„Bók í sérflokki. Aðeins ein bók
um hliðstætt efni er sambærileg
og það er bókin um Jan
Framhald á bls. 5.
8 - ÍSLENDINGUR