Íslendingur


Íslendingur - 30.05.1985, Blaðsíða 1

Íslendingur - 30.05.1985, Blaðsíða 1
20. TBL. 70 ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985__________________AKUREYRI Mœlar í fjölbýlishús Við þá breytingu, sem mun verða á sölufyrirkomuiagi Hita- veitu Akureyrar 1. júlí nk„ þegar menn fara að borga eftir mæli en ekki hemli, hefur eitt áhyggjuefni veriö ofarlega í hugum þeirra, sem búa í fjöl- býhshúsum. Það er að einungis einn mælir er fyrir heila blokk eða heilan stigagang og ómögu- legt er að átta sig á því hve mikið vatn er notað í hverri íbúð. Þetta er fyrirsjáanlegt misklíðarefni í fjölbýlishúsum. Nú hefur verið bent á lausn á þessum vanda. í erindi sem Wil- helm V. Steindórsson, hitaveitu- stjóri, hélt á vetrarfundi Sam- bands íslenskra hitaveitna, benti hann á varmahlutföllunarmæla, til að mæla notkun íbúða í fjöl- býlishúsum. Fyrirtækið Indus flytur inn slíka mæla og Hiti hf. hefur umboð fyrir þá á Akur- eyri. „Þetta eru uppgufunar- mælar,” sagði Friðrik Jónsson, framkvæmdastjóri Indus. „Þeir eru byggðir þannig upp að inní þeim er vökvi sem hefur ákveðinn uppgufunarhraða eftir hita, sem hann skynjar. Það er síðan óh'kur kvarði í mælunum eftir stærð ofnanna. Mælamir taka einnig tillit til þess hvar íbúðin er staðsett í húsinu, hvort hún er heit eða köld. Mælamir mæla hlutfallslega notkun hvers ofns í heildarkerfi hvers rennslis- mælis. Þessir mælar eru notaðir í allflestum fjölbýlishúsum í Dan- mörku. Reynsla Dananna hefur verið sú að orkunotkun í þeim húsum, þar sem þessir mælar hafa verið settir upp, hefur minnkað um 25%. Einnig hafa svona mælar verið lögleiddir í Þýskalandi. Friðrik sagði að þessir mælar mældu aðeins skiptinguna á hitanum, en samkvæmt stöðlum væri hitanotkun um 90% af heildarvatnsnotkun íbúðar. Neysluvatnið væri að jafnaði á bilinu 8-12%. Það væri ekkert því til fyrirstöðu að mæla neysluvatnið líka en þá þyrfti að komast að lögninni. Friðrik sagði að áskilið væri frá framleiðendum að hann sæi um uppsetningu á mælunum að undangenginni mælingu á ofna- kerfunum. Gengið væri frá þeim innsigluðum og ekkert ætti að geta haft áhrif á þá. Lesið yrði af mælunum einu sinni á ári. Friðrik sagði að hann yrði staddur á Akureyri 8. og 9. júní og þá væri ákaflega gott að menn heföu samband viö sig. ef m þeir vildu taka þessa mæla. Hver mælir myndi kosta 265 krónur með uppsetningu og kostnaðurinn á meðalíbúð yrði í kringum 1600krónur. „Svona mælar eru eini mögu- leikinn á því að skipta orku- kostnaðinum í fjölbýlishúsum eftir notkun hvers og eins,” sagði Friðrik. GHF V amiahlutfollunarmælir Hundadagahátíð á Akureyrí í sumar Um s.l. helgi hélt Myndalistaskólinn á Akureyri yfirlitssýningu sem var mjög vel sótt að sögn Helga Vilberg skólastjóra. Þetta var ein nivndin á sýningunni Undirbúningur er kominn í full- an gang fyrir hundadagahátíð hér á Akureyri nú í sumar. Haraldur Ingi Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Þessi hátíð er beint framhald af karnivalinu, sem hér var í fyrra. Fyrirhugað er að hátíðin verði frá 8.-14. júlí. Haraldur tjáði íslendingi að búið væri að tryggja bakábyrgð bæjarins og fyrirtækja hér í bænum og heföi hátíðin mætt miklum skilningi. Um þetta hátíðahald sameinuðust ýmsir þjónustuaðilar, einstaklingar og aðilar úr ferðamannaiðnaði. Fyrirhugað er að sækja sem mest til bæjarbúa sjálfra með skemmtiefni á þessa hátíð, á sviði íþróttamála, menningar- mála og í skemmtanaiðnaöi. 8. júlí er mánudagur og þá hefst hátíðin og verða alla þá viku íþróttaviðburðir. uppákom- ur af öllu tæi og ýmislegt á vegum klúbba og félaga á Akur- eyri. Um helgina verður sett upp gleðigríma og verður söngur. dans og grin á útihátíð á svæði fyrir neðan Samkomuhúsið og í öllum veitingahúsum bæjarins. Haraldur sagði að ýmsar hug- myndir væru þegar komnar fram um það, sem fram gæti farið. Ein væri að endurtaka bikarleikinn frá 1969 með sömu leikmönnum og dómara á milli ÍA og ÍBA. Þessari hugmynd heföi verið vel tekið meðal ÍBA manna og á Akranesi. Önnur væri að sleppa laxi og silungi í tjömina