Íslendingur - 08.10.1980, Side 10
Iþróttir
Umsjónarmenn:
RAGNAR ÞORVALDSSON
EINAR PÁLMI ÁRNASON
Sigurlið Dagsbrúnar.
Ungmennafélagið Dagsbrún sigraði
í EyjaQarðarmótinu 1980
Ungmennafélagið Dagsbrún,
Glæsibæjarhreppi varð sigur-
vegari í Eyjafjarðarmótinu
1980. Liðið sigraði alla and-
stæðinga sína í b-riðli keppn-
innar og lék til úrslita gegn
Árroðanum Öngulstaðahreppi,
en það lið sigraði hinn riðil
keppninnar í ár. Ekki dugði
einn leikur til að útkljá mótið,
fyrst skildu liðin jöfn 1-1, en er
reynt var að nýju sigruðu
Dagsbrúnarmenn 2-1. Mörk
sigurliðsins skoruðu Hafþór
Sigurgeirsson og Zóphanías
Árnason, en mark Árroðans
skoraði örn Tryggvason úr
vítaspyrnu. Meðfylgjandi mynd
er af sigurvegurunum ásamt
þjálfara liðsins Þresti Guðjóns-
syni.
Þá er túni
Trölladyngjujötnanna
runninn upp
Guðmundur Sigurðsson heimsœkir
akureyska lyftingamenn.
Við svitnum og okkur hitnar
með kólnandi veðri énda styttist
í metaregn vetrarins. Þetta gæti
allt eins verið mottó akureyskra
lyftingamanna sem nú eru í óða
önn að búa sig undir átök
vetrarins. Þetta merkir þó ekki
að jötnarnir úr Trölladyngju
hafi setið aðgerðarlausir í allt
sumar, nei ekki aldeilis, þeir
hafa æft uppá hvern einasta dag
og eru tonnin eflaust nokkur
sem lyft hefur verið.
Nú tekur hinsvegar alvaran
við og hafa þeir félagar nú
fengið þekktasta lyftingamann
okkar Tslendinga sér til leið-
beiningar, Ármenninginn Guð-
mund Sigurðsson. Guðmundur
sem er núverandi Norðurlanda-
meistari dvelur hér í vikutíma.
Þótt ekki sé tíminn lengri
munum við eflaust ná út úr
honum eins miklu og hægt er
þar sem Guðmundur er sá besti
og um leið mest reyndasti
lyftingamaður sem völ er á hér á
Islandi, sagði Bernharð Haralds
son formaður Lyftingaráðs Ak-
ureyrar. Aðspurður um hvað
framundan væri tjáði Bernharð
okkur að næsta stórmót væri
Norðurlandamót unglinga sem
fram fer í Reykjavík dagana 1-2
nóvember næstkomandi. Þá
styttist í Grétarsmótið þar sem
keppt er í kraftlyftingum og má
þar búast við mörgum þekktum
nöfnum sagði Bernharð að
lokum.
Körfuknattleiksdeild Þórs
Æfíngatafla:
Mánudaga.
4. fl. kl. 4.00 (íþróttahús Glerárskóla)
M.fl. kl. 9.00 (Iþróttahús Glerárskóla)
Þriðjudaga.
3. fl. kl. 10.00 (íþróttahúsi Glerárskóla)
M.fl. kl. 6.30 (Skemman)
Miðvikudaga.
Minibolti kl. 3 (íþróttahúsi Glerárskóla)
M.fl. kl. 10.00 (Skemman)
Fimmtudaga.
M.fl. kl. 9.00 (íþróttahús Glerárskóla)
Föstudaga.
4. fl. kl. 2.45 (íþróttahúsi Glerárskóla)
3. fl. kl. 3.45 (íþróttahúsi Glerárskóla)
M.fl. kl. 7.00 (Skemman)
Gary Schwartz þjálfar alla ’lokka.
Guðmundur Sigurðsson í hópi akureyriskra jötna.
SEPTEMBER - SEPTEMBER - SEPTEMBER - SEPTEMBER - SEPTEMBER -
Sporthúydhf íslendingur ^porthú^idw íslendingur
íþróttamaður- mánaðarins:
Oskar Ingimundarson
Óskar Ingimundarson markaskorarinn mikli úr KA
hefur verið kjörinn íþróttamaður mánaðarins. Iseptem-
ber varð Ijóst að lið hans hafði sigrað með glæsibrag
aðra deild íslandsmótsins í knattspyrnu og um leið sett
nýtt stiga og markamet eftir að íjölgun liða í deildinni
átti sér stað. Þáttur Óskars í þessari velgengni er stór, af
61 marki KA gerði Óskar hvorki meira né minna en 21
eða rúmlega þriðjung marka liðsins. Auk þessa gerði
hann fjölda annara marka hvort heldur var í æfingaleikj-
um, bikarkeppni K.R.A. eða bikarkeppni K.S.Í. Óskar
gerði fleiri mörk en nokkur annar leikmaður hvort
heldur er í fyrstu eða annarri deild og má því með sanni
segja að hann sé ókríndur markakóngur 1980.
A meðfylgjandi mynd má sjá er einn af eldri
markaskorurum KA Sigbjörn Gunnarsson afhendir
þeim nýbakaða skó að eigin vali úr verslun sinni
SPORTHÚSINU.
10 - ÍSLENDINGUR