Faxi

Árgangur

Faxi - 01.11.1945, Blaðsíða 7

Faxi - 01.11.1945, Blaðsíða 7
F A X I 7 Nætur- og helgidagalæknar. Læknarnir í Keflavík skipta þannig með sér vöktum: Björn Sigurðsson 3.—10. nóv. Karl G. Magnússon 10.—17. — Björn Sigurðsson 17.—24. — Karl G. Magnússon 24. nóv. — 1. des. Björn Sigurðsson 1. — 8. des. Karl G. Magnússon 8. —15. — Dux brunaði hnarrreistur og hratt inn á Kefla- víkurhöfn kl. 5.30 mánudaginn 22. okt og hafði þá verið aðeins 5% sólahring á leið- inni frá Gautaborg. Jóhann Guðjónsson útgerðarmaður í Keflavík og synir hans hafa keypt þennan bát frá Svíþjóð. Dux er 75 smálestir með 150hk. Bolund- ervél. Hann er 6 ára gamall. Báturinn er allur hinn vandaðist, en þar sem hann er byggður eftir nokkuð öðrum reglum, en hér tíðkast, hafa verið gerðar á honum smá breytingar, og kann að verða breytt meira ef ríkisskoðun krefst þess. Auk þess sem báturinn virðist vera hinn traustasti er hann sérstaklega fellegur á sjó. J. T. Dánarfregn: þann 24. okt. s. 1. lézt að heimili sínu Hafn- argötu 48 í Keflavík, frú Elín Jónsdóttir kona Guðmundar Guðmundssonar skólastjóra. Var hún jarðsungin 2. nóv. að viðstöddu fjöl- menni. Bruni í Hlíð. Eldur kom upp í húsinu Hlíð í Ytri-Njarð- vík 16. okt. Slökkviliðið frá Keflavík og setu- liðinu komu fljótlega á vettvang, en þá hafði að mestu tekizt að ráða niðurlögum elds- ins. Ekki urðu verulegar skemmdir af eld- inum, en vatn mun hafa valdið nokkrum skemmdum. Rafarmagn kvað hafa valdið íkveikjunni. J. Kcri sökkt. Það virðist varla tekið eftir því lengur þó að keri sé sökkt framan við hafnargarðinn. Ég man eftir því, að þegar hafin var leng- ing hafnargarðsins og þegar lítill bátur dró stórt ker frá Básnum suður fyrir Vatnsnes- ið þá heyrði ég krakka kalla „það á að fara að sökkva kerinu.“ Margir, ungir og gamlir flykktust niður að höfn. Kerinu var að vísu ekki sökkt strax, en það kom framan við garðinn og síðan hafa nokkur ker bæst við, en varla nógu hratt eða nógu mörg. Síðasta kerinu var sökkt 14. október. J. T. Skákmót Suðurncsja. Skákfélag Keflavíkur er að undirbúa skák mót, sem öll skákfélög Skagans ættu að taka þátt í. Teflt verður um titilinn Skákkonungur Suðurnesja og munu auk þess fylgja verð- laun. Ekki er lokið við að semja reglugerð fyrir þessu móti, en sérstök reglugerð er talin nauðsynleg, þar sem ætlast er til að þetta mót fari fram árlega. Gert er ráð fyrir að það verði seint í nóvember eða fyrst í desember. Æskilegt væri að þátttöku tilkynningar bærust undirrituðum það fyrsta og gefur hann allar nánari upplýsingar. Slíkt mót ættu að geta aukið kynningu og eflt skák- styrk Suðurnesjamanna. F. h. Skákfélags Keflavíkur, Jón Tómasson. Vclskóflan. Dagana kringum miðjan október stað- næmdust margir vegfarendur er þeir komu á mótsvið Bíóhöllina, sem er í smíðum. Á- stæðan var sú, að nýtt verkfæri var þar að verki, en það var vélskófla. Tæki þetta er tiltölulega nýtt hér á landi og í fyrsta sinni að verki hér í þorpinu. Setuliðið hefur hins vegar notað vélskóflu mikið m. a. hér í nágrenninu. Það er gaman að sjá skófluna vinna. Hún er að vísu, nokkuð hávær en afköst henn- ar eru svo mikil að gengur næst göldrum, og ekki munu mjög mörg ár síðan, að menn fóru fyrst að dreyma um slíkt tæki. Á skömmum tíma vinnur hún verk er tæki marga menn langan tíma að leysa af höndum. Fyrir henni stendst ekkert nema klöpp eða stórir klettar. Því miður er skóflan nú farin. Svona verk- færi ætti að vera til hér í hreppnum. Það gæti losað margann við sigg úr lófa og verk úr baki. Auk þess flýtir hún mjög fyrir framkvæmdum og er sennilega mikið hag- kvæmnari frá fjárhagslegu sjónarmiði og nauðsynlegri vegna skorts á vinnuafli. J. T. Hraðskákmótinu lokið. — Skákmótið byrjað. Lokið er haust-hraðskákmóti Skákfélags Keflavíkur. Leikar fóru þannig að í I. fl. vann Jón Tómasson með 3 vinningum, tap- aði einni skák. I II. fl. a. vann Gunnar Sigurjónsson með 4 vinningum, tapaði engri skák. í II. fl. b. vann Gestur Auðunsson með 7% vinning, tapaði (eitt jafntefli). Sunnudaginn 4. þ. m.: hófst aðal skák- mót félagsins og stendur það nú yfir. Fimmtugsafmæli. Frú Severína Högnadóttir, Vallargötu 22 á fimmtugsafmæli 11. þ. m. Sjúkrahúsið. Heilbrigðismálaráðuneytið hefur nú stað- fest samning þann, er hreppsnefndir Kefla- F AXI Blaðstjórn skipa: Hallgr. Th. Bjömsson, Jón Tómasson, Ragnar Guðleifsson. Blaðstjórn ber ábyrgð á blaðinu og annast ritstjóm þess. Af greiðslumaður: Ragnar Guðleifsson. Verð blaðsins í lausasölu kr. 2,00. Faxi fæst í Bókabúð KRON, Reykja- vík, og verzlun Valdimars Long, Hafnarfirði. Alþýðuprentsmiðjan bi. Kaup vcrkamanna í Keflavík og Njarð- vikum frá 1.—30. nóv. 1945. (Vísitalan 285). Almenn vinna. (Grunnkaup kr. 2,40.) Dagvinna .................. kr. 6.84 Eftirvinna .................. — 10.26 Nætur- og helgidagavinna .. — 13.68 Skipavinna. Utskipun á nýjum fiski. (Grunnkaup kr. 2,65.) Dagvinna ................... kr. 7.55 Eftirvinna .................. — 11.33 ætur- og helgidagavinna .. — 15.11 Skipavinna o. fl. Upp- og útskipun á kolum, salti og sementi. Kolavinna og sementsinna, hleðsla þess í pakkhúsi og samfelld vinna við afhendingu þess. (Grunnkaup kr. 2,80.) agvinna ................. kr. 7.98 Eftirvinna ................ ... 11.97 ætur- og helgidagavinna .. — 15.96 Trygging á síldveiðum Grunntr. á mán. Til háseta .... 400,00 í nóv. kr. 1140.00 il 1. vélstjóra 550,00 — — 1567,50 Til 2. vélstjóra 450,00 — — 1282,00 Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur. víkur, Njarðvíkur og Hafna gerðu með sér og undirrituðu 9. ágúst s. 1., um byggingu og rekstur sjúkrahússins í Keflavík. Virðist nú liggja næst fyrir að leita eftir láni til byggingarinnar og hefja síðan framkvæmdir að nýju. Er þess nú að vænta, að þeir hreppar, sem hér eiga hlut að máh og enn þá hafa ekkert lagt af mörkum til sjúkrahússbyggingarinn- ar, taki nú höndum saman við áðurnefnda hreppa um að hrinda þessu heilbrigðis- og menningarmáli Suðurnesja í framkvæmd.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.