við Drottningarbrautina og selja veiðileyfi. Það væri tæknilega framkvæmanlegt. Einnig myndi hátíðin að líkind- um reka útvarpsstöð. Áætlað væri að mikil skrúðganga yrði á laugardaginn og skrautsýning. Hópar yröu stofnaöir til að undirbúa gönguna. Námskeið yrðu haldin í búningágerð. Stjómstöð og skrifstofa mun verða opnuð í gamla bama- skólanum sunnan við Sam- komuhúsið allra næstu daga. Þangað til geta þeir. sem áhuga hafa haft samband við Harald Inga Haraldsson. framkvæmda- stjóra hátíðarinnar. í síma 23880. Samherji bjóða Útgerðarfélagið Samheiji og Jón Friöjónsson og fleiri hafa gert tilboð í Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Samningavið- ræður munu hefjast fljótlega. Ekki er fyrirhuguð nein breyting á rekstri Samheija eða Akureyrinnar. Að sögn Einars I. Halldórs- sonar, bæjarstjóra í Hafnar- firöi, hljóðar þetta tilboð upp á 270,4 milljónir. Skuldir að upphæð um 200 milljónir yrðu yfirteknar og 70 milljón- ir yrðu greiddar á skuldabréfi til 10 ára. Á þriðjudagskvöld heföi bæjarstjóm Hafnar- fjarðar ákveðið að fela sér að hefja viðræður við þessa aðila á gmndvelli þessa tilboðs. Samheiji og fleiri bjóða í tvo togara og frystihúsið. Fyrirhugað mun vera, ef af þessu verður, að breyta Apríl í frystiskip og skipta um vél í Maí. Það mun einnig vera • • ogi ÍBUH áformað, að sögn bæjarstjór- ans, að breyta fiystihúsinu og vinnslunni þar með. Hann reiknaði með að samninga- viðræður hæfust á næstu dögum, þegar lokið væri ýmis konar forvinnu. „Það eru engar breytingar fyrirhugaðar á rekstri Sam- heija og Akureyrinnar,” sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samheija hf. „Samheiji er og verður fyrirtæki á Akureyri.” Þor- steinn sagði aö ef af þessum samningum yrði, yrði stofnað nýtt hlutafélag um þennan rekstur í Hafnarfirði. Þeir legðu fram þetta tilboð með fullum vilja og í þeirri trú að fyrirtækið gæti gengið, en það væri hins vegar alls ekki ljóst, hvort lánadrottnar væru tilbúnir að útvega þeim fjár- magn í þessa starfsemi. GHF Slippstöðin semur við fyrirtœki í Kanada Sl. föstudag náðust samningar á milli Slippstöðvarinnar hf.. Akureyri og útgerðarfyrirtækis í Kanada um breytingu á tveimur togurum. Þetta er verkefni upp á 60 milljónir króna. Að sögn Gunnars Ragnars er þetta fyrsti meiriháttar samningurinn, sem íslensk skipasmíðastöð gerir við erlent fyrirtæki urn svona verk- efni. Samningurinn er veruleg lyftistöng fyrir skipasmíðaiönað- inn á Akureyri. Gunnar Ragnars, fram- kvæmdastjóri Slippstöövarinnar, sagði að samiö heföi veriö um breytingar á tveimur skipum. Þeim ætti að breyta þannig í lest að í stað kvía fyrir ís yrðu settar innréttingar fyrir kassa. Þessi samningur hljóðaði upp á um 60 milljónir íslenskra króna og það mætti eiga von á framhaldi á þessum viðskiptum, því aö fyrir- tækið ætti fleiri togara, sem þyrfti að breyta. Fyrri togarinn kæmi seinni hluta september mánaðar og yrði fram að ára- mótum og sá seinni kæmi um miöjan október og yrði fram í lok janúar. „Ég er ár.ægður með þessa samninga,” sagði Gunnar. ..Viö höfum ekki samiö mikið erlend- is. Ég tel aö það sé fyrst og fremst tæknileg reynsla. sem er ástæðan til þess að við fáum þetta tilboð frá Kanadamönn- unum. Þeir völdu okkur úr stór- um hópi annarra skipasmiða- stööva." Gunnar sagði að þegar þeir heföu verið búnir að skoða fjölmörg tilboð heföu þeir komist að þeirri niöurstöðu að Slippstöðin byði best. Skipasmíðar í Kanada eru ríkisstyrktar en hafa gengið brösuglega að söng Gunnars Þetta væri fyrsti meiriháttar samningur íslenskrar skipa- smíðastöðvar við erlent fyrir- úgki. qhf Hermirinn kemur? í máli Helga Bergs á bæjar- stjómarfundi sl. þriöjudag kom fram að íjármálaráðherra hefur lýst sig reiðubúinn til þess aö fella niður söluskatt og að- flutningsgjold af herminum til Verkmenntaskólans. Hann hefur þegar ritað bréf til menntamála- ráðherra, þar sem hann lýsir þessum vilja sínum. Búist er við því að síðar í þessari viku veröi málið afgreitt frá menntamála- ráðuneytinu.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.