Íslendingur - Ísafold - 30.12.1970, Síða 2
I fSLENDINGUR-ISAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 50. DES. IfTO.
Rannsóknir á stríði og friði
Fyrri heimsstyrjöld leiddi í
ljós, að styrjaldir voru ekki
lengur fólgnar í því einu, að
vopnaðar hersveitir ættust við,
heldur voru þær orðnar ,,al-
gerar“, þ .e. a. s. þær vörðuðu
alla íbúa hlutaðeigandi landa.
Seinni heimsstyrjöld bætti við
nýrri vídd með því að virkja
kjarnorkuvopnin, og hið algera
stríð er nú komið á lokastigið
— orðið að gereyðingarstríði.
Þetta er hinn brýni vandi
samtímans: Stríðið er orðið
fullkomlega óbærilegt og ó-
hugsandi, en sambandið landa
á milli, hið alþjóðlega kerfi,
hefur haldizt óbreytt. Við bú-
um enn við fullvalda ríki, sem
leita öryggis með því að efla
hernaðarmátt sinn og hyggjast
tryggja friðin nmeð „ógnun-
um“ og „jafnvægi óttans“, þ.
e. a. s. hér er í rauninni um að
ræða nýtízku tjáningu hins
gamla viðkvæðis: „Viljirðu
frið, þá búðu þig undir stríð.“
Það er óttinn við hið algera
stríð sem hefur örvað friðar-
rannsóknirnar. Þessar rann-
sóknir eru ræddar í nóvember
hefti UNESCO Courier, tíma-
riti Menningar- og vísinda-
stofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, í gre;n eftir Bert. V. A.
Röling prófessor og framkv.-
stjóra „International Peace Re
search Association“. Óskin
um varðveizlu friðarins á sér
ekki lengur siðgæðislega eða
tilfinningalegar forsendur, —
heldur sprettur hún af engu
öðru en heilbrigðri skynsemi
og dómgreind, segir greinarhöf
undur.
Þess vegna hafa friðarrann-
sóknir eftir seinni heimsstyrj-
öld vakið ört vaxandi áhuga,
og friðarrannsóknarstofnanir
hafa skotið upp kollinum víða
um heim. Jafnframt hafa marg
ar aðrar stofnanir fært út kví-
arnar í því skyni að geta einn-
ig gefið sig að friðarrannsókn-
um.
Röling prófessor skiptir vett
vangi friðarrannsókna í fjögur
afmörkuð svið: 1) stríð, 2) frið
ur, 3) maðurinn, þjóðfélagið
og hið alþjóðlega kerfi, 4) að-
ferðir til að skapa breytingar.
Stríðið
Allt síðan von Clausewitz
samdi verk sitt, „Vom Kriege“,
hefur að verulegu leyti verið
litið á stríð „sem framhald
póiltískrar umræðu meS hern-
aðarlegum úrræðum.“ — Von
Clausewitz kom fram með
kenninguna um stríð sem her-
stjórnarlist. Þveröfugur skiln-
ingur á stríði kemur fram í
skáldverki Leós Tolstoís, —
„Stríð og friður" — sem sé að
stríð sé óæskilegt og óforhugs-
að fyrirbæri, afleiðing af verk-
an blindra þjóðfélagsafla. Eða
með öðrum orðum sagt: í al-
þjóðlegum samgöngum má
segja að Clausewitz líti á stríð
sem vísvitandi ökulag, en Tol-
stoí líti á það sem umferðar-
slys.
Kannski má segja, að hið al-
gera, herfræðilega stríð sé ekki
lengur á dagskrá í alþjóðleg-
um samskiptum. Það á hins
vegar ekki við um algert stríð
af slysni vegna hernaðarlegrar
stigmögnunar í átökum ríkja.
Takmörkuð stríð — hvort sem
þau eru til komin fyrir her-
fræðilega útreikninga eða af
slysni — eru ekki heldur úti-
lokuð, eins og alþjóð er kunn-
ugt. Það er af þeim sökum
sem friðarrannsakendur hafa
lagt svo þunga áherzlu á að
reyna að móta og orða al-
menna kenningu um átök og
árelcstra.
