Faxi - 01.11.1945, Side 1
Bifreiðarekstur Keflavíkurhrepps
Viðtal við SKÚLA HALLSSON:
Það var ekki í tilefni neins sérstaks,
heldur aðeins til skemmtunar og fróð-
leiks, að blaðið sneri sér til Skúla
Hallssonar, sem er framkvæmdastjóri
bi'freiðareksturs ihreppsins og óskaði
eftir, að hann segði því eitthvað frá
bifreiðarekstrinum og starfi hans við
s'l'íkan rekstur fyrr og nú.
Ég hringdi til Skúla og skýrði 'hon-
um ifrtá erindinu.
Hann tók í fyrstu dauflega m'álaleit-
an minni, ekki af því, að hann vildi
ekki við okkar tala, heldur hinu, að
honum fannst ekki frá 'svo miklu að
segja og þá sízt ástæða til að fara með
það lí blöðin. Þó rættist svo úr, að ég
■heimsótti hann nokkrum dögum síðar
á hemili hans og ræddum við þar lengi
saman.
— Við verðum þess stundum vör,.
þegar við ferðumst með áætlunarbíl-
unum mílli Keflavfkur og Reykjavík-
ur, að farþegarnir eru ekki alltaf sem
ánægðastir. Sumum finnst of hægt ek-
ið, þeir þur.fa að vera komnir fyrir
ákveðinn tíma í bæinn, — það er farið
of seint af stað frá Kefiavík, — kom-
ið of víða við á leiðinni, t. d. í Njarð-
víkunum, — vegurinn slsemur, og svo
fram eftir götunum.
Þó óánægja slík og aðfinnslur eigi
stundum við rök að styðjast, því ekk-
ert er svo með öllu gott, að eigi verði
þar um bætt, þá dettur mér oft í hug,
er ég heyri slíkar raddir, að gaman
væri nú, — en aðeins rétt sem snöggv-
ast, — að við værum komnir, — segj-
um, nokkur ár aftur í tfmann. Þá væri
vegurinn horfinn og við yrðum að
leggja lamd undir fót á hestum postul-
anna, eftir mjóum troðningum, er veg-
farendur liðinna alda hafa rutt gegn-
um úfið og illfært hraunið eða við
biðum næstu ferðar „Ingólfs“ og
greiddum í fai'gjald heil daglaun, sem
eru 2 krónur. — nei, þá kysu sumir
heldur að ganga og spara krónumar.
— Já, það er margt rétt f þessu,
segir Skúli. Ég man að vísu ekki eftir
þeim tíma, þeigar enginn lagður vegur
var suður til Keflavíkur. En ég man
eftir því, að fara þurfti þessa leið fót-
gangandi, og fór ég hana fyrst vétur-
inn 1914 og gekk þá alla leið suður í
Garð. Var ég þá að fara til sjóróðra.
Fyrst þegar ég fór til Keflavíkur með
bíl, kostaði farið 7 krónur. Það var ár-
ið 1924.
— Hvað er langt síðan, að þú byrj-
aðir á fólksflutningum milli Keflavík-
ur og Reykjavíkur?
— Það var vorið 1930, sem óg byrjaði
flutninga hér á milli Keflarvíkur og
Reykjavikur. Fyrsti bíllinn minn var
6-manna bíll með vörupalli og var ég
með hann fyrstu 2 árin. Þá var Stein-