Íslendingur - Ísafold - 28.07.1971, Page 12
-Ísufoíd *
Miðvikudagur 28. júií 1971.
Stöndum sam-
an í landhelg-
ismálinu
Fyrir Uosningar voru sUiplar
skoðanir milli pólitískra flokka
um það með hvaða hœtti bæri að
vinna að útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar. Um mcginmarkmiðið voru
menn hins vegar sammála. Fram
kom greinilegur skilningur hjá
forustumönnum allra pólitiskra
flokka um, að útfærsla fiskveiði-
lögsögunnar í 50 mílur eða að
landgrunnsmörkunum væri lífs-
hagsmunamál þjóðarinnar, sem
vinnast þyrfti í næstu framtíð.
Það er þegar komið í Ijós, að þau
vinnubrögð, sem núverandi stjórn-
arflokkar vildu viðhafa í þessu
máli, voru óskynsamleg og til
þess fallin að fá upp á móti
okkur andbyr margra þjóða, sem
hlut eiga að máli. Skynsamlegra
hefði verið að ræða málin ítar-
lega við fulltrúa þessarra þjóða
og skýra sjónarmið okkar rælti-
lega áður en slengt væri fram
þeim yfirlýsingum, sem nú hefur
verið gert. Hvað sem þessu líður,
þá er sá skaði nú þegar orðinn.
Um slikt dugir ekki að sakast nú.
Hitt er augljóst mál, að það er
þýðingarmest, að samræma sjón-
armiðin og að við stöndum nú
sem einn maður að því að vinna
þessu máli því það gagn, sem við
megum, hvar í flokki, sem menn
standa.
fslendingur-lsafold styður þá
hugmynd eindregið, að þingnefnd
sú, sem sett var á laggirnar af
fyrrverandi ríkisstjórn, setjist nú
aftur á rökstóla að afloknum
kosningum og vinni að gerð álykt-
unar, sem síðar yrði rædd í öllunt
þingflokkum. Bez.t væri, að sú
ályktun gæti komið fyrir Alþingi
á fyrstu fundum þess í haust. Ein-
róma ályktun Alþingis nú í land-
helgismálinu er sú eina leið, sem
sýnt geti öðrum þjóðum, hvað
við íslendingar teljum hér vera
mikla alvöru á ferðum og hver
sé eina leiðin til þess að þoka
þessu lífshagsmunamáli okkar á-
leiðis.
Nú eru undirbúningsviðræður
hafnar að hafréttarráðstefnunni,
sem halda á á vegum Sameinuðu
þjóðanna haustið 1975. Á þeim
fundum gefst óvenju gott tækifæri
til þess að ræða um þessi mál
við aðrar þjóðir. Fyrir alla muni
verður að setja undir þann leka,
að litið verði svo á, að íslend-
ingar séu klofnir i afstöðu sinni
til landhelgismálsins. Þess vegna
verður að halda því mjög á lofti
á þessum fundum, sem annars
staðar, að svo sé ekki. Þvert á
móti sé órofasamstaða um þau
meginmarkmið, að allt landgrunn
ið verði íslenzk fiskveiðilögsaga.
Það gefur auga leið, að sam-
hljóða ályktun Alþingis í þessu
máli yrði mikill styrkur þeim
mönnum, sem við það vandaverk
fást að ræða við .aðrar þjóðir,
bæði á þessum fundum og á öðr-
um vettvangi. — Því verður að
treysta því, að einskis verði látið
ófreistað um að sú samstaða þing
flokkanna fakist, og sú ályklun
Iverði samþykkt á fyrstu dögum
þingsins.
SJÁLFSTÆÐISMJSIÐ OPIÐ Á HVERJU KVÖLDI! Hljómsveit Ingimars Eydal, Helena og Bjarki skemmta. Akureyri — Mývatnssveit Daglegar ferðir. — Frá Akureyri kl. 9.30. — Frá Mý- vatnssveit kl. 17.00.
SJÁLFSTÆÐISHÚSÍÐ, AKUREYRI. - SÍMI 12970. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR, - sími 11475.
6,25%
verölagsuppbót
Samkvæmt bráðabirgðalögum
útgefnum 21. þ. m., um breyt-
ingu á lögum nr. 94/1970, um
ráðstafanir til stöðugs verðlags
og atvinnuöryggis, skal í ágúst-
mánuði 1971 greiða 6.25%
verðlagsuppbót á grunnlaun. —
Kemur þessi verðlagsuppbót í
stað 4.21% uppbótar, sem kom
til framkvæmda 1. september
1970 og gildir til júlíloka 1971.
