Íslendingur - Ísafold - 28.07.1971, Blaðsíða 10
1« ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUÐAGUR 28. JÚLl 1971.
Litið við i Dúka-
verksmiðjunni
á Akureyri
Vigfús Jónsson, stofnandi Dúkaverksmiðjunnar.
Dúkaverksmiðjan á Akureyrí er eina fyr-
irtæki sinnar tegundar hér á landí, og hef-
ur verið starfrækt um 20 ára skeið. Því er
á þessa verksmiðju minnst nú, að þegar
hin nýja sútunarverksmiðja Iðunnar var
vígð fyrir skömmu, kom fram, að í verk-
smiðjunni værí rafkynntur gufuketiil, og
var slíkt talið til nýjungar, a. m. k. í norð-
ienzkum verksmiðjureicstri.
Fyrír skömmu komst blaðið á snoðir um,
að Vigfús Jónsson, stofnandi Dúkaverk-
smiðjunnar, hafði tekið þessa tækni í notk-
un fyrir alllöngu og má telja hann braut-
ryðjanda á þessu sviði hér á Akureyri. —
Blaðið kom því að máli við Vigfús og bað
hann að segja stuttlega frá reynslu sinni í
þcssum efnum.
— Það mun hafa verið árið 1942, að ég
hóf rekstur fatahreinsunar í húsi því, er
gengur undir nafninu Karolina Rest, sagði
Vigfús. — Þá lét ég smiða iítinn gufuketil,
sem gekk fyrir rafmagni, og seldi hann
síðan með fyrirtækinu, og veit ég ekki bet-
ur en hann sé í fullum gangi ennþá í Gufu-
pressun Akureyrar.
Síðar stofnaði ég Dúlíaverksmiðjuna ár-
ið 1946 og árið 1953 lét ég smiða l»tinn
rafknúinn gufuketil fyrir pressuvél. Árið
1964 keyptí ég síðan 50 kw gufuketil með
sex túbum og er hann einnig rafknúinn.
Gðð reynsla er fengin af þessum kötlum,
sem smíðaðir voru á Atla, og finnst mér
sjáifsagt að nota innlenda orku, þar sem
hægt er, í stað þess að nota oliu.
— Hvað er það helzta, sem þið fram-
leiðið í Dúkaverksmiðjunni?
— Að sjálfsögðu framleiðum við dúka,
eins og nafn verksmiðjunnar ber með sér,
úr baðmull og gerviefnum. Við erum þeir
eínu hérlendis, sem framleiðum vinnuvettl-
ingadúk og er hluti framleiðslunnar fuli-
unninn hér hjá okkur, en annars eru vettl-
íngarnir saumaðir víða um land.
Vinnuvettlingaefnið er um % af heildar-
framleiðslu verksmiðjunnar. Þá framleiðum
við einnig sængurfataefni, bleyjugas, upp-
þvottaþurrkur o. fl.
Sævar, sonur Vigfúsar, tók við stjórn
verksmiðjunnar árið 1965, eftir að hafa
útskrifast úr þýzkum tækniháskóla, og er
hann eini íslendingurinn, sem er sérmennt-
aður í dúkavefnaði og rekstri slíks fyrir-
tækis.
— Hvernig gengur reksturínn, Sævar?
— Framleiðslumagnið á síðustu tveim-
ur árum hefur aukizt um 20%, og eru nú
allar vélar í fullri nýtingu. Framleíðslan er
seld um allt land, en mestur hluti fer þó á
markað í Reykjavík. Hráefnið kaupum við
aðallega frá Belgíu og Portúgal. Við höfum
nægna húsakost til að auka framleiðsluna,
það vantar aðeins vélar. Þarf næst að hugsa
fyrir því að auka og endurbæta vélakostinn,
sem gefur um leið möguleika á aukinni
fjölbreytni í framleiðslunni. Til þess að það
sé mögulegt, þurfum við að eiga kost á
hagslæðum lánum. Eins og málum er nú
háttað, selzt öll framleiðslan eftir hendinni
og mætti vafalaust auka söluna, ef við gæt-
um framieitt meira og boðið upp á aukna
fjölbreytni í vöruúrvali.
— Hvað er margt starfsfólk?
— Hér í verksmiðjunni eru 12 starfs-
menn, en auk þess hafa tugir manna um
landið atvinnu o. fl. af framleiðslu verk-
smiðjunnar við sauma o. þv. u. 1. — Ég
áiít, að þessi atvinnugrein eigi mikla fram-
tíð fyrir sér. — Sæm.
Sævar Vigfússon framkvæmdastjórí við einn vefstólinn.
• SPURIMIIMG VIKUIMIMAR
ÆTLIÐ ÞÉR AÐ FERÐAST UM
VERZLUNARMANNAHELGINA?
KRISTINN G. JÓHANNSSON, SKÓLASTJÓRI:
Nei, það er alveg af og frá að ég fari í ferða-
lag um verzlunarmannahelgina. £g hef aldrei
slundað ferðalög um þá helgi, og hef ekki æil-
að mér að byrja á þvL Það eru nógu margir
samI til að ferðast þá daga. Hins vegar getur
meira en verið að ég bregði mér út í garð ef
veður verður gotL
PHILIP JENKINS, P!ANÓLEIKARI:
Nei, ég ætla bara að vera heima um þá helgi.
Ég var I Öskju um síðustu helgi og innan
skamms fer ég til Englands og verð þar í tvo
mánuði. Hvort ég ætla að spila þar? Já, ég
geri það, víðs vegar um landið. Þess vegna
er ágætt að slappa af heima áður.
KNCTUR OTTERSTEDT, RAFVEITUSrjÖRI:
Já, ég geri fastlega ráð fyrir því. Við, sem er-
um meðlimir í Lionsklúbbnum Huginn, höfum
undanfarin ár farið í ferðalag um verziunar-
mannahelgína, og ætlum að halda þeim sið á-
fram. Þetta hafa verið Ijómandi skemmtilegar
ferðir. Við förum með eiginkonur og börn,
tjöldum í tvær nætur og eyðum tímanum í leiki
og gönguferðir. Sennilega förum við eitthvað
austur núna, en þó ekki mjög langt.
STEINDÓR GUNNARSSON, STUD. JUR.:
Ég er á ltafi í lögfræðinni og ltemst eltkert
úr bænum. Nei, það er ekki svo slæmt að lesa
yfir sumarið. Ég er þannig gerður, að mér
finnst ágætt að lesa námsbækur í góðu veðri.
Ég fór til ísafjarðar uin verzlunarmannahelg-
ina í fyrra og var það mjög góð ferð, enda býr
liátt og skemmtilegt fólk á Vestfjörðum.
INGVAR GÍSLASON, ALÞM.:
Það er ekki ákveðið- ennþá. Ef við förum
eitthvað, verður það austur á Hérað. Þangað
hef ég oft kornið, og þar er alltaf jafn fallegt,
— á Hallormsstað og Egilsslöðum. Við hjónin
höfum oftast skroppið eitthvað með börnin um
verzlunamiannahclgina, en vanalega hafa það
verið stuttar ferðir uin nágrenni bæjarins.
VERIÐ VARKAR
VARIZT SLYSIIM