Slík almenn kenning mundi
gera mönnum kleift að sjá fyr-
ir afleiðingar í sama mæli og
menn sjá þær fyrir með hjálp
annarra vísindakenninga. Þeg-
ar allar staðreyndir í sambandi
við tiltekinn árekstur hafa ver
ið kannaðar og metnar, og þró
unin virðist stefna í átt til
styrjaldar, er fræðilegur mögu
leiki að grípa til mótaðgerða
og ráðstafana, sem stöðva þró-
unina áður en í algert óefni er
komið.
Friðurinn
Röling prófessor he'.dur því
fram, að friður sé ekki eðli-
legt ástand. Það liggi í eðli
manna og dýra að vernda hags
muni sína, að bindast hlutum
sem skipta miklu máli og verja
þá með kjafti og lclóm.
Röling heldur því þó ekki
fram, að stríð eigi rætur að
rekja til dýrslegra hvata hjá
manninum. Meðal dýra á sér
sjaldan stað barátta upp á líf
og dauða milli afsprengja
sömu tegundar, og bardagar
milli hópa af sömu tegund eiga
sér aðeins stað meðal manna
og hjá vissum rottutegundum.
Það er því varla vísindalegt að
tala um „dýrslegt" stríð. Það
gerir einnig dýrunum rangt til.
Raymond Aorn slcrifar í
„Stríð og friður meðal þjóða“:
„Vandinn við að varðveita frið
inn er tengdari því mennska en
því dýrslega í manninum . . .
Maðurinn er vera, sem hefur
hæfileika til að velja uppreisn
í stað niðurlægingar og ti! að
meta sannfæringu sína meira
en lífið.“ Þegar þannig er á
málin litið, verður erfitt að
varðveita friðinn.
Staðnaður og lífrænn friður
I friðarrannsóknum er gerð-
ur greinarmunur á stöðnuðum
og lífrænum friði: á friði sem
hefur það eitt að markmiði að
varðveita óbreytt ástand og
friði sem leitar uppi leiðir og
aðferðir til að aðhæfa og
breyta með friðsamlegum
hætti félagslegri gerð stofn-
ana og mannlegra samskipta í
sveitarfélögum, þjóðfélögum
og alþjóðastofnunum. Á breyt
ingatímum, eins og þeim sem
nú ganga yfir, liggur í auaum
uppi, að friður verður því að-
eins varðveittur, að átt geti
sér stað aðlögun að breyling-
um án ofbeldis.
Meðal þeirra þátta friðar-
rannsókna, sem athygh er
beint að, má nefna valdajafn-
vægi, langvarandi friðsamleg
samskipti þjóða, friðargæzlu
Sameinuðu þjóðanna, mála-
miðlun og gerðardóma, og
varnir án ofbeldis.
Annað og ískyggilegt friðar-
vandamál er ójöfn skipting á
auðæfum jarðarinnar og sí-
breikkandi bil milli rílcra þjóða
og fátækra. Tveir þriðju hlut-
ar mannkyns búa við skort, og
það hlýtur að leiða til blóðugra
átaka.
I FRÉTTUM AÐ UTAiM
Vegna vörukönnunar verða sölubúðir vorar
LOKAÐAR
í januar 1970 sem hér segir:
VEFNAÐARVÖRUDEILD JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD Laugardag 2. jan., mánudag
BYGGINGAVÖRUDEILD 4. jan. og þriðjudag 5. jan.
VÉLADEILD Laugardag 2. janúar og
HERRADEILD mánudag 4. janúar. Laugardag 2. jan. og mánudag
SKÖDEILD 4. jan. til kl. 2 e. h. Laugardag 2. janúar.
Kaupfélag Eyfirðinga
Tíl
áskrifenda
Þrátt fyrir hækkandi verðlag, er áskriftarverðið óbreytt
frá fyrra ári, kr. 300.00.
Þeir, sem eiga eftir að greiða áskriftargjald yfirstand-
andi árs, eru vinsamlegast beðnir að gera það nú þegar.
Breytingar á heimilisfangi óskast tilkynntar blaðinu
hið fyrsta.
Íslmdinífut
-Ísuíold