Íslendingur - Ísafold - 28.07.1971, Síða 1
Mendimur-Isnfold
35. tölublað.
Miðvikudagur 28. júlí 1971.
56. og 96. árgangur.
Heybruni á IVIöðruvöllum
Sl. sunnudag kom upp eldur í
stórri heyhlöðu að Möðruvöll-
um í Saurbæjarhreppi í Eyja-
firði. Skemmdist hlaðan tals-
vert svo og hey, sem í henni
var.
Slökkvjliðinu á Akureyri var
tilkynnt um brunann um kl. 15
á sunnudag og hélt það þegar á
staðinn. Þegar þangað var kom-
ið, var hlaðan alelda og þakið
hrunið. Skömmu síðar hrundi
svo annar gafl hennar, en upp
úr jiví tókst síökkviliðinu að
ráða við eldinn, og var hann
slökktur á klukkutíma. — í
hlöðunni voru 400 — 500 hestar
af heyi, sameign þriggja bænda.
I fyrrasumar kom einnig upp
eldur á Möðruvöllum og erfitt
að fá nægilegt vatn til slökkvi-
starfsins. Eftir þá reynslu á-
kváðu bændur að gera úrbætur
á þessu og grófu allstórt lón
þar sem bæjarlækurinn rennur.
Kom þessi framtakssemi sér vel
við slökkvistarfið á sunnudag-
100 Vestfjarðabátar á
handfærum
I júní var tíð yfirleitt hagstæð
til sjósóknar fyrir Vestfjörðum
og afli bátanna dágóður .Fles-
ir stærri línubátanna hófu grá-
lúðuveiðar við Norðurland, þeg
ar kom fram í mánuðinn. Tog-
bátarnir voru einnig mest út af
Norðurlandi. Handfærabálarnir
voru mest á heimamiðum, nema
stærstu bátarnir, sem sóttu suð-
þeir
ur á Breiðafjörð. Fengu
margir ágætan afla.
I júní stunduðu 134 bátar
veiðar frá Vestfjörðum, en í
fyrra voru 174 bátar við veiðar
á sama tíma. Flestir bátarnir
stunduðu handfæraveiðar eða
101 bátur, 10 réru með línu, 15
með botnvörpu og 8 með drag-
nót.
Mjög margir
settir inn
Heildaraflinn í mánuðinum
varð 3.156 lestir, en var 5.013
lestir á sama tíma í fyrra. Er
heildaraflinn á sumarvertíðinni
þá orðinn 4.371 lest, en var
7.500 lestir á sama tíma í fyrra.
Þrír bátar frá Bíldudal stund
uðu rækjuveiðar á Breiðafirði
og við Eldey og nokkrir bátar
frá Bíldudal og ísafirði voru við
hörpudiskaveiðar.
Aflahæsti togbáturinn var
Guðbjörg frá ísafirði með 191
lest í þrem róðrum. Af línubát-
unum var Kristján Guðmunds-
son frá Flateyri aflahæstur með
125 lestir í þrem róðrum og af
færabátunum var Víkingur II.,
Isafirði, aflahæstur, með 38.4
lestir.
ísafjörður var aflahæsta ver-
stöðin með 758 lestir.
Ölvun var talsverð á Akur-
eyri sl. mánudagskvöld og fengu
einir 9 gistingu í steininum
vcgna ölvunar á almannafæri.
Sagði lögreglan blaðinu, að ó-
venjulegt væri að svo margir
gistu þar sömu nóttina. Kunnu
þeir enga slcýringu á þessari ölv
un á mánudagskvöldi.
Lögreglan þarf af og til að
hafa afskipti af íbúum tjaldstæð
isins við Sundlaugina. Ef menn
verða þar uppvísir að ölvun og
óspektum, sér lögreglan um að
þeir yfirgefi tjaldstæðið með sitt
hafurtask, hvort heldur er á
nóttu eða degi. Þó er erfitt fyrir
lögregluna að halda þar uppi
nógu strangri gæzlu á næturna.
Þessi mynd gæti auðveldiega heitir „Sóldýrkendur“, en
hún heitir „Systurnar“ og er eftir Ásinund Sveinsson.
Myndin var gefin Akureyri á 100 ára afmælinu. —
Gefandi var Reykjavíkurborg. — Myndin er neðan
við andapollinn hjá sundlauginni.
Tvö dauðaslys í sl. viku
Mikið hefur verið um dauða-
slys á þessu ári. Á fimmtudag-
inn í síðustu viku beið tíu ára
gamall drengur að Auðbrekku
í Hörgárdal bana, er hann varð
undir dráttarvél, sem hann ók.
Hann hét Bernharður Þórisson,
Valgeirssonar, bónda í Auð-
brekku.
Vciðimenn flengja nú árnar í á kafa.
(Mynd: Sæm.).
Á laugardaginn beið 57 ára
gamall maður bana í bifreiðar-
slysi í Vatnsdal. Hann hét Jón-
as Sigfússon, bóndi að Forsælu
dal í Vatnsdal.
Þá varð 14 ára gamall dreng
ur að Hrísum í Saurbæjarhreppi
undir drúttarvél í síðustu viku
og meiddist svo illa á fæti, að
taka varð fótinn af um hné.
Norðurverk átti
eina tilbobib
í Norðurlandsveg
Fyrir skömmu rann út frest-
ur til að skila tilboðum í lagn-
ingu hraðbrautar frá Höepfners
bryggju að Flugvallarvegi á Ak-
ureyri. Aðeins eitt tilboð barst,
og var það frá Norðurverki hf.
og hljóðaði upp á 20 milljónir
489 þúsund krónur, miðað við
að því yrði lokið 30. nóvemb-
er 1971, eins og tilboðið gerði
ráð fyrir.
Auk þess bauðst Norðurverk
til að taka verkið að sér fyrir
15.5 millj. kr., cf skilafrestur
yrði framlcngdur til 1. júlí 1972.
Vegurinn, sem hér um ræðir,
er um 2 km að lengd og hljóðaði
áætlun vegagerðarinnar upp á
.12 milljónir 475 þúsund kr.