Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Page 4
VJ-'1*y 7 .a aíUív^l iul/(\vj %j.l\ j. /. avjucu 17/ 4 .
LmLEmmf&t,- ICCLANDIC W
| ém
,A|
|
Hratft fIjúga þoftur -
hraftft flýr sftund
Nýtið því naumar stundir.
Notið hraðferðir Loftleiða
heiman og heim.
Njótið hagkvæmra
greiðslukjara Loftleiða.
Flugfar strax-far greitt síðar.
30 þotuferðir í hverri viku
til Evrópu og Ameríku
með DC-8
HðLAFÉLAGIÐ
VILL REI8A
HÖLA8KÓLA
Mikill áhugi er nú ríkjandi
á meðal meðlima Hólafólags-
ins og fleiri, að skóli rísi á
Hólum í framtíðinni, og hefur
þegar safnast nokkuð fé til
þeirra framkvæmda. Guðrún
Björnsdóttir frá Veðramóti
gaf fyrir nokkru 100 þúsund
krónur í þeim tilgangi, og í
sumar afhenti hún einnig 30
þúsund krónur fyrir hönd af-
komenda hjónanna i Göngu-
skörðum, Stefáns Stefánsson-
ar og Guðrúnar Sigurðardótt-
ur. Fjöldi smærri gjafa hafa
einnig borist.
Hugmyndin er að þessi skóli
verði fyrst og fremst kirkju-
legur slcóli. Nú er unnið að
skipulagningu staðarlns, og
eftir síðasta aðalfund Hóla-
félagsins, á sunnudaginn var,
áttu skipuleggjendur fund með
stjórn Ilólafélagsins, m. a.
vegna hugmyndar um skóla-
byggingu.
Þá var Hólahátíðin haldin
á sunnudag og fór hún fram
eftir auglýstri dagskrá. Mikið
fjölmenni sótti hátíðina og
var húsfyllir við guðsþjónust-
una og mikill fjöldi fólks sótti
einnig samkomuna á eftir. —
Meðal gesta voru Ásgeir Ás-
geirsson, fyrrverandi forseti,
og Jóhann Gunnar Ólafsson,
sýslutnaður. — G.S.
INIauðsyn á hafnarbótum
Litla-Árskógssandi, 15. ág.
Aðaláhugamál manna á
Litla-Árskógssandi nú, og
reyndar undanfarin ár, er
bctri höfn, enda eru núver-
andi hafnarskilyrði orðin úr-
e!t og aðstaða öll frumstæð,
að því er Valves Kárason
sagði í viötali v.ið blaðið.
Aö sögn Valvesar mundu
nauðsynlegustu framkvæmdir
velta á nokkrum milljónum,
og þar sem sveilarfélagið er
h'tið, hcfur það vart bolmagn
í það, nema mcð verulegum
ríkisstyrk.
Viðlegupláss eru orðin allt-
of lítil við garðinn, sem smá-
bátarnir liggja við, og bátarn-
ir geta elcki legið þar með
nokkru öryggi, ef veður er
orðið meira en bræla.
Þetta veldur útgerðinni
nokkrum erfiðleikum, sem
nauðsynlegt er að bæta úr, og
það á næstunni, sagði Valves,
en sökum eigin ljárskorts get-
um við ekki annað að sinni
en haldið málinu vakandi við
yfirvöld. — G.S.
Blaðið þitt!
- fslendingur-ísafold
• Kemur út á hverjum fimmtudegi.
• Flytur sem fjölbreyttast fréttaefni
um menn og málefni.
• Lifandi greinar, viðtöl og skemmti-
efni.
• Áskriftarverðið er 20 krónur blaðið,
260 krónur ársfjórðungslega.
• Skrifstofa blaðsins er að Kaupvangs-
stræti 4, Akureyri, sími 21500.
• Aðrir umboðsmenn blaðsins út um
land eru:
Gunnlaugur Magnússon, Ólafsfirði.
Sími 62151.
Júlíus Snorrason, Dalvík.
Sími 61261.
Gunnar Níelsson, Hauganesi.
Sími 61385.
Valves Kárason, Litla-Árskógssandi.
Sími 61370.
Oddur Isaksson, Grenivík.
Sími 33124.
Höskuldur Sigurgeirsson, Húsavík.
Sími 41155.
Helgi Ólafsson, Raufarhöfn.
Sími 51170.
Jóhann Jónasson, Þórshöfn.
Sími 23.
Þeir fastir þæítir, sein í blaðinu eru, eða
ráðgert er að í það komi, eru:
Á förnum vegi. — Á dagskrá. —
Kvennaþáttur. — í fréttuin að utan. —
Fyrir yngstu lesendurna. — Krossgátur.
Lesendur hafa orðið. — Spurningaþáttur
Framhaldssaga. — íþróttir. —
Vísnabálkur. — Punktar og kommur. —
Nýir borgarar. — Árnað heilla. —
Bókaþáítur.
• Blaðið
þitt
® Gerist áskrifenclur
ÍstendiwfiUL
-ísufold
S'imi 21500
OME-'.V.