Börnin í skólagörðunum hirða sína reiti af stakri kostgæfni.
Sóldýrkendur á Akureyri. — Myndin er ekki frá því í sumar, en
svipuð sjón er algeng nú við sundlaugina. (Mynd: HT).
Kór frá
Klakksvík
Kór ungmenna frá Klakksvík
í Færeyjum er nú staddur hér á
landi. Á föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld heldur kór-
inn samsöng í Samkomuhúsinu
á Akureyri, og hefst hann kl.
20.30. Aðgangur er ókeypis.
Hin kunna frjálsíþróttakona
frá Akureyri, Ingunn Einarsdótt
ir, hefur verið valin til að
keppa fyrir íslands hönd á Ev-
rópumeistaramótinu, sem fram
fer í Helsinki dagana 10. —15.
ágúst, ásamt þeim Bjarna Stef-
ánssyni og Erlendi Valdimars-
syni. Mun Ingunn keppa í 100
m grindahlaupi og 400 m hl.
Á meistaramóti kvenna í
frjálsum íþróttum, sem haldið
var í Vestmannaeyjum fyrir
skömmu, varð Ingunn fjórfald-
ur Islandsmeistari. Sigraði hún
í öllum hlaupagreinum, sem í
var keppt á mótinu, að undan-
skildu 800 m hlaupi.
• PRENTFRELSI OG
FRJÁLS
SKOÐANAMYNDUN
Undanfarið hefur verið ein
stakt tækifæri til að kynnast ó
mengaðri afstöðu kommúnisfa
til prentfrelsis og frjálsrar skoð
anamyndunar. Fyrir nokkru
varð mikill úlfaþytur um öll
Vesturlönd út af tilraunum
Nixons til að koma í veg fyr-
ir prentun levniskjala um upp
liaf styrjaldarinnar í Vietnam.
Þá lét Þjóðviljinn ekki á sér
standa, sem vænta mátti. —
Síðustu vikur hefur heims-
pressan skrifað mikið um
stjórnarskiptin á íslandi og af-
stöðu nýju stjórnarinnar til
NATO, varnarliðsins og land-
helgismálsins. Frá þessu hefur
verið skýrt í blöðum hér
heima. Þá bregður svo við,
að kommúnistar ærast og
brigsla þcim um fasimsa, sem
eru svo bíræfnir að segja frá
þessuin skrifum erlendra
blaða. Það fór jafnvel í taug-
arnar á Þjóðviljanum, að skýrt
var frá sérstakri ánægju hins
rússneska Pravda í Kreml út
af stjórnarskiptunum!
9 PÓKER-STEFNAN
Þorsteinn Thorarenscn skrif
ar nýlega föstudagsgrein Vísis.
Hún er stíluð í hálfkæringi en
með nokkrum undirtón, sem
er athyglisvcrður. Hann ræðir
ur stoltstefnu í utanríkismál-
um og pókerstefnu. — Um pók
erstefnuna segir hann: „Ef við
fáum ekki 50 mílurnar, þá
skuluð þið missa mikilvægustu
hernaðarbækistöð í heimi. . . .
Ef við fáum ekki inngöngu í
Efnahagsbandalagið með þeim
kjörum, sem við sjálfir viljum,
þá burt með Ameríkanana . . .
Ef við fáum ekki milljónalán
til að lifa flott, þá burt með
Ameríkanana . . . Ef Loftleið
ir fá ekki að fljúga á ódýrari
kjörum, þá förum við úr
NATO . . .“
• HINN MIKLI
TROMPÁS
Við skulum vona, að sæini-
lega ábyrgir menn í æðstu
valdastöðum þjóðarinnar séu
ekki svo barnalegir, að treysta
svona á trompásinn mikla í við
skiptum við aðrar þjóðir. Óvit-
urlegt væri þá a. ,m. k. að
kasta honum strax af hendi!
Um þessa trompásasnila-
mennsku segir Þorsteinn Thor
arensen (eftir að ásnum hefur
vcrið slegið út): „Þá verður
líka skemmtilegt að lifa. Við
verðum sjálfsíæðir, óháðir, og
hrokafullir. Við þurfum ekki
að sleikja okkur upp við neinn
eins og hernámsflokkarnir,
hurfum ekki að Ieita eftir vin-
áttu við neina, ekkert að afía
okkur skilnings hliðhollra
manna á sérstöðu okkar og lífs
nauðsyn — nema aðeins því
miður, ef okkur hefur missýnst
og trompásinn okkar er allt
í einu í öðrum Ht."
Ingunn á EM