Íslendingur - Ísafold - 28.07.1971, Page 8
8 ÍSLENDINGUR-Í8AFOLÐ - MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLf 1971.
Staldrað við á
Stað í Hrútafirði
Skálinn stækkaður um helming
VINSÆLL ÁNINGAR-
STAÐUR
Eins og ferðalöngum er kunn
ugt, sem fara milli Suður- og
Norðurlands, er Staðarskáli í
Hrútafirði vinsæll áningarstað-
ur. Skálinn er hálfa dagleið frá
Reykjavík og Akureyri. Hann er
síðasti veitingastaður, áður en
lagt er á Holtavörðuheiði að
norðan og þar með sá fyrsti, þeg
ar komið er norður fyrir heið-
ina. Áætlunarbifreiðir, m. a. á
milli Reykjavíkur og Akureyrar,
koma jafnan við í Staðarskála,
svo og fjöldi flutningabifreiða
og einkabifreiða. Á vetrum er og
oft þung færð yfir Holtavörðu-
heiði, og hefur því einnig á þeim
árstíma skapast milcil þörf fyr-
ir veitinga- og gististað þar sem
Staðarskáli er.
• AÐSTAÐA TIL
GISTINGAR
Tíðindamaður íslendings-ísa-
foldar átti nýlega leið um Hrúta
fjörð og var þá sem oftar áð í
Staðarskála. Þar eru nú miklar
byggingaframkvæmdir. í ráði er
að stækka skálann um heiming,
þannig að unnt verði að veita
um 10 manns beina í matsal, en
þar er nú einungis rúm fyrir
40 til 50 manns. í nýbygging-
unni er gert ráð fyrir gistihúsa-
starfsemi (12 — 15 rúm). Þar
verður einnig innkoma, af-
greiðsla, snyrtingar o. fl., ásamt
stækkun á veitingasal. Núver-
andi húsrými verður brevtt í
veitingasal og eldhús. Teikning
hins endurbyggða Staðarskála
er miðuð við að hægt sé að
skipta framkvæmdum í áfanga,
þannig að laga megi húsrýið að
aðstæðum eftir því sem umferð
og viðskipti aukast. Kjallari og
efri gólfplata verða steypt, en
efri hæð og þak reist úr timbri
með léttum skilrúmum, sem
unnt er að færa ti log breyta eft
ir þörfum.
• MIKILL STRAUMUR
FERÐAFÓLKS
Um síðustu helgi, þegar tíð-
indamaður ísl.-ísafoldar átti
leið um, var feikilegur fjöldi
ferðafólks í Staðarskála. Að-
spurðnr kvað Magnús Gíslason,
sem er annar eigenda skálans,
að þetta fólk kæmi að norðan,
sunnan, vestan og austan. Um
pessa helgi virtist þó straumur-
inn mestur norður. Ekki þarf að
efa, að mikil þörf er á að stækka
Staðarskála, bæði vegna legu
hans og lipurlegrar þjónustu.
Akranes vann -
an, inn í vörnina, og reyndar
voru allir bakverðirnir í þessum
leik (Númi, Sigurður og Aðal-
steinn) og þungir fyrir fljóta
sóknarmenn, eins og t. d. Matt-
hías Hallgrímsson. Auk þess
legg ég til, að ungir og upprenn-
andi knattspymumenn fái meira
að koma fram og leysa hina
gömlu smátt og smátt af hólmi.
Eru ekki líkur til þess, að ung-
ir naenn séu í framför, ekki sízt
þeir, sem æfa samvizkusamlega,
•og hinir elztu í afturför, ekki
sízt, ef þeir koma ekki reglu-
lega á æfingar? Og er ekki vont
'•^a þurfa að endurnýja liðið að
1 aeiri hluta, þegar hinir elztu
hætta? Furðulegt var t. d. í leikj
unum við Danina að leyfa ekki
nýjum mönnum að spreyta sig
eða gera tilraunir með stöðu-
breytingar. Hvað t. d. um Bene-
dikt Guðmundsson og Hauk Jó-
hannsson, svo ekki séu fleiri
nefndir? Ætli ungu mennirnir
Sigbjörn, Gunnar og Steinþór
hafi ekki verið beztir í þessum
leik? Og að síðustu: Er ekki
orðið fyllilega tímabært í tæpt
11 þúsund manna bæ að hafa
tvö knattspyrnulið í deildakeppn
inni? Þá mundu færri góð knatt
spyrnumannaefni glatast, af því
að fá sárasjaldan tækifæri til að
vera með í kappleikjum. Og
stóð ekki Þór fyrir sínu í leikn-
um við Víking, topplið 2. deild-
ar og verðandi 1. deildarlið, —
þrátt fyrir slæma byrjun í minn
ingarleiknum á miðvikudaginn?
Þetta ætti knattspyrnuforystan
á Akureyri að athuga og reynd
ar fleira, eins og nú standa sak-
ir.
Leikinn á laugardaginn
dæmdi Einar Hjartarson og
gerði það lengstaf vel, enda
hafði hann aðstoð góðra línu-
varða. — G.
jORÐ DjígSINS
sími
-C£/— =
Vikingur - Þór -
Dómarinn:
Því miður verður að geta
þess, að dómgæzla í þessum
leik var elcki sem bezt. í fyrri
hálfleik, meðan liðin virtust
hafa nóg úthald, kom það ekki
að sök, en í síðari hálfleik, þeg-
ar skapið fór að segja til sín hjá
sumum leikmanna, missti dóm-
arinn algjörlega tökin á leikn-
um, og var jafnvel farinn að
láta annan línuvörðinn um að
dæma. í þessum darraðardans
var aðeins einum manni vísað
af velli, Gunnari Gunnarssyni
hjá Víking, en bæði Guðgeir
Leifsson og Magnús Jónatans-
son hefðu mátt fara sömu leið.
Liðin:
í Víkingsliðinu var Guðgeir
Leifsson langbeztur, sérstaklega
í fyrri hálfleik, og má mikið
vera, ef hann er ekki orðinn
einn okkar bezti knattspyrnu-
maður í dag, einnig var Diðrik-
ur í markinu ágætur.
Hjá Þór bar Magnús Jóna-
tansson höfuð og herðar yfir
aðra, bæði að getu og yfirferð.
Dómari í þessum leik var
Bjarni Bjarnason, línuverðir
Rafn Hjaltalín og Guðmundur
Búason. — B.
Til sölu
OPEL RECORD, árg. 1962.
Góður bíll með nýrri vél. —
Uppl. í síma 21718.
Til sölu
OPEL CARAVAN, árg.
1962, — ódýr.
Upplýsingar í síma 21834
eftir kl. 7 e. h.
Til sölu
TELEFUNKEN RADÍÓ-
FÓNN (Salzburg) í mjög
góðu lagi. Eelst ódýrt.
Uppl. í síma 11234.
Bilar i boöi
TAUNUS 17M, árg. 1966.
Er me ðbilaða vél. — Selst
ódýrt. — Er til sýnis og sölu
á bílaverkstæði Bjarna Sig-
urjónssonar, Kaldbaksgötu.
Sími 21861.
Atvinna
lö ára piltur óskar eftir
vinnu strax.
Margt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 12249
milli ld. 4 og 5 á daginn.
Atvinna
VEGAGERÐ RÍKISINS
óskar eftir járniðnaðar-
mönnum. — Upplýsingar
hjá verkstjóra véladeildar.
t
Otför eiginmanns míns,
GlSLA ÁRNASONAR,
sem andaðist 22. þ. m., fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 27. júlí kl. 13.30.
Rósa Davíðsdðttir.