Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Side 8

Íslendingur - Ísafold - 17.08.1972, Side 8
3 ISLENDINGUR-ÍSAFOLD - FIMMTUDAGUR 17. AGÚST 1972 1 — Og hér er enn ein að byggja sér hús. Húsvíkingar ... I •» 5* i f ffcS’tíJÖ Lfci u. it ii 1. hann, að það væri einmitt hraun og auðnir, eitthvað ó- venjulegt, sem útlendingarnir vildu sjá, fremur en blómleg- ar sveitir og búskapur, þótt það vekti vissulega áhuga margra. Nýlega var ferðamála félag stofnað á Húsavík, og vonaðist hann til að það fengi einhverju áorkað í þessum málum. í sambandi við ferða- mál nefndi hann einnig, að vegur yfir Sprengisand, sem láegi niður í Bárðardal, væri einnig mikið hagsmunamál fyr ir Húsvíkinga, og í því sam- bandi benti hann á, að t. d. Oifar Jacobsen hefði nokkurs konar bækistöð á Húsavík, er hann kæmi með ferðahópa sína ofan af hálendinu, og tækju ferðamenn því vel. Hótel- og veitingamál koma óneitanlega mjög við sögu, þegar rætt er um ferðamál, og því sneri blaðið sér til Jóns Armanns Árnasonar, sem er framkvæmdastjóri hinnar nýju hótelbyggingar, sem senn verður fullgerð. Sagði hann, að ekkert hótel hafi verið á staðnum síðan gamla hótelið brann árið 1970, en þá vildi svo heppi- lega til, að nýja félagsheimil- ið var að komast í gagnið, svo að Sigtryggur Albertsson, veit ingamaður ganrla hótelsins, tók þar við veitingarekstri, og hafði nokkur herbergi úti í bæ til ráðstöfunar, ef nætur- gestir komu. Þetta var þó engan veginn fullnægjandi aðstaða ,og var ráðist í byggingu nýs hótels, sem tengist félagsheimilinu, svo húsin geta haft gagn hvort af öðru. Var þá stofnað Hót- elfélagið um byggingu hótels- ins, og eru aðaleigendur bær- inn, Sigtryggur veitingamaður og frú, og Kaupfélag Þingey- inga. Jón sagði, að áætlaður kostnaður við bygginguna væri röskar 30 milljónir kr., en í hótelinu eru 32 tveggja manna herbergi, þar af 24 með baði, og er húsið allt fjórar hæðir. Á efstu hæðinni er m. a. gert ráð fyrir bar, annars staðar í húsinu verð- ur kaffitería sem rúmar 60 manns, og í kjallara verður frystir, kælir, þvottaaðstaða og aðstaða fyrir starfsfólk. — Eldhúsið verður sambyggt að- alsal félagsheimilisins, sem tekur 260 manns í sæti, og verður væntanlega aðalsam- komustaður bæjarins í fram- tíðinni. Við þessa bygginga- samstæðu félagsheimilis og hótels, stendur svo til að byggja kvikmyndahús, sem yrði þá jafnframt leikhús, en Nýja safnahúsið á Húsavík. st!l™Tr íslendiimt 21500 -ísafold LEITID UPPLYSINGA PAPPIRSÞURRKUR KOSTA SAMA OG ÞYOTTUR ÁEINU HANDKLÆÐI 'APPIRSVORUR'W SKÚLAGÖTU 32,- SÍMI Umboð á Akureyri: VALDIMAR BALDVINSSON Sími 21330. Jón Ármann Árnason, framkvænrdastjóri nýju hótelbyggingar- innar, og Sigtryggur Albertsson, veitingainaður, sem mun sjá um rekstur þess, þegar til kemur. Báðir voru þeir bjartsýnir á, að nýja hótelið og aðstaðan í félagsheimilinu ættu eftir að auka ferðamennsku á Húsavík, þar sem staðurinn gæti með tilkomu þessara stofnana boðið upp á stórbætta þjónustu. engin tímamörk hafa enn ver- ið sett um þá framkvæmd. Með því að reikna með 10% nýtingu hótelsins yfir þrjá verstu mánuðina og 90% nýtingu í tvo mánuði á ári, sem Jón taldi ekki ólíklegar tölur, bjóst hann við að hót- elið yrði rekið með halla fyrstu fimm til sex árin, sem þá yrði væntanlega mætt með auknu hlutafé. Blaðið náði einnig tali af Sigtryggi Albertssyni, veit- ingamanni, og var hann mjög bjartsýnn um framtíð hótels- ins, einkum með hliðsjón af þróun síðustu ára. Sagði hann að mikil ferðamannaaukning hefði verið um Húsavík í fyrra, en þó væri mun fleira ferðamanna nú, og væri ekk- ert sem mælti á móti því að þessr þróun héldi áfram. Sagði hann, að aukningin væri nrest í útlendingum, þeir kæmu nú oft í stórum hóp- um, svo að þess væru þó nokk ur dæmi, að hinn stóri matsalur félagsheimilisins fyllt ist, og svoleiðis á það að vera, sagði Sigtryggur, og var hress. G.S. K~.y. ■ ’B/IA U JbAJ)/ RAUÐARÁRSTÍG 31 SlMI 22022 IVIWIVI Diesel V-VÉL, GERÐ D-232 6, 8, 12 strokka. Með og án túrbínu 1500 — 2300 sn/mín. 98-374 „A“ hestöfl. 108-412 „B“ hestöfl. Stimplihraði frá 6.5 til 10 metra á sek. Eyðsla frá 162 gr. Ferskvatnskæling. Þetta er þrekmikil, hljóðlát og hreinleg vél fyrir báta, vinnuvél- ar og rafstöðvar. — 400 hesta vélin er 1635 mm löng, 1090 mm breið, 1040 mm há og vigt- ar 1435 kíló. STURLAUGUR JÓNSSON & Co. Vesturgötu 16 — Reykjavík. EINA BLAÐIÐ Á ÍSLANDI, SEM KOMIÐ HEFUR 0T AÞREMUR TUNGUMÁLUM, ÍSLENZKU, ENSKU OG RÚSSNESKU. KEMUR ÚT EFTIR HVERJA SKAK. FJÖLDI MYNDA PRÝÐA BLAÐIÐ. MARGIR HELZTU RITHÖFUNDAR ÞJÖÐARINNAR SKRIFAÍ EINVÍGISBLAÐIÐ. TlMARITIÐ SKÁK, PÓSTHÓLF 1179, REYKJAVÍK. SÍMAR 15899 OG 15543.

x

Íslendingur - Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.