Faxi

Árgangur

Faxi - 21.12.1940, Blaðsíða 2

Faxi - 21.12.1940, Blaðsíða 2
2 F A X I Eigum við að stunda íþróttir? Nú á síðustu árum hefir rnik- ið verið rætt og ritað um íþrótta- mál, gildi' íþrótta og það, að íþróttirnar ættu að skipa hærri sess hjá okkur Islendingum en þær hafa gert hingað til. Þetta hefir komið fram. í blöðum og útvarpi, ræðum einstakra manna á fundum og samkom- um. Því kynni sumum að finnast það óþarfi, er þetta blað hefur göngu sína með því að ræða um íþróttamál, ásamt cðru góðu. En svo er eigi. Það hefir sannast, að íþróttalíf vakn- ar ekki almennt, fyrr en fólk hefir skilið hvers virði íþróttir eru, og þá um leið, að hver ein- staklingur á ekki að láta neitt það tækifæri ganga ónotað úr greipum sér, er gefur honum möguleika á því að iðka þessa grein líkamsræktar, en — hvers- vegna? Oft heyrist sú skoðun, aö þetta. íþróttahjal nú á dögum sé aðeins slagorð, er óvitrir ung- iingar gaspra með, og bezt sé að skella við skollaeyrum. Iþróttir geti verið gott að dunda við fyr- ir einstaka. afreksmenn á því sviði, en við hinir gerðum eitt- bvað þarfara en eyða tíma, fé og kröftum í þessháttar vitleysu. Við skulum athuga oíurlítið þau rök, er hníga gegn þessari skoð- un. 1. Skynsamleg iðkun hollrar í- þróttar eykur þrótt og heil- brigði mannsins. Hreyfing er öllum mönnum nauðsynleg, bæði ungum og gömlum.. Við hreyfinguna örvast blóð- straumurinn, svo vöðvunum berst aukin næring og kraft- ur. Þetta gefur líkamanum aukinn þrótt, og gerir hann þá jafnframt ónæmari fyrir kvillum og sjúkdómum. 2. Iþróttir hafa það fram yfir venjulega áreynslu, eins og þá, er ýms erfiðisvinna. veit- ir, að þar sem erfiðisvinnan er oft einhliða, þá stefnir margþætt íþrótt, eins og t. d. leikfimi, að því marki að stæla og lioka allan líkamann. 3. íþróttir hafa mikla uppeldis- lega þýðingu, þær neyða margan unglinginn nauðug- an viljugan, ef hann fer að sýna þeim rækt, til þess að láta af ýmsum illum venjum, er skapasit af því, að hon- um leiðist, heppileg viðfangs- efni vanta í frístundunum. Þessar slæmu venjur, eins og' miklar tóbaksreykingar, drykkjuskapur, stöðug leit að æsandi atburðum og æfin- týrum samfara hverflyndi og lífsleiði, verður sjaldan hlut- skipti þess manns, er ungur byrjar að stunda íþróttir aí einlægum áhuga. Iþróttirn- ar eiga því erindi til vand- ræðabarnanna, sem víða er að finna í kauptúnum og öðr- um mannfleiri stöðum, og setja vilja allt á annan end- ann með óknyttum sínum. Af hverju eru þessi börn svo erf- ið viðfangs? Oft og einatt eru þetta tápmestu börnin, sem með óknyttunum sýna það, aö þau vilja hafast eitthvað að, og láta eitthvað til sín taka. Með því að' beina áhuga þessara barna inn á sviö íþróttanna, vinnst tvennt: Þau leggja niður ódáðaverk- in og létta þannig áhyggjum af vandamönnum sínum og viðkomandi yfirvöldum, en jafnframt gera þau líkamlegu heilbrigði sínu ómetanlegai. greiða. Þess má líka geta, í sam- bandi við íþróttaiðkanir barna og unglinga, að leik- fimi getur haft áhrif á lík- amsvöxt þeirra. Innfallið brjóst og lotnar herðar hjá ung'um manni eru talandi tákn þess, að vanrækt heíir verið að láta hann stunda leikfimi í uppvextinum. 4. Iþróttir gefa mönnum frjáls- mannlegt yfirbragð. Iþrótta- m,aðurinn er að jafnaði létt- ari í spori, hefir röskari hreyfingar og djarflegri framkomu en hinn, sem hefir ýmigust á öllu, því er íþrótt- ir heita. 5. Iðkun íþrótta eykur mannin- um lífsgleði. Líkami og sál eru hvort öðru skyld, og því er eðlilegt, að maðurinn verði glaðari í sinni, er hann finn- ur til aukins, þróittar. Grikk- inn sagði forðum: »Heilbrigð sál í hraustum líkama«, og stendur það spakmæli óhag'g- að enn. Nú befi ég í fáum dráttum gert grein fyrir því helzta sem rnælir gegn staðhæfingum og sinnuleysi þeirra manna, er vilja álíta íþróttamálin einskisverð, eða eins og hvern annan hé- góma, sem engu beri að fórna. Þessum mönnum fer alltaf fækkandi. Þó er mér óhætt að segja, að þeir séu til enn. Þess- ir menn segja: Maður á ekki að verja fé til íþróttamála, nema maður sé tilneyddur. Maður á ekki að stunda íþróttir nema lögin skyldi mann til þess, og þó svo, sé, þá að smeygja sér und- an því. Þessir góðu menn ættu að líta ofurlítið í kringum sig, t. d. til hinna Norðurlandaþjóðanna, til Englands eða Þýzkalands, og sjá, hvað þar hefir verið gert í þessum málum, og hverja þýð- ingu íþróttirnar eru álitnar hafa, ef ala á upp hrausta og dugandi þjóð. Hvað hefir þá verið gert hér á landi fyrir íþróttamálin? Það yrði langt upp að telja, svo mjög hefir þeim málum fleygt fram á síðustu árum. Árlega eru hald- in íþróttamót í flestum sýslum landsins, en þangað koma í- þróttaflokkar frá íþróttafélög- um sveitanna og sýna listir sín- ar. Starfandi eru íþróttafélóg í öilum, kaupstöðum. Mörg þeirra bæta úr brýnustu þörfum á íþróttakennslu með stuttum námskeiðum, önnur halda uppi reglulegri kennslu alla vetrar- mánuðina. Ilin sjálfsagða og holla íþrótt, sundið, er á góðum